16 janúar 2026
/
Mál nr. 10/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 16. janúar 2026
í máli nr. 10/2025
A
gegn
B og C
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Aldís Ingimarsdóttir verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðilar: B og C.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðilum beri að greiða honum leiguvanskil að fjárhæð 360.000 kr.
Varnaraðilar hafa ekki látið málið til sín taka þrátt fyrir áskoranir.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 21. janúar 2025
Viðbótarskýringar frá sóknaraðila, 6. ágúst 2025.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Varnaraðilar hafa leigt íbúð sóknaraðila frá 1. febrúar 2024. Kveðið er á um í leigusamningi aðila að leigufjárhæðin sé 250.000 kr. á mánuði en varnaraðilar hafa allt að einu aðeins greitt 220.000 kr. á mánuði.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveðst ekki vita af hverju varnaraðilar hafi ekki greitt fulla leigu árið 2024 og ávallt greitt 220.000 kr. í stað 250.000 kr. Sumarið 2024 hafi hann sent þeim kröfubréf vegna þessa og 9. janúar 2025 sendi hann greiðsluáskorun í gegnum Igloo. Þrátt fyrir það hafi varnaraðilar ekki greitt. Er tímabundinn samningur þeirra hafi runnið út 31. janúar 2025 hafi aðilar gert nýjan leigusamning og varnaraðilar greitt leigu í samræmi við ákvæði hans en þau leiguvanskil sem hér um ræðir séu enn ógreidd.
III. Niðurstaða
Krafa sóknaraðila um vangoldna leigu byggir á samningi aðila og 33. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, og er studd gögnum. Ber að fallast á hana.
ÚRSKURÐARORÐ:
Varnaraðilum ber að greiða sóknaraðila 360.000 kr. vegna leiguvanskila.
Reykjavík, 16. janúar 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Aldís Ingimarsdóttir