18 desember 2025

/

Mál nr. 121/2025 Úrskurður 18. desember 2025

Mál nr. 121/2025                  Eiginnafn:     Tóní

Hinn 18. desember 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 121/2025 en erindið barst nefndinni 8. desember 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Tóní tekur íslenska eignarfallsendingu, Tónís, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tóní er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.