20 janúar 2026
/
Mál nr. 5/2026 Úrskurður 20. janúar 2026
Mál nr. 5/2026 Eiginnafn: Lucía (kvk.)
Hinn 20. janúar 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 5/2026 en erindið barst nefndinni 12. janúar 2026.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Lucía (kvk.) er ritháttarafbrigði nafnanna Lúsía, Lucia og Lúcía sem eru á mannanafnaskrá. Uppfyllir það því skilyrði 1, 2 og 4 að ofan en þar sem bókstafurinn c er ekki í íslenska stafrófinu er nafnið ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og því aðeins unnt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir þessum rithætti þess.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin endurnýjaði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z. Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn einstaklingur, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra, nafnið Lucía. Nafnið Lucia kemur fyrir í ýmsum ritmyndum í manntölum og í tveimur þeirra er nafnið ritað með umbeðnum rithætti. Þar sem nafnið kemur fyrir í manntali 1920 og sú sem nafnið bar lést árið 1964 telur mannanafnanefnd að hefð sé fyrir þessum rihætti nafnsins með vísan til 1. gr. vinnulagsreglna og það er samþykkt.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lucía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.