08 janúar 2026
/
Úrskurður nr. 7/2026
Hinn 8. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 7/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU24070108
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 11. júlí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Grikklandi hvar hann hafði hlotið alþjóðlega vernd og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 21. desember 2021. Kvaðst kærandi sækja um vegna efnahags ástands í Grikklandi og hræðilegrar heilbrigðisþjónustu. Kvaðst kærandi hafa flúið Írak árið 2019 eftir að ISIS hafi sprengt heimili hans og líkamsræktarstöð.
Útlendingastofnun ákvað 30. júní 2022 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Með úrskurði kærunefndar nr. 345/2022, dags. 7. september 2022, var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest. Hinn 21. desember 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins ásamt greinargerð. Með úrskurði kærunefndar nr. 77/2023, dags. 23. febrúar 2023, var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar með vísan til einstaklingsbundinna aðstæðna hans, einkum þarfa hans á heilbrigðis- og félagsþjónustu. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 16. mars 2023 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 31. mars 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 13. apríl 2023. Með úrskurði kærunefndar nr. 621/2023, dags. 2. nóvember 2023, var máli kæranda vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.
Kærandi kom til viðtals að nýju hjá Útlendingastofnun vegna efnismeðferðar 16. mars og 13. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Auk þess hafði kærandi í tengslum við fyrri málsmeðferð greint frá ýmsum atriðum varðandi flótta sinn frá Írak. Lýsti kærandi því að í byrjun árs 2015 hafi honum verið rænt og hann sætt grófum pyntingum. Greindi kærandi frá því að ástæður þess væru að hann hefði boðið sig fram til [...], hann væri súnní Arabi án stuðnings vopnahópa og stjórnmálasamtaka. Þá hafi kærandi talað til fólks um að standa á móti ofbeldi og að vera ekki hrætt. Kvað kærandi [...] í Írak vera einn af stofnendum vopnahópsins Asa´ib Ahl Al-Haq og að mannránið mætti rekja til andstöðu þeirra við að súnní Arabi kæmist til áhrifa. Kvaðst kærandi halda að pyntingarnar hafi verið teknar upp á myndband og grunaði að hluti þeirra hefði verið kynferðislegur. Kvaðst kærandi hafa misst meðvitund og gerendur hans talið hann látinn en hann hafi svo vaknað upp á spítala eftir að hafa legið í dái. Fyrir mannránið hafi hann orðið fyrir hótunum sem hann hafi ekki tekið alvarlega. Eftir dvöl hans á spítala hafi hann farið til Indlands, sótt sér læknisaðstoð og þurft að notast við hjólastól vegna pyntinganna á árunum 2015 til 2018. Kærandi kvaðst hafa snúið aftur til Íraks árið 2018 og opnað nýja líkamsræktarstöð árið 2019. Kvað hann engan hafa vitað af því að hann væri snúinn til baka en eftir að hann hafi opnað líkamsræktarstöðina þar sem hafi hangið uppi stór mynd af kæranda þá hafi honum borist skrifleg hótun. Hótunin hafi borist honum 17. mars 2019 og þar hafi komið fram að kærandi ætti að láta sig hverfa innan 48 klukkustunda annars yrði hann myrtur. Hinn 21. mars 2019 hafi líkamsræktarstöðin orðið fyrir sprengjuárás og kvaðst kærandi í framhaldinu hafa lagt fram kæru hjá lögreglu á lögreglustöð. Hafi lögreglumaður neitað að hafa eftir honum hverjir væru að baki sprengingunni og á lögreglustöðinni hafi kæranda borist símtal þar sem honum hafi verið sagt að beðið væri eftir honum fyrir utan lögreglustöðina til þess að vinna honum mein. Kvaðst kærandi hafa fengið að fara út bakdyrameginn, komið konu sinni og tveimur dætrum fyrir hjá tengdafjölskyldu sinni og yfirgefið landið. Þá kvað kærandi bróður sinn hafa orðið fyrir sprengjuárás í heimaríki og misst báða fætur árið 2023.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. júlí 2024. Greinargerð ásamt fylgiskjölum barst kærunefnd 30. júlí 2024. Þá barst nefndinni stuðningsbréf Öryrkjabandalags Íslands 6. ágúst 2024 og heilsufarsgögn bárust nefndinni 12. september 2024, 8. janúar og 6. maí 2025. Hinn 15. desember 2025 kom kærandi til viðtals hjá nefndinni og 17. og 19. desember sama ár bárust frekari heilsufarsgögn og rökstuðningur kæranda fyrir veitingu mannúðarleyfis.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með vísan til fyrri greinargerða.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Írak mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Jafnframt eru gerðar athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á heilsufari kæranda auk þess sem því er borið við að ekki hafi verið bætt úr fyrri annmörkum á málsmeðferð stofnunarinnar.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína á ástæðuríkum ótta við ofsóknir á grundvelli aðildar sinnar að sérstökum þjóðfélagshópi sem þolandi pyntinga eða annarrar ómannúðlegrar og vanvirðandi meðferðar og telur að hann teljist einnig til sérstaks þjóðfélagshóps vegna heilsufarsvandamála sinna en hann styðjist við hjólastól. Þá byggir kærandi einnig á því að óttast ofsóknir vegna trúar sinnar, og vísar til þess að vera súnní múslími, og vegna einstaklingsbundinna aðstæðna. Telur kærandi sig ekki geta fengið fullnægjandi vernd stjórnvalda í heimaríki.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína á sömu málsástæðum og fyrir aðalkröfu en vísar að auki til öryggisástands í Baghdad.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína á félagslegum aðstæðum sínum en honum muni reynast erfitt að sjá fyrir sér í heimaríki. Jafnframt byggir kærandi á heilsufarslegum ástæðum og vísar til veikinda sinna og þess að styðjast við hjólastól. Þá sé andleg heilsa kæranda bág.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína á því að uppfylla skilyrði stafliða 2. mgr. 74. gr. laganna og að ákvæði 3. mgr. sama ákvæðis standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis. Vísar kærandi til þess að hann hafi lagt fram grískt dvalarleyfisskírteini og ferðarskírteini auk afrits af íröksku vegabréfi sínu sem hann lagði fram í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. nóvember 2023. Leiki því ekki vafi á auðkenni hans.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið bætt úr fyrri annmörkum á málsmeðferð Útlendingastofnunar við síðustu meðferð stofnunarinnar á máli kæranda.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferðina og hina kærðu ákvörðun. Tekur nefndin undir athugasemdir kæranda hvað það varðar að ekki hafi verið bætt úr ágöllum á málsmeðferð af hálfu Útlendingastofnunar að fullu þar sem spyrja hefði þurft nánar um tiltekin atvik. Kærunefnd bætti úr þeim annmarka með því að boða kæranda til viðtals hjá nefndinni. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeirri ástæðu.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað skilríkjum útgefnum af stjórnvöldum í Grikklandi. Þá lagði kærandi fram afrit af íröksku vegabréfi í viðtali hjá Útlendingastofnun en hann taldi frumrit þess hafa týnst í Tyrklandi þar sem smyglarar hefðu tekið það af honum þar. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að ætla annað en að kærandi væri ríkisborgari Íraks þó auðkenni hans væri eftir sem áður ósannað.
Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé írakskur ríkisborgari en auðkenni hans að öðru leyti óupplýst.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- Country Guidance: Iraq (EUAA, nóvember 2024);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (EUAA, janúar 2022);
- Country Policy and Informatin Note: actors of protection, Iraq (UK Home Office, september 2025);
- Country Information Note – Iraq: Healthcare and medical treatment (UK Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Iraq: “Honour” crimes (UK Home Office, mars 2021);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs Religious (UK Home Office, janúar 2021);
- International Protection Considerations with Regard to People fleeing the Republic of Iraq, Update I (UNHCR, 30. janúar 2024);
- Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
- Iraq - Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, október 2025);
- Irak: En kortfattet oppdatering om sikkerhetssituasjonen i Anbar og Mosul (Landinfo, 15. nóvember 2024);
- Iraq: How the world helped Mosul rise from the rubble of war (United Nations, 6. febrúar 2025);
- Iraq: New US$930 Million Project to Extend and Modernize Railways, Promote Regional Connectivity and Boost Growth (World Bank Group (worldbank.org), 25. júní 2025);
- Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, EUAA, maí 2024);
- Irak – Situasjonen i Mosul (Landinfo, 23. desember 2022);
- Iraq Timeline: Since the 2003 War (United States Institute of Peace (usip.org), sótt 30. mars 2023);
- Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and Syria – October 1, 2023 – December 31, 2023 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 9. febrúar 2024);
- Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and Syria – April 1, 2025 – June 30, 2025 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 29. júlí 2025);
- Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
- The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 17. september 2025);
- United Nations in Iraq – Annual Results Report 2023 (Sameinuðu þjóðirnar, 10. júlí 2024);
- World Report 2023 – Iraq (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2025 – Iraq (Human Rights Watch, janúar 2025) og
- Ære og æresrelatert vold (Landinfo, 10. mars 2022).
Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljón íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.
Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar Arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Jasítar, Shabak, Kaka´I og Bedouin.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðneytisins fyrir árið 2024 má ráða að stjórnvöld og vopnahópar eins og PMF (e. Popular Mobilizaton Forces) hafi beitt almenna borgara ofbeldi og pyntingum án afleiðinga.
Í skýrslum EUAA frá árinu 2025 og eldri skýrslu frá 2024 er fjallað um stöðu PMF hópa í Írak. PMF sé regnhlífarheiti yfir vopnahópa sem starfi í skjóli stjórnvalda og teljist hluti af öryggissveitum Írak. PMF sveitirnar samanstandi af meira en 60 vopnuðum hópum sem skiptist að meginstefnu í þrjár fylkingar. Stærsta og öflugustu fylkingin sé sú sem fylgi Íran að málum og samanstandi af vopnahópum eins og Badr og Asa´ib Ahl Al-Haq en hinar tvær fylkingarna fylgi mismunandi trúar- og stjórnmálaleiðtogum. Fjöldi liðsmanna PMF hópa sé á reiki en talinn vera um 200.000 og stærstur hluti séu sjíta Arabar en smærri hópar geti verið samsettir af súnní Aröbum eða öðrum minnihlutahópum. Þá bendi upplýsingar til þess að sveitir stjórnvalda þ.m.t. PMF hafi sérstaklega beitt súnní Araba ofbeldi og pyntingum við handtöku og í varðhaldi.
Samkvæmt upplýsingum frá Hudson stofnuninn hafi vopnahópurinn Asa‘ib Ahl al-Haq (AAH) verið stofnaður árið 2006 í kjölfar klofnings Mahdi hersins. AAH leitist við að stuðla að pólitískum og trúarlegum áhrifum Írans í Írak og sýni hópurinn opinskátt hollustu sína við leiðtoga Írans. Markmið samtakanna sé að Írak verði stjórnað af sjíta-múslímum. Árið 2014 hafi hópurinn boðið fram til þings undir nafni al-Sadiqoun og náð einu þingsæti. Í kosningum árið 2018 hafi hópurinn náð 15 sætum en misst fylgi í kosningum árið 2021 og aðeins náð fjórum þingsætum. Leiðtogi hópsins hafi brugðist ókvæða við og haft opinberlega í hótunum við stjórnvöld í Írak og skapað óstöðugleika í landinu. Í þingkosningum í nóvember 2025 hafi hópurinn fengið 27 sæti og þá eigi þeir ráðherra í ríkisstjórn landsins. Hópurinn var skráður sem hryðjuverkasamtök af bandarískum stjórnvöldum árið 2020.
Þá er sérstaklega fjallað um öryggisástand í Baghdad og að hópar á vegum PMF hafi sterka viðveru í og í grennd við höfuðborgina. Hafi hópar á þeirra vegum meðal annars ráðist inn í landbúnaðarráðuneytið í júlí 2025 til að mótmæla skipun embættismanns og einn lögreglumaður látið lífið í þeim atburði. Þá kemur fram að frá 1. ágúst 2024 til 1. ágúst 2025 hafi verið 147 öryggisatvik í Baghdad, þar af 47 skilgreindir sem bardagar eða átök, 26 sprengingar og 74 atvik ofbeldis gegn borgurum. Voru atvikin skráð í um helmingi umdæma sem tilheyra Baghdad.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7.000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.
Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að árið 2011 hafi Bandaríkin ákveðið að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópa súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og samtökin endurnefnt sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Í júní 2014 hafi ISIS náð þriðjungi Íraks á sitt vald og hafi leiðtogi samtakanna, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg landsins, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá ISIS. Í desember 2017 lýsti forsætisráðherra Íraks yfir sigri gegn ISIS. Í skýrslu EUAA frá 2022 kemur fram að ISIS hafi ekki náð yfirráðum yfir frekara landsvæði síðan en reyni að festa sig í sessi á óaðgengilegum svæðum svo sem í dölum, fjöllum, eyðimörkum og á norður og miðsvæði landsins. Í síðustu ársfjórðungsskýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um stöðu hernaðaraðgerða Bandaríkjanna gegn ISIS í Írak og Sýrlandi fyrir árið 2023 kemur fram að ISIS standi höllum fæti og samtökin séu ekki fær um að efna til stærri flókinna árása. Af ársfjórðungsskýrslum ársins 2024 má ekki ráða að meiriháttar breytingar hafi átt sér stað hvað varðar getu og starfshæfi ISIS samtakanna. Samkvæmt annarri ársfjórðungsskýrslu ársins 2025 hefur árásartíðni ISIS haldið áfram að vera í sögulegu lágmarki frá upphafi árs 2025 og almennum borgurum og öryggissveitum í Írak stafi einungis lágmarkshætta af ISIS.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 um trúfrelsi kemur fram að Íslam sé hin opinbera trú í Írak. Um 97% íbúa Íraks séu múslímar og flestir þeirra séu sjíta-múslímar eða um 55-60% íbúa landsins. Þá séu um 40% íbúa landsins súnní múslímar en um 15% íbúa séu súnní múslimskir Kúrdar og 24% súnní múslimskir Arabar. Sjíta-múslímar séu ráðandi í suður- og austurhlutum landsins auk þess sem flestir íbúar höfuðborgarinnar Bagdad séu sjíta-múslímar. Íbúar norður- og vesturhluta landsins séu flestir súnní múslímar sem og íbúar miðsvæðisins, þó að undanskilinni Bagdad. Íslam, kristni, Sabaean-mandaen og Jasíti séu einu trúarbrögðin sem geti verið tilgreind á írökskum skilríkjum, en skilríki útgefin árið 2016 og síðar beri ekki með sér hverrar trúar handhafi sé. Í skýrslu Landinfo frá 2018 kemur fram að í íröksku samfélagi séu einstaklingar skilgreindir út frá þeim trúarhópum sem þeir fæðist inn í og að litið sé með vanþóknun á trúleysi.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um súnní múslima kemur fram að dæmi séu um að írakski stjórnarherinn hafi misþyrmt súnní múslimum, m.a. með beitingu gerræðislegra handtaka, varðhalds, pyndinga og annarrar vanvirðandi meðferðar vegna meintra tengsla þeirra eða stuðnings við Daesh. Þá séu dæmi um að sveitir PMF hafi tekið þátt í mannránum, fjárkúgunum, morðum, pyndingum súnní múslima og eyðileggingu eigna þeirra á grundvelli ásakana um tengsl þeirra við Daesh, einkum á þeim svæðum sem áður hafi verið undir stjórn samtakanna. Samskonar umfjöllun er einnig að finna í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi. Samkvæmt framangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins er þó meðferð írakskra yfirvalda á súnní múslimum almennt ekki talin nægilega alvarleg í eðli sínu og endurtekningu til að hún geti talist ná þeim þröskuldi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð nema einstaklingur geti sýnt fram á að atvik sem tengist honum persónulega setji hann í aukna hættu, t.a.m. ætluð tengsl við Daesh.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Ættbálkurinn beri almennt hins vegar ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.
Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna fyrir árið 2023 kemur fram að stjórnarskrá Íraks kveði á um jafnrétti allra fyrir lögum. Þá skuli stjórnvöld tryggja fötluðum og einstaklingum með sérþarfir þjónustu á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu, vernd gegn mismunun, húsnæðisúrræði og aðgengi að umönnun og endurhæfingu. Þrátt fyrir ákvæði stjórnarskrár hafi fatlaðir og einstaklingar með sérþarfir mætt margvíslegum hindrunum hvað varðar aðgengi þeirra að námi, atvinnu, heilbrigðisþjónustu, réttarkerfinu og annars konar opinberri þjónustu. Í leiðbeiningum EUAA frá 2024 kemur fram að íröksk stjórnvöld hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og sett löggjöf um þjónustu við fatlað fólk og fólk með sérstakar þarfir. Á grundvelli þeirrar löggjafar hafi verið sett á fót nefnd um virðingu og vernd réttinda fatlaðs fólks. Fatlaðir og einstaklingar með sérþarfir séu hins vegar enn meðal viðkvæmustu þjóðfélagshópa í Írak og fari réttindi þeirra oft forgörðum í almennri umræðu.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa sé staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála. Þá starfi ýmis frjáls félagasamtök í Írak, bæði innlend og alþjóðleg, sem vinni að réttindum og aðgengismálum fatlaðra í Írak. Einkum hafi verið ráðist í verkefni og aðgerðir á svæðum sem hafi orðið verst úti í vopnuðum átökum í landinu síðustu áratugi, s.s. með aðstoð við að útvega stuðningstæki og bæta aðgengismál. Einnig hafi verið gripið til aðgerða í Bagdad og öðrum þéttbýlisstöðum til þess að efla þátttöku fatlaðra í samfélaginu og bæta félagslega og efnahagslega stöðu þeirra.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á ástæðuríkum ótta við ofsóknir á grundvelli aðildar sinnar að sérstökum þjóðfélagshópi sem þolandi pyntinga eða annarrar ómannúðlegrar og vanvirðandi meðferðar. Kærandi teljist einnig til sérstaks þjóðfélagshóps vegna heilsufarsvandamála sinna en hann styðjist við hjólastól. Þá byggir kærandi einnig á því að óttast ofsóknir vegna trúar sinnar og vísar til þess að vera súnní múslími. Telur kærandi sig ekki geta fengið fullnægjandi vernd stjórnvalda í heimaríki.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki. Þá mætti kærandi til viðtals hjá nefndinni 15. desember 2025.
Í viðtölum sínum hjá Útlendingastofnun hefur kærandi greint frá því að honum hafi verið rænt í byrjun árs 2015 og hann beittur grófum pyntingum. Lýsti kærandi pyntingum í sinn garð og því að eftir að hann hefði misst meðvitund hefði hann vaknað á sjúkrahúsi. Rakti kærandi ástæður þessa atviks til þess að hann hafi verið í framboði til [...] en þáverandi [...] Íraks hefði verið á móti honum þar sem hann væri súnní Arabi. Þá væri umræddur [...] með tengsl við vopnahópinn Asa´ib Ahl Al-Haq. Í kjölfar sjúkrahúsvistar í Írak, á milli janúar og mars 2015, hafi kærandi yfirgefið Írak og farið til Indlands til að sækja sér heilbrigðisþjónustu.
Í viðtali hjá kærunefnd var kærandi nánar spurður um atvik frá 2015. Kvaðst hann hafa stofnað líkamsræktarstöð árið 2011 með félaga sínum til að byrja með. Var hann spurður nánar um hvað hafi leitt til framboðs hans til [...] og hvernig það hafi farið fram. Kvað hann ástæður framboðsins vera vegna þess að hann væri heiðarlegur og hafi ekki tengst PMF sveitunum, auk þess sem hann hafi að einhverju leyti verið þekktur vegna þátttöku sinnar og árangurs í líkamsrækt og að hann hafi prentað og dreift út dreifimiðum vegna framboðsins. Hafi hann ekki stuðst við samfélagsmiðla þar sem þeir hafi ekki verið eins vinsælir á þeim tíma. Kvaðst kærandi hafa verið vinsæll á meðal fólks og stundum tjáð sig um að fólk ætti að vera á móti vopnuðum hópi á líkamsræktarstöðinni og stundum á förnum vegi. Aðspurður um hótanir sem honum hafi borist áður en honum hafi verið rænt kvað hann einhvern með sítt skegg sem gæti hafa tilheyrt ákveðnum ættbálki hafa sagt honum að láta sig hverfa. Aðspurður um fullyrðingar sínar um að nafngreindur þáverandi [...] hafi staðið að baki hótunum og mannráninu vísaði kærandi til átaka milli þess manns og annarra aðila. Varðandi tengsl [...] við Asa´ib Ahl Al-Haq sagði kærandi [...] hafa sett fjármagn í umræddan hóp. Þá kvað kærandi að [...] hafi staðið ógn af framboði kærandi þar sem hann hefði verið vinsæll meðal fólks og það viljað kæranda í umrædda stöðu. Var kærandi einnig spurður hvers vegna heilsufarsgögn frá Indlandi bæru ekki með sér að kærandi hefði þá nokkrum vikum áður orðið fyrir alvarlegum pyntingum. Kvað kærandi það vera vegna þess að hann hafi aðeins leitað sér aðstoðar vegna krabbameins á Indlandi.
Frásögn kæranda hefur að mestu verið samhljóða um atvik frá 2015, en hún er nokkuð almenn og við hana hafa bæst atriði eftir því sem liðið hefur á málsmeðferð kæranda, svo sem ábending hans um að hugsanlega hafi pyntingarnar verið teknar upp á myndband, að mögulega hafi eitthvað kynferðislegt átt sér stað í tengslum við pyntingarnar, auk þess hafa ástæður fyrir atvikinu árið 2015 hafa sætt breytingum milli viðtala. Þá er ýmislegt sem vekur athygli við frásögn kæranda. Má þar fyrst nefna að ástæður sem hann hefur gefið fyrir því að hann hafi orðið fyrir umræddu atviki árið 2015 byggi á meintu framboði hans til stjórnar íþróttasamtaka og lífsviðhorfum hans sem hann kveðst hafa tjáð fólki í kringum sig. Ekki verður séð með hvaða hætti umrædd atriði hafi kallað á svo heiftarleg viðbrögð af hálfu vopnaðs hóps eins og Asa´ib Ahl Al-Haq í hans garð þrátt fyrir þá fullyrðingu kæranda að tengsl hafi verið á milli [...] og þess hóps. Þá hefur kærandi hvergi í frásögn sinni gert það trúverðugt að umræddur [...] hafi verið viðriðinn hótanir eða þau atvik sem hann kveðst hafa orðið fyrir eða getað gert grein fyrir tengingu á milli hótana í sinn garð og umrædds hóps. Vekur einnig athygli að kærandi hafi á óljósan hátt komist úr haldi mannræningjanna og á sjúkrahús. Einnig liggur fyrir í gögnum málsins að kærandi hafi leitað sér læknisaðstoðar á Indlandi vegna æxlis við mænu og ekkert í þeim gögnum bendir til þess að hann hafi á þeim tíma verið að jafna sig eftir svo umfangsmiklar pyntingar sem kærandi greindi frá að hafa orðið fyrir aðeins um tveimur mánuðum áður. Gaf kærandi þá einu skýringu á þessu í viðtali hjá nefndinni að hann hefði aðeins leitað sér aðstoðar á Indlandi vegna krabbameins. Þykir einnig ótrúverðugt að kærandi eigi engin gögn um umrætt framboð. Af þeim sökum er frásögn kæranda um meintar pyntingar ekki metin trúverðug.
Kærandi kvaðst hafa snúið aftur til Íraks í árslok 2018 og opnað nýja líkamsræktarstöð í byrjun árs 2019. Hann hafi hengt upp myndir af sjálfum sér í stöðinni og í kjölfarið borist skrifleg hótun um að yfirgefa svæðið innan 48 klukkustunda. Nokkrum dögum seinna hafi líkamsræktarstöðin orðið fyrir sprengjuárás og hann leitað til lögreglu sem hafi ekki viljað skrá niður hverja kærandi teldi hafa staðið að baki árásinni. Jafnframt hafi kærandi fengið símtal í símanúmer sem aðeins fjölskyldumeðlimir hans og lögreglumaðurinn sem hafi tekið niður skýrsluna hafi vitað, á meðan hann hafi enn verið á lögreglustöðinni. Hafi ótilgreindur aðili sagt við kæranda að beðið væri eftir honum fyrir utan lögreglustöðina í þeim tilgangi að vinna honum mein. Hafi kærandi fengið að yfirgefa lögreglustöðina bakdyramegin og í kjölfarið flutt fjölskyldu sína, konu og tvær dætur, til tengdafjölskyldu sinnar og svo yfirgefið landið. Hafi hann farið í gegnum Tyrkland til Grikklands hvar honum hafi verið veitt alþjóðleg vernd áður en hann kom til Íslands. Í viðtali hjá nefndinni kvaðst kærandi hafa selt hús móður sinnar til að opna líkamsræktarstöðina í heimaríki en aðspurður um hvernig hann vissi að Asa ́ib Ahl Al-Haq hefði staðið að baki umræddri árás og hótunum kvað hann þá vera sterkasta hópinn. Umræddar hótanir hafi barn fært honum á líkamsræktarstöðina. Aðspurður um frekari gögn til að sýna fram á að kærandi hefði stofnað umrædda líkamsræktarstöð kvaðst hann engin gögn geta lagt fram.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar og gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi lagt fram gögn máli sínu til stuðnings þar á meðal afrit tveggja skjala dags. 21. mars 2019 annars vegar kæruskýrslu og hins vegar rannsóknarskýrslu. Samkvæmt niðurstöðu skjalarannsóknar Lögreglunnar á Suðurnesjum voru bæði skjölin metin ótraustvekjandi og tekið fram að atriði í haus skjalanna vikju mjög frá þeim skjölum sem lögreglan hefði áður séð stafa frá opinberum aðilum í Írak auk þess sem hin meintu brot væru í texta skjalanna ekki heimfærð til tiltekinna lagaákvæða líkt og kveðið sé á um í írökskum sakamálalögum. Að auki vekur það athygli kærunefndarinnar að bæði skjölin eru dagsett sama dag og meint árás átti sér stað en innihald þeirra ber með sér að þau séu rituð síðar. Þegar frásögn kæranda er skoðuð í heild sinni um umrædda atburði þá verður ekki fallist á það að kærandi hafi rennt stoðum undir það að framangreindir atburðir hafi átt sér stað. Hefur kærandi lagt fram myndir sem hann kveður af vettvangi árásarinnar en þær myndir hafa takmarkað sönnunargildi enda ekki hægt að tengja þær við kæranda. Þá er frásögn kæranda af því að myndbirting af honum í umræddri líkamsræktarstöð hafi leitt til þess að upp um hann hafi komist ekki talin trúverðug. Önnur gögn sem kærandi hefur lagt fram styðja ekki annað en að hann hafi stundað vaxtarækt í heimaríki sínu. Við komu sína hingað til lands kvað kærandi að ótilgreindir vopnahópar hafi ráðist á líkamsræktarstöð hans en í gegnum málsmeðferðina hefur kærandi bætt við þá frásögn og tilgreint vopnahópinn Asa´ib Ahl Al-Haq sérstaklega sem árásaraðila og nafngreindan [...] án þess þó að gefa trúverðugar skýringar á því hvers vegna þeir aðilar ættu að vilja vinna kæranda mein. Af frásögn kæranda verður hvergi ráðið að þeir sem hann kveður hafa staðið að baki meintri árás á líkamsræktarstöðina árið 2019 hafi gert grein fyrir sér og engar trúverðugar skýringar að finna á fullyrðingum kæranda um að umræddir aðilar hafi staðið að baki meintri árás. Þá vekur jafnframt athygli að fjölskylda kæranda hefur getað dvalið í Írak frá umræddu atviki og af frásögn kæranda má ráða að þau hafi ekki orðið fyrir sérstöku aðkasti vopnasveita eða annarra aðila. Þegar umrædd atriði eru tekin saman með hliðsjón af því að kærandi hefur við meðferð málsins lagt fram ótraustvekjandi skjöl er það niðurstaða kærunefndar að frásögn kæranda hvað varðar meinta árás á líkamsræktarstöð í hans eigu og tildrög þess að hann yfirgaf Írak árið 2019 sé ótrúverðug.
Kærandi hefur einnig haldið því fram að bróðir hans hafi orðið fyrir árás 2023 og misst báða fætur. Lagði kærandi fram ljósmynd af manni sem kærandi kveður bróður sinn og sýna fram á framangreinda áverka. Hvorki af umræddri mynd né gögnum málsins verður ráðið hvaða tengingu kærandi hefur við umræddan mann né um ástæður áverka hans. Var kærandi spurður nánar um þessa málsástæðu í viðtali hjá nefndinni. Kvaðst kærandi ekki geta lagt fram frekari gögn um umrætt atvik. Kæranda væri ekki kunnugt um að móðir hans eða bróðir hefðu orðið fyrir hótunum þar sem fjölskylda hans hafi forðast að koma kæranda úr jafnvægi. Þá kvaðst kærandi halda að árásin á bróðir hans tengdist kæranda þar sem bróðir hans hefði heimsótt móður þeirra. Kvað kærandi lögreglu hafa að eigin frumkvæði komið á spítalann til að rannsaka málið en að það væri ómögulegt að finna gerendur í slíkum árásum og hann gæti ekki lagt fram gögn um þetta atvik. Þegar litið er heildstætt til frásagnar kæranda og umræddrar ljósmyndar verður ekki fallist á að kærandi hafi sýnt fram á tengsl við aðilann á myndinni eða að hann eigi á hættu ofsóknir af þessum sökum.
Kærandi hefur við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun og kærunefnd lagt fram töluvert magn af heilsufarsupplýsingum bæði frá Indlandi og heilbrigðisyfirvöldum hér á landi. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa glímt við krabbamein, vera með krabbamein og rakið heilsufarskvilla sína ýmist til þess eða þeirra pyntinga sem hann kveðst hafa orðið fyrir. Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi hafi leitað sér læknisaðstoðar vegna æxlis við hrygg á Indlandi árið 2015. Verður ekki annað ráðið en að hann hafi fengið bót meina sinna enda liggja fyrir í gögnum málsins ljósmyndir af honum á gangi eftir það og á veraldarvefnum má finna myndir af kæranda á [...] hvar ekki verður annað ráðið en að kærandi hafi verið við ágæta heilsu. Sá heilsufarsvandi kæranda er málið varðar hafi því að mestu átt sér stað og verið rannsakaður hér á landi. Af þeim gögnum sem kærandi hefur lagt fram verður ekki annað ráðið en að hann sé með æxli við mænu sem hafi verið óbreytt frá árinu 2015 og þurfi á sjúkraþjálfun að halda, en ekki er mælt fyrir um aðra meðferð. Þá er ekkert að finna í heilsufarsgögnum kæranda um að hann þurfi varanlega að styðjast við hjólastól en hann þurfi sjúkraþjálfun til þess að efla styrk í vinstri fæti og hendi. Þrátt fyrir að heilbrigðiskerfið í Írak glími við ýmis vandamál og áskoranir verður ekki annað séð en að kærandi geti leitað sér fullnægjandi aðstoðar í heimaríki vegna heilsufarsvanda síns. Af heimildum um Írak má ráða að einstaklingar með fötlun eða langvarandi sjúkdóma geti átt erfitt með að nálgast heilbrigðisþjónustu og aðra aðstoð, einkum á svæðum sem verst hafi farið út úr átökum síðustu ára en bæði innlendir og alþjóðlegir aðilar hafi unnið hörðum höndum að því að efla heilbrigðiskerfið, aðgengi að hjálpargögnum sem og inngildingu fatlaðs fólks í samfélagið. Verður því ekki ráðið að einstaklingar í Írak sem glími við langvarandi veikindi eða fötlun verði fyrir mismunun sem nái því marki að teljast ofsóknir á þeim grundvelli. Verður því ekki fallist á að kærandi muni eiga á hættu að sæta ofsóknum á grundvelli heilsufarsvanda síns.
Hvað varðar þá málsástæðu kæranda að eiga á hættu ofsóknir sökum þess að vera súnní Arabi þá er rétt að þeir eiga frekar á hættu ýmis konar áreiti eða ofsóknir í Írak. Aðstæður eru þó ekki slíkar að það eitt og sér að vera súnní Arabi leiði til þess að einstaklingur eigi á hættu ofsóknir heldur þurfa að koma til einhverjar einstaklingsbundnar aðstæður. Með vísan til þess er að framan greinir, sérstaklega er varðar mat á trúverðugleika kæranda, er það mat nefndarinnar að ekkert bendi til þess að kærandi eigi slíkt á hættu.
Þegar litið er heildstætt til frásagnar kæranda er það niðurstaða nefndarinnar að ekki verði lagt til grundvallar annað en að kærandi sé írakskur ríkisborgari, súnní Arabi og fyrrum vaxtaræktarmaður sem hafi leitað sér læknisaðstoðar á Indlandi fyrir komu sína til Evrópu. Þá er litið til þess að fjölskylda kæranda hefur dvalið í Írak frá því að kærandi yfirgaf landið árið 2019.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að þær athafnir sem kærandi hefur lýst hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á því að ástandið almennt í Írak og Baghdad auk persónulegra aðstæðna kæranda nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til fjölda landaheimilda sem beri með sér að yfirvöld í Írak séu ekki í stakk búin að vernda þegna sína gegn ofbeldisbrotum og glæpum auk þess að yfirvöld skorti stjórn á vopnahópum.
Líkt og fjallað hefur verið um í úrskurðum kærunefndar síðustu ára vegna umsækjenda frá Írak og nýlegra heimilda um aðstæður í Írak eru almennar aðstæður þar í landi ekki slíkar að allir sem þar eru staddir eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Eftir sigur írakskra stjórnvalda á ISIS hefur hæg uppbygging átt sér stað í landinu og öryggisástand batnað til muna. Hafa þær aðstæður haldist nokkuð stöðugar í lengri tíma og þrátt fyrir að á síðustu árum hafi blossað upp deilur og átök á afmörkuðum svæðum eru ekki ríkjandi vopnuð átök í landinu þar sem ekki er greint á milli borgaralegra eða hernaðarlegra skotmarka. Þar sem það er niðurstaða kærunefndar að aðstæður á heimasvæði kæranda í Bagdad og almennt í Írak séu ekki með þeim hætti að þær nái því marki að hver sá einstaklingur sem þar er staddur eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þurfa frekari persónubundnir þættir að koma til svo einstaklingur uppfylli skilyrði ákvæðisins og eigi rétt á viðbótarvernd.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda, s.s. fötlun hans, leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kæranda verði ekki ráðið að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Af viðtölum hjá Útlendingastofnun og heilsufarsgögnum í málinu verður ráðið að kærandi hafi glímt við krabbamein sem hann hafi fengið bót á. Þá liggur fyrir að hér á landi hefur hann hlotið læknisþjónustu sem staðfestir að hann þurfi ekki frekari meðferð vegna krabbameins en hann hefur einnig hlotið læknisþjónustu og meðferð vegna vandamála er tengjast hreyfifærni og bágs andlegs ásigkomulags. Af gögnum verður ráðið að sú meðferð sem ráðlögð hafi verið felist í sjúkraþjálfun og að engin önnur meðferð sé fyrirhuguð. Kærandi hefur sjálfur haldið því fram að hann þurfi varanlega að styðjast við hjólastól en engin læknisfræðileg gögn benda til þess. Í komunótu frá 4. desember 2025 kemur fram að kærandi geti aðeins notað hægri hlið líkamans en hafi minni mátt og kraft í vinstri hlið en að æxlið sé óbreytt. Af gögnum málsins verður ráðið að hluti æxlisins hafi verið óskurðtækur en haldist óbreytt frá árinu 2015. Óumdeilt er að kærandi glími við heilsufarsvanda sem hafi áhrif á hreyfigetu hans en ekkert í gögnunum bendir til þess að önnur meðferð en sjúkraþjálfun sé fyrirhuguð. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í heimaríki kæranda verður ekki annað ráðið en að slík meðferð sé í boði þar í landi sem og aðstoð við að fá stoðtæki svo sem hjólastól.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki hvar hann á konu og tvær dætur auk annarra fjölskyldumeðlima, s.s. móður og systkini. Greindi kærandi frá því að eiginkona hans og dætur byggju hjá tengdamóður hans í [...] en byggju við fátækt og í felum. Þá greindi kærandi frá því að bróðir, hans, systir og móðir byggju í Baghdad. Einnig greindi kærandi frá því að hafa séð fyrir sér með ýmsum hætti tengdum líkamsrækt og öðrum störfum. Af gögnum málsins verður talið að hann hafi getað framfleytt sér í heimaríki áður en hann yfirgaf landið árið 2019. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd hefur við matið jafnframt litið til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 21. desember 2021.
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem eru til þess fallin að sanna á honum deili. Vert er að nefna að kærandi hefur lagt fram ljósmynd sem hann kveður vera af útrunnu íröksku vegabréfi sínu. Slíkt gagn getur ekki talist fullnægjandi staðfesting á auðkenni svo skilyrði b-liðar 2. mgr. 74. gr. um staðfestingu auðkennis teljist uppfyllt.
Rétt er einnig að árétta að í úrskurði kærunefndar nr. 77/2023, dags. 23. febrúar 2023, var komist að þeirri niðurstöðu að kærandi bæri sjálfur ábyrgð á töfum máls síns þar sem hann hefði dvalið á ókunnugum stað og því verið skráður horfinn og eftirlýstur frá 28. september 2022 þar til hann gaf sig fram við yfirvöld og óskaði eftir endurupptöku á máli sínu 21. desember 2022. Þrátt fyrir að mál kæranda hafi verið tekið til efnismeðferðar á grundvelli heilbrigðisaðstæðna hans verður ekki talið að kærandi hafi aðstoðað við úrlausn máls síns með því framferði eða framlagningu ótraustvekjandi skjala í skilningi d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga auk þess sem hann hefur dvalið á ókunnugum stað í meira en tvær vikur sbr. b-liður 3. mgr. sömu greinar.
Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, eru því ekki uppfyllt.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Írak sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Írak séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kvað kærandi það vera ósanngjarnt í hans garð.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir