11 desember 2025

/

Mál nr. 650/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 650/2025

Fimmtudaginn 11. desember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 13. júní 2025 og var umsóknin samþykkt 16. júlí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 574.127 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. október 2025. Með bréfi, dags. 9. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Frekari gögn bárust frá kæranda 4. og 7. nóvember 2025. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi á tímabilinu september til október 2024 verið ófær um að vinna og verið að kljást við heilsufarsvandamál sem hefðu komið í veg fyrir að hann hafi getað uppfyllt tilkynningarskyldu sína. Það sé staðfest með læknisvottorði, dags. 9 október 2024, sem staðfesti óvinnufærni hans frá 2. september 2024 til 2. október 2024 og 3. október 2024 til 30. október 2024. Samkvæmt 59. gr. laga nr. 54/2006 hafi slíkar mildandi aðstæður átt að koma í veg fyrir óhóflegar refsingar. Að sögn kæranda hafi svipuð mál fyrir úrskurðarnefndinni, eins og mál nr. 128/2023, leitt til þess að frestun starfsloka hefði verið afturkölluð að hluta eða öllu leyti þegar heilsufarsvottorð hafi verið lögð fram.

Kærandi tekur fram að hann hafi verið í góðri trú og þegar hafið endurgreiðslu meintra skulda sjálfviljugur sem sýni fram á samstarfsvilja. Meðfylgjandi greiðsluyfirlit frá sýslumanni, dags. 6. október 2025, staðfesti að kærandi hafi þegar greitt 483.774 kr. Þetta frumkvæði réttlæti mildun, þar á meðal niðurfellingu 15% álags og sveigjanlegri greiðsluskilmála.

Kærandi bendir á að þrátt fyrir heilsufarsvandamál hans hafi hann haldið áfram virkri atvinnuleit eftir þörfum og staðfest atvinnuleit í gegnum „Mínar síður“ á vef Vinnumálastofnunar milli 20. til 25. hvers mánaðar. Með stöðvun sé verið að vanrækja þessa eftirfylgni og gæti það aukið fjárhagserfiðleika hans. Ákvarðanir Vinnumálastofnunar hafi ekki tekið nægilegt tillit til þessara þátta sem leiði til ósanngjarnrar niðurstöðu. Kærandi óski eftir endurskoðun til að tryggja meðalhóf samkvæmt íslenskum lögum. Hann óski í fyrsta lagi eftir tafarlausri stöðvun tveggja mánaða frestunar atvinnuleysisbóta og endurreisn greiðslna. Í öðru lagi eftir niðurfellingu eða lækkun á 15% álagi á ofgreiðslu. Í þriðja lagi samþykki á greiðsluáætlun fyrir eftirstandandi skuldir að hámarki 50.000 kr. á mánuði miðað við heilsufar hans og tekjustöðu. Í fjórða lagi málflutning til að leggja fram frekari sönnunargögn, ef nauðsyn krefji.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn 13. júní 2025. Með erindi, dags. 16. júlí 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í september 2025 hafi kæranda verið sent erindi, dags. 12. september 2025, þar sem honum hafi verið gefinn kostur á að skýra launagreiðslur frá janúar, ágúst, september og október 2024. Kærandi hafi ekki tilkynnt um tekjur sínar til Vinnumálastofnunar. Auk skýringa hafi kærandi verið beðinn um að skila gögnum vegna þessara launagreiðslna, t.a.m. launaseðlum. Umbeðnir launaseðlar hafi borist 16. september 2025 en kærandi hafi ekki veitt frekari skýringar.

Þann 30. september 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði ekki upplýst stofnunina um tilfallandi vinnu væri greiðslum frestað í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Þá hafi kæranda verið gert að endurgreiða atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem launagreiðslur hefðu varðað. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hafi hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð [499.241] kr. sem innheimtar yrðu með álagi. Heildarskuld kæranda vegna ákvörðunar stofnunarinnar næmi því [574.127] kr.

Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 7. október 2025. Kærandi geri kröfu um að biðtími og álag verði fellt niður auk þess að endurgreiðsla fari fram með samningi um greiðsluáætlun milli hans og Vinnumálastofnunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum bóta og að honum beri að endurgreiða hluta þeirra atvinnuleysisbóta sem hann hafi fengið greiddar á árinu 2024.

Mál þetta varði í fyrsta lagi almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum, sbr. III. kafli laga um atvinnuleysistryggingar. Í 13. gr. laganna segi að eitt helsta skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamann sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Nánari skilgreiningu á hugtakinu „virk atvinnuleit“ sé að finna í 14. gr. laganna. Í því ákvæði komi fram að sá teljist í virkri atvinnuleit sem meðal annars hafi frumkvæði að starfsleit, sé reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, sé reiðubúinn að taka starfi óháð starfshlutfalli og eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit nema 17. eða 22. gr. laganna eigi við. Þá sé tilgreint í 2. mgr. 14. gr. að það beri að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafa.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun að fyrra bragði um tilfallandi störf eða tekjur á árinu 2024. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar sé að finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“.

Kærandi hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta frá 8. janúar 2024 til 9. mars 2025. Kærandi hafi tilkynnt um tilfallandi vinnu í apríl, maí, júní og júlí 2024. Engar aðrar tilkynningar hafi borist. Greiðslur hafi verið leiðréttar samhliða hverri tilkynningu og/eða upplýsingum frá RSK um rauntekjur kæranda í hverjum mánuði.

Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýstur um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hans. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hefði mátt vera fullljóst að honum bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hann hafi aflað sér. Þrátt fyrir að kærandi hafi uppfyllt það skilyrði að hluta þá mánuði sem greiðslur hefðu staðið yfir eigi undanþáguákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna ekki við og telji Vinnumálastofnun ástæðu til þess að innheimta með álagi þá ofgreiðslu sem hafi myndast vegna þeirra mánaða sem kærandi hafi ekki tilkynnt um tekjur og/eða vinnu.

Með umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, dags. 8. janúar 2024, hafi komið fram að kærandi hefði verið í tímabundinni ráðningu. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt með það fyrir augum og honum hafi verið greiddar óskertar atvinnuleysisbætur frá umsóknardegi.

Í janúar 2024 hafi tekjur kæranda verið skráðar sem uppgjör vegna starfsloka og því hafi þær tekjur ekki komið til skerðingar á atvinnuleysisbótum kæranda. Í ágúst 2024 hafi ekki verið upplýst um tekjur kæranda frá B að fjárhæð 337.668 kr., né tekjur í september að fjárhæð 286.329 kr. og í október að fjárhæð 685.379 kr.

Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna skuli sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Hann skuli jafnframt endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Kæranda beri að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki upplýst um tilfallandi vinnu og tekjur í ágúst, september og október 2024.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji fullt tilefni til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi, enda hafi kærandi ekki fært rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til ofgreiðslu atvinnuleysistrygginga.

Skuld kæranda við Vinnumálastofnun sé í dag samtals að fjárhæð 558.350 kr., að meðtöldu álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna og beri kæranda að endurgreiða þá upphæð.

Rétt sé að benda á að uppsöfnuð skerðing á atvinnuleysisbótum kæranda nemi hærri fjárhæðum á árinu 2024 en framangreind heildarskuld sökum þess að tekjuáætlun kæranda í apríl, maí, júní og júlí 2024 hafi ávallt verið lægri en rauntekjur hans frá B.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið í máli kæranda og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar og sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum frá ákvörðunardegi.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í ágúst, september og október 2024 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2025.

Þann 8. janúar 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um tekjur sínar frá B fyrir ágúst, september og október 2024. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 574.127 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hann fékk greiddar á tímabilinu ágúst til október 2024 fékk hann hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreinda mánuði og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2025, staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir