18 desember 2025
/
Mál nr. 84/2025 Úrskurður 20. ágúst 2025
Mál nr. 84/2025 Millinafn: Guðmundsen
Hinn 20. ágúst 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 84/2025 en erindið barst nefndinni 18. ágúst.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
- Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- Nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Guðmundsen uppfyllir skilyrði 2, 3 og 4 en til álita kemur hvort það uppfylli skilyrði nr. 1 um að millinafn skuli dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafn dregið af stofni íslensks eiginnafns, Guðmundur, með danska viðskeytinu -sen, er óheimilt á grundvelli 6. greinar laganna þar sem viðskeytið er ekki íslenskur orðstofn. Myndun millinafna með dönskum orðstofni er ekki heimil skv. lögunum.
Þá er að líta til þess að dæmi eru um að ættarnafnið Guðmundsen hafi komið fyrir í opinberri skráningu, m.a. manntölum. Samkvæmt 7. gr. laganna er hins vegar einungis heimillt að samþykkja ættarnafn sem millinafn í þeim tilvikum sem tilgreind eru í ákvæðinu. Samkvæmt því eiga þeir einir rétt til að bera ættarnafn sem millinafn, sem bera það eða eiga rétt til þess, eða eiga alsystkini, foreldri, afa eða ömmu sem hafa borið það sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn eða eiga maka sem ber það sem millinafn eða ættarnafn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Guðmundsen er hafnað.