15 janúar 2026

/

Úrskurður nr. 15/2026

Hinn 15. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 15/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25080197

 

Kæra […]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. ágúst 2025 kærði […], fd. […], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 21. ágúst 2025, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 5. ágúst 2025, og um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 25. júlí 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 21. til 26. ágúst 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram á Írlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 5. ágúst 2025, og heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 21. ágúst til 15. september 2025. Kærandi fékk útgefna vegabréfsáritun sem heimilaði eina komu inn á Schengen-svæðið. Kærandi kom til Íslands 21. ágúst 2025, með flugi frá Dublin, Írlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. samdægurs, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og kæranda vísað frá landinu.

Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir þar sem fram kemur að ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar sem veittar hafi verið með umsókn um vegabréfsáritun. Þar af leiðandi sé áritunin ekki gild.

Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að áritun hafi verið ógild þar sem ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar sem veittar hafi verið með umsókn um vegabréfsáritun.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, sem dagsett er 23. ágúst 2025 en undirrituð 13. september 2025, hafi hinn 21. ágúst s.á. verið óskað eftir aðstoð við landamærahlið í komusal á Keflavíkurflugvelli vegna kæranda en landamæravörðum hafi borist tilkynning um að kærandi hafi verið grunaður um að hafa gefið rangar upplýsingar í umsókn sinni um vegabréfsáritun og hafi hann því verið tekinn til nánari skoðunar í aðstöðu lögreglu. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað og réttur hans til að hafa samband við fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök, sbr. 11. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framburði kæranda hafi hann ætlað að dvelja á landinu í fjóra daga og fara svo aftur til Dublin. Hann hafi ætlað að dvelja á tilteknu hóteli og skoða sig um í nágrenni þess. Kærandi hafi ekki getað tilgreint nánar staði sem hann hygðist heimsækja. Kærandi hafi framvísað 2.489 evrum á bankareikningi. Kærandi hafi ekki verið með annan áfangastað bókaðan. Kærandi greindi frá því að hafa afbókað upphaflega hótelgistingu sína þar sem vegabréfsáritunarumsóknin hafi verið kostnaðarsöm og hann hafi af þeim sökum bókað annað hótel. Kærandi hafi ekki getað tilgreint á landakorti hvar á Íslandi hann væri staddur. Samkvæmt umsókn kæranda um vegabréfsáritun hafi kærandi lagt fram ítarlega ferðadagskrá með heimsóknum á ýmsa staði, s.s. Gullna hringinn, Bláa lónið, suðurströnd landsins og veitingastaði en hjá lögreglu hafi hann ekki getað tilgreint neina stað sem hann hygðist heimsækja. Þar sem tilgangur ferðar kæranda hafi ekki verið í samræmi við skipulag og ferðaáætlun sem lagðar voru til grundvallar í umsókn kæranda um vegabréfsáritun hafi lögregla tekið ákvörðun um að afturkalla vegabréfsáritun kæranda og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu lögreglu er til stuðnings ákvörðun um frávísun vísað til þess að kærandi hafi ekki verið með flugmiða frá landinu. Kærandi hafi svo farið með flugi til Dublin 22. ágúst 2025.

Kærandi greindi lögreglu frá því að hann væri með flugmiða til Írlands 24. ágúst 2025. Í skýrslu  lögreglu, dags. 23. ágúst og 13. september 2025, kemur fram að við athugun lögreglu hafi viðkomandi flugfélag staðfest með tölvubréfi að kærandi ætti ekki bókaðan flugmiða frá landinu á þeirri dagsetningu. Umrætt tölvubréf er dagsett 12. september 2025, þremur vikum eftir að ákvörðun var tekin um frávísun og skýrsla lögreglu rituð. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að fengist hafi staðfest hjá öðru flugfélagi að kærandi hafi afbókað upphaflegan flugmiða sinn 26. ágúst 2025, sem lagður var fram í tengslum við umsókn kæranda um vegabréfsáritun. Hinn 17. desember 2025 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá lögreglu um hvernig samskiptum hafi verið háttað við viðkomandi flugfélag vegna flugs kæranda frá landinu dags. 24. ágúst 2025. Í upplýsingaskýrslu lögreglu til kærunefndar, dags. 19. desember 2025, kemur fram að lögregla hafi haft samband símleiðis við viðkomandi flugfélag 21. ágúst 2025. Fengist hafi staðfest að kærandi ætti flugmiða úr landi en síðar hafi komið í ljós að það hafi reynst rangar upplýsingar. Þá hafi tölvubréfi með beiðni um staðfestingu, dags. sama dag, ekki verið svarað af hálfu flugfélagsins. Svar hafi borist frá flugfélaginu 12. september 2025 þar sem staðfest hafi verið að kærandi hefði ekki verið með flugmiða heim 24. ágúst 2025. Þegar skýrsla lögreglu, sem dagsett er 23. ágúst og 13. september 2025, hafi verið rituð hafi lögregla fengið staðfest að kærandi hafi ekki átt flugmiða með flugfélaginu. Meðfylgjandi upplýsingaskýrslu lögreglu var tölvubréf frá lögreglunni til umrædds flugfélags, dags. 21. ágúst 2025. Í tölvubréfinu er vísað til samskipta lögreglunnar við starfsmann flugfélagsins, sem fóru fram símleiðis sama dag, og áréttað að upplýst hafi verið af hálfu starfsmanns flugfélagsins að kærandi væri með gildan heimferðarmiða. Var óskað eftir formlegri staðfestingu á því. Líkt og að framan er rakið var þessu tölvubréfi ekki svarað á þeim tíma sem um ræðir.

Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 26. ágúst 2025 og lagði fram fylgigögn. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust 1. október 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 27. október 2025. Greinargerð kæranda barst 10. nóvember 2025. Viðbótarupplýsingar bárust frá lögreglu 19. desember 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð er vísað til fyrirliggjandi málsatvika og málsmeðferðar Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Kærandi byggir á því að málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar hafi ekki verið fylgt við töku ákvörðunar og að hún sé ógildanleg. Ekki hafi verið fylgt reglum um andmælarétt, leiðbeiningarskyldu og rannsóknarreglu. Kærandi byggir á því að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi með engu móti kannað hverjar aðstæður kæranda voru við mat á réttmæti þess að kærandi mætti koma til landsins. Kærandi telur að hin kærða ákvörðun hafi ekki verið í samræmi við 22. gr. stjórnsýslulaga. Hann vísar til þess að gögn málsins beri ekki með sér með ótvíræðum hætti af hvaða ástæðum hann hafi ekki haft lögmæta áritun til að koma til landsins. Kærandi vísar til þess að það ætti að liggja ljóst fyrir í gögnum málsins af hvaða ástæðum kærandi uppfyllti ekki skilyrði þess að koma til landsins. Kærandi byggir á því að skilyrði a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga sé ekki uppfyllt enda liggi ekkert í gögnum málsins fyrir um annað. Beri því að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

Kærandi byggir á því að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið fullnægt við meðferð málsins og vísar til 7., 11. og 13. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til þess að kæranda hafi ekki verið leiðbeint um hvernig hann gæti keypt sér lögfræðiþjónustu, til að mynda með því að útvega honum lista af lögmönnum. Ekki liggi ljóst fyrir hvort kærandi hafi gert tilraun til að leita sér aðstoðar lögmanns.

IV.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar

Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 5. ágúst 2025. Áritunin heimilaði kæranda eina komu inn á Schengen svæðið fyrir 11 daga dvöl á tímabilinu 21. ágúst til 15. september 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 21. ágúst 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu þær athugasemdir að ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar sem veittar hafi verið með umsókn um vegabréfsáritun. Af þeim sökum væri áritunin ekki gild.

Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.

Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra.

Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi fram umsókn um vegabréfsáritun 25. júlí 2025. Hafi hann ætlað að dvelja á Íslandi í sex daga á tímabilinu 21. til 26. ágúst 2025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn, s.s. ferðaáætlun, hótelgistingu fyrir umrætt tímabil og staðfestingu flugbókana. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands, 21. ágúst 2025, hafi kærandi verið búinn að breyta ferðaáætlun sinni. Kærandi greindi frá því að eiga flugmiða frá landinu 24. ágúst í stað 26. ágúst 2025. Þá kvaðst kærandi hafa bókað aðra hótelgistingu fyrir umrædda daga en lá fyrir í umsókn hans um áritun. Ferðaáætlun kæranda hafði jafnframt tekið breytingum. Samkvæmt framburði kæranda hafði hann ekki bókað flug á annan áfangastað innan Schengen-svæðisins.

Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verði því að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvika þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna.

Í málinu liggur fyrir fullyrðing kæranda um að hafa ætlað að dvelja á landinu í fjóra daga og að hann ætti bókaðan flugmiða til Dublin 24. ágúst 2025. Á kærustigi var lagt fram afrit af staðfestingu á þeirri flugbókun. Meðal gagna málsins er skýrsla lögreglu dagsett 23. ágúst 2025 en hún er undirrituð 13. september 2025, þar sem m.a. er fjallað um flugbókanir kæranda og fullyrðingar hans þar um. Ofarlega í skýrslunni kemur fram að lögregla hafi haft samband við viðkomandi flugfélag og fengið staðfest að kærandi ætti ekki bókaðan flugmiða til Dublin. Neðar í skýrslunni er vísað til tölvupóstsamskipta milli lögreglunnar og viðkomandi flugfélags, dags. 12. september 2025, sem er þremur vikum eftir að hin kærða ákvörðun var tekin og eru tölvupóstsamskiptin á meðal gagna málsins.

Samkvæmt samskiptunum óskaði lögreglan 12. september 2025 eftir upplýsingum frá viðkomandi flugfélagi um hvort kærandi hafi átt staðfest flug 24. ágúst 2025 til Dublin. Samkvæmt svari flugfélagsins, samdægurs, fannst kærandi ekki sem farþegi á Dublin flugi félagsins á umræddum degi. Með vísan til þess að framangreind tölvupóstsamskipti áttu sér stað um þremur vikum eftir töku ákvörðunar lögreglu, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurnesjum, 17. desember 2025, um hvernig samskiptum lögreglunnar og viðkomandi flugfélags hafi verið háttað í tengslum við töku hinna kærðu ákvarðana, auk gagna í því sambandi. Hinn 19. desember 2025 barst upplýsingaskýrsla frá embættinu. Þar kemur fram að lögregla hafi haft samband símleiðis við viðkomandi flugfélag og fengist hafi staðfest að kærandi ætti flugmiða úr landi en síðar hafi komið í ljós að þær upplýsingar hafi reynst rangar. Lögregla hafi í framhaldi af framangreindu sent flugfélaginu tölvubréf 21. ágúst 2025 með beiðni um staðfestingu á flugupplýsingum varðandi kæranda en tölvubréfinu hafi ekki verið svarað þann dag. Hinn 12. september hafi borist svar frá flugfélaginu, eftir ítrekun lögreglu, þar sem staðfest var að kærandi hefði ekki verið með farmiða 24. ágúst 2025. Í upplýsingaskýrslunni kemur fram að þegar skýrsla lögreglu hafi verið rituð hafi fengist staðfesting á því að kærandi hafi ekki átt miða með flugfélaginu 24. ágúst 2025. Þá var meðfylgjandi tölvubréf frá lögreglunni til umrædds flugfélags, dags. 21. ágúst 2025. Í tölvubréfinu er vísað til samskipta lögreglunnar við starfsmann flugfélagsins, sem fóru fram símleiðis sama dag og áréttað að upplýst hafi verið af hálfu starfsmanns flugfélagsins að kærandi væri með gildan heimferðamiða. Var óskað eftir formlegri staðfestingu þess efnis. Líkt og að framan er rakið var þessu tölvubréfi ekki svarað á þeim tíma sem um ræðir.

Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að þegar lögregla tók ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda og frávísunar hans hafi legið fyrir upplýsingar um að kærandi hafi átt flug frá landinu 24. ágúst 2025. Tæpum þremur vikum síðar, eða 12. september 2025, hafi legið fyrir staðfesting frá flugfélaginu um að kærandi hafi ekki fundist á umræddu flugi en af svarinu verður ekki ráðið hvort kærandi hafi upphaflega átt flugmiða 24. ágúst 2025. Verður í því samhengi að líta til þess að kærandi fór af landinu 22. ágúst 2025 vegna ákvarðanna lögreglunnar. Verður kærandi að njóta vafans hvað framangreint varðar enda eru fyrirliggjandi upplýsingar frá lögreglu óskýrar og ákvarðanir um ógildingu vegabréfsáritunar og frávísun íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir. Þegar litið er til gagna málsins verður ekki annað séð en að ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda hafi því verið byggð á ófullnægjandi upplýsingum um heimför kæranda. Að virtum gögnum málsins verður lagt til grundvallar að kærandi hafi átt flugmiða frá landinu þegar lögregla tók hina kærðu ákvörðun. Með hliðsjón af framangreindu verður ekki hjá því komist að gera athugasemdir við framangreind vinnubrögð Lögreglustjórans á Suðurnesjum en það getur ekki talist til vandaðra stjórnsýsluhátta að rökstyðja ákvörðun um ógildingu á vegabréfsáritun og frávísun frá landinu með upplýsingum sem lágu ekki fyrir þegar ákvörðunin var tekin.

Þegar litið er til gagna málsins liggur fyrir að þegar kærandi kom til landsins 21. ágúst 2025 hafi hann ætlað að dvelja hér á landi í þrjár nætur, hann hafi verið með bókað flug frá landinu til Dublin 24. ágúst 2025 auk þess sem hann kvaðst vera með gistingu á gistiheimili. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að lögregla hafi aflað staðfestingar á umræddri bókun á gistingu. Ljóst er að ferðaáætlun kæranda var ekki að fullu í samræmi við upphaflega ferðaáætlun sem tilgreindi að kærandi hugðist heimsækja ýmsa staði innanlands en samkvæmt framburði kæranda hugðist kærandi heimsækja staði í nágrenni við hótel sitt. Líkt og að framan er rakið hafa handhafar vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferða áformum sínum, svo lengi sem þær breytingar eru innan vissra marka. Þrátt fyrir að fyrirhuguð ferð kæranda til landsins hafi tekið framangreindum breytingum á flugi, gistingu og ferðaáformum, einkum þegar litið er til upphaflegra ferðaáforma kæranda verður ekki talið að þær breytingar séu óhóflegar og varði ógildingu vegabréfsáritunar. Samkvæmt framangreindu verður ekki talið að upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda hafi ekki verið áreiðanlegar eða að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um ógildingu vegabréfsáritunar felld úr gildi.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður kæranda hvað varðar ógildingu á vegabréfsáritun hans.

Ákvörðun um frávísun

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 5. ágúst 2025.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 21. ágúst 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið felld úr gildi af kærunefnd þar sem ákvörðunin byggði á ófullnægjandi upplýsingum. Í ljósi þess er felld úr gildi ákvörðun lögreglunnar um frávísun kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Í ákvörðun lögreglu um frávísun kemur fram að vegabréfsáritun kæranda hafi verið ógild. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi lagt fram umsókn um vegabréfsáritun á þeim forsendum að hann hygðist dvelja hér á landi í sex daga á tímabilinu 21. til 26. ágúst 2025. Með umsókn hafi kærandi lagt fram bókun á gistingu fyrir umrædda daga auk flugmiða. Kærandi hafi jafnframt lagt fram skipulagða ferðaáætlun sem hafi tilgreint að kærandi hygðist heimsækja ýmsa staði innanlands. Hjá lögreglu hafi kærandi aftur á móti greint frá breyttum ferðaáformum og að hann hygðist fara frá landinu með flugi 24. ágúst 2025. Kærandi hafi greint frá því að vera með gistingu og hygðist skoða staði í nágrenni við hótelið. Í skýrslu er vísað til þess að ekki hafi reynst unnt að staðfesta flugbókun kæranda til Dublin 24. ágúst 2025 auk þess sem ekki hafi reynst unnt að staðfesta upphaflega flugbókun kæranda til Dublin 26. ágúst 2025. Líkt og að framan er rakið hefur verið lagt til grundvallar að kærandi kunni að hafa átt bókað flug frá landinu 24. ágúst 2025, enda njóti hann vafans vegna óljósra upplýsinga lögreglu hvað þetta varðar.

Þegar litið er til gagna málsins liggur fyrir að þegar kærandi kom til landsins 21. ágúst 2025 hafi hann ætlað að dvelja hér á landi í þrjár nætur, hann hafi verið með bókað flug frá landinu til Dublin 24. ágúst 2025 auk þess sem hann kvaðst vera með gistingu á gistiheimili. Ekki verður ráðið af gögnum málsins að lögregla hafi aflað staðfestingar á umræddri gistingu og verður framburður kæranda hvað þetta varðar því lagður til grundvallar. Ljóst er að ferðaáætlun kæranda var ekki í samræmi við upphaflega ferðaáætlun sem tilgreindi að kærandi hugðist heimsækja ýmsa staði innanlands en samkvæmt framburði kæranda hugðist kærandi heimsækja staði í nágrenni við hótel sitt. Þá framvísaði kærandi nægu fjármagni fyrir dvöl sinni. Þær breytingar sem kærandi gerði á ferðaáformum eru ekki óhóflegar og verða að teljast innan marka þess svigrúms sem handhafar vegabréfsáritunar hafa til þess að breyta ferðaáformum sínum. Þá verða skýringar kæranda á framangreindum breytingum ekki taldar ótrúverðugar.

Að virtum gögnum málsins eru skilyrði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri uppfyllt. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvöl sinni hér á landi og eru skilyrði til frávísunar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er hin kærða ákvörðun því felld úr gildi.

Í ljósi þess að kærandi hefur fengið meginkröfu sína uppfyllta er ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður hans í úrskurði þessum.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru felldar úr gildi.

The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are vacated.

 

Valgerður María Sigurðardóttir                               Vera Dögg Guðmundsdóttir