18 desember 2025
/
1329/2025. Úrskurður frá 18. desember 2025
Hinn 18. desember 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1329/2025 í máli ÚNU 24090002.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 26. ágúst 2024, kærði […] synjun Seðlabanka Íslands á beiðni hans um aðgang að gögnum.
Með erindi til Seðlabanka Íslands, dags. 9. júlí 2024, óskaði kærandi eftir afritum af:
- öllum samskiptum Seðlabanka Íslands við slitastjórn F fasteignafélags ehf.,
- fundargerðum hluthafafunda félagsins,
- umboðum sem bankinn hafði veitt til setu á lögskyldum og ólögskyldum hluthafafundum,
- framsali eigna félagsins til Seðlabankans við slitalok félagsins,
- skjölum sem F fasteignafélag ehf. hefur látið bankanum í té.
Kærandi tiltók að hann óskaði afritanna hvort sem þau væru varðveitt í skjalakerfi bankans eða annars staðar. Með erindi, dags. 21. ágúst 2024, afhenti Seðlabankinn kæranda þau gögn sem heimilt teldist að afhenda. Synjað var um afhendingu annarra gagna í málaskrárkerfi bankans með vísan til 1. mgr. 41. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Gögnin sem kæranda voru afhent eru:
- Tilkynning til fyrirtækjaskrár um lækkun hlutafjár í F fasteignafélagi ehf., dags. 20. desember 2021.
- Skýrsla stjórnar á hluthafafundi F fasteignafélags ehf., dags. 20. desember 2021.
- Yfirlýsing stjórnar samkvæmt 3. mgr. 36. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, dags. 20. desember 2021.
- Fundargerð hluthafafundar F fasteignafélags ehf., dags. 20. desember 2021.
- Samþykktir F fasteignafélags ehf., dags. 20. desember 2021.
- Tilkynning til fyrirtækjaskrár um lækkun hlutafjár í F fasteignafélagi ehf., dags. 28. desember 2022.
- Skýrsla stjórnar á hluthafafundi F fasteignafélags ehf., dags. 28. desember 2022.
- Yfirlýsing stjórnar samkvæmt 3. mgr. 36. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, dags. 28. desember 2022.
- Fundargerð hluthafafundar F fasteignafélags ehf., dags. 28. desember 2022.
- Samþykktir F fasteignafélags ehf., dags. 28. desember 2022.
- Yfirlýsing endurskoðanda samkvæmt 3. mgr. 36. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, dags. 9. janúar 2023.
- Umsögn endurskoðanda samkvæmt 2. mgr. 34. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, dags. 9. janúar 2023.
- Beiðni skilanefndar F fasteignafélags ehf. til hlutafélagaskrár/fyrirtækjaskrár um löggildingu Ástríðar Gísladóttur hrl. á starfa hennar í skilanefndinni, dags. 29. mars 2023.
- Ársreikningur F fasteignafélags hf. fyrir rekstrarárið 2023.
- Lokareikningur F fasteignafélags ehf., dags. 5. apríl 2024.
- Úthlutunargerð vegna slita á F fasteignafélagi ehf., dags. 5. apríl 2024.
- Fundargerð hluthafafundar F fasteignafélags ehf. samkvæmt 4. mgr. 89. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, dags. 5. apríl 2024.
- Afsal, frá F fasteignafélagi ehf. til Seðlabanka Íslands, á fasteigninni Akralandi, 270 Mosfellsbæ, fasteignanúmer F233-0796 og landeignanúmer L208284, dags. 5. apríl 2024.
- Afsal, frá F fasteignafélagi ehf. til Seðlabanka Íslands, á fasteigninni Skemmuvegi 38, 200 Kópavogi, fasteignanúmer F206-4911, dags. 5. apríl 2024.
- Tilkynning skilanefndar til fyrirtækjaskrár um lok starfa vegna F fasteignafélags ehf., dags. 5. apríl 2024.
Í kæru kemur fram að kærandi telji þagnarskylduákvæði laga um Seðlabanka Íslands ekki eiga við um gögnin sem aðgangur hans var takmarkaður að; þau varði hvorki málefni bankans sjálfs né viðskiptamanna bankans þar sem F fasteignafélag ehf. hafi ekki verið viðskiptamaður bankans og auk þess sjálfstæður lögaðili. Auk þess hafi félaginu hafi verið slitið og umbeðin gögn hafi því átt að afhenda Þjóðskjalasafni Íslands, sbr. 14. gr. laga um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Seðlabanka Íslands með erindi, dags. 4. september 2024, og bankanum gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Seðlabankinn afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn Seðlabanka Íslands barst úrskurðarnefndinni með erindi, dags. 3. október 2024. Í umsögninni kemur fram að bankinn telji ljóst að gögnin sem synjað var um aðgang að varði málefni bankans sjálfs í skilningi 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019. Samningur við F fasteignafélag ehf. um ráðstöfun á verðmætum hafi að geyma umfangsmiklar upplýsingar um fjárhagsleg málefni bankans, fjárhagslegar ráðstafanir Seðlabankans, beinar ákvarðanir sem varði starfsemi hans og dótturfélags hans og margvíslegar aðrar upplýsingar sem telja megi eðlilegt að leynt fari með hliðsjón af hagsmunum Seðlabankans.
Að því er varði þá tölvupósta og tölvupóstsamskipti sem synjað var um aðgang að, þá sé annars vegar um að ræða innanhússamskipti um fyrirkomulag undirritana gagna vegna slita F fasteignafélags ehf. fyrir hönd Seðlabankans og skjalavistunar þeirra gagna. Hins vegar sé þar um að ræða samskipti við skilanefnd F fasteignafélags ehf., þ.e. tölvupóstsamskipti vegna undirbúnings slita F fasteignafélags ehf. og tölvupóstur þar sem undirrituð gögn vegna slitanna voru afhent Seðlabankanum til að bankinn gæti vistað þau í kerfum sínum. Gögnin í viðhengi með síðarnefndum tölvupósti hafi verið afhent kæranda í svari Seðlabankans, dags. 21. ágúst 2024. Viðhengi í fyrrnefndum tölvupósti hafi verið drög að þeim skjölum. Þar sé því um að ræða ófrágengin gögn sem teljist til vinnugagna, sbr. 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Að því er varði tölvupóstsamskipti innanhúss um skjalavistun gagna sé þar einnig um að ræða vinnugögn, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 8. gr. sömu laga. Til viðbótar við að falla undir trúnaðarskyldu samkvæmt 41. gr. laga nr. 92/2019 séu framangreind gögn þannig jafnframt undanþegin upplýsingarétti almennings á grundvelli 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Seðlabankinn telji engin rök standa til annars en að telja samskipti Seðlabankans við F fasteignafélag ehf. vera upplýsingar um málefni bankans sjálfs. Þótt um sé að ræða einkahlutafélag, sem Seðlabankinn hafi haft fullar heimildir til að eiga og stofna, sbr. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 92/2019, sbr. og 1. mgr. 17. gr. laga nr. 36/2001, þá hafi félagið, og fleiri slík, alfarið verið í eigu Seðlabankans. Tilgangur þess og tengdra félaga hafi verið að fara með eignarhald á kröfum og fullnustueignum Seðlabankans vegna fjármálaáfallsins 2008 sem ekki hafi fallið undir reglulega starfsemi bankans, vinna úr eignunum með það að markmiði að hámarka virði þeirra og koma þeim í verð. Að líta svo á að trúnaðarskyldur varðandi þau samskipti falli utan 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019, á þeim forsendum að um sé að ræða sjálfstæðan lögaðila með engin tengsl við bankann, sé að mati Seðlabankans órökrétt ályktun.
Upplýsingar þær sem kærandi óskar eftir séu því að mati Seðlabankans þess eðlis að þær varði málefni bankans sjálfs samkvæmt 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019, og skuli jafnframt fara leynt samkvæmt eðli máls, sbr. orðalag í sömu lagagrein.
Umsögn Seðlabanka Íslands var kynnt kæranda með erindi, dags. 9. október 2024, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki. Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
1.
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslu Seðlabanka Íslands sem varða F fasteignafélag ehf. Með hinni kærðu ákvörðun voru kæranda afhent tiltekin gögn sem heyrðu undir beiðni hans, en aðgangur hans takmarkaður að öðrum með vísan til þess að þau hefðu að geyma upplýsingar sem þagnarskylda ætti að ríkja um. Í umsögn til úrskurðarnefndarinnar er vísað til þess að upplýsingar í gögnunum varði málefni bankans sjálfs í skilningi þagnarskylduákvæðis laga um Seðlabanka Íslands og að þær skuli jafnframt fara leynt samkvæmt eðli máls. Þá teljist hluti þeirra gagna sem aðgangur var takmarkaður að vera vinnugögn í skilningi upplýsingalaga.
Gögnin sem Seðlabanki Íslands afhenti úrskurðarnefndinni í trúnaði eru eftirfarandi:
- Samningur milli F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands um ráðstöfun á mögulegum verðmætum sem voru í eigu hins fyrrnefnda til hins síðarnefnda, dags. 2. apríl 2024 (undirritaður af F fasteignafélagi ehf. og Seðlabanka Íslands).
- Tölvupóstur frá skilanefnd F fasteignafélags ehf. til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands, dags. 4. apríl 2024. Eftirfarandi skjöl eru í viðhengi:
- Tilkynning skilanefndar F fasteignafélags ehf. til fyrirtækjaskrár um lok slita (óundirrituð drög).
- Samningur milli F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands um ráðstöfun á mögulegum verðmætum sem voru í eigu hins fyrrnefnda til hins síðarnefnda (óundirrituð drög).
- Fundargerð skilanefndar F fasteignafélags ehf. um slitin (óundirrituð drög).
- Úthlutunargerð vegna slita á F fasteignafélagi ehf. (óundirrituð drög).
- Afsal að Skemmuvegi 38, Kópavogi (óundirrituð drög).
- Afsal að Akralandi, Mosfellsbæ (óundirrituð drög).
- Ársreikningur F fasteignafélags ehf. árið 2023 (undirritaður af skilanefnd F fasteignafélags ehf.).
- Tölvupóstur frá framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands til skilanefndar F fasteignafélags ehf., dags. 5. apríl 2024.
- Tölvupóstur frá skilanefnd F fasteignafélags ehf. til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands, dags. 5. apríl 2024. Eftirfarandi skjal er í viðhengi:
- Lokareikningur vegna slita F fasteignafélags ehf. (óundirrituð drög).
- Tölvupóstur frá framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra til seðlabankastjóra, dags. 5. apríl 2024, þar sem óskað er eftir umboði. Eftirfarandi skjöl eru í viðhengi:
- Sömu skjöl og talin eru upp í 2.1–2.7, nema fundargerð samkvæmt 2.3.
- Tölvupóstur frá seðlabankastjóra til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra, dags. 5. apríl 2024, þar sem umboð er veitt.
- Tölvupóstur frá skilanefnd F fasteignafélags ehf. til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands, dags. 6. apríl 2024. Eftirfarandi skjöl eru í viðhengi:
- Tilkynning skilanefndar F fasteignafélags ehf. til fyrirtækjaskrár um lok slita (undirrituð af skilanefnd F fasteignafélags ehf.).
- Fundargerð skilanefndar F fasteignafélags ehf. um slitin (undirrituð af skilanefnd F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands).
- Úthlutunargerð vegna slita á F fasteignafélagi ehf. (undirrituð af skilanefnd F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands).
- Afsal að Skemmuvegi 38, Kópavogi (undirritað af skilanefnd F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands).
- Afsal að Akralandi, Mosfellsbæ (undirritað af skilanefnd F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands).
- Ársreikningur F fasteignafélags ehf. árið 2023 (undirritaður af skilanefnd F fasteignafélags ehf.; sama skjal og í 2.7).
- Lokareikningur vegna slita F fasteignafélags ehf. (undirritaður af skilanefnd F fasteignafélags ehf.).
- Tölvupóstur milli starfsmanna Seðlabanka Íslands, dags. 14. maí 2024 klukkan 14:32, um vistun gagna í málaskrárkerfi Seðlabankans vegna slita F fasteignafélags ehf. Eftirfarandi skjöl eru í viðhengi:
- Sömu skjöl og talin eru upp í 7.1–7.7.
- Tölvupóstur milli starfsmanna Seðlabanka Íslands, dags. 14. maí 2024 klukkan 16:09, um vistun gagna í málaskrárkerfi Seðlabankans vegna slita F fasteignafélags ehf. Eftirfarandi skjöl eru í viðhengi:
- Sömu skjöl og talin eru upp í 7.1–7.7.
Ljóst er að gögn sem talin eru upp í 7.1–7.7 voru afhent kæranda með hinni kærðu ákvörðun. Því verður í úrskurðinum ekki tekin afstaða til réttar kæranda til aðgangs að þeim.
2.
Í umsögn Seðlabankans til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að tölvupóstsamskipti sem aðgangur kæranda var takmarkaður að teljist vera vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Samkvæmt 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, nær réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til vinnugagna. Hugtakið vinnugagn er skilgreint í 1. mgr. 8. gr. laganna en samkvæmt ákvæðinu eru vinnugögn þau gögn sem stjórnvöld eða lögaðilar hafa ritað eða útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Þá er tekið fram að gögn teljist ekki lengur til vinnugagna hafi þau verið afhent öðrum, nema afhending hafi verið til eftirlitsaðila á grundvelli lagaskyldu. Ákvæði 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. laganna, felur í sér undantekningu frá meginreglunni um rétt almennings til aðgangs að gögnum sem skýra ber þröngt.
Það er mat úrskurðarnefndarinnar að tölvupóstar sem fóru á milli skilanefndar F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands, sbr. 2.–4. og 7. tölulið að framan, teljist ekki uppfylla skilyrði þess að vera vinnugögn í skilningi upplýsingalaga einkum af þeirri ástæðu að gögnin teljast hafa verið afhent öðrum í skilningi 2. málsl. 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga. Hið sama á við um viðhengi við tölvupóst samkvæmt 2. tölulið og þar af leiðandi viðhengi við tölvupóst samkvæmt 5. tölulið, enda hefur hann að geyma sömu viðhengi og tölvupóstur samkvæmt 2. tölulið.
Tölvupóstar í 5. og 6. tölulið eru samskipti um veitingu umboðs til að undirrita gögn í tengslum við slit F fasteignafélags ehf. Tölvupóstar í 8. og 9. tölulið eru samskipti um tilhögun vistunar gagna um slit F fasteignafélags ehf. í málaskrárkerfi Seðlabankans. Í athugasemdum við 8. gr. með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur eftirfarandi fram um einkenni vinnugagna:
Stjórnvöldum er að lögum falið að taka ýmsar matskenndar ákvarðanir og móta tillögur um áætlanir eða aðrar aðgerðir. Þá getur verið að stjórnvöld þurfi að undirbúa ýmsar aðrar ákvarðanir, svo sem um samninga við einkaaðila. Oft geyma lög ekki að öllu leyti þau skilyrði sem þarf að fullnægja svo slíkar ákvarðanir verði teknar, eða þau sjónarmið eða markmið sem að skal stefnt. Þegar stjórnvöld standa frammi fyrir slíkum verkefnum verða þau iðulega að vega og meta ólík sjónarmið og velja svo á hvaða grundvelli úr máli skuli leyst. Af því leiðir að það tekur einatt einhvern tíma að móta afstöðu til fyrirliggjandi mála og á því tímabili kunna ólík sjónarmið að hafa mismunandi vægi og breytast, t.d. ef fram koma nýjar upplýsingar. Gögn sem til verða í slíku ferli þurfa ekki að endurspegla réttilega að hvaða niðurstöðu er stefnt. Eðlilegt er því að stjórnvöldum sé heimilt að hafna aðgangi að þeim þótt stjórnvöldum sé einnig á grundvelli reglunnar um aukinn aðgang að gögnum heimilt að afhenda slík gögn, standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi. […]
Úrskurðarnefndin telur að framangreindir fjórir tölvupóstar uppfylli ekki skilyrði vinnugagnahugtaksins að vera undirbúningsgögn í reynd. Þeir innihalda engar upplýsingar þar sem ólík sjónarmið eru vegin og metin og bera ekki með sér að hafa orðið til vegna mótunar afstöðu til fyrirliggjandi máls, sbr. tilvísaðar athugasemdir að framan. Því er ljóst að engin þeirra tölvupóstsamskipta sem kæranda var synjað um aðgang að, þ.e. í 2.–9. tölulið að framan, uppfylla skilyrði þess að vera vinnugögn í skilningi upplýsingalaga.
3.
Seðlabankinn vísar að öðru leyti til þess að gögnin sem aðgangur var takmarkaður að innihaldi upplýsingar sem varði málefni bankans sjálfs og séu háðar sérstakri þagnarskyldu samkvæmt lögum um bankann.
Í 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga kemur fram að almenn ákvæði laga um þagnarskyldu takmarki ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt lögunum. Andspænis slíkum ákvæðum eru sérstök þagnarskylduákvæði þar sem upplýsingar þær, sem þagnarskyldan tekur til, eru sérgreindar. Með gagnályktun frá 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga hefur verið á því byggt að sérstök þagnarskylduákvæði geti takmarkað rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt upplýsingalögum. Það fer eftir efni og orðalagi viðkomandi ákvæðis hvernig það verður skýrt og samræmt ákvæðum upplýsingalaga, sbr. athugasemdir í frumvarpi því sem varð að gildandi upplýsingalögum.
Í 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019 segir eftirfarandi:
Bankaráðsmenn, seðlabankastjóri, varaseðlabankastjórar, nefndarmenn í peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd og aðrir starfsmenn Seðlabanka Íslands eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans, viðskipti og rekstur eftirlitsskyldra aðila, tengdra aðila eða annarra og málefni bankans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða til lögreglu eða skylt sé að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Sama gildir um sérfræðinga, verktaka og aðra sem starfa fyrir eða á vegum bankans. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur lagt til grundvallar að ákvæðið feli í sér sérstaka þagnarskyldu um upplýsingar um hagi viðskiptamanna bankans, viðskipti og rekstur eftirlitsskyldra aðila, tengdra aðila eða annarra og málefni bankans sjálfs, sem gangi framar rétti til aðgangs að gögnum samkvæmt upplýsingalögum, sbr. úrskurð nefndarinnar nr. 1226/2024 og þá úrskurði sem þar er vísað til. Þá hefur verið lagt til grundvallar í dómum Hæstaréttar Íslands í málum nr. 329/2014 og 263/2015 að efnislega sambærilegt ákvæði í 1. mgr. 35. gr. þágildandi laga um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, hafi innihaldið sérstaka þagnarskyldu.
4.
Seðlabanki Íslands lítur svo á að upplýsingar í gögnunum sem synjað var um aðgang að teljist í heild sinni varða málefni bankans sjálfs í skilningi 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019 og skuli af þeim sökum fara leynt.
Ekki er unnt að líta svo á að hvaðeina sem tengist Seðlabankanum með einum eða öðrum hætti falli undir 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019. Að því er varðar orðalag ákvæðisins um „málefni bankans sjálfs“ hefur úrskurðarnefndin lagt til grundvallar að undir orðalagið kunni að falla upplýsingar um fjárhagsleg málefni eða fjárhagslegar ráðstafanir bankans, um beinar ákvarðanir sem varða starfsemi hans eða undirbúning þeirra og eftir atvikum aðrar upplýsingar sem af tilliti til hagsmuna bankans sjálfs megi telja eðlilegt að leynt fari, sbr. úrskurði nefndarinnar nr. A-406/2013, 558/2014 og 1133/2023. Þá er það mat nefndarinnar að slíkar upplýsingar verði að tengjast viðfangsefnum sem samrýmast sérstaklega hlutverki og starfsemi Seðlabankans sem seðlabanka samkvæmt lögum um bankann. Um önnur viðfangsefni Seðlabankans, sem eiga jafnt við um starfsemi allra stjórnvalda sem og annarra, fer um þagnarskyldu samkvæmt lögum eða eðli máls hverju sinni, sbr. til hliðsjónar dóm Héraðsdóms Reykjaness frá 18. október 2019 í máli nr. E-1007/2019.
Það er mat nefndarinnar að samningur milli F fasteignafélags ehf. og Seðlabanka Íslands, dags. 2. apríl 2024, bæði óundirrituð drög að samningnum (töluliður 2.2 í upptalningu gagna í 1. kafla úrskurðarins) og undirritað eintak af honum (1. töluliður), teljist í heild sinni varða málefni bankans sjálfs í skilningi 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019, eins og hugtakið hefur verið skýrt í úrskurðarframkvæmd nefndarinnar. Hið sama á við um tölvupóst frá F fasteignafélagi ehf. til Seðlabanka Íslands, dags. 4. apríl 2024 (2. töluliður). Upplýsingar í öðrum tölvupóstum sem taldir eru upp að framan (3.–9. töluliður) eru ekki þess efnis að þær teljist varða málefni bankans sjálfs, þar sem þær varða samskipti um atriði sem telja verður að séu sameiginleg með rekstri stjórnvalda og opinberra aðila almennt, svo sem um öflun umboðs og vistun gagna í skjalavistunarkerfi, eða eru samskipti almenns eðlis sem tengjast ekki sérstaklega hlutverki eða starfsemi Seðlabankans með þeim hætti að þær gætu fallið undir málefni bankans sjálfs í skilningi 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019. Verður Seðlabankanum því gert að afhenda kæranda þessi gögn samkvæmt úrskurðarorði.
Líkt og kemur fram í 1. kafla niðurstöðu þessa úrskurðar voru gögn sem talin eru upp í 7.1–7.7 í þeim kafla afhent kæranda með hinni kærðu ákvörðun. Gögn sem talin eru upp í 2.1, 2.3–2.6 og 4.1 í kaflanum eru drög að þeim gögnum. Drögin innihalda sömu upplýsingar og eru í þeim útgáfum sem afhentar voru kæranda að því undanskildu að þau eru óundirrituð, í drögum að tilkynningu skilanefndar er ein undirskrift í stað tveggja (töluliður 2.1), og í drög að fundargerð hluthafafundar (töluliður 2.3) og úthlutunargerð (töluliður 2.4) vantar upplýsingar um fjárhæð til úthlutunar auk þess sem húsnúmer er misritað. Nefndin telur hvorki að þessar upplýsingar séu þagnarskyldar né að þær séu undirorpnar takmörkunum samkvæmt upplýsingalögum. Verður Seðlabankanum því gert að afhenda gögnin kæranda.
5.
Í beiðni kæranda til Seðlabanka Íslands, dags. 9. júlí 2024, tiltók hann að óskað væri gagnanna hvort sem þau væru varðveitt í skjalasafni bankans eða annars staðar. Í hinni kærðu ákvörðun, dags. 21. ágúst 2024, var beiðni kæranda afmörkuð við þau gögn sem fundist hefðu í málaskrárkerfi bankans.
Úrskurðarnefndin vill taka fram að gögn sem varða starfsemi stjórnvalds og því er skylt að hafa í vörslum sínum kunna að teljast fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, enda þótt þau hafi ekki verið skráð í eitt tiltekið málaskrár- eða skjalavistunarkerfi, sbr. úrskurði nr. 887/2020 og 900/2020. Horfir nefndin í því sambandi til þess að í slíkum tilvikum kunni stjórnvaldinu engu að síður að vera hægt um vik að nálgast gögnin og taka afstöðu til réttar borgaranna til aðgangs að þeim í samræmi við ákvæði upplýsingalaga.
Telja verður að í ljósi þess að kærandi tiltók að hann óskaði ekki aðeins gagna úr skjalasafni bankans og í ljósi þess að gagnabeiðnin varðar einnig málefni tiltekins einkahlutafélags í fullri eigu bankans hafi Seðlabankinn afmarkað beiðni kæranda of þröngt í hinni kærðu ákvörðun. Þar sem ekki verður séð að bankinn hafi tekið þennan hluta beiðni kæranda til afgreiðslu verður beiðninni því vísað til Seðlabankans til nýrrar meðferðar og afgreiðslu að því er varðar beiðni um gögn annars staðar en í skjalakerfi bankans.
Úrskurðarorð
Seðlabanka Íslands ber að veita kæranda, […], aðgang að:
- Viðhengjum við tölvupóst frá skilanefnd F fasteignafélags ehf. til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands, dags. 4. apríl 2024, sem eru eftirfarandi:
- Tilkynning skilanefndar F fasteignafélags ehf. til fyrirtækjaskrár um lok slita (óundirrituð drög).
- Fundargerð skilanefndar F fasteignafélags ehf. um slitin (óundirrituð drög).
- Úthlutunargerð vegna slita á F fasteignafélagi ehf. (óundirrituð drög).
- Afsal að Skemmuvegi 38, Kópavogi (óundirrituð drög).
- Afsal að Akralandi, Mosfellsbæ (óundirrituð drög).
- Tölvupósti frá framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands til skilanefndar F fasteignafélags ehf., dags. 5. apríl 2024.
- Tölvupósti frá skilanefnd F fasteignafélags ehf. til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands, dags. 5. apríl 2024, ásamt viðhengi, sem er eftirfarandi:
- Lokareikningur vegna slita F fasteignafélags ehf. (óundirrituð drög).
- Tölvupósti frá framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra til seðlabankastjóra, dags. 5. apríl 2024, þar sem óskað er eftir umboði.
- Tölvupósti frá seðlabankastjóra til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra, dags. 5. apríl 2024, þar sem umboð er veitt.
- Tölvupósti frá skilanefnd F fasteignafélags ehf. til framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands, dags. 6. apríl 2024.
- Tölvupósti milli starfsmanna Seðlabanka Íslands, dags. 14. maí 2024 klukkan 14:32, um vistun gagna í málaskrárkerfi Seðlabankans vegna slita F fasteignafélags ehf.
- Tölvupósti milli starfsmanna Seðlabanka Íslands, dags. 14. maí 2024 klukkan 16:09, um vistun gagna í málaskrárkerfi Seðlabankans vegna slita F fasteignafélags ehf.
Beiðni kæranda til Seðlabanka Íslands um aðgang að gögnum, dags. 9. júlí 2024, er vísað til bankans til nýrrar meðferðar og afgreiðslu að því leyti sem hún varðar gögn sem liggja fyrir hjá bankanum annars staðar en í skjalavistunarkerfi bankans.
Að öðru leyti er staðfest ákvörðun Seðlabanka Íslands, dags. 21. ágúst 2024.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir