15 janúar 2026
/
Mál nr. 709/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 709/2025
Fimmtudaginn 15. janúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 31. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 23. október 2025, um mánaðarlegar greiðslur til hennar vegna fæðingar barns.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 27. ágúst 2025, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna væntanlegrar fæðingar barns þann X 2025. Kæranda var kynnt greiðsluáætlun með ákvörðun, dags. 23. október 2025, þar sem fram kom að mánaðarleg greiðsla til hennar yrði 347.534 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. október 2025. Með bréfi, dags. 5. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 19. nóvember 2025, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi gerir athugasemdir við reglu- og lagramma sem gildi um launaviðmið í fæðingarorlofsmálum þar sem miðað sé við 12 mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Að sögn kæranda hafi þetta fyrirkomulag komið sérstaklega illa út fyrir t.d. mæður sem hafi eignast barn árið 2023 og tekið 12 mánaða fæðingarorlof þar sem mánuðir úr fyrra orlofi séu á viðmiðunartímabili sem skekki verulega orlofsgreiðslur til mæðra sem hafi eignast barn árið 2025. Kærandi líti svo á að um sé að ræða mismunun og eins konar refsingu gagnvart foreldrum sem hafi eignast börn með stuttu millibili. Með þessu fyrirkomulagi sé tryggt að fæðingarorlof verði fjárhagslegt hark en með réttu ætti sá tími að vera laus við fjárhagsáhyggjur, sérstaklega fyrir mæður. Kærandi vilji að hægt sé að sækja um undanþágur frá þessum vankanti kerfisins til að tryggja betra fæðingarorlof fyrir foreldra. Í tilviki kæranda sé áætlað að hún fái útborgað 2.100.000 kr. yfir fæðingarorlof sitt, þrátt fyrir að hafa fengið launahækkun á milli fæðingarorlofa. Kærandi hafi fengið 2.700.000 kr. útborgað í fyrra fæðingarorlofi.
III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs
Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 27. ágúst 2025, sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barns sem hafi fæðst X 2025. Fyrir hafi legið upplýsingar um fæðingarorlofstöku með eldra barni, sbr. greiðsluáætlun, dags. 17. október 2023, upplýsingar úr skrám skattyfirvalda og Þjóðskrá Íslands. Kæranda hafi verið send greiðsluáætlun, dags. 23. október 2025, þar sem fram komi að umsókn hennar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hafi verið samþykkt og að mánaðarleg greiðsla til hennar miðað við 100% fæðingarorlof yrði 347.534 kr.
Í 1. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof sé kveðið á um gildissvið laganna. Þar segi að lögin taki til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs. Þau eigi við um foreldra sem séu starfsmenn og/eða sjálfstætt starfandi. Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laganna öðlist foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns.
Óumdeilt sé að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um sex mánaða samfellt starf á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns og eigi tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 4. tölul. 4. gr. laganna. Ágreiningur málsins snúi að útreikningi á greiðslum.
Í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 sé meðal annars kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex almanaksmánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann almanaksmánuð sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá almanaksmánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr. Aldrei skuli þó miða við færri almanaksmánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Í athugasemdum við 23. gr. frumvarpsins er hafi orðið að lögum nr. 144/2020 komi fram að átt sé við almanaksmánuði og að miðað sé við samfellt tímabil sem standi í tólf almanaksmánuði á undan fæðingarmánuði barns.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að til launa á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 1. til 3. mgr. teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt skuli telja til launa þau tilvik sem teljist til þátttöku á innlendum vinnumarkaði samkvæmt a. til f. lið 2. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020. Auk þess skuli telja til launa greiðslur samkvæmt a. og b. lið 5. gr. laga um Ábyrgðarsjóð launa. Þegar um sé að ræða 100% greiðslur á viðmiðunartímabili, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., sem foreldri hafi átt rétt á skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við. Hafi foreldri hins vegar kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma samhliða hlutastarfi eða leyfi, launuðu eða ólaunuðu, skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræði. Sama eigi við hafi foreldri kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falla undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma, enda þótt foreldri hafi ekki verið í ráðningarsambandi á sama tíma. Aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en sem nemi viðmiðunartekjum sem miða skuli við samkvæmt framangreindu, enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli greiðslna, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., og meðaltals heildarlauna bættan samhliða greiðslunum. Þegar greiðslur samkvæmt a. og b. lið 5. gr. laga nr. 88/2003 um Ábyrgðasjóð launa komi til á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við.
Í 2. mgr. 22. gr. komi fram að til þátttöku á innlendum vinnumarkaði teljist samkvæmt a. lið, orlof eða leyfi starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti og starfsmaðurinn hafi á því tímabili sem um ræðir verið í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli. Greiðslur vegna fæðingarorlofs, sbr. 3. gr. laga nr. 144/2020 teljast því til launa samkvæmt 5. mgr. 23. gr. laganna.
Í 6. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila samkvæmt 1. til 3. mgr.
Fæðingardagur barns kæranda hafi verið þann X 2025 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið X 2024 til X 2025.
Samkvæmt upplýsingum frá skattyfirvöldum hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá skattyfirvalda um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og Fæðingarorlofssjóður telji að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda.
Á tímabilinu X til X 2024 hafi kærandi verið í 60-64% fæðingarorlofi og í 3% fæðingarorlofi í október 2024 og hefði þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til samræmis við það en hún hafi dreift greiðslum með eldra barni fæddu þann X 2023 og nýtt þannig 7,5 mánaða fæðingarorlof á tæplega 12 mánaða tímabili. Í öðrum mánuðum viðmiðunartímabilsins, þ. e. X 2024 til X 2025 hafi kærandi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum, B, sem séu höfð með við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 komi skýrt fram að ef foreldri hafi kosið að dreifa greiðslum sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr. hlutfallslega á lengri tíma samhliða hlutastarfi eða leyfi, launuðu eða ólaunuðu, skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræði. Það hafi verið gert í tilfelli kæranda og í samræmi við úrskurði í málum nr. 211/2024 og 318/2014. Greiðslur til kæranda frá Fæðingarorlofssjóði fyrir það tímabil sem hún hafi verið í fæðingarorlofi með eldra barni hafi þannig verið uppreiknaðar.
Í kæru óski kærandi eftir undanþágu frá ákvæðum um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði þar sem kærandi telji það koma illa við foreldra að viðmiðunartímabil greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði taki mið af greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði með eldra barni. Líkt og rakið hafi verið að framan skuli telja greiðslur í fæðingarorlofi til launa samkvæmt 5. mgr. 23. gr., sbr. a. lið 2. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020 og skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræði. Það hafi verið gert í tilviki kæranda. Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof sé ekki að finna neina heimild til þess að víkja frá 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Með vísan til framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að greiðsluáætlun sem hafi verið send kæranda þann 23. október 2025 beri með sér réttan útreikning á greiðslum til hennar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 23. október 2025, um mánaðarlegar greiðslur til kæranda vegna fæðingar barns hennar.
Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns. Óumdeilt er að kærandi uppfyllir það skilyrði laganna og á tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 4. tölul. 4. gr.
Í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 segir að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna. Miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Auk þess segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr., án tillits til þess hvort laun samkvæmt því ákvæði eða reiknað endurgjald samkvæmt 2. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Barn kæranda fæddist X 2025 og skal því samkvæmt framangreindu mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem hún var á innlendum vinnumarkaði tímabilið X 2024 til og með X 2025. Kærandi hefur gert athugasemd við að þeir mánuðir sem hún hafi verið í fæðingarorlofi með barni fæddu árið 2023 hafi verið teknir með við útreikning á fæðingarorlofsgreiðslum til hennar.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 segir að til launa á innlendum vinnumarkaði teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt skuli telja til launa þau tilvik sem teljast til þátttöku á innlendum vinnumarkaði samkvæmt a. til f. liðum 2. mgr. 22. gr. og greiðslur samkvæmt a. og b. liðum 5. gr. laga nr. 88/2003 um Ábyrgðasjóð launa. Samkvæmt 2. mgr. 22. gr. telst til þátttöku á innlendum vinnumarkaði orlof eða leyfi starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti og starfsmaðurinn hafi á því tímabili sem um ræðir verið í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli. Greiðslur vegna fæðingarorlofs, sbr. 3. gr. laga nr. 144/2020 teljast því til launa samkvæmt 5. mgr. 23. gr. laganna.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 kemur einnig fram að þegar um sé að ræða 100% greiðslur á viðmiðunartímabili, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., sem foreldri hafi átt rétt á skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við. Hafi foreldri hins vegar kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma samhliða hlutastarfi eða leyfi, launuðu eða ólaunuðu, skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræði. Sama eigi við hafi foreldri kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma, enda þótt foreldri hafi ekki verið í ráðningarsambandi á sama tíma. Aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en sem nemi viðmiðunartekjum sem miða skuli við samkvæmt framangreindu, enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli greiðslna, í tengslum við tilvik sem falla undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., og meðaltals heildarlauna bættan samhliða greiðslunum.
Samkvæmt gögnum málsins dreifði kærandi greiðslum í fæðingarorlofi með eldra barni sínu fæddu X 2023 og var í 64% fæðingarorlofi í apríl 2024, 60% í maí og júní 2024, 63% í júlí og ágúst 2024, 64% í september 2024 og 3% í október 2024. Í samræmi við ákvæði 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 var tekið mið af þeim viðmiðunartekjum sem greiðslur til kæranda í fæðingarorlofi voru miðaðar við, í sama hlutfalli og greiðslurnar voru inntar af hendi. Líkt og Fæðingarorlofssjóður tekur fram í greinargerð sinni er enga heimild að finna í lögum nr. 144/2020 til að víkja frá framangreindu ákvæði 5. mgr. 23. gr. við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Að því virtu og með vísan til framangreinds er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 23. október 2025, vegna fæðingar barns X 2025, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 23. október 2025, um mánaðarlegar greiðslur til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir