22 janúar 2026

/

Mál nr. 758/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 758/2025

Fimmtudaginn 22. janúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 24. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2025 og 21. maí 2025, um að fella niður rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. maí 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. nóvember 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. desember 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinna kærðu ákvarðana. Umbeðin gögn bárust 12. janúar 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að Vinnumálastofnunin hafi tekið ósanngjarna ákvörðun. Stofnunin hafi refsað honum í þrjá og hálfan mánuð og fyrir það hafi greiðslum til hans verið frestað í tvo mánuði. Kærandi hafi ekki vitað af úrskurðarnefnd velferðarmála fyrr en sama dag og hann hafi lagt inn kæru. Kærandi óski eftir að mál hans verði skoðað.

III.  Niðurstaða

Kærðar eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2025 og 21. maí 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í annars vegar tvo mánuði og hins vegar þrjá mánuði.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hinar kærðu ákvarðanir voru tilkynntar kæranda með bréfum Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2025 og 21. maí 2025, en kæra barst úrskurðarnefndar velferðarmála 24. nóvember 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn vegna beggja ákvarðana þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála vísaði kærandi til þess að hann hafi ekki vitað af nefndinni fyrr en sama dag og hann hafi lagt inn kæruna. Fyrir liggur hins vegar að kæranda var í bréfum Vinnumálastofnunar leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Í því sambandi er meðal annars haft í huga að gögn málsins benda ekki til þess að hinar kærðu ákvarðanir hafi verið efnislega rangar. Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir