06 janúar 2026
/
Úrskurður í máli nr. IRN25070083
Þann 12. desember 2025 er í innviðaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli nr. IRN25070083:
Kæra, kröfur og kæruheimild
Með stjórnsýslukæru móttekinni af innviðaráðuneytinu (hér eftir ráðuneytið) 25. júlí 2025 kærði X (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir lögreglustjóri) frá 26. júní 2025 um að synja beiðni kæranda um endurveitingu ökuréttar.
Af kæru verður ráðið að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir lögreglustjóra að veita kæranda ökurétt að nýju.
Kæruheimild er í 5. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi var sviptur ökurétti í fjögur ár og sex mánuði frá 15. desember 2021 […].
Með umsókn dags. 2. júní 2025 sótti kærandi um endurveitingu ökuréttar til lögreglustjóra. Með ákvörðun lögreglustjóra dags. 26. júní 2025 var beiðni kæranda synjað með vísan til 3. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Ákvörðun lögreglustjóra var kærð til ráðuneytisins 25. júlí 2025.
Með bréfi ráðuneytisins dags. 6. ágúst 2025 óskaði ráðuneytið eftir umsögn lögreglustjóra varðandi kæruna og öllum gögnum málsins. Bárust þau gögn 21. ágúst 2025.
Með bréfi ráðuneytisins dags. 21. ágúst 2025 var kæranda kynnt umsögn lögreglustjóra og gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum vegna málsins. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.
Sjónarmið kæranda
Kærandi óskar eftir því að ákvörðun lögreglustjóra um synjun á endurveitingu ökuréttar verði endurskoðuð m.t.t. breyttra lífshátta og núverandi aðstæðna kæranda. Kærandi kveðst hafa glímt við mikla erfiðleika og hafi verið í neyslu á tímabili. Kærandi hafi verið edrú síðan í mars 2021. […] Kærandi kveður það myndi hafa veruleg áhrif á líf sitt að fá ökurétt, sérstaklega m.t.t. starfs kæranda, daglegs lífs og sjálfstæðis. Þá fjallar kærandi nánar um aðstæður sínar í kæru en ekki gerist þörf á að reifa þá umfjöllun frekar hér.
Umsögn lögreglustjóra
Í umsögn lögreglustjóra, dags. 21. ágúst 2025, segir að kærandi hafi […] verið sviptur ökurétti í fjögur ár og sex mánuði frá 15. desember 2021 að telja. Í desember 2024 hafi því verið liðinn sá tími frá ökuréttarsviptingu sem áskilinn er í 1. mgr. 105. gr umferðarlaga en þar segi að hafi maður verið sviptur ökurétti um lengri tíma en þrjú ár geti lögreglustjóri, þegar svipting hefur staðið í þrjú ár, heimilað að honum skuli veittur ökuréttur að nýju.
Í 3. mgr. 105. gr. umferðarlaga segi að ef umsækjandi hafi á sviptingartímabilinu gerst sekur um brot gegn 58. gr. laganna þá lengist tími til endurveitingar um sex mánuði fyrir hvert brot, þó að hámarki tvö ár. Ekki sé að finna heimild til undanþágu frá framangreindu ákvæði.
Kærandi hafi í tvígang gengist undir sektir fyrir brot gegn 58. gr. umferðarlaga á sviptingartímabilinu, þ.e. fyrir að aka sviptur ökurétti. Þar sem áðurnefnd ákvæði umferðarlaga um frestun endurveitingar vegna slíkra brota séu ófrávíkjanleg sé það afstaða lögreglustjóra að kærandi uppfylli ekki lagaskilyrði til endurveitingar fyrr en í fyrsta lagi 15. desember 2025.
Niðurstaða
Til úrlausnar er kærð ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 26. júní 2025 um að synja umsókn kæranda dags. 2. júní 2025 um endurveitingu ökuréttar.
Fjallað er um endurveitingu ökuréttar í 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Í 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga segir að hafi maður verið sviptur ökurétti um lengri tíma en þrjú ár geti lögreglustjóri þegar svipting hafi staðið í þrjú ár heimilað að honum skuli veittur ökuréttur að nýju. Í sama ákvæði segir að hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt megi þó ekki veita ökurétt að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.
Í 3. mgr. 105. gr. segir að hafi umsækjandi á sviptingartímabilinu gerst sekur um brot gegn 58. gr. sömu laga lengist tíminn til endurveitingar um sex mánuði fyrir hvert brot, þó að hámarki um tvö ár.
Fyrir liggur að kærandi þessa máls var […] sviptur ökurétti í fjögur ár og 6 mánuði frá 15. desember 2021 að telja. Samkvæmt framlögðum gögnum er ljóst að kærandi hefur í tvígang á sviptingartíma gerst sekur um brot gegn 58. gr. umferðarlaga. Kærandi gekkst nánar tiltekið undir tvær sektargerðir lögreglustjóra vegna brota gegn 58. gr. umferðarlaga, sbr. sektargerðir í málum nr. […] þann 13. nóvember 2024 og nr. […] þann 11. apríl 2025.
Er því óhjákvæmilegt að fallast á niðurstöðu lögreglustjóra um að lagaskilyrði til endurveitingar ökuréttar er í fyrsta lagi 15. desember 2025. Verður hin kærða ákvörðun lögreglustjórans því staðfest svo sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð
Ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 26. júní 2025, um að synja beiðni X um endurveitingu ökuréttar, er staðfest.