22 desember 2025
/
Nr. 942/2025 Úrskurður
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er staðfest. Felldar eru úr gildi ákvarðanir Lögreglustjórans um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og frávísa henni á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.
Hinn
úrskurður nr. 942/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25070104
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 5. júlí 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ódagsetta ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að ógilda vegabréfsáritun hennar til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 20. maí 2025, og ákvörðun embættisins dags. 22. júní 2025 um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun um frávísun á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga verði felld úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2 og 10 þess efnis að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar auk þess sem að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu ekki viðbótarathugasemdir.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a-, og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að kærandi hefði ekki leitt líkur að tilgangi dvalar auk þess sem áritunar hefði verið aflað með sviksamlegum hætti.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 23. júní 2025, hafi hinn 22. júní s.á. verið óskað eftir aðstoð við landamærahlið í komusal á Keflavíkurflugvelli vegna kæranda en hún hafi komið með flugi frá Bretlandi. Aðspurð kvaðst kærandi ætla að vera á Íslandi í minna en sólarhring og síðan færi hún til Ítalíu til þess að hitta bróður sinn. Aðspurð hafi kærandi ákveðið að fara til Ítalíu sama dag og hún hafi bókað flugið til Íslands. Kærandi hafi sýnt fram á nægt fjármagn til dvalar á Íslandi. Hún hafi upphaflega bókað sér ferð frá 11. til 18. júní 2025 og ekki gert ítarlega ferðaáætlun enda hafi hún ætlað að verja tímanum í slökun. Kærandi kvaðst hafa afbókað þær áætlanir í upphafi júnímánaðar. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að kærandi hefði afbókað hótelgistingu degi eftir að hafa fengið útgefna áritun. Í kjölfarið tók lögregla ákvörðun um að ógilda áritun kæranda og frávísa henni á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þar sem áritunar hefði verið aflað til þess að komast til Ítalíu sem væri misnotkun á áritun til dvalar á Íslandi. Kærandi hafi síðan farið með flugi til Bretlands.
Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 5. júlí 2025. Fylgigögn frá kæranda bárust 22. júlí 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust 28. ágúst og 22. október 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 18. nóvember 2025. Greinargerð kæranda barst 8. desember 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er vísað til fyrirliggjandi málsatvika og málsmeðferðar Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Kærandi byggir á því að málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar hafi ekki verið fylgt við töku ákvörðunar hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og því sé ákvörðunin ógildanleg. Kærandi byggir á því að lögreglan hafi með engu móti kannað hverjar aðstæður kæranda voru við mat á réttmæti þess að kæranda væri heimilt að koma til landsins. Kærandi vísar til 22. gr. stjórnsýslulaga um rökstuðning ákvörðunar og telur að gögn málsins beri ekki með sér með ótvíræðum hætti af hvaða ástæðum kærandi hafi ekki haft löglega heimild til að ferðast til Íslands. Um sé að ræða skort á rökstuðningi fyrir ákvörðuninni. Aðeins sé vísað til a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að skilyrði framangreindra ákvæða séu ekki uppfyllt enda liggi ekki fyrir í gögnum málsins sönnur um annað.
Kærandi gerir athugasemd við leiðbeiningar lögreglunnar um rétt kæranda til að leita sér lögfræðiþjónustu á eigin kostnað. Henni hafi ekki verið leiðbeint um hvernig hún gæti sótt sér slíka þjónustu. Þá sé ekki ljóst hvort kærandi hafi gert tilraunir til að leita sér aðstoðar lögmanns. Sé því ekki hægt að fullyrða að leiðbeiningarskyldu stjórnvalda og andmælarétti kæranda, sbr. 7. og 13. gr. stjórnsýslulaga, hafi verið fullnægt við meðferð málsins.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar dags. 20. maí 2025. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu í allt að 30 daga á tímabilinu 11. júní til 25. júlí 2025. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar.
Meðal gagna málsins er ódagsett ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Þrátt fyrir að hver síða ákvörðunarinnar hafi verið undirrituð af kæranda er hún ánöfnuð öðrum einstaklingi og lýtur að vegabréfsáritun þess aðila en ekki vegabréfsáritun kæranda. Umrætt misræmi á auðkenni og vegabréfsáritun er verulegur annmarki á formhlið málsins.
Með vísan til framangreinds annmarka er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um ógildingu vegabréfsáritunar felld úr gildi.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki tilefni til þess að fjalla um málsástæður kæranda hvað varðar ógildingu á vegabréfsáritun kæranda.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 20. maí 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 22. júní 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið felld úr gildi. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því ekki uppfyllt. Er sá hluti ákvörðunar um frávísun kæranda felldur úr gildi.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi lagt fram umsókn um vegabréfsáritun á þeim forsendum að hún hygðist dvelja hér á landi í átta daga, frá 11. til 18. júní 2025. Með umsókn hafi kærandi lagt fram bókun á gistingu fyrir umrædda daga auk flugmiða. Hjá lögreglu hafi kærandi greint frá því að hún hafi ætlað að dvelja hér á landi í tæpan sólarhring áður en hún héldi til Ítalíu til þess að heimsækja bróður sinn. Ekki verður annað ráðið af gögnum málsins en að kærandi hafi ekki verið búin að gera ráðstafanir vegna sólarhringsdvalar sinnar hér á landi og hafi framburður hennar verið óskýr um tilgang dvalar. Þrátt fyrir að játa megi handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, og að því gefnu að á því séu eðlilegar skýringar, þá liggur fyrir í máli kæranda að ekki var um smávægilegar breytingar á ferðaáformum að ræða auk þess sem uppgefnar ástæður fyrir breytingunum verða ekki metnar trúverðugar. Ferð kæranda hingað til lands 22. júní 2025 var í engu samræmi við fyrirhugaða ferð samkvæmt þeim forsendum sem gefnar voru við umsókn um vegabréfsáritun. Með vísan til framangreinds misræmis á fyrirhugaðri ferð kæranda hingað til lands 11. til 18. júní 2025 samkvæmt umsókn um vegabréfsáritun og ferðar hennar til landsins 22. júní 2025, þar sem kærandi hugðist dvelja á landinu í tæpan sólarhring, hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi fyrirhugaðrar dvalar hér á landi. Kærandi hefur því ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem hún gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Í málatilbúnaði kæranda eru gerðar athugasemdir við meðferð málsins, m.a. varðandi 7. og 13. gr. stjórnsýslulaga og 11. gr. laga um útlendinga. Af skýrslu lögreglu er ljóst að kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað. Ekki er gerð athugasemd við leiðbeiningar lögreglunnar hvað þetta varðar. Að virtum gögnum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum að ógilda vegabréfsáritun kæranda felld úr gildi. Einnig er felld úr gildi ákvörðun embættisins um að frávísa kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er staðfest.
Athugasemdir við málsmeðferð lögreglu
Hin kærða ákvörðun um frávísun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kemur ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við mat lögreglu við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hefði ekki leitt líkum að tilgangi dvalar og aflað áritunar með sviksamlegum hætti. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er staðfest. Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli a-liðar sama ákvæðis og ógildingu vegabréfsáritunar eru felldar úr gildi.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District on refusal of entry at the border is affirmed concerning Art. 106(1)(c). The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District refuse the appellant entry on the grounds of Art. 106(1)(a) and to annul the appellant‘s visa are vacated.