22 janúar 2026

/

Mál nr. 730/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 730/2025

Fimmtudaginn 22. janúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 31. júlí 2025 og var umsóknin samþykkt 19. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 19. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 6. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi misst af fundi hjá Vinnumálastofnun vegna veikinda og hafi þurft að sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kærandi greinir frá því að hún hafi misst vinnuna sína hjá B og hafi ekki efni á að vera launalaus þangað til að hún finni sér aðra vinnu. Kærandi sé á leigumarkaði og þurfi að til dæmis að borga leigu. Hún geti sýnt fram á veikindavottorð ef þörf sé á því.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 31. júlí 2025. Með erindi, dags. 19. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 3. september 2025 hafi kærandi verið boðuð á kynningafund hjá Vinnumálastofnun þann 5. september 2025, klukkan 10:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þann 3. september 2025, klukkan 08:55, hafi boðunin verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda, X og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 3. september 2025, klukkan 08:56. Kærandi hafi hvorki mætt á fundinn né boðað forföll.

Þann 17. september 2025 hafi kærandi aftur verið boðuð á kynningafund hjá Vinnumálastofnun, fyrst þann 19. ágúst 2025, klukkan 10:00 en leiðrétt boðun hafi verið send síðar með fundartímanum 19. september 2025, klukkan 10:00. Kæranda hafi verið bent á að um síðustu boðun væri að ræða, skyldumæting væri og að öll forföll þyrfti að boða án tafar. Forföll bæri að tilkynna á netfangið [email protected]. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðanirnar hafi verið sendar klukkan 08:42 og 08:46 þann 17. september 2025 á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda X og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 17. september 2025, klukkan 08:42 og 08:46. Kærandi hafi ekki mætt en sent svohljóðandi tölvupóst þann 18. september 2025, klukkan 19:19:

„Daginn,

Ég fékk þessi skilaboð send frá ykkur í gær. En ég finn hvergi upplýsingar um þennan fund á Mínum síðum.

„Góðan dag

Þú átt skilaboð á Mínum síðum.

Efni: LEIÐRÉTTING – Kynningarfundur hjá Vinnumálastofnun þann 19. SEPTEMBER 2025 – Skyldumæting

Kveðja, Vinnumálastofnun“

Með erindi, dags. 1. október 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir frekari skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan kynningarfund þann 19. september 2025. Kærandi hafi engum skýringum skilað. Með erindi, dags. 13. október 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna þar sem hún hefði ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem hún hafi verið boðuð í.

Með orðsendingu í gegnum „Mínar síður“ þann 21. október 2025 segi kærandi að hún hafi misst af skilaboðum stofnunarinnar:

„…skilaboðin um fundinn fóru því miður framhjá mér þar sem mikið gekk á hjá mér á þessum tíma, og ég áttaði mig ekki á tímasetningunni fyrr en of seint. Ég skil vel mikilvægi þess að mæta á fundi og ætla framvegis að fylgjast betur með tilkynningum og tryggja að þetta endurtaki sig ekki. Mig langar að biðja um hvort hægt sé að endurmeta stöðuna mína varðandi bætur eða að fá tækifæri til að bæta fyrir mistökin, ef það er mögulegt. Með fyrirfram þökk,“

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, hafi verið tekin til endurumfjöllunar þann 21. október 2025 en kæranda hafi verið tilkynnt að ekkert hefði komið fram í skýringum hennar sem hrundið gæti ákvörðun stofnunarinnar frá 13. október 2025. Sú ákvörðun hafi verið staðfest og kæranda tilkynnt um þá ákvörðun sama dag.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 8. nóvember 2025. Í kæru greini kærandi frá því að hún hafi misst af fundi hjá stofnuninni vegna veikinda.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um tveggja mánaða viðurlög þar sem hún hafi ekki sinnt mætingu á boðuð vinnumarkaðsúrræði.

Samkvæmt a. lið 1. mgr. 13. gr. og [h.] lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist m.a. að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Kærandi hafi fyrst verið boðuð á kynningafund þann 5. september 2025. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll.

Kærandi hafi aftur verið boðuð á kynningafund þann 19. september 2025. Kærandi hafi hvorki  mætt né boðað forföll. Þrátt fyrir að í boðunum til hennar sem sendar hafi verið 3. og 17. september 2025 hafi sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll skyldi tilkynna á tilgreindri vefslóð Vinnumálastofnunar. Engar skýringar á fjarveru kæranda hafi legið fyrir hjá stofnuninni aðrar en þær að skilaboð um fundina hafi farið fram hjá henni en í kæru segi kærandi að hún hafi misst af ótilgreindum fundi vegna veikinda.

Ljóst sé að sendingar stofnunarinnar hafi verið mótteknar í símtæki kæranda vegna umræddra boðana. Vinnumálastofnun hafi bent á að boðanir á umrædda fundi hafi ekki einungis verið sendar kæranda með skilaboðum í síma hennar heldur hafi kærandi einnig verið boðuð með tilkynningu á „Mínum síðum“ stofnunarinnar og með tölvupósti á uppgefið netfang hennar. Kærandi hafi svarað boðun stofnunarinnar með fyrirspurn þann 18. september 2025 þar sem hún haldi því fram að hún sjái ekki umrædda boðun á „Mínum síðum“.

Kærandi hafi fært fram tvenns konar skýringar á fjarveru sinni á fund stofnunarinnar þann 19. september 2025. Til stofnunarinnar hafi hún sent þær skýringar að hún hafi misst af skilaboðum sem hafi innihaldið boðunina en í kæru til úrskurðarnefndar haldi hún því fram að hún hafi verið veik á sama tíma og fundur stofnunarinnar hafi farið fram.

Rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og það sé því mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og með því að uppfylla ekki skilyrði um mætingu né tilkynna um forföll hafi hún brugðist skyldum sínum skv. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 3. september 2025 boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 5. september 2025. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Þann 17. september 2025 var kærandi aftur boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 19. september 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Fyrir úrskurðarnefndinni hefur kærandi vísað til þess að hún hafi misst af fundinum vegna veikinda. Af fyrirliggjandi gögnum málsins verður þó ekki séð að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín eins og henni var skylt að gera, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt ákvæðinu ber þeim sem eru tryggðir samkvæmt lögunum að tilkynna stofnuninni án ástæðulausrar tafar um allar þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni þeirra eða aðstæðum að öðru leyti, þar á meðal um tilfallandi veikindi.   

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir