12 desember 2025

/

Mál nr. 591/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 591/2025

Föstudaginn 12. desember 2025

 

 

A

 

gegn

 

umboðsmanni skuldara

 

 

ÚRSKURÐUR

 

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Þann 17. september 2025 barst úrskurðarnefnd velferðarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara, dags. 9. september 2025, um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta.

 

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi er fædd árið X. Heildarskuldir kæranda samkvæmt yfirliti umboðsmanns skuldara, dags. 27. ágúst 2025, eru 6.005.179 krónur.

 

Þann 26. ágúst 2025 óskaði kærandi eftir fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta, sbr. lög nr. 9/2014. Með bréfi umboðsmanns skuldara, dags. 28. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt mat embættisins að kærandi ætti möguleika á að finna lausn á fjárhagsvanda sínum með vægari úrræði en gjaldþrotaskiptum, t.d. með greiðsluaðlögun einstaklinga. Var kæranda veittur frestur til að bregðast við bréfi umboðsmanns með skýringum og gögnum. Engin svör bárust frá kæranda.

 

Með ákvörðun 9. september 2025 var umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð synjað með vísan til c-liðar 1. mgr. 3. gr. laga nr. 9/2014 um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta.

 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 17. september 2025. Með bréfi, dags. 12. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð umboðsmanns skuldara. Greinargerð umboðsmanns skuldara barst með bréfi, dags. 18. nóvember 2025 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 18. nóvember 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

 

Kærandi gerir ekki sérstakar kröfur í málinu en skilja verður kæru hennar svo að þess sé krafist að ákvörðun umboðsmanns skuldara um niðurfellingu á heimild til greiðsluaðlögunar verði felld úr gildi.

 

Kærandi kveðst vera öryrki með þrjú langveik börn og sé að leið erlendis með elsta barnið sitt í 16. skiptið í aðgerð nr. 37. Kærandi hafi leitað til umboðsmanns skuldara en fengið neitun um að fella niður skuldir. Kærandi kveðst þurfa aðstoð.

 

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Umboðsmaður skuldara fer fram á að ákvörðun um að synja kæranda um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta verði staðfest.

Í hinni kærðu ákvörðun segir:

„Umsækjanda var sent ábyrgðarbréf, dags. 28. ágúst sl. og var í bréfinu gerð grein fyrir mikilvægi þess að skýra þar til greind álitaefni og leggja fram gögn. Afrit af bréfinu var jafnframt sent umsækjanda í tölvupósti þann sama dag. Telur embættið sig hafa veitt umsækjanda færi á að andmæla fyrirsjáanlegri synjun umsóknar um fjárhagsaðstoð til greiðslu skiptatryggingar vegna gjaldþrotaskipta, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, með greindu ábyrgðarbréfí og tölvupósti. Í ljósi þess að engin svör eða gögn bárust frá umsækjanda þarf embættið að taka ákvörðun á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga. Er það mat embættisins að synja beri umsókninni á grundvelli c-liðar 1. mgr. 3.gr. laga um fjárhagaðstoð til greiðslu skiptatryggingar vegna gjaldþrotaskipta, sbr. það sem rakið er í framangreindu bréfi sem umsækjanda var sent. Bréfið og fyrirliggjandi gögn fylgja ákvörðun þessari.“

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á c-lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 9/2014 um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta.

 

Í ákvæðinu segir að fjárhagsaðstoð samkvæmt lögunum skuli aðeins veitt ef önnur greiðsluvandaúrræði hafa verið reynd eða umboðsmaður skuldara metur það svo að önnur greiðsluvandaúrræði séu ekki til þess fallin að leysa greiðsluvanda umsækjanda.

 

Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laganna segir að meginreglan sé ávallt sú að líta á gjaldþrot sem neyðarúrræði til að leysa greiðsluvanda fólks og því þykir mikilvægt að áður en heimilt sé að veita fjárhagsaðstoð sé það fullreynt, eða að það sé mat umboðsmanns skuldara, að önnur vægari greiðsluvandaúrræði komi ekki til með að gagnast skuldara til að standa við skuldbindingar þær sem hann hefur gengist undir.

 

Samkvæmt gögnum málsins eru heildarskuldir kæranda 6.005.179 kr. og eignir 2.105.619 kr. Tekjur kæranda til framfærslu eru 897.276 kr. og útgjöld til framfærslu eru talinn vera 805.231 kr. Greiðslugeta kæranda af skuldum er því mánaðarlega 92.045 kr.

 

Með vísan framangreinds er tekið undir mat umboðsmanns skuldara um að önnur úrræði eins og greiðsluaðlögun væru til þess fallin að leysa úr vanda kæranda. Ákvörðun umboðsmanns skuldara er samkvæmt því staðfest.

 


 

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja A, um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson