22 janúar 2026

/

Mál nr. 697/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 697/2025

Fimmtudaginn 22. janúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árinu 2021. Með innheimtubréfi Vinnumálastofnunar, dags. 28. mars 2022, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 24.374 kr., að meðtöldu 15% álagi. Þann 1. nóvember 2024 var kæranda tilkynnt að ógreidd krafa vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta hefði verið áframsend til frekari meðferðar hjá Innheimtumiðstöð.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. október 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. október 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna kærunnar. Umbeðin gögn bárust 8. janúar 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að þann 1. nóvember 2024 hafi verið lögð fram krafa frá Sýslumanninum á Norðurlandi Vestra vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi gert ráð fyrir að um misskilning væri að ræða þar sem hún hafi ekki þegið atvinnuleysisbætur í nokkur ár á þeim tímapunkti. Nýlega hafi komið í ljós að ekki hafi verið um misskilning að ræða og að henni hafi ekki borist greiðsluáskoranir. Nú hafi kærandi komist að því eftir miklar umleitanir að umrædd skuld sé síðan í apríl og júní 2019 og janúar 2021. Ekki hafi verið hægt að gefa nánari útskýringar á skuldinni. Kærandi reikni með að skuldir séu gerðar upp í síðasta lagi í lok hvers árs og því sé ótækt að senda rukkun fyrir svo gamalli skuld án útskýringar. Kærandi óski eftir því að skuldin verði felld niður eða ýtarlegar útskýringar gefnar á því hvernig skuldin hafi komið til og hvers vegna innheimta hennar hafi þá dregist svona gríðarlega lengi.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Með innheimtubréfi, dags. 28. mars 2022, var kæranda tilkynnt um skuld við Vinnumálastofnun, samtals að fjárhæð 24.374 kr. Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. október 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir