08 janúar 2026
/
Úrskurður í máli nr. IRN25070022
Þann 12. desember 2025 er í innviðaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli nr. IRN25070022:
Kæra, kröfur og kæruheimild
Með stjórnsýslukæru móttekinni af innviðaráðuneytinu (hér eftir ráðuneytið) 3. júlí 2025 kærði X (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir lögreglustjóri) frá 26. júní 2025 þess efnis að synja beiðni kæranda um endurveitingu ökuréttar.
Af kæru má ráða að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lögreglustjóra verði gert að endurveita kæranda ökurétt.
Kæruheimild er í 5. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Málsatvik/málsmeðferð
Kærandi var sviptur ökurétti ævilangt frá 8. febrúar 2023 […]. Kærandi sótti um endurveitingu ökuréttar til lögreglustjóra 4. júní 2025. Með bréfi dags. 26. júní 2025 synjaði lögreglustjóri þeirri beiðni með vísan til 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Ákvörðun lögreglustjóra var kærð til ráðuneytisins 3. júlí 2025. Með bréfi ráðuneytisins dags. 3. júlí 2025 óskaði ráðuneytið eftir umsögn lögreglustjóra og öllum gögnum málsins. Bárust þau gögn 23. júlí 2025.
Með bréfi ráðuneytisins dags. 6. ágúst 2025 var kæranda kynnt umsögn lögreglustjóra og honum gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum vegna málsins. Andsvör kæranda bárust ráðuneytinu 7. ágúst 2025.
Sjónarmið kæranda
Í kæru segir m.a. að í dómi […], þar sem kærandi var m.a. sviptur ökurétti ævilangt, hafi verið birtar rangar upplýsingar um sakaferil kæranda. […] Þetta hafi valdið kæranda umtalsverðu tjóni. Kærandi hafi í raun hlotið aukarefsingu til viðbótar við þá sem hann var dæmdur til að sæta. Að mati kæranda beri að taka tillit til þess við mat á umsókn um endurveitingu ökuréttar.[…] Í kæru greinir kærandi nánar frá aðstæðum sínum en ekki gerist þörf á að rekja þá umfjöllun nánar hér.
Umsögn lögreglustjóra
Í ákvörðun lögreglustjóra, dags. 26. júní 2025 og umsögn dags. 23. júlí 2025, segir að 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 fjalli um endurveitingu ökuréttar. Í ákvæðinu segi að hafi maður verið sviptur ökurétti um lengri tíma en þrjú ár geti lögreglustjóri, þegar svipting hafi staðið í þrjú ár, heimilað að honum verði veittur ökuréttur að nýju. Hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt megi þó eigi veita ökurétt að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.
Kærandi hafi verið sviptur ökurétti ævilangt frá 8. febrúar 2023 […]. Séu því tvö ár og rúmir fimm mánuðir frá því að kærandi var sviptur ökurétti ævilangt. Skilyrði fyrir endurveitingu eftir ævilanga sviptingu sé að svipting hafi staðið í fimm ár, sbr. áðurnefnt ákvæði umferðarlaga. Heimild til að víkja frá því skilyrði sé ekki að finna í lögunum. Ekki sé liðinn sá lágmarkstími frá sviptingu sem áskilinn sé í nefndu ákvæði umferðarlaga. Endurveiting ökuréttar komi fyrst til álita í febrúar 2028.
Samkvæmt framangreindu er það niðurstaða lögreglustjóra að heimild til endurveitingar ökuréttar sé ekki fyrir hendi að svo stöddu í tilviki kæranda og því er umsókn kæranda synjað.
Andmæli kæranda
Í andmælum segir m.a. að sakavottorð kæranda hafi nú verið leiðrétt. Þá hafi kærandi verið upplýstur um að hinar röngu upplýsingar hafi ekki haft áhrif á refsingu í [umræddu] máli […]. Kærandi áréttar í þessu samhengi að hinar röngu upplýsingar hafi haft miklar og neikvæðar afleiðingar á líf kæranda. Að öðru leyti gerist ekki þörf á að reifa andmæli kæranda frekar.
Niðurstaða
Til umfjöllunar er hin kærða ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 26. júní 2025 um að synja umsókn kæranda dags. 4. júní 2025 um endurveitingu ökuréttar.
Fjallað er um endurveitingu ökuréttar í 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Í 1. mgr. 105. gr. segir að hafi maður verið sviptur ökurétti um lengri tíma en þrjú ár geti lögreglustjóri þegar svipting hafi staðið í þrjú ár heimilað að honum skuli veittur ökuréttur að nýju. Hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt má þó ekki veita ökurétt að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.
Fyrir liggur að kærandi var sviptur ökurétti ævilangt frá 8. febrúar 2023 […].
Samkvæmt framangreindu eru því ekki liðin fimm ár frá sviptingu ökuréttar og því er skilyrði 1. mgr. 105. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 ekki uppfyllt. Verður hin kærða ákvörðun lögreglustjóra því staðfest svo sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð
Ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 26. júní 2025, um að synja beiðni X um endurveitingu ökuréttar, er staðfest.