19 desember 2025

/

Úrskurður nr. 1270/2024


Hinn 19. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1270/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23120038

Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. desember 2023 kærði einstaklingur sem kveðst heita […], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Tyrklands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. nóvember 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Grikklandi og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 19. október 2023. Kvaðst kærandi hafa verið kennari í Tyrklandi. Kærandi hafi kennt efni sem ríkisstjórn landsins hafi ekki samþykkt og óttist um líf sitt vegna þess. Kærandi kvaðst eiga eiginkonu og börn í Tyrklandi. Kærandi hafi ekki verið með vegabréf við komu til landsins en hann kvaðst hafa komið frá Grikklandi á fölsuðu vegabréfi sem hann hafi keypt þar. Kærandi hafi hlotið herþjálfun í Tyrklandi í sex mánuði sökum herskyldu. Kærandi glími við [...] sem valdi honum svefnvanda og sé þríbólusettur við COVID 19.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá því að vera fæddur og uppalinn í […] borg í […], sem sé rétt hjá Izmir. Kærandi hafi búið í Istanbúl þegar hann hafi yfirgefið heimaríki 30. ágúst 2023. Kærandi greindi frá því að eiga eiginkonu og tvö börn í heimaríki. Hann eigi íbúð í heimaríki, eiginkona hans sé að vinna og hann skuldi ekki neitt. Kærandi greindi frá því að hafa starfað í svartri vinnu eftir að hann hafi verið rekinn úr starfi sínu sem kennari árið 2016. Hann hafi starfað við veisluþjónustu, mjólkurburð og við að keyra leigubíl. Kærandi greindi frá því að vera með meirapróf og geti unnið hvar sem er í heimaríki. Kærandi eigi tvær íbúðir, eiginkona hans sé að vinna og börn hans gangi í skóla í Tyrklandi. Fjölskyldan hafi engin fjárhagsleg vandamál. Kærandi kvaðst vera í sambandi við fjölskyldu sína í heimaríki. Kærandi kvaðst eiga tyrkneskt vegabréf en að það hafi orðið eftir í Grikklandi.

Kærandi greindi frá því að vera í Gülen hreyfingunni og vera í minnihlutahópi í heimaríki vegna þess. Kærandi kvaðst vera álitinn hryðjuverkamaður í augum fólks, vina og kunningja vegna þess að hann sé í félaginu. Það hafi verið erfitt fyrir hann, hann hafi verið handtekinn og hafi verið að bíða hvort einhver myndi kæra. Það sé erfitt að vera handtekinn fyrir framan börnin. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að hann hafi ekki verið handtekinn, hafi bara gefið skýrslu og ekkert annað. Kærandi greindi frá því að hafa starfað í nafngreindum grunnskóla sem hafi ekki verið tengdur Gülen hreyfingunni heldur tengdur yfirvöldum. Hann hafi verið rekinn úr kennarastarfi sínu 1. september 2016 án nokkurrar ástæðu. Þeir hafi átt rétt á að kæra brottvikningu úr starf eftir að Evrópusambandið hafi farið að ýta á eftir því, en það hafi ekkert komið út úr því og fólki hafi verið neitað um að kæra. Kærandi greindi frá því að hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað vegna vinnu sinnar. Kærandi hafi kært á móti og lent í dómi í Gülen hreyfingunni. Síðar í viðtali greindi kærandi frá því að mál hafi ekki verið höfðað gegn honum. Kærandi greindi frá því að forseti Tyrklands hafi sagt eftir valdaránið að það mætti alveg kæra þá sem væru í félaginu og hann hafi verið kærður. Kærandi hafi mætt fyrir dóm og gefið skýrslu og eftir það hafi verið opið mál gegn honum og hann hafi getað verið handtekinn hvenær sem var. Þetta hafi gerst eftir að hann hafi verið kallaður til lögreglunnar að gefa skýrslu um það bil ári eftir valdaránstilraunina 2016. Það hafi ekki enn orðið neinir eftirmálar af því en að það sé opið mál gegn honum í dag síðan árið 2016 og kærandi verið að bíða eftir því að yfirvöld hefðu afskipti af honum síðan þá. Eftir að yfirvöld hafi farið að handtaka fólk úr hreyfingunni aftur, m.a. kennara, fyrir um það bil tveimur til þremur mánuðum þá hafi kærandi yfirgefið landið. Nú sé verið að handtaka alla sem hafi verið í hreyfingunni, lögfræðinga og kennara, koma í veg fyrir að hópurinn safnist saman aftur í Tyrklandi. Allir séu undir eftirliti hjá lögreglunni. Kærandi hafi ekki heyrt af því að það standi til að handtaka hann. Istanbúl sé stór borg og enn sé verið að handtaka meðlimi hreyfingarinnar en þó ekki eins mikið og áður. Í minni borgum sé auðveldara að finna og handtaka einstaklinga en í stórum borgum. Kærandi greindi frá því að hann hafi verið skráður í Bank Asya og væri í félaginu en ekki í valdaráninu. Kærandi hafi gengið í félagið árið 1997. Kærandi kvaðst vera með gögn um um að hann sé í félaginu og í Bank Asya. Kennarafélagið hans hafi verið hópur í sambandi við Gülen hreyfinguna og kærandi hafi verið skráður í stéttarfélagið. Kærandi hafi ekki haft sérstakt hlutverk innan Gülen hreyfingarinnar og hann hafi ekki haft sérstakan titil. Hann hafi farið á samkomur einu sinni í viku og hópurinn hafi farið saman að skoða moskur. Ef eitthvað hafi þurft að gera í félaginu á samkomum þá hafi þeir gert það saman. Kærandi hafi ekki reynt að fá fólk til liðs við Gülen hreyfinguna. Kærandi hafi ekki farið á samkomur eða haft samband nýlega við aðra meðlimi Gülen hreyfingarinnar. Flestir hafi verið handteknir en fáir séu með opið mál líkt og kærandi. Stundum hafi verið samband, en ekki beint samkomur það sé ekki neitt félag sem myndi koma saman. Kærandi greindi frá því að Gülen hreyfingin hafi átt dagblað og sjónvarp þar sem hægt hafi verið að segja sína skoðun. Stéttarfélaginu, bankanum og öllu hafi verið lokað eftir valdaránstilraunina árið 2016. Kærandi hafi ekki tjáð sig á samfélagsmiðlum eða á miðlum Gülen hreyfingarinnar. Kærandi kvaðst óttast að vera handtekinn ef hann snúi aftur til Tyrklands og að hann verði fyrir ofbeldi. Yfirvöld hafi lista yfir alla sem hafi starfað í félaginu, m.a. kæranda, og hvergi sé hægt að búa í heimaríki og vera öruggur. Lögreglan sé að hreykja sér af því að hafa handtekið hryðjuverkamenn og hættan á að vera handtekinn sé sérstaklega mikil núna vegna borgarstjóra í mars 2024. Verið sé að meina fólki sem sé í félaginu að fara frá Tyrklandi. Kærandi kvað fjölskyldu sína vera í hættu ef yfirvöld færu að spyrja eiginkonu hans um hann. Lögreglan hafi ekki enn komið til eiginkonu hans þar sem enginn viti að hann hafi farið frá Tyrklandi. Kærandi greindi frá því að eiginkona hans hafi einnig verið í Gülen hreyfingunni, hún hafi aðstoðað fólk, komið að samkomum og safnað fólki saman. Eiginkona hans hafi ekki enn verið handtekin en hún hafi einnig farið í skýrslutöku eftir valdaránstilraunina árið 2016. Nú viti enginn að hún sé í félaginu þannig að hún hafi ekki orðið fyrir neinu frekara áreiti. Eiginkona kæranda hafi verið starfsmaður á ríkisstofnun árið 2016 og starfi þar enn í dag.

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram kennaraskírteini, ökuskírteini, kennivottorð, afrit af upplýsingum um starf sem kærandi hafi verið rekinn úr, kæru hans vegna uppsagnar úr starfi, úrskurði yfirvalda í kærumáli kæranda, tilskipun yfirvalda heimaríkis nr. KHK-672 ásamt lista yfir fylgiskjöl, gögnum sem eiga að sýna bankaviðskipti við Bank Asya og aðild að stéttarfélagi, lögregluskýrslu og ljósmyndir af skjölum í tengslum við uppsögn kæranda og kæruferli. Kærandi lagði fram frekari gögn hjá kærunefnd. Kærandi lagði m.a. fram frumrit af gögnum tengdum kæru hans til yfirvalda vegna brottreksturs úr starfi s.s. niðurstöðu rannsóknarnefndar og stjórnsýsludómstóls um mál hans gegn yfirvöldum vegna brottrekstrar, staðfestingu saksóknara á að ekki yrði höfðað mál gegn honum, afrit af ökuskírteini, tölvupóstsamskiptum við lögregluna á Suðurnesjum, almannaskráningarskírteini, búsetuvottorði, myndir af kæranda við verkun kjúklings og hluta af kæru gegn öðrum meðlimi Gülen hreyfingarinnar, yfirlýsingu lögmanns og fylgiskjöl.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. desember 2023. Greinargerð ásamt fylgiskjölum barst kærunefnd 22. desember 2023. Með tölvubréfum, dags. 1. mars, 18. apríl, 15. maí, 7. ágúst, 4. september, 27. og 29. nóvember 2024 bárust kærunefnd viðbótarathugasemdir og fylgiskjöl frá kæranda.

Kærandi mætti í viðtal hjá kærunefnd 21. nóvember 2024 ásamt talsmanni sínum og naut hann aðstoðar túlks.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í […] […] á Tyrklandi. Kærandi hafi gengið í Gülen hreyfingu í Tyrklandi árið 1997, og tengst hreyfingunni í gegnum stéttarfélag sitt, félag kennara. Kærandi hafi starfað sem kennari í heimaríki þar til að hann hafi verið rekinn 1. september 2016. Kærandi tilheyri minnihlutahópi í heimaríki sem aðili að Gülen hreyfingunni. Kærandi hafi flúið heimaríki vegna stjórnmálatengdra ofsókna, allir hafi snúist gegn honum á augabragði. Kærandi hafi verið vel liðinn kennari en allt hafi breyst eftir misheppnaða valdaránstilraun árið 2016 en Gülen hreyfingunni hafi verið kennt um að hafa staðið að baki henni. Kærandi hafi verið álitinn hryðjuverkamaður í Tyrklandi vegna tengsla sinna við hreyfinguna þar í landi en hann hafi ekki tekið þátt í valdaránstilrauninni. Kærandi hafi starfað í nafngreindum grunnskóla í Istanbúl áður en hann hafi verið rekinn úr starfi án ástæðu. Kærandi hafi lifað við stöðugan ótta við að verða handtekinn eða kærður vegna tengsla sinna við Gülen hreyfinguna líkt og aðrir kennarar. Lögreglan leiti að fólki sem tilheyri hreyfingunni og viðhorf almennings hafi snúist gegn meðlimum hennar eftir valdaránstilraunina. Kærandi hafi ekki verið handtekinn en kærumál hafi verið höfðað gegn honum. Kærandi hafi verið skráður í Bank Asya og hafi verið með samskiptaforritið Bylock sem meðlimir Gülen hreyfingarinnar hafi notað. Kærandi hafi verið boðaður fyrir dómstól í Tyrklandi vegna starfa sinna sem kennari og tengsla við hreyfinguna um það bil ári eftir valdaránstilraunina. Þar hafi kærandi gefið skýrslu og í kjölfarið hafi mál verið höfðað gegn honum. Engin niðurstaða hafi komið í málinu sem sé enn opið. Yfirvöld í Tyrklandi hafi ekki haft afskipti af kæranda eftir þetta, en nýlega hafi farið að bera aftur á auknum handtökum kennara sem tilheyri Gülen hreyfingunni og þess vegna hafi hann ákveðið að leggja á flótta. Handtökur yfirvalda hafi hafist aftur fyrir um tveimur til þremur árum til að koma í veg fyrir að meðlimir hreyfingarinnar safnist aftur saman. Kærandi óttist að vera handtekinn. Fólk sem tilheyri Gülen hreyfingunni sæti eftirliti og yfirvöld fylgist vel með því hvort fólk sé að hópast saman. Kærandi hafi orðið að vinna svarta vinnu frá árinu 2016, hann hafi orðið fyrir áreiti af hálfu fólks í kringum sig, hann kallaður hryðjuverkamaður, fólk hafi hætt að svara símtölum hans og hafi talið hann hluta af hópi einstaklinga sem hafi staðið að valdaránstilraun í heimaríki árið 2016. Kærandi óttist tyrknesk yfirvöld, að vera handtekinn og fangelsaður. Margir einstaklingar hafi horfið sporlaust og enginn viti um afdrif þeirra.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Tyrklandi mótmælt. Kærandi vísar til tilskipunar KHK/672 frá 1. september 2016 sem gefin hafi verið út af ríkisstjórn Tyrklands. Í tilskipuninni hafi nafngreindir einstaklingar og lögaðilar, hverra nafna hafi verið gefin út á listum samhliða tilskipuninni, verið sviptir tilteknum réttindum. Þar á meðal hafi verið einstaklingar sem hafi starfað við kennslu og sé kærandi þeirra á meðal. Samkvæmt tilskipuninni hafi viðkomandi einstaklingum verið vikið burt úr starfi, þeir útilokaðir frá frekari störfum í opinberri þjónustu sem og aðkomu að margskonar trúnaðarstörfum, stjórnar- og nefndarstörfum og að standa að stofnun félaga. Þá hafi þeir verið sviptir ýmsum réttindum á borð við vopnaleyfi, siglinga- og flugleyfi og rétt á húsnæði á vegum hins opinbera. Þá hafi vegabréf þeirra verið felld úr gildi og ferðafrelsi þeirra þar með skert. Þeim einstaklingum og lögaðilum sem tilskipunin nái til sé líkt og í fyrri tilskipunum gefið að sök að hafa tengsl við félagsskap sem vinni gegn tyrkneska ríkinu og hafi tengsl við hryðjuverkastarfsemi. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann sé flóttamaður samkvæmt skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og eigi samkvæmt því rétt á alþjóðlegri vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Kærandi hafi ítarlega fjallað um aðgerðir tyrknesku ríkisstjórnarinnar gegn einstaklingum sem hún telji hafa tengsl við Gülen hreyfinguna. Í máli kæranda liggi fyrir ótvíræðar sannanir þess að ríkisstjórn Tyrklands telji hann hafa tengsl við hreyfinguna, sbr. tilskipun KHK/672 og lista yfir nöfn einstaklinga sem hún nái til, þ.m.t. nafn kæranda. Kærandi teljist hafa stjórnmálaskoðanir sem yfirvöldum sé kunnugt um og fela í sér gagnrýni á stefnu og aðgerðir þeirra og séu þeim ekki þóknanlegar í skilningi handbókar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og e-liðar 3. mgr., sbr. 2. ml. 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að þær aðgerðir sem tyrknesk stjórnvöld hafi gripið til gegn fólki sem grunað séu um tengsl við Gülen hreyfinguna feli í sér ofsóknir samkvæmt skilgreiningu 1. mgr. 37. gr laga um útlendinga. Aðgerðir hafi falið í sér löggjöf, framkvæmd stjórnvalda, lögreglu og dómstóla sem feli í sér mismunun, saksóknir, óhóflegar refsingar og synjun á réttarúrræðum. Þá hafi einstaklingar, einkum þeir sem sætt hafi varðhaldi og fangelsun, verið beittir andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Kærandi búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir yfirvalda af stjórnmálaástæðum, hann hafi þegar verið sviptur starfi sínu og fjölmörgum réttindum. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli KNU20050040 máli sínu til stuðnings.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af því sem hafi verið rakið í tengslum við aðalkröfu kæranda telji hann ljóst að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Kærandi sé í raunverulegri hættu á að vera fangelsaður af tyrkneskum yfirvöldum vegna ásakana um að hann tengist Gülen hreyfingunni. Þá hafi verið sýnt fram á að þeir einstaklingar sem sæti varðhalds- eða fangelsisvist í Tyrklandi eigi á hættu að vera beittir pyndingum og annarri ómannlegri eða vanvirðandi meðferð. Leiða megi líkum að því að fangelsisaðstæður í Tyrklandi séu það slæmar að vistun þar ein og sér feli í sér brot gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til hins fordæmalausa ástands í Tyrklandi verður, vegna tengsla kæranda við Gülen hreyfinguna, einnig að telja að hann eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða og ómannlegri og vanvirðandi meðferð af öðrum ástæðum.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum hjá Útlendingastofnun. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi gerir athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar um að hann hafi ekki sannað á sér deili en hann hafi lagt fram frumrit af tyrknesku kennivottorði til lögreglu. Ranglega hafi verið fullyrt að hann hafi lagt fram afrit af kennivottorði í ákvörðun Útlendingastofnunar. Þá hafi einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki verið nægilega rannsakaðar. Þá telur kærandi að niðurstaða Útlendingastofnunar sé í ósamræmi við úrskurð kærunefndar nr. 295/2020.

Hvað varðar vísan kæranda til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar sé í ósamræmi við úrskurð kærunefndar nr. 295/2020 í máli einstaklings frá Tyrklandi sem hafi verið meðlimur í Gülen ítrekar kærunefnd að við mat á því hvort einstaklingur eigi rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi fer ávallt fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum og mat á trúverðugleika frásagnar og því ljóst að úrskurðir kunna aðeins að hafa fordæmisgildi hvað varðar mat á almennum aðstæðum í heimaríki kærenda sem og hvernig meta eigi persónubundnar aðstæður kærenda þar. Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun að öðru leyti sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað tyrknesku kennivottorði. Var það mat Útlendingastofnunar að þar sem kærandi hafi ekki sannað hver hann væri með fullnægjandi hætti yrði leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Með vísan til þeirra gagna sem kærandi hafi lagt fram til að sanna á sér deili og lýsingu hans á staðháttum komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Tyrklandi þó að auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé tyrkneskur ríkisborgari.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
  • Country Policy and Information Note: Gülenist movement (UK Home Office, febrúar 2018);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Gulenists (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note – Turkey: Military service (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP) (UK Home Office, mars 2020);
  • Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP) (UK Home Office, október 2023);
  • DFAT Country Information Report – Turkey (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. September 2020);
  • Freedom in the World 2024 – Turkey (Freedom House, 2024);
  • Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,9. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
  • Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report (European Commission, 8. nóvember 2023);
  • Report on the human rights situation covering 2022 – Türkiye (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • The World Factbook - Turkey (Central Intelligence Agency, 6. desember 2019);
  • Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, Skoðað 27. júní 2024);
  • Turkey Healthcare Technologies Resource Guide (U.S. International Trade Administration. Sótt 27. júní 2024);
  • Turkey Individuals associated with the Gülen movement (The Finish Immigration Servis fact-finding mission to Ankara and Istanbul 2-6 October 2023, júní 2024);
  • Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
  • Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 27. júní 2024);
  • World Report Turkey 2023 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples - Turkey: Kurds (Minority Rights Group International, júní 2018).

Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl. Niðurstöður kosninganna voru einnig þær að CHP flokkurinn hafi sigrað aftur í borgunum Izmir, Adana og Antalya og haldið meirihluta þar.

Stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir einu þjóðerni fyrir alla ríkisborgara og viðurkennir ekki minnihlutahópa á grundvelli þjóðernis, svo sem Kúrda, eða kynþáttar að undanskildum Armenum, gyðingum og þeim sem tilheyri grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Rétturinn til eigin tungumáls, menningarlegra og trúarlegra réttinda sé ekki tryggður öðrum hópum fyllilega samkvæmt lögum. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2023 um aðstæður Kúrda í Tyrklandi kemur fram að rúmlega 15 milljónir íbúa landsins séu af kúrdískum uppruna og tali kúrdískar mállýskur. Samkvæmt tyrkneskum lögum sé leyfilegt að opna einkareknar menntastofnanir þar sem kennsla fari fram á tungumálum og mállýskum sem íbúar noti í daglegu lífi. Sumir háskólar bjóði upp á valkvæða áfanga á kúrdísku og tveir háskólar séu með kúrdískar málvísindadeildir. Lögin heimili jafnframt að kúrdísk þorp og hverfi taki upp sín fyrri nöfn í stað þeirra tyrknesku og leyfi stjórnmálaflokkum og meðlimum þeirra að velja tungumál í stjórnmálabaráttu sinni og kynningarefni. Sá réttur hafi þó ekki alltaf verð virtur í framkvæmd. Þá banni lög notkun annarra tungumála en tyrknesku í opinberum stofnunum. Þrátt fyrir að kúrdíska sé formlega leyfð í einkareknum menntastofnunum og opinberri orðræðu hafi ríkisstjórnin ekki framlengt leyfi fyrir kennsluefni á kúrdísku í almenningsskólum. Þá kemur fram í skýrslunni að vísbendingar séu um áframhaldandi samfélagslega mismunun gagnvart Kúrdum og hafi fjölmargar fregnir borist af árásum sem beinst hafi að Kúrdum árið 2023. Í sumum tilfellum sé hugsanlegt að þessar árásir hafi ekki verið rannsakaðar á réttan hátt eða ekki verið viðurkenndar sem árásir byggðar á kynþáttahatri. Kúrdar sem búi í borgum í vesturhluta Tyrklands kunni að vera hræddir við að upplýsa um kúrdískt þjóðerni sitt eða tala kúrdísku á almannafæri, og atvinnumöguleikar geti verið takmarkaðir fyrir kúrdískt fólk, sérstaklega ef það sé virkt í kúrdískum stjórnmálum eða áberandi um stuðning sinn við málstað Kúrda. Hins vegar geti flestir Kúrdar sem ekki eru virkir í stjórnmálastarfi og þeir sem styðja AKP lifað án mismununar í borgum í vesturhluta Tyrklands. Nokkrar heimildir séu um að Kúrdum hafi verið meinaður aðgangur að leiguhúsnæði vegna þjóðernis síns. Þá geti Kúrdar sem ekki tali tyrknesku átt í erfiðleikum með að fá aðgang að læknisþjónustu.

Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og PKK hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi fram lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annara aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í febrúar 2018 kemur fram að Fethullah Gülen hafi fæðst árið 1941 í norðausturhluta Tyrklands. Hann hafi komið fram á áttunda áratug síðustu aldar m.a. sem múslímskur predikari og talsmaður nútíma menntunar. Gülen hreyfingin (einnig kölluð FETÖ og Hizmet) sé ekki sérstakur stjórnmálaflokkur heldur frekar skipulagt samfélag þeirra sem fylgi Gülen. Hreyfingin aðgreini sig frá öðrum íslömskum hreyfingum með því að leggja áherslu á mikilvægi siðfræði í menntun, fjölmiðlum, viðskiptum og opinberu lífi. Hreyfingin samanstandi af fjölda fólks sem sett hafi á fót hundruð skóla, kennslumiðstöðva, sjúkrahúsa og hjálparstofnana. Samkvæmt skýrslunni megi rekja samband Fethullah Gülen og Erdogan forseta Tyrklands langt aftur en þeir hafi deilt sameiginlegri andstöðu við hersveitir Kemalista í Tyrklandi í mörg ár og haft það að sameiginlegu markmiði að koma flokknum frá völdum. Það hafi svo tekist með sigri AKP flokksins í kosningum árið 2007. Samband Erdogan og Gülen hafi farið versnandi í kjölfar kosninganna og hafi að endingu lokið árið 2013 þegar meðlimir Gülen hreyfingarinnar hafi rannsakað spillingu innan flokks Erdogan forseta og hafi m.a. dómarar hliðhollir Gülen hreyfingunni tekið fyrir kærur á hendur forsetanum fyrir spillingu. Þá hafi Gülen sjálfur gagnrýnt Erdogan fyrir meðhöndlun sína á mótmælum í Gezi garðinum árið 2013. Síðar það sama ár hafi Erdogan sagt Gülen og stuðningsmenn hans hafa reynt að koma ríkisstjórn sinni frá með spillingarrannsókn sem leitt hafi til afsagnar ráðherra AKP flokksins. Í kjölfarið hafi Erdogan forseti og flokkur hans skilgreint Gülen hreyfinguna sem hryðjuverkasamtök og pólitískar aðfarir gerðar að hinum ýmsu einstaklingum og stofnunum vegna gruns um tengsl við hreyfinguna, s.s. menntastofnunum, embættismönnum, dómurum og fjölmiðlum.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í október 2023 kemur fram að Gülen hreyfingin sé hópur af trúar-, mennta- og félagslegum stofnunum í Tyrklandi og öðrum löndum. Ríkisstjórn Tyrklands hafi haldið því fram að Gülen hreyfingin hafi staðið að baki valdaránstilrauninni 15. júlí 2016. Í kjölfar valdaránstilraunarinnar hafi stjórnvöld í Tyrklandi beint aðgerðum gegn einstaklingum og hópum sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna og hafi það m.a. leitt af sér að hundruð þúsunda einstaklinga hafi verið handteknir, og settir í gæsluvarðhald, yfir 117.000 sakfellingar undir hryðjuverkalögum landsins, brottrekstri um 130.000 ríkisstarfamanna, afturköllun um 230.000 vegabréfa, lokun fyrirtækja og stofnanna og eignarupptöku hjá þeim. Flestar handtökur hafi átt sér stað fyrstu tvö árin þegar neyðarástandi hafi verið lýst yfir í landinu, 21. júlí 2016 til 18. júlí 2018. Þá hafi hundruð einstaklinga verið handteknir og settir í gæsluvarðhald sem séu taldir tengjast hreyfingunni, t.d. fyrrum kennarar, hermenn og lögreglumenn, einstaklingar sem hafi aðstoðað fjölskyldur þar sem ættingi hafi verið fangelsaður vegna tengsla við hreyfinguna og einstaklingar sem hafa verið ásakaðir um að taka við og dreifa fjárhagsaðstoð sem stuðningsmenn hreyfingarinnar erlendis hafa veitt, frá miðju ári 2022 til ársins 2023. Þessar tölur eru þó settar fram með þeim fyrirvara að einstaklingar hafi einnig verið sakaðir um aðild að öðrum hryðjuverkahópum svo sem PKK. Mat á því hvort að einstaklingar þarfnist verndar vegna tengsla sinna eða meintra tengsla sinna við Gülen hreyfinguna ræðst af fjölda þátta og fara þarf fram einstaklingabundið mat í hverju máli fyrir sig. Við mat á því hvort að einstaklingur sem hafi tengsl eða meint tengsl við Gülen hreyfinguna eigi á hættu ofsóknir kemur til skoðunar hversu mikið eiginleg eða meint tengsl við hreyfinguna séu og hversu líklegt sé að yfirvöld hafi vitneskju um eða gætu hafa grun um tengsl einstaklinga við hreyfinguna. Þá þurfi að líta til þess hvort að einstaklingur hafi einhvern tímann verið handtekinn eða settur í varðhald og þá undir hvaða kringumstæðum sem og hvort að einstaklingur hafi verið ákærður, sakfelldur og dæmdur til refsingar eða hafi þurft að hlíta öðrum viðurlögum. Skoða þarf hvort að einstaklingur hafi átt í öðrum samskiptum við yfirvöld, sérstaklega hvað varðar ásakanir um tengsl þeirra við hreyfinguna, einkum skyldu til að hafa á sér kennivottorð og hvernig sú skylda tengist m.a. því að geta unnið, fá aðgang að heilbrigðis- og félagsþjónustu, skráningu á kjörskár, aðgengi að tyrkneskum dómstólum, aðgang að skólum og háskólum, að fá að eiga fasteign eða bíla og að fá síma og net. Þá skal litið til trúverðugra samskipta við tyrknesk yfirvöld eftir að einstaklingur yfirgaf heimaríki og starfsgreinar viðkomandi. Einkum skal skoða hvort um sé að ræða blaðamenn eða fjölmiðlamenn sem hafi birt neikvæða umfjöllun um yfirvöld, kennara í Gülen menntastofnunum, dómara og lögfræðinga, hermenn og lögreglumenn sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna, umsvif samfélagsmiðla reikninga viðkomandi og fjölda ferðalaga til Pennsylvaníu þar sem Fetullah Gülen sé búsettur. Aðrir þættir sem geta aukið hættu á ofsóknum séu m.a. notkun á ByLock smáforritinu, að vera í viðskiptum við Asya Bank, vera áskrifandi að Zaman dagblaðinu, eign á lesefni um Gülen, að hafa gengið í eða sent barn sitt í Gülen skóla, hafa verið meðlimur að eða hafa styrkt fjárhagslega samtök sem séu tengd Gülen hreyfingu og að eiga fjölskyldumeðlimi sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna. Tilteknar aðgerðir sem beinist gegn meðlimum Gülen hreyfingarinnar, s.s. missir atvinnu, nægja ekki einar og sér til þess að teljast ofsóknir eða til að uppfylla þröskuld undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Einstaklingur sem hefur ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu yfirvalda vegna tengsla sinna eða meintra tengsla við hreyfinguna munu almennt ekki fá vernd frá yfirvöldum heimaríkis.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænu lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá Almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta fellur undir almanntryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar og tæknifrjóvgun sé aðeins greitt að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína einnig á því að hann eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda vegna þess að hann sé meðlimur í Gülen hreyfingunni.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi verið meðlimur í Gülen hreyfingunni síðan 1997. Kærandi hafi verið kennari í nafngreindum ríkisreknum grunnskóla og með tilskipun yfirvalda hafi hann verið rekinn úr starfi af ástæðulausu 1. september 2016. Kærandi hafi kært brottreksturinn. Kærandi hafi verið boðaður og mætt í yfirheyrslu hjá dómstól og lögreglunni vegna aðildar sinnar að Gülen hreyfingunni um ári eftir valdaránstilraun árið 2016, það sé opið mál gegn honum og hann geti verið handtekinn hvenær sem er.

Í viðbótarathugasemdum til kærunefndar greindi kærandi m.a. frá því að það séu áframhaldandi ofsóknir í garð meðlima Gülen hreyfingarinnar og lagði fram vefslóðir á færslur af samfélagsmiðlinum X því til stuðnings. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi aðstoðað aðra meðlimi hreyfingarinnar og fjölskyldur þeirra m.a. fjárhagslega og með andlegum stuðningi. Tyrknesk yfirvöld líti á það sem glæp að aðstoða aðra meðlimi hreyfingarinnar og fjölskyldur þeirra og telja það tengjast endurskipulagningu hreyfingarinnar. Kærandi eigi því á hættu að vera kærður og fangelsaður fyrir það snúi hann til baka til heimaríkis. Þá greindi kærandi frá því að notkun samskiptaforritanna Bylock og Signal sé talinn glæpur og hann hafi notað samskiptaforritin Signal og Telegram til að skipuleggja aðstoð við aðra meðlimi hreyfingarinnar. Þá kvað kærandi það hafa ranglega komið fram í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann sé ekki lengur í sambandi við aðra meðlimi hreyfingarinnar, hann hafi einungis verið í minni samskiptum við þá eftir valdaránstilraunina. Fyrir árið 2016 hafi hann opinberlega stutt við hreyfinguna og samfélagið og mætt á fundi. Kærandi kvað eiginkonu sína enn starfa fyrir samfélag hreyfingarinnar. Einnig vísaði kærandi til skýrslu finnskra útlendingayfirvalda frá 2024 sem renni stoðum undir frásögn hans.

Kærunefnd bauð kæranda að koma til viðtals hjá nefndinni 21. nóvember 2024. Í viðtalinu greindi kærandi m.a. frá því að hafa verið búsettur í Istanbúl frá árinu 2005 og þar til hann flúði heimaríki. Kærandi greindi frá því að hann hafi verið í herþjónustu í Tyrklandi í sex mánuði á árunum 2003 til 2004. Kærandi kvaðst ekki hafa ferðast á vegabréfinu sínu til Íslands af því að hann hafi ekki fengið vegabréfsáritun. Kærandi kvaðst ekki vita hvað hafi verið gildistími vegabréfsins en að það hafi gilt í tíu á. Hann kvaðst ekki muna hvenær hann hafi sótt um það, kannski 2020-2021. Kærandi kvaðst ekki geta lagt fram afrit af vegabréfinu. Kærandi kvaðst sjá upplýsingar um vegabréf á tyrkneskri vefsíðu, sem hann sýndi í viðtalinu, en þar hafi ekki komið fram gildistími og viðtökudagsetning vegabréfs einungis að það sé ógilt. Kærandi kvaðst hafa fengið vegabréfið afhent. Kærandi hafi ferðast á vegabréfi sínu til Makedóníu og gengið með smyglurum frá Makedóníu til Grikklands. Kærandi kvaðst ekki hafa reynt að endurnýja vegabréfið, hafi ekki getið það því hann er hafi verið á Grikklandi, en hann kvað ekki vera hægt að sækja um á netinu. Kærandi kvaðst hafa skilið vegabréfið eftir í Grikklandi, rifið það og hent því. Kærandi kvaðst hafa verið settur á lista yfirvalda í Tyrklandi árið 2016 og að hann hafi verið kallaður hryðjuverkamaður. Kærandi kvað vegabréf sitt ekki hafa verið fellt úr gildi þegar hann hafi verið settur á lista yfirvalda af því að á þeim tíma hafi það ekki verið gert. Allir sem hafi verið ofsóttir hafi fengið farbann og allir á listanum sem hafi verið að vinna fyrir ríkið hafi fengið farbann. Fyrir þá sem ekki hafi verið á lista yfir þá sem hafi átt að handtaka hafi farbann verið fellt niður. Kærandi greindi frá því að hafa verið í kennaranámi í Tyrklandi á árunum 1998 til 2003 og hafi byrjað að starfa sem kennari árið 2005. Kærandi hafi byrjað að kenna í grunnskólanum sem hann hafi verið rekinn frá árið 2009 og hafi verið rekinn 1. september 2016. Grunnskólinn hafi verið ríkisrekinn og verið í Istanbúl. Kærandi sýndi frumrit starfsmannaskírteinis sem hafi verið útgefið af menntamálaráðuneytinu. Kærandi kvaðst hafa verið kennari og að allir kennarar séu starfsmenn menntamálaráðuneytisins, þ.e. ríkisstarfsmenn. Aðspurður gat kærandi ekki gefið skýringar á því af hverju á framlögðu kennaraskírteini kæmi fram að það væri gefið út í fyrsta skipti árið 2008 þrátt fyrir að hann hafi byrjað að kenna árið 2005. Kærandi gat ekki útskýrt af hverju það hafi verið önnur útgáfu dagsetning á bakhlið skírteinisins. Kærandi greindi þá frá því að á bakhliðinni séu upplýsingar um þjóðskrárskírteini hans. Kærandi hafi fengið kortið svona samsett frá menntamálaráðuneytinu. Kærandi greindi frá því að hann hafi verið meðlimur Gülen hreyfingarinnar og í stéttarfélagi kennara en hann hafi ekki einungis verið tengdur Gülen hreyfingu í tengslum við stéttarfélagið. Kærandi kvað stéttarfélaginu hafa verið lokað þegar hann hafi verið rekinn. Aðspurður um starf sitt og þátttöku í Gülen hreyfingunni kvaðst hann hafa farið á samkomur og í ferðir þar sem þeir hafi skoðað moskur. Kærandi kvaðst hafa vitað af hreyfingunni lengi en þegar hann hafi verið í námi hafi hann búið í húsnæði á vegum Gülen hreyfingarinnar. Eftir að hann hafi gerst opinber ríkisstarfsmaður árið 2005, hafi hann farið að styrkja og taka þátt í starfi Gülen hreyfingarinnar. Eftir að hann hafi verið rekinn þá hafi meðlimir hreyfingarinnar ekki getað komið oft saman vegna lögreglueftirlits. Kærandi greindi frá því að hann hafi kært brottrekstur úr kennarastarfinu til að komast aftur í starfið en því hafi verið hafnað. Kærandi kvað mál hans gegn stjórnvöldum vegna brottrekstursins hafa lokið nýlega. Eftir um eins árs málarekstur hafi komið svar um að hann mætti ekki vera kennari lengur, þá hafi hann farið með málið fyrir yfirhéraðsdóm og því hafi verið hafnað aftur. Vegna þess að kærandi hafi þessa tengingu við hreyfinguna megi hann ekki vera kennari. Kærandi kvaðst ekki hafa fengið neina refsingu, hann hafi farið í yfirheyrslu á lögreglustöð, og honum hafi verið tilkynnt að ekki hafi verið ástæða til að höfða mál gegnum honum. Kærandi kvaðst hafa farið í yfirheyrslu hjá lögreglu um einu eða einu og hálfu ári eftir brottrekstur sinn 1. september 2016. Kærandi hafi verið boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglu. Lögreglumenn hafi komið heim til hans og sagt fjölskyldu hans að hann yrði að koma til yfirheyrslu. Kærandi hafi verið kallaður til yfirheyrslu af því að allir sem hafi verið reknir hafi verið teknir í yfirheyrslu hjá lögreglu. Lögreglan hafi viljað upplýsingar um aðra einstaklinga sem hafi verið tengdir hreyfingunni. Mál stjórnvalda gegn honum hafi aldrei verið tekið til dóms, honum hafi bara borist úrskurður frá innanríkisráðuneytinu um að hann væri hreinn og það ætti ekki að höfða mál gegn honum. Kærandi greindi frá því að eiginkona hans hafi einnig farið í skýrslutöku þar sem allir opinberir starfmenn hafi verið teknir til skýrslutöku þar sem leitað hafi verið eftir því hvort þau hefðu vitneskju um aðila tengda Gülen hreyfingunni. Kærandi kvað eiginkonu sína enn virka í Gülen hreyfingunni, stjórnvöld hafi aldrei vitað að hún væri meðlimur í Gülen hreyfingunni.

Aðspurður hvers vegna kærandi hafa ekki greint Útlendingastofnun frá aðstoð sem hann hafi veitt meðlimum hreyfingarinnar og fjölskyldumeðlimum þeirra kvað hann það hafa verið vegna þess að hann hafi verið kvíðinn. Kærandi greindi frá því að eftir valdaránstilraunina hafi margir vinir hans verið handteknir, og hann, ásamt öðrum, hafi safnað saman fjármunum til að aðstoða fjölskyldur þeirra með húsaleiga, húsnæðislán og skólagjöld. Þeir hafi veitt efnahagslegan og andlegan stuðning. Kærandi kvaðst ekki geta sýnt fram á samskipti má samskiptaforritinu Telegram um þá aðstoð sem hann hafi verið að veita. Í samskiptunum hafi þeir bara ákveðið hvar þeir hafi ætlað að hittast en ekki rætt um aðstoðina, af því þeir hafi verið hræddir við lögregluna.

Kærandi kvaðst hafi starfað hjá slátrara í þrjá mánuði á árunum 2021-2022 og hafa greitt í lífeyrissjóð þegar hann hafi starfað þar. Kærandi kvaðst hafa verið skráður í lífeyrissjóði hjá sumum fyrirtækjum þar sem hann hafi starfað eftir að hann hafi verið rekinn úr kennarastarfinu en ekki hafi verið greidd iðgjöld til lífeyrissjóðanna. Kærandi kvaðst ekki hafa getað skráð þessi störf þó að hann hafi bara verið útilokaður frá störfum hjá ríkinu, engir staðir hafi viljað ráða þá og fyrirtæki verið hrædd við að ráða þá, en hann hafi greitt í eigin lífeyrissjóð til þess að halda réttindum í sjóðnum. Kærandi kvað gagn sem hann hafi lagt fram og ætti að sýna að hann væri aðili að stéttarfélagi og viðskiptavinur í Bank Asya, vera hluta af skýrslu sem lögregla hefði haft um hann. Þetta hafi verið hluti af gögnum sem hann hafi fengið send frá stofnun sem yfirvöld hafi stofnað í kjölfar uppsagna. Kærandi hafi fengið skjalið sent þegar hann hafi óskað skýringa á því af hverju hann hafi verið rekinn. Á skjalinu kemur fram að kærandi hafi verið í stéttarfélagi kennara í 29 mánuði og að hann sé með reikning í Bank Asya. Kærandi kvaðst hafa fengið tilskipun stjórnvalda inn á vefsíðu sem sé svipuð og island.is að því leyti að þar fari fram samskipti stjórnvalda við einstaklinga ásamt því að þar birtist ýmis skjöl varðandi mál einstkalinga hjá stjórnvöldum. Kærandi hafi fengið skjalið um einu ári eftir uppreisnina 2016 eða þegar hann hafi óskað eftir upplýsingum um af hverju hann hafi verið rekinn. Skjalið hafi verið sent frá stofnun sem hafi verið sett á fót sérstaklega til þess að fara með mál tengd uppreisninni. Kærandi kvaðst ekki hafa heyrt í yfirvöldum frá því árið 2016 þar til hann hafi flúið heimaríki árið 2023. Hann telji sig vera í hættu í heimaríki vegna þess að hann hafi aðstoðað meðlimi í Gülen hreyfingunni og fjölskyldur þeirra. Í mörgum borgum þá hafi margir verið handteknir sem séu með skjöl líkt og kærandi hafi lagt fram. Istanbúl sé svo stór að lögreglumenn, hermenn og Bylock notendur séu einkum handteknir. Þar sem kærandi sé ekki með Bylock þá sé ekki komin röðin að honum. Aðspurður kvaðst kærandi hafa búið í heimalandi síðan 2016 og málinu hafi verið lokað gegn honum af hálfu yfirvalda án þess að neitt hafi verið aðhafst. Kærandi hafi verið að aðstoða meðlimi Gülen hreyfingarinnar og fjölskyldur þeirra eftir árið 2016, hann sé hræddur um að hann verði handtekinn eða ofsóttur hvenær sem er af því að nokkrum sinnum árið 2022 hafi lögreglan verið að spyrja leigusala kæranda um hann. Kærandi hafi verið að aðstoða síðan árið 2016 og sé enn að því. Hann hafi m.a. verið að kenna börnum í gegnum síma og veitt sálræna aðstoð. Kærandi kvað afrit af lögregluskýrslu sem hann hafi lagt fram vera afrit af lögregluskýrslu þegar hann hafi verið kallaður í yfirheyrslu eftir að hann hafi verið rekinn. Aðspurður um misræmi í dagsetningum á milli dagsetningar skýrslunnar og þeim tíma sem hann hafi greint frá að hafa verið tekin í yfirheyrslu, kvaðst kærandi ekki muna hvenær hann hafi verið tekin í yfirheyrslu nákvæmlega. Kærandi kvað þetta vera einu yfirheyrsluna sem hann hafi farið í hjá lögreglu eftir að hann hafi verið rekinn og eftir þetta hafi þeir fellt niður málið gegn honum.

Kærunefnd telur ýmislegt í frásögn kæranda draga úr trúverðugleika hennar, einkum hvað varðar hættu á ofsóknum yfirvalda á grundvelli starfa hans og aðildar að Gülen hreyfingunni. Þá er ýmislegt í frásögn kæranda sem ekki fær stoð í framlögðum gögnum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi annars vegar frá því að hafa komið fyrir dóm og gefið skýrslu og hins vegar að hafa verið tekin í yfirheyrslur hjá lögreglunni. Kærandi greindi einnig frá því að yfirvöld hafi ekki haft frekari afskipti af honum síðan árið 2016 en að það sé enn opið mál gegn honum. Málið sé enn í vinnslu, ekki sé búið að loka því og hann geti verið handtekinn hvenær sem er. Þá kvaðst kærandi ekki þora að spyrja um stöðu málsins gegn honum. Í viðtali hjá kærunefnd greindi kærandi frá því að hafa farið einu sinni í yfirheyrslu hjá lögreglu í kjölfar þess að hann hafi verið rekinn úr starfi og að honum hafi verið tilkynnt um að mál gegn honum hafi verið fellt niður og ekkert frekar yrði aðhafst af hálfu yfirvalda. Við meðferð máls síns hjá kærunefnd lagði kærandi fram skjal, dags. 27. maí 2019, sem ber með sér að vera útgefið af Héraðssaksóknara í Tyrklandi, deild sem rannsaki hryðjuverk- og skipulagða glæpastarfsemi. Þá ber skjalið með sér að ekki hafi fundist neinar sannanir til að tengja kæranda við Gülen hreyfinguna og að ekki sé ástæða til að höfða mál gegn kæranda. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa farið í yfirheyrslu hjá lögreglunni um ári eftir valdaránstilraunina, þá í júlí 2017. Í viðtali hjá kærunefnd greindi kærandi frá því að hafa farið í yfirheyrslur hjá lögreglunni um ári eða einu og hálfu ári eftir að hann hafi verið rekinn úr starfi 1. september 2016, þá í síðasta lagi fyrstu mánuði ársins 2018. Við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram afrit af lögregluskýrslu, dags. 4. febrúar 2019, sem kærandi kvað vera einu yfirheyrsluna sem hann hafi farið í um tengsl hans við Gülen hreyfinguna í kjölfar brottreksturs síns. Framangreint misræmi er til þess að draga verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda. Þá draga misvísandi og takmarkaðar upplýsingar um tímasetningar meginatburða í frásögn kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun og hjá kærunefnd einnig verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi aðspurður frá því að hann hafi gengið í Gülen hreyfinguna árið 1997. Í viðtali hjá kærunefnd greindi kærandi frá því að hafa gengið í Gülen hreyfinguna árið 2005. Kærandi greindi þá frá því að hafa flúið heimaríki vegna þess að það hann hafi verið tekin til yfirheyrslu vegna tengsla sinna við Gülen hreyfinguna eftir brottrekstur hans úr starfi, að það sé opið mál gegn honum og hann eigi á hættu að vera handtekinn hvenær sem er. Yfirvöld séu farin að handtaka aftur fólk úr hreyfingunni, m.a. kennara. Fólk sé undir stöðugu eftirliti um hvort þau séu að aðstoða fólk í hreyfingu eða safnast saman aftur. Í viðbótarathugasemdum til kærunefndar greindi kærandi hins vegar frá því að meginástæða flótta hans frá heimaríki sé að hann hafi aðstoðað aðra meðlimi Gülen hreyfingarinnar og fjölskyldumeðlimi þeirra m.a. með fjárhagslegum og sálrænum stuðning. Stjórnvöld í heimaríki líti á slíka aðstoð sem tilraun til að endurvekja hreyfinguna, fólk sé undir stöðugu eftirliti og stjórnvöld séu að handtaka fólk vegna þessa núna. Í viðtali hjá kærunefnd greindi kærandi frá því að hann hafi veitt framangreinda aðstoð frá valdaránstilrauninni árið 2016, í sjö ár þar til hann hafi flúið heimaríki í ágúst 2023 og að hann sé enn að kenna og veita sálrænan stuðning í gegnum síma. Kærandi kvaðst hafa skipulagt aðstoð á samskiptamiðlum en ekki geta lagt fram afrit af neinum samskiptum sínum í tengslum við þetta. Að mati kærunefndar dregur það úr trúverðugleika frásagnar kæranda að hann hafi ekki greint frá framangreindri aðstoð sem hann kveður vera megin ástæðu flótta síns nú fyrr en hjá kærunefnd. Þá dregur það úr trúverðugleika frásagnar kæranda að hann kvaðst hafa verið undir stöðugu eftirliti yfirvalda en hafi samt veitt framangreinda aðstoð í heimaríki í sjö ár eftir valdaránstilraun allt þar til hann hafi flúið í ágúst 2023 án þess að yfirvöld hafi orðið þess vör. Þá hefur kærandi ekki lagt fram nein samskipti af samskiptamiðlum um framangreinda aðstoð, þrátt fyrir að hafa greint frá því að vera enn að veita aðstoð í gegnum síma. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi kært brottvikningu sína úr starfi. Af framlögðum gögnum má ráða að málið hafi veri til meðferðar hjá yfirvöldum og dómstólum a.m.k. til ársins 2021 og hafi farið fyrir stjórnsýsludómstól í Tyrklandi. Framangreint bendir ekki til að kærandi hafi verið í felum fyrir eða hræddur við yfirvöld eða að hann hafi verið undir sérstöku eftirliti yfirvalda í Tyrklandi vegna tengsla hans við Gülen hreyfinguna.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að eiginkona hans hafi verið opinber starfsmaður fyrir valdaránstilraunina 2016 og sé enn í sama starfi í dag. Kærandi greindi frá því að eiginkona hans hafi verið virk í Gülen hreyfingunni alla tíða og hafi m.a. aðstoðað fólk, skipulagt samkomur og safnað fólki saman. Yfirvöld hafi tekið skýrslu af henni eftir valdaránið en hún hafi ekki lent í neinu eftir það þar sem stjórnvöld hafi aldrei vitað að hún hafi verið eða sé virk í hreyfingunni. Kærandi greindi frá því að eiginkona sín hafi farið í skýrslutöku ári eftir valdaránstilraunina árið 2016 líkt og allir aðrir opinberir starfsmenn í Tyrklandi. Að mati kærunefndar er það ótrúverðugt að eiginkona kæranda hafi getað starfað sem opinber starfsmaður síðan fyrir valdaránstilraunina og verið virk í Gülen hreyfingunni án þess að yfirvöld hafi haft minnsta grun þar um. Einkum er það ótrúverðugt í ljósi þess eftirlits sem kærandi kvaðst hafa sætt af stjórnvöldum og hversu fjölbreytt starf kærandi kvað eiginkonu sína hafa sinnt hjá hreyfingunni. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að yfirvöld í Tyrklandi séu með lista yfir fólk sem hafi verið í hreyfingunni og hann geti ekki búið neins staðar í Tyrklandi og verið öruggur. Af framangreindu skjali, sem kærandi lagði fram við meðferð máls síns og ber með sér að vera útgefið af Héraðssaksóknara í Tyrklandi, má ráða að þrátt fyrir tengsl kæranda við tiltekið stéttarfélag og þess að hann hafi átt bankareikning í Bank Asya hafi ekki komið fram sannanir sem tengi hann við Gülen hreyfinguna. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi ferðast á vegabréfi sínu frá Tyrklandi til Makedóníu á leið sinni til Íslands. Kærandi kvaðst telja að hann hafi sótt um vegabréfið árið 2020 eða 2021 og að það hafi gilt í tíu ár. Framangreint bendir ekki til þess að kærandi hafi verið undir sérstöku eftirliti yfirvalda í Tyrklandi eða sætt farbanni. Þá greindi kærandi frá því í viðtali hjá kærunefnd að hann hafi byrjað að kenna í nafngreindum skóla sem hann hafi verið rekinn frá árið 2009. Af framlögðum gögnum verður hins vegar ráðið að kærandi hafi byrjað að starfa í framangreindum skóla árið 2013.

Líkt og greinir að framan ræðst mat á því hvort að einstaklingar þarfnist verndar vegna tengsla sinna eða meintra tengsla sinna við Gülen hreyfinguna af fjölda þátta og fara þarf fram einstaklingabundið mat í hverju máli fyrir sig. Við mat á því hvort að einstaklingur sem hafi tengsl eða meint tengsl við Gülen hreyfinguna eigi á hættu ofsóknir kemur til skoðunar hversu mikið eiginleg eða meint tengsl við hreyfinguna séu og hversu líklegt sé að yfirvöld hafi vitneskju um eða gætu hafa grun um tengsl einstaklinga við hreyfinguna. Þá þarf m.a. að líta til þess hvort að einstaklingur hafi verið handtekinn, settur í varðhald, ákærður, sakfelldur eða dæmdur til refsinga. Eins þarf m.a. að skoða hvort að einstaklingur hafi átt í öðrum samskiptum við yfirvöld, m.a. haft aðgengi að tyrkneskum dómstólum og fengið að eiga fasteign eða bíla og hafi síma og net. Einkum skal skoða hvort um sé að ræða blaðamenn eða fjölmiðlamenn sem hafi birt neikvæða umfjöllun um yfirvöld, kennara í Gülen menntastofnunum, dómara og lögfræðinga, hermenn og lögreglumenn sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna. Tilteknar aðgerðir sem beinist gegn meðlimum Gülen hreyfingarinnar, s.s. missir atvinnu, nægja ekki einar og sér til þess að teljast ofsóknir eða til að uppfylla þröskuld undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Í ljósi framangreinds trúverðugleikamats telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi verið meðlimur Gulen hreyfingarinnar. Hins vegar verður ekki lagt til grundvallar að kærandi hafi veitt og sé enn að veita meðlimum hreyfingarinnar og fjölskyldumeðlimum þeirra aðstoð eða að hann hafi verið virkur í starfi hreyfingar að þessu leyti. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi starfað sem kennari í heimaríki og hafi verið rekinn samkvæmt tilskipun stjórnvalda líkt og tugþúsundir annarra einstaklinga. Af frásögn kæranda og framlögðum gögnum má hins vegar ráða að það hafi ekki verið gripið til frekari ráðstafana gegn kæranda vegna meintrar aðildar hans að Gülen hreyfingunni og rannsókn sem hafi varðað hann hafi verið vísað frá á grundvelli ónægrar sönnunargagna til að tengja hann við Gülen hreyfinguna. Þá er til þess að líta að samkvæmt framburði kæranda hafi hann átt húsnæði og starfað án frekari afskipta stjórnvalda í heimaríki í sjö ár eftir að hann hafi verið rekinn úr starfi og þar til hann flúði heimaríki og rekið mál fyrir dómstólum gegn yfirvöldum til ársins 2021. Þá ber frásögn kæranda ekki með sér að aðrir fjölskyldumeðlimir hans hafi verið undir sérstöku eftirliti eða sætt áreiti af hálfu stjórnvalda, sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, vegna aðildar hans eða þeirra að Gülen hreyfingunni. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvalda vegna aðildar sinnar að Gülen hreyfingunni.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi telur með hliðsjón af því sem hafi verið rakið í tengslum við aðalkröfu kæranda sé ljóst að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Kærandi sé í raunverulegri hættu á að vera fangelsaður af tyrkneskum yfirvöldum vegna ásakana um að hann tengist Gülen hreyfingunni. Þá hafi verið sýnt fram á að þeir einstaklingar sem sæti varðhalds- eða fangelsisvist í Tyrklandi eiga á hættu á að vera beittir pyndingum og annarri ómannlegri eða vanvirðandi meðferð. Leiða megi líkum að því að fangelsisaðstæður í Tyrklandi séu það slæmar að vistun þar ein og sér feli í sér brot gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til hins fordæmalausa ástands í Tyrklandi verður, vegna tengsla kæranda við Gülen hreyfinguna, einnig að telja að hann eigi á hættu alvarlegan skaða og ómannlega og vanvirðandi meðferð af öðrum ástæðum.

Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kæranda að hann eigi á hættu að verða ofsóttur af yfirvöldum á grundvelli aðildar sinnar eða starfa fyrir Gülen hreyfinguna eða af öðrum ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa búið í borginni Istanbúl í Tyrklandi frá árinu 2005 þar til hann yfirgaf heimaríki sitt í ágúst 2023. Með vísan til framangreindra heimilda er það mat kærunefndar að ástandið í heimaborg kæranda sé ekki á því alvarleikastigi að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, í heimaborg sinni, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til Tyrklands.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Af framburði kæranda verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Af upplýsingum um heimaríki kæranda verður ekki annað ráðið en að kærandi muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki snúi hann til baka. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi hefur greint frá því að eiga fjölskyldu í heimaríki, eiginkonu og börn, og af gögnum málsins verður talið að hann hafi getað og geti framfleytt sér í heimaríki, sé skuldlaus og eigi tvær fasteignir. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 19. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærandi kvaðst finnast það illa gert að veita honum brottvísun og endurkomubann í ljósi frásagnar hans.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir