22 janúar 2026

/

Mál nr. 713/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 713/2025

Fimmtudaginn 22. janúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 31. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. október 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. apríl 2025 og var umsóknin samþykkt 13. maí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 42.885 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. október 2025. Með bréfi, dags. 5. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 29. desember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún viti ekki af hverju hún þurfi að endurgreiða Vinnumálastofnun 42.885 kr. þar sem hún hafi tilkynnt stofnuninni um allar tekjur sínar. Þegar Vinnumálastofnun hafi óskað eftir gögnum frá kæranda, svo sem launaseðli, hafi hún þegar verið búin að senda launaseðilinn. Að sögn kæranda hafi Vinnumálastofnun haft samband við hana áður en hún hafi byrjað að vinna og spurt hvort hún væri að vinna sem hún hafi svarað játandi. Vinnumálastofnun hafi þá upplýst kæranda um að hún fengi ekki lengur atvinnuleysisbætur vegna þess að hún hefði hafið störf. Kærandi hafi haldið að allt væri í lagi vegna þess að hún hafi sent Vinnumálastofnun launaseðilinn sinn. Í kjölfarið hafi hún fengið tilkynningu á vefsíðu island.is um viðurlög vegna ótilkynntra tekna. Kærandi skilji ekki hvað hafi farið úrskeiðis en hún sé bráðlega að fara í fæðingarorlof þar sem hún eigi þrjá mánuði eftir af meðgöngu en sé þó enn að vinna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn 22. apríl 2025. Með erindi, dags. 13. maí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 99%. Kærandi hafi afskráð sig af atvinnuleysisbótum á „Mínum síðum“ þann 12. júní 2025, þar sem hún hefði hafið störf á nýjum vinnustað.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í september 2025 hafi kæranda verið sent erindi, dags. 19. september 2025, þar sem henni hafi verið gefinn kostur á að skýra launagreiðslur í apríl, maí og júní 2025 frá B. Auk skýringa hafi kærandi verið beðin um að skila gögnum vegna þessara launagreiðslna, t.a.m. launaseðlum.

Kærandi hafi sent umbeðna launaseðla fyrir apríl, maí og júní 2025 inn á „Mínar síður“ og látið eftirfarandi orðsendingu fylgja með:

„HI, AM VERY SORRY BECAUSE I DIDNT KNOW THAT I NEED TO SEND IT TO THE DIRECTORATE OF LABOUR, BECAUSE IN THE APRIL TO JUNE I JUST ONLY WORK FOR EXTRA JOB I THINK ON THAT MOMENT I JUST ONLY WORK FOR 2 DAYS AND ANOTHER MONTH WORK FOR 3 DAYS AND TO JUNE I WORK UNTIL JUNE 13, I FINISH MY EMPLOYMENT BENIFITS BECAUSE MY COMPANY HAS A NEW COFFE SHOP SO I WORK THERE UNTIL NOW. I APOLOGIZE.“

Þann 31. október 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hún hefði ekki upplýst stofnunina um tilfallandi vinnu yrði henni gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Þá hafi kæranda verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir umrætt tímabil. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hennar hafi hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 37.292 kr., sem innheimtar yrðu með álagi. Heildarskuld kæranda vegna ákvörðunar stofnunarinnar næmi því 42.885 kr.

Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. október 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta tveggja mánaða bið og beri að endurgreiða hluta þeirra atvinnuleysisbóta sem hún hafi fengið greiddar í apríl, maí og júní 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Ljóst sé að tekjur kæranda hafi verið hærri en frítekjumark samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1455/2024 um fjárhæð atvinnuleysistrygginga. Frítekjumarkið árið 2025 sé samkvæmt þeirri grein 89.817 kr. á mánuði en tekjur kæranda hafi numið 220.798 kr. í apríl, 116.324 kr. í maí og 237.099 kr. í júní 2025.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun að fyrra bragði um tekjur í umræddum mánuðum. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar sé að finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“.

Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna skuli sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Hann skuli jafnframt endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Kæranda beri að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hafi ekki upplýst um tilfallandi tekjur í apríl, maí og júní 2025. Greiðslur atvinnuleysisbóta hafi verið leiðréttar í samræmi við upplýsingar frá Skattinum um rauntekjur kæranda.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji ekki tilefni til að fella niður álag á kröfuna.

Skuld kæranda við stofnunina sé að fjárhæð 42.885 kr., að meðtöldu álagi. Kæranda beri að endurgreiða þá upphæð.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar vegna tekna í apríl, maí og júní 2025, samtals að fjárhæð 42.885 kr. að meðtöldu álagi.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í apríl, maí og júní 2025 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2025.

Þann 22. apríl 2025 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um tekjur sínar frá B í apríl, maí og júní 2025. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 42.885 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hún fékk greiddar í apríl, maí og júní 2025 fékk hún hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk framangreinda mánuði og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. október 2025, staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir