08 janúar 2026
/
Mál nr. 658/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 658/2025
Fimmtudaginn 8. janúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 9. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 15. janúar 2025 og var umsóknin samþykkt 21. febrúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 733.003 kr., að meðtöldu álagi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. október 2025. Með bréfi, dags. 14. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Með kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála fylgdu skýringar kæranda til Vinnumálastofnunar. Þar kemur meðal annars fram að kærandi hafi ekki verið meðvitaður um gildandi lög og reglur. Kærandi hafi gert mistök og óski eftir skilningi með vísan til aðstæðna sinna. Um sé að ræða mjög háa endurkröfu en að mati kæranda sé honum ekki skylt að endurgreiða alla fjárhæðina. Kærandi telji að það ætti að minnsta kosti að veita ívilnun þar sem hann eigi erfitt með að ná endum saman.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 15. janúar 2025. Með erindi, dags. 21. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Áður hafi kærandi þegið greiðslur frá 1. október 2023 til 30. september 2024.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í ágúst 2025 hafi komið í ljós að kærandi hefði fengið tekjur í júlí 2024, að fjárhæð 628.809 kr. frá B. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi vinnu né tekjur á umræddu tímabili. Með erindi, dags. 15. ágúst 2025, hafi verið óskað eftir skýringum kæranda á umræddum tekjum. Í kjölfarið hafi Vinnumálastofnun borist gögn sem hefðu ekki varðað fyrirspurnina, þ.e.a.s. launaseðil vegna janúar 2025 og skjáskot úr síma frá 31. júlí 2024 sem hafi sýnt útborgun atvinnuleysisbóta.
Með erindi, dags. 20. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að honum bæri að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 242.952 kr. í júlí 2024. Skuld hafi verið innheimt með 15% álagi og næmi samtals 279.395 kr.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í september 2025 hafi komið í ljós að kærandi hefði bæði opnað launagreiðendaskrá og verið með tekjur úr eigin rekstri í febrúar 2025, auk þess að hafa verið með ótilkynntar tekjur frá B og C í janúar 2025 og tekjur frá D í mars og apríl 2025. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um verktakavinnu í febrúar 2025 eða um tilfallandi vinnu og/eða tekjur í janúar, mars og apríl 2025. Með erindi, dags. 16. september 2025, hafi verið óskað eftir skýringum kæranda á umræddum tekjum. Í kjölfarið hafi skriflegar skýringar borist frá kæranda. Kærandi hafi sagst hafa verið með laun í janúar 2025 vegna vinnu í desember 2024 hjá C. Þá hafi hann sagst hafa verið með tekjur vegna verkefna sem hann hefði sinnt á eigin kennitölu sem hafi numið 36.000 kr. í febrúar 2025 og að lokum hafi hann sagst hafa byrjað vinnu hjá D 1. mars 2025.
Í ljósi þess að kærandi hafi verið með ótilkynnt reiknað endurgjald samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hafi Vinnumálastofnun kannað hvort kærandi væri enn verið með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Í ljós hafi komið að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá frá 1. janúar til 28. febrúar 2025.
Þann 9. október 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að honum bæri að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í formi þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt um verktakavinnu sína eða um vinnu hjá D. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að vegna þessa hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 637.394 kr. á tímabilinu 1. janúar til 2. apríl 2025. Skuld yrði innheimt með 15% álagi og næmi samtals 733.003 kr.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um biðtíma og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi ekki tilkynnt um tekjur í júlí 2024, janúar 2025 og í mars og apríl 2025. Þá hafi kærandi byrjað störf sem verktaki í janúar 2025. Kærandi hafi svo opnað launagreiðendaskrá á eigin kennitölu frá og með 1. janúar til og með 28. febrúar 2025.
Eitt af skilyrðum þess að eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi hafi stöðvað rekstur sinn. sbr. f. lið 18. gr. laganna. Í 20. og 21. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar fjallað um það hvað felist í því að stöðva rekstur sinn. Þar segi meðal annars að staðfesting á stöðvun reksturs feli í sér tilkynningu til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra um rekstrarstöðvun og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Samkvæmt framangreindu geti atvinnuleitandi sem sé með opna launagreiðendaskrá hjá Skattinum ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga á sama tíma.
Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Þá segi í 1. mgr. 59. gr. laganna að hver sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar sé tilkynnt aðila. Honum skuli jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt 39. gr.
Ljóst sé að kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um störf sín eða tekjur. Vinnumálastofnun hafi ekki verið kunnugt um að kærandi hefði starfað í júlí 2024 eða að hann hafi opnað launagreiðendaskrá í janúar 2025 og hafið rekstur á eigin kennitölu til febrúarloka og þá ekki heldur um tekjur í mars og apríl 2025, fyrr en eftir reglubundin eftirlit í ágúst og september 2025. Þær skýringar sem kærandi hafi fært fram réttlæti ekki að hann hafi látið hjá líða að upplýsa stofnunina um breytingar á högum sínum. Því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í tvo mánuði annars vegar og þrjá mánuði hins vegar þar sem um ítrekun sé að ræða og komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna, sem hljóði svo:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Í athugasemdum með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 37/2009 segi meðal annars að: „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“
Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.
Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.
Heildarskuld kæranda hafi verið 1.012.398 kr. með álagi en standi í 984.459 kr. m.t.t. greiðslna kæranda inn á kröfuna. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldamyndunar. Þar sem kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um störf sín og rekstur telji Vinnumálastofnun ekki tilefni til að fella niður álag í máli kæranda.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnun að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. sem og á grundvelli 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé jafnframt niðurstaða stofnunarinnar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 1. janúar til 28. febrúar 2025 og að tekjur kæranda í júlí 2024 sem og í mars og apríl 2025 skuli koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum hans. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, auk álags, samtals 1.012.398 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með opna launagreiðendaskrá á tímabilinu 1. janúar til 28. febrúar 2025 og með tekjur frá D í mars og apríl 2025 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2025.
Þann 15. janúar 2025 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.
Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna teknanna og opnun launagreiðendaskrár. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um framangreindar tekjur, auk skráningu á launagreiðendaskrá. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 20. ágúst 2025 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna, eða þriggja mánaða viðurlaga við ákvörðun Vinnumálastofnunar í október 2025.
Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. janúar til 2. apríl 2025, samtals að fjárhæð 733.003 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Líkt og að framan greinir var kærandi með opna launagreiðendaskrá í janúar og febrúar 2025. Eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga er að hafa stöðvað rekstur og leggja fram staðfestingu um slíka stöðvun, sbr. f. og g. liði 1. mgr. 18. gr. laga nr. 54/2006. Í 20. gr. laganna kemur fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Enn fremur telst sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sjálfstætt starfandi einstaklingur leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur og skal staðfestingin fela í sér yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess og afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.
Með vísan til framangreinds er ljóst að kærandi uppfyllti ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 á því tímabili sem hann var með opna launagreiðendaskrá. Þá er ljóst að kærandi fékk hærri atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á tímabilinu 1. mars til 2. apríl 2025 þar sem hann hafði ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur frá D.
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á og fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hann fékk greiddar frá D fékk hann hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þá fékk kærandi greiddar atvinnuleysisbætur í janúar og febrúar 2025 án þess að eiga rétt til þeirra þar sem hann var með opna launagreiðendaskrá. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um framangreindar tekjur og skráningu á launagreiðendaskrá og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006 og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir