08 janúar 2026

/

Úrskurður í máli nr. IRN24100096

Þann 2. júlí 2025 er í innviðaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli nr. IRN24100096:

Kæra, kröfur og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru sem innviðaráðuneytið móttók 21. október 2024 kærði X (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir lögreglustjóri) frá 9. október 2024 um að synja beiðni kæranda um endurveitingu ökuréttar.

Af kæru verður ráðið að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir lögreglustjóra að veita kæranda ökurétt að nýju.

Kæruheimild er í 5. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Málsatvik

Kærandi var sviptur ökurétti ævilangt frá 30. nóvember 2020 […]. Með umsókn dags. 7. október 2024 sótti kærandi um endurveitingu ökuréttar en var synjað með bréfi lögreglustjóra dags. 9. október 2024 með vísan til 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga.

Með stjórnsýslukæru dags. 15. október 2024 kærði kærandi ákvörðun lögreglustjóra til ráðuneytisins. Með tölvubréfi dags. 22. október 2024 var lögreglustjóra gefinn kostur á að koma að frekari gögnum og athugasemdum til ráðuneytisins. Umsögn lögreglustjóra barst ráðuneytinu 13. nóvember 2024.

Með bréfi ráðuneytisins dags. 14. nóvember 2024 var kæranda gefinn kostur á að gæta andmæla gagnvart sjónarmiðum lögreglustjóra. Með bréfi ráðuneytisins dags. 12. júní 2025 var kæranda aftur leiðbeint um að kæranda gæfist kostur á að gæta andmælaréttar í málinu.  Kærandi hefur ekki látið sig málið varða frekar.

Sjónarmið kæranda

Kærandi kveðst hafa snúið lífi sínu við og hafi verið edrú í 5 ár. […] Það hafi mjög íþyngjandi áhrif á líf kæranda að hafa ekki ökurétt. Kærandi hafi lokið samfélagsþjónustu og þannig gert upp sínar sektir.

Athugasemdir / Umsögn

Í ákvörðun lögreglustjóra frá 9. október 2024 segir að fjallað sé um endurveitingu ökuréttar í 105. gr. umferðarlaga. Í 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga segi að hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt, þá geti lögreglustjóri, þegar svipting hafi staðið í fimm ár, heimilað að honum verði veittur ökuréttur að nýju. Kærandi hafi verið sviptur ökurétti ævilangt frá 30. nóvember 2020 […]. Með hliðsjón af framangreindu og með vísan til 1. mgr. 105. umferðarlaga hafi skilyrði til endurveitingar ökuréttar ekki verið uppfyllt og umsókn kæranda því synjað.

Í umsögn lögreglustjóra dags. 13. nóvember 2024 er vísað til þess er segir í ákvörðun lögreglustjóra. Kærandi hafi verið sviptur ökurétti ævilangt frá 30. nóvember 2020 […] og því sé ekki liðinn sá lágmarkstími sem kveðið sé á um í ákvæði 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga. Segir lögreglustjóri að ekki sé heimilt að víkja frá því skilyrði ákvæðisins vegna aðstæðna umsækjanda. Að framangreindu virtu hafi það verið mat lögreglustjóra að ekki hafi verið hjá því komist að synja umsókn kæranda að svo stöddu.

Niðurstaða

Í 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga segir að hafi maður verið sviptur ökurétti um lengri tíma en þrjú ár geti lögreglustjóri, þegar svipting hafi staðið í þrjú ár, heimilað að honum skuli veittur ökuréttur að nýju. Þá segir að hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt megi þó ekki veita ökurétt að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.

Fyrir liggur að kærandi var síðast sviptur ökurétti ævilangt frá 30. nóvember 2020 […].

Ráðuneytið áréttar að þegar um ævilanga sviptingu ökuréttar er að ræða kemur endurveiting ökuréttar fyrst til álita þegar svipting hefur staðið í fimm ár. Eru því ekki lagaskilyrði til að verða við beiðni kæranda um endurveitingu ökuréttar og verður hin kærða ákvörðun lögreglustjóra því staðfest.

Úrskurðarorð

Staðfest er ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 9. október 2024 um að synja beiðni X um endurveitingu ökuréttar.