11 desember 2025
/
Mál nr. 647/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 647/2025
Fimmtudaginn 11. desember 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 7. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 30. janúar 2025 og var umsóknin samþykkt 4. mars 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki uppfyllt mætingarskyldu á námskeið.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. október 2025. Með bréfi, dags. 9. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að honum hafi verið refsað fyrir það að missa af tveimur dögum af námskeiði Vinnumálastofnunar. Að sögn kæranda hafi hann verið veikur eftir gallblöðru aðgerð annan daginn og með mikla verki. Hinn daginn hafi hann verið í atvinnuviðtali og sé í því starfi núna.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 30. janúar 2025. Með erindi, dags. 4. mars 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Með tilkynningu, dags. 28. ágúst 2025, hafi kærandi verið boðaður á námskeið hjá Vinnumálastofnun dagana 2., 5., 9. og 12. september 2025. Kæranda hafi verið tilkynnt að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll bæri að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynni að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi mætt dagana 2. og 5. september 2025.
Kærandi hafi sent tölvupóst þann 10. september þar sem segi svo: „Ég þarf að afsaka mig frá því að fara í tímann í dag vegna gallblöðruverkja.“ Með tölvupóstinum hafi fylgt skjáskot af samtali kæranda við heilbrigðisstarfsmann í lok ágúst 2025. Innihald samskiptanna hafi verið tilkynning til kæranda að gallsteinar hefðu sést í gallblöðru sem mögulega gæti skýrt „einkenni“ kæranda. Í skilaboðunum hafi komið fram að kærandi myndi heyra frá Landspítalanum síðar en að það gæti tekið nokkurn tíma.
Þann 15. september 2025 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda, auk læknisvottorðs. Kærandi hafi ekki skilað frekari gögnum vegna þessa.
Með erindi, dags. 6. október 2025, hafi kærandi verið upplýstur um að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki uppfyllt mætingarskyldu á námskeiðið.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. október 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 7. október 2025. Skýringar kæranda samhliða kæru séu þær að fyrri daginn hafi hann farið í aðgerð vegna gallsteina og þann seinni hafi hann verið í atvinnuviðtali.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Samkvæmt a. lið 13. gr. og [h. lið] 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist m.a. að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standa til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svo hljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði um mætingu á námskeið sem Vinnumálastofnun hafði boðað hann til. Hin kærða ákvörðun, dags. 6. október 2025, hafi varðað viðurlög sem kæranda hafi verið gert að sæta á grundvelli 1. mgr. 58 gr. laganna. Kærandi hafi ekki brugðist við beiðni Vinnumálastofnunar um skýringar á fjarveru eða frekari gögnum og stofnunin hafi því haft þann eina kost að taka ákvörðun út frá fyrirliggjandi gögnum.
Óvinnufærni kæranda vegna veikinda hafi ekki verið tilkynnt til stofnunarinnar fyrr en rétt áður en síðasta kennsla námskeiðsins hafi átt að fara fram. Hann hafi þá þegar ekki mætt í eitt skipti af fjórum og því ekki náð fullnægjandi mætingu á námskeið á vegum stofnunarinnar. Að endingu hafi kærandi einungis mætt í tvö skipti af fjórum. Af skjáskoti sem kærandi hafi sent 10. september 2025 verði ekki ráðið að hann hafi verið óvinnufær á þeim tíma sem námskeið hafi verið haldið. Beiðni Vinnumálastofnunar um gögn þess efnis hafi ekki verið svarað.
Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum sínum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa hvorki uppfyllt skilyrði um mætingu né tilkynnt um forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum frá 6. október 2025.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 28. ágúst 2025 boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem haldið var í fjögur skipti dagana 2., 5., 9. og 12. september 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða í öll fjögur skiptin og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að fjarvera gæti valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst. Fyrir liggur að kærandi mætti í tvö skipti af fjórum eða dagana 2. og 5. september 2025. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi verið veikur í eitt skipti og í atvinnuviðtali seinna skiptið. Af gögnum málsins má ráða að kærandi hafi ekki mætt á námskeiðið 9. september 2025 vegna veikinda en tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindin daginn eftir, eða 10. september 2025. Engin tilkynning liggur fyrir um að kærandi væri að fara í atvinnuviðtal.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að mætingarskylda væri í öll fjögur skipti námskeiðsins. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðað námskeið á vegum Vinnumálastofnunar.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir