22 janúar 2026

/

Mál nr. 716/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 716/2025

Fimmtudaginn 22. janúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 16. nóvember 2023 og var umsóknin samþykkt 11. desember 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 93.720 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 5. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 29. desember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að í lok ágúst 2024 hafi hann byrjað í vinnu hjá B og fengið laun fyrir þann tíma. Á sama tíma hafi hann fengið atvinnuleysisbætur en hafi strax hætt að fá bætur eftir að hafa byrjað að vinna. Kærandi hafi ekki vitað að hann þyrfti að tilkynna um starf sitt strax og hafi ekki haft ásetning til að fela upplýsingar eða brjóta reglur. Þetta hafi verið stakt tilvik og síðan hafi hann verið í samfelldri vinnu. Kærandi hafi sent Vinnumálastofnun útskýringar og launaseðil fyrir ágúst 2024 þar sem hann hafi sýnt að þetta hafi einfaldlega verið misskilningur.

Kærandi telji ákvörðun Vinnumálastofnunar um tveggja mánaða sviptingu réttar hans og 15% álag sé ósanngjörn þar sem hann hafi ekki verið með atvinnuleysisbætur eftir að hann hafi byrjað að vinna og gert heiðarleg mistök. Kærandi óski eftir að ákvörðunin verði endurskoðuð, einnig að bæði álagið og sviptingin verði fellt niður. Kærandi bendi á að fjárhagsleg og andleg staða hans sé mjög erfið um þessar mundir. Hann hafi verið undir miklu andlegu álagi og kvíða sem hafi haft áhrif á daglegt líf hans. Það sé raunveruleg hætta á að hann geti ekki haldið áfram í starfinu sínu ef ástandið versni og því gæti hann þurft að leita aftur eftir aðstoð frá Vinnumálastofnun. Kærandi biðji um skilning og sveigjanleika við meðferð málsins og óski eftir að hann fái að greiða skuldina í litlum greiðslum mánaðarlega, ef það sé ekki möguleiki á að fella hana alfarið niður.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta 16. nóvember 2023. Með erindi, dags. 11. desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 63%. Kærandi hafi verið afskráður frá 1. september 2024 þar sem hann hafi ekki staðfest atvinnuleit fyrir september 2024. Kærandi hafi þegið greiðslur óslitið frá 16. nóvember 2023 til 31. ágúst 2024.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í september 2025 hafi kæranda verið sent erindi þar sem honum hafi verið gefinn kostur á að skýra launagreiðslur í ágúst 2024 frá B. Auk skýringa hafi kærandi verið beðinn um að skila gögnum vegna launagreiðslunnar, t.a.m. launaseðli. Kærandi hafi sent umbeðinn launaseðil með tölvupósti þann 15. september 2025. Að sögn kærandi hafi hann byrjað störf í lok ágúst og ekki verið meðvitaður um að honum bæri að tilkynna stofnuninni strax um starfið. Launaseðillinn hafi borið með sér að kærandi hafi fengið greitt fyrir 64 dagvinnutíma og átta yfirvinnutíma í ágúst 2024.

Þann 28. október 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði ekki upplýst stofnunina um vinnu sína yrði honum gert að sæta viðurlögum. Kæranda hafi verið gert að endurgreiða atvinnuleysisbætur fyrir ágúst [2024]. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hafi hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 81.496 kr. sem innheimtar yrðu með álagi. Heildarskuld kæranda vegna ákvörðunar stofnunarinnar næmi því 93.720 kr.

Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 3. nóvember 2025. Kærandi hafi sagst ekki hafa haft vitneskju um að honum hefði borið að upplýsa stofnunina um vinnu og tekjur og hafi farið fram á að viðurlög yrðu felld niður, sem og endurkrafa vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði og að honum beri að endurgreiða hluta þeirra atvinnuleysisbóta sem hann hafi fengið greiddar í ágúst 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Ljóst sé að tekjur kæranda hafi verið hærri en frítekjumark samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1422/2023 um fjárhæð atvinnuleysistrygginga. Frítekjumarkið árið 2024 sé samkvæmt þeirri grein 86.114 kr. á mánuði en tekjur kæranda hafi numið 260.675 kr. í ágúst 2024.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun að fyrra bragði um tekjur í umræddum mánuði. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar sé að finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“.

Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna skuli sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Hann skuli jafnframt endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Kæranda beri að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki upplýst um tilfallandi tekjur í ágúst 2024. Greiðslur atvinnuleysisbóta hafi verið leiðréttar í samræmi við upplýsingar frá Skattinum um rauntekjur kæranda.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji ekki tilefni til að fella niður álag á kröfuna.

Skuld kæranda við stofnunina sé að fjárhæð 93.720 kr., að meðtöldu álagi. Kæranda beri að endurgreiða þá upphæð.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar vegna tekna í ágúst 2024, samtals að fjárhæð 93.720 kr., að meðtöldu álagi.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í ágúst 2024 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2025.

Þann 16. nóvember 2023 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um tekjur sínar frá B í ágúst 2024. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 93.720 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hann fékk greiddar í ágúst 2024 fékk hann hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreindan mánuð og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2025, staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir