08 janúar 2026
/
Mál nr. 693/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 693/2025
Fimmtudaginn 8. janúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 25. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 15. júlí 2025 og var umsóknin samþykkt 15. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. október 2025. Með bréfi, dags. 30. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. desember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. desember 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að í apríl 2025 hafi hún byrjað í nýju starfi hjá B sem málsvari í teymi sem vinni með hælisleitendum. Henni hafi fljótlega verið tilkynnt að stjórnvöld myndu loka deildinni og að hún myndi missa vinnuna eða í síðasta lagi 1. ágúst. Á þessum tímapunkti hafi kærandi verið ólétt og haft áhyggjur af hvaða afleiðingar þetta myndi hafa fyrir fæðingarorlof hennar og hvernig hún gæti fengið vinnu fyrir fæðingu barnsins sem hafi verið væntanlegt í lok september. Kærandi eigi erfitt með að trúa að einhver vinnuveitandi myndi ráða konu sem sé komin átta mánuði á leið. Þegar kærandi hafi hringt í Vinnumálastofnun hefði hún verið fullvissuð um að hún ætti rétt á atvinnuleysisbótum í þrjá mánuði milli starfs síns og fæðingarorlofs þrátt fyrir að geta líklega ekki leitað að vinnu komin átta mánuði á leið. Kærandi hafi nokkrum sinnum spurt hvort ætlast væri til þess að hún fengi vinnu og færi í viðtöl en því hafi verið svarað neitandi. Í september hafi kærandi verið greind með meðgöngusykursýki og myndgreiningar hefðu sýnt að barnið væri of lítið. Vegna þessa hafi læknarnir ákveðið að það þyrfti að framkalla fæðingu fyrir 40 vikur, eitthvað sem hún hafi haft áhyggjur af og viljað forðast. Þetta hafi líka þýtt að hún gæti ekki fætt á fæðingarstöðinni eins og til hefði staðið heldur hafi þurft að vera undir eftirliti á sjúkrahúsi. Að sögn kæranda hafi þetta allt valdið stressi og áhyggjum og hún hafi einfaldlega ekki verið í réttu hugarástandi þegar hún hafi fengið skilaboð frá Vinnumálastofnun um skyldfundinn. Hún hafi einnig verið að taka á móti móður sinni erlendis frá til að styðja kæranda síðustu vikur meðgöngunnar og fæðingarinnar. Þar sem kærandi hafi ekki mætt á fundinn hafi hún ekki fengið peningana, sem kærandi skilji þar sem hún hafi ekki staðið við ábyrgð sína. Hún hafi hins vegar hringt og spurt hvort það væri leið til að leiðrétta þessi mistök og þá verið beðin um að senda skýringarbréf.
Þann 1. október 2025 hafi kærandi verið á sjúkrahúsi í gangsetningu og þá sent bréf til Vinnumálastofnunar um hvers vegna hún hefði ekki mætt á fundinn. Kærandi hafi ekki enn fengið svar fjórum dögum eftir fæðingu dóttur sinnar og þá hringt aftur til að spyrjast fyrir um stöðuna. Sá sem hafi verið í símanum hefði loksins skilið stöðu kæranda og hafi reynt að hjálpa henni, hún hafi sagt að kærandi þyrfti að halda áfram að bíða eftir að mál hennar yrði afgreitt. Að lokum hafi kærandi fengið synjun, eða þann 15. október 2025.
Kærandi taki ábyrgð á því að hafa ekki gert neinar ráðstafanir varðandi skyldufundinn og skilji að það verði að hafa afleiðingar. Hins vegar hafi kærandi vonast til þess að það yrði sýndur skilningur á aðstæðum hennar. Þetta hafi skapað aukið álag fyrir nýju fjölskyldu hennar og haldi áfram að gera það þar sem þau þurfi á peningunum að halda. Auk þess hafi þetta mögulega áhrif á þau í framtíðinni ef kærandi þurfi aftur á atvinnuleysisbótum að halda.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 15. júlí 2025. Með erindi, dags. 15. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 3. september 2025 hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund þann 5. september 2025, klukkan 11:00. Kærandi hafi verið upplýst að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli kæranda verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang hennar og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 3. september 2025, klukkan 08:53. Kærandi hafi hvorki mætt á kynningarfundinn né boðað forföll.
Þann 17. september 2025 hafi kærandi aftur verið boðuð á kynningarfund þann 19. september 2025, klukkan 11:00. Kærandi hafi verið upplýst að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli kæranda verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang hennar og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 17. september 2025, klukkan 08:50. Kærandi hafi hvorki mætt á kynningarfundinn né boðað forföll.
Kæranda hafi verið sent erindi 1. október 2025 þar sem henni hafi verið gefin kostur á að skila skýringum á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 19. september 2025. Kærandi hafi með bréfi, dags. 1. október 2025, sent svohljóðandi skýringar á fjarveru sinni:
“[…]This i my own report on the reason for not attending the previous two meetings coordinated by VMST. I am pregnant and currently at the hospital having a labour induction. In the past month I obviously knew i was pregnant and therefore I am not planning to continue taking unemployment benefits. This is the main reason for me not attending. Additionally one of the meetings i missed coincided with my family coming to visit from Norway on ocasion of the birth of my child. This is the honest reason. Thank you for understanding.”
Kærandi hafi sent frekari skýringar í tölvupósti 6. október 2025 þar sem hún hafi farið yfir aðstæður sínar og áréttað að hún hefði ekki ætlað sér að þiggja greiðslur nema rétt fram að fæðingu barns hennar og henni hafi því ekki þótt nauðsyn að sinna vinnumarkaðsúrræðum á vegum stofnunarinnar.
Kæranda hafi verið send ákvörðun stofnunarinnar þann 15. október 2025 um að fella niður greiðslur henni til handa í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaða kynningarfundi á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar 5. og 19. september 2025. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ hennar um boðun á umrædda upplýsingafundi. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi verið óskað eftir skýringum kæranda á fjarveru með erindi, dags. 1. október 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Fyrstu skýringar kæranda á fjarveru á boðaðan upplýsingafund séu þær að hún hafi aldrei ætlað sér að þiggja greiðslur nema í skamman tíma og þar af leiðandi hafi hún talið óþarft að mæta á fundi hjá Vinnumálastofnun. Þá hafi kærandi sagst hafa verið í þeirri trú að Vinnumálastofnun hefði vitað af aðstæðum hennar og hafi fullvissað hana um rétt hennar til greiðslna. Kærandi hafi sagst hafa gert þau mistök að hafa verið heiðarleg og hefði ekki verið að þykjast sækja um störf.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Á meðan atvinnuleitandi sé skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun beri viðkomandi að uppfylla skilyrði um virka atvinnuleit. Skýringar á höfnun á þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum er lúti að því að atvinnuleitandi ætli sér að vera í stuttan tíma á skrá hjá stofnuninni teljist ekki gildar í skilningi 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá verði ekki fallist á að heimsókn frá fjölskyldu teljist gild ástæða fyrir fjarveru á fundi stofnunarinnar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga þegar hún hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. Kæranda beri því að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga frá ákvörðunardegi.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 3. september 2025 boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 5. september 2025. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Þann 17. september 2025 var kærandi aftur boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 19. september 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi eingöngu ætlað að þiggja atvinnuleysisbætur fram að fæðingu barns hennar. Í september 2025 hafi kærandi verið greind með meðgöngusykursýki með tilheyrandi erfiðleikum og því hafi hún ekki verið í réttu hugarástandi þegar hún hafi fengið skilaboð frá Vinnumálastofnun um skyldfundinn.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir