14 janúar 2026
/
Mál nr.. 690/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 690/2025
Miðvikudaginn 14. janúar 2026
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 22. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. október 2025, um að synja umsókn kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. október 2025, var umsókn kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur synjað á þeim grundvelli að virk starfsendurhæfing teldist vart vera í gangi og óljóst hvaða endurhæfing yrði í gangi næstu mánuði/vikur. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun ríkisins með bréfi, dags. 28. október 2025, að greiða kæranda sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september til 31. desember 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. október 2025. Með bréfi, dags. 29. október 2025, var óskað eftir greinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins ásamt gögnum málsins. Með greinargerð, dags. 8. desember 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir því að kæru yrði vísað frá með þeim rökstuðningi að ný ákvörðun hefði verið tekin í máli kæranda. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 9. desember 2025. Engin svör bárust frá kæranda.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur meðal annars fram að kærandi hafi skilað inn öllum gögnum með umsókn um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og sé fullviss um að hann standist öll skilyrði greiðslna. Því sé mótmælt að endurhæfingu sé ábótavant eða hún alls engin.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að við endurskoðun málsins hafi verið ákveðið að samþykkja umsókn kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september til 31. desember 2025. Þar sem ný ákvörðun hafi verið tekin í málinu telji Tryggingastofnun að ekki sé til staðar ágreiningur vegna fyrri ákvörðunar. Stofnunin fari því fram á að málinu verði vísað frá.
IV. Niðurstaða
Kærumál þetta varðaði upphaflega ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. október 2025, um að synja umsókn kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 28. október 2025, að greiða kæranda sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september 2025 til 31. desember 2025. Með bréfi, dags. 9. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til nýrrar ákvörðunar stofnunarinnar en engin svör bárust frá kæranda.
Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin hefur fallist á að greiða kæranda sjúkra- og endurhæfingargreiðslur vegna tímabilsins 1. september 2025 til 31. desember 2025. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir