08 janúar 2026

/

Úrskurður í máli nr. IRN24120078

Þann 11. júní 2025 er í innviðaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli nr. IRN24120078:

Kæra, kröfur og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru sem innviðaráðuneytið móttók 18. desember 2024 kærði X (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir lögreglustjóri) frá 10. desember 2024 þess efnis að synja beiðni kæranda um endurveitingu ökuréttar. Af kæru verður ráðið að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir lögreglustjóra að veita kæranda ökurétt að nýju.

Kæruheimild er í 5. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Málsatvik

Kærandi var sviptur ökurétti ævilangt frá 30. júní 2021 […]. Með umsókn dags. 20. nóvember 2024 sótti kærandi um endurveitingu ökuréttar en var synjað með bréfi lögreglustjóra dags. 10. desember 2024 með vísan til 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga.

Með stjórnsýslukæru dags. 18. desember 2024 kærði kærandi ákvörðun lögreglustjóra til ráðuneytisins. Með tölvubréfi dags. 30. desember 2024 var lögreglustjóra gefinn kostur á að koma að frekari gögnum og athugasemdum til ráðuneytisins. Umsögn lögreglustjóra barst ráðuneytinu 22. janúar 2025.

Með tölvubréfi dags. 22. janúar 2025 var kæranda gefinn kostur á að gæta andmæla gagnvart sjónarmiðum lögreglustjóra. Með tölvubréfum til ráðuneytisins dags. 28. maí og 10. júní 2025 kom kærandi andmælum sínum á framfæri.

Sjónarmið kæranda

Kærandi hefur lýst aðstæðum sínum í tölvubréfum til ráðuneytisins. Kærandi hefur upplýst um að miklu varði fyrir hann að fá ökurétt að nýju. Að öðru leyti er ekki þörf á því að lýsa aðstæðum kæranda nánar.

Athugasemdir / Umsögn

Í ákvörðun lögreglustjóra frá 10. desember 2024 segir að fjallað sé um endurveitingu ökuréttar í 105. gr. umferðarlaga. Í 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga segi að hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt, þá geti lögreglustjóri þegar svipting hafi staðið í fimm ár heimilað að honum verði veittur ökuréttur að nýju. Kærandi hafi verið sviptur ökurétti ævilangt frá 30. júní 2021 […]. Með hliðsjón af framangreindu og með vísan til 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga hafi skilyrði til endurveitingar ekki verið uppfyllt og umsókn kæranda því synjað.

Í umsögn lögreglustjóra dags. 22. janúar 2025 er m.a. vísað til þess er segir í ákvörðun lögreglustjóra. Kærandi hafi verið sviptur ökurétti ævilangt frá 30. júní 2021 […] Ekki sé liðinn sá lágmarkstími sem kveðið sé á um í ákvæði 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga. Segir lögreglustjóri að ekki sé heimilt að víkja frá því skilyrði ákvæðisins vegna aðstæðna umsækjanda. Að framangreindu virtu hafi það verið afstaða lögreglustjóra að ekki hafi verið hjá því komist að synja umsókn kæranda að svo stöddu.

Andmæli kæranda

Með tölvubréfi ráðuneytisins dags. 22. janúar 2025 var umsögn lögreglustjóra send kæranda og honum gefinn kostur á að gæta andmælaréttar og koma að frekari sjónarmiðum og gögnum sem málið varði og kærandi telji ástæðu til. Með tölvubréfum til ráðuneytisins dags. 28. maí og 10. júní 2025 kom kærandi á framfæri andmælum sínum. Í tölvubréfunum lýsir kærandi aðstæðum sínum nánar. Ekki er þörf á að lýsa þeim nánar hér.

 

Niðurstaða

Í 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga segir að hafi maður verið sviptur ökurétti um lengri tíma en þrjú ár geti lögreglustjóri þegar svipting hafi staðið í þrjú ár heimilað að honum skuli veittur ökuréttur að nýju. Þá segir að hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt megi þó ekki veita ökurétt að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.

Fyrir liggur að kærandi var síðast sviptur ökurétti ævilangt frá 30. júní 2021 […].

Ráðuneytið áréttar að þegar um ævilanga sviptingu ökuréttar er að ræða kemur endurveiting fyrst til álita þegar svipting hefur staðið í fimm ár. Eru því ekki lagaskilyrði til að verða við beiðni kæranda um endurveitingu ökuréttar og verður hin kærða ákvörðun lögreglustjóra því staðfest.

Úrskurðarorð

Staðfest er ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 10. desember 2024 um að synja beiðni X um endurveitingu ökuréttar.