18 desember 2025
/
Mál nr. 105/2025 Úrskurður 18. desember 2025
Mál nr. 105/2025 Millinafn: Ísfjörð (kvk.)
Hinn 18. desember 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 105/2025 en erindið barst nefndinni 20. október.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
- millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Ísfjörð er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki unnið sé hefð sem eiginafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því skilyrði 6. gr. laganna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Ísfjörð er samþykkt.