08 janúar 2026
/
Mál nr. 677/2025 - Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 677/2025
Fimmtudaginn 8. janúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 15. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 4. júlí 2025 og var umsóknin samþykkt 14. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. október 2025. Með bréfi, dags. 16. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi misst rétt sinn til bóta í tvo mánuði. Ástæðan fyrir viðurlögunum hafi verið fjarvera kæranda á upplýsingafundi þann 19. september 2025. Að beiðni Vinnumálastofnunar hafi kærandi skilað inn skriflegri skýringu ásamt læknisvottorði sem hafi sérstaklega varðað 19. september 2025, enda hafi það verið eina dagsetningin sem stofnunin hafi minnst á í beiðninni. Þrátt fyrir að hafa skilað inn skýringum þurfi hann að sæta viðurlögum vegna ástæðna sem hafi ekki verið skýrðar nánar.
Kærandi óski eftir að skýra betur aðdraganda veikinda hans. Heilsufarsvandamál kæranda hafi byrjað þann 17. september 2025 en þá hafi hann upplifað alvarleg einkenni, svo sem uppköst, niðurgang, svima og beinverki sem hafi gert honum ómögulegt að mæta eða hafa samband við Vinnumálastofnun. Ástandið hafi haldist alvarlegt fram til 20. september 2025 þegar kæranda hafi loksins liðið nægilega vel til að geta skráð sig inn á „Mínar síður“ og fara til læknis. Það hafi verið fyrst þá sem að kærandi hafi tekið eftir boðun á upplýsingafund þann 19. september 2025.
Í læknisheimsókn þann 20. september 2025 hafi læknir staðfest að um veirusýkingu væri að ræða og gefið út læknisvottorð fyrir einungis þann dag sem námskeiðið hafi verið haldið, þar sem að kærandi hafi átt að ná sér að fullu á mánudeginum eftir helgi. Á þeim tíma hafi hvorki læknirinn né kærandi íhugað mikilvægi þess að gefa út læknisvottorð sem næði lengra aftur í tímann, þar sem veikindin hafi verið á undanhaldi. Ef Vinnumálastofnun eða úrskurðarnefndin telji það nauðsynlegt sé kærandi full viljugur til að fara aftur til læknis og fá uppfært læknisvottorð sem endurspegli hinn rétta tíma veikindanna frá 17. til 20. september 2025.
Kærandi taki fram að hann hafi engan ásetning til að forðast skyldur sínar eða halda eftir upplýsingum. Kærandi hafi verið í góðri trú og svarað nákvæmlega þeirri beiðni sem hann hafi fengið frá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi alltaf staðið við skyldur sínar sem atvinnuleitandi. Af þessum ástæðum óski kærandi eftir því að biðtíminn verði endurskoðaður og felldur niður, þar sem fjarvera hans á upplýsingafundinn hafi eingöngu stafað af óvæntum og skjalfestum veikindum.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 4. júlí 2025. Með erindi, dags. 14. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Með tilkynningu, dags. 3. september 2025, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 5. september 2025, kl. 09:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll bæri að tilkynna án tafar á tiltekið netfang Vinnumálastofnunar. Þá hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Umrædd boðun hafi verið send þann 3. september 2025 á „Mínar síður“, á netfangið X og í símanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 3. september 2025, kl. 08:51. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll.
Með tilkynningu, dags. 17. september 2025, hafi kærandi aftur verið boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 19. september 2025, kl. 09:00. Tvær tilkynningar hafi verið sendar kæranda en í þeirri fyrri hafi dagsetning fundarins misritast. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um síðustu boðun væri að ræða. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll bæri að tilkynna án tafar á tiltekið netfang Vinnumálastofnunar. Þá hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið send þann 17. september 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á netfangið X og með smáskilaboðum í símanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 17. september 2025, kl. 08:40 og aftur kl. 08:47. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll.
Kærandi hafi sent læknisvottorð á „Mínar síður“ þann 20. september 2025, útgefið sama dag, þar sem fram komi að kærandi hafi verið veikur þann 19. september 2025.
Með erindi, dags. 1. október 2025, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda en engin slík gögn hafi fylgt með læknisvottorðinu. Kærandi hafi í kjölfarið skilað skýringabréfi, dags. 13. október 2025, þar sem fram komi að hann hafi farið og hitt lækni um leið og heilsa hans hafi leyft, eða laugardaginn 20. september 2025. Kærandi hafi fundið fyrir veikindum strax þann 17. september 2025 en eins og læknirinn hafi spáð fyrir um, verið orðinn hress strax á mánudeginum eftir það, eða þann 22. september 2025.
Með erindi, dags. 13. október 2025, hafi kærandi verið upplýstur um að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði á grundvelli 59. gr. laganna þar sem hann hefði ekki tilkynnt um veikindi sín til Vinnumálastofnunar og því ekki uppfyllt tilkynningarskyldu sína.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 15. október 2025. Skýringar kæranda samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki sinnt mætingu á boðuð vinnumarkaðsúrræði og tilkynningarskyldu sinni gagnvart stofnuninni.
Samkvæmt a. lið 13. gr. og [h. lið] 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði um mætingu á þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun hafi boðað hann til í tvígang.
Hin kærða ákvörðun, dags. 13. október 2025, hafi varðað viðurlög sem kæranda hafi verið gert að sæta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynningar um forföll þrátt fyrir að í boðun sem honum hafi verið send þann 17. september 2025 hafi sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll skyldu tilkynnast á uppgefið netfang. Eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda hafi borist læknisvottorð þar sem fram komi að hann hafi verið óvinnufær þann 19. september 2025.
Kærandi hafi verið boðaður á tvo upplýsingafundi og ekki mætt á þá. Í læknisvottorði sem kærandi hafi skilað inn vegna seinni fundarins komi fram að hann hafi verið óvinnufær sama dag og fundurinn hafi verið haldinn en einnig megi sjá að þau séu tilkynnt eftir að veikindi kæranda eigi að hafa hamlað honum frá virkni í vinnumarkaðsúrræði. Þá hafi kærandi ekki tilkynnt um forföll daginn sem fundurinn hafi verið haldinn.
Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnunum allar þær breytingar sem verði á högum sínum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að uppfylla ekki skilyrði um mætingu né tilkynna um forföll hafi hann brugðist skyldum sínum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum frá 13. október 2025.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 19. september 2025 vegna veikinda. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti ekki Vinnumálastofnun um veikindin fyrr en eftir að stofnunin óskaði eftir skýringum á fjarveru hans.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir