28 janúar 2026
/
Úrskurður nr. 66/2026
Hinn 28. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 66/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU24100065 og KNU24100066
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 9. október 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. september 2024, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Auk þess krefjast kærendur þess að þeim verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu, dags. 30. júlí 2024, komu kærendur hingað til lands til þess að heimsækja systur K sem búsett sé hér á landi. Hafi K komið 18. maí 2024 en M 28. júlí s.á. Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. júlí 2024. Í skýrslunni kemur fram að kærendur hafi greint frá því að hafa hætt við að fara aftur til heimaríkis vegna aðstæðna þar í landi eftir forsetakosningarnar. Kærendur væru heilsuhraust og hafi verið með atvinnu í heimaríki. K kvaðst hafa starfað við sölumennsku en M hafi gert við vélar.
Kærendur komu til forviðtala hjá Útlendingastofnun 6. ágúst 2024. Kváðust þau sækja um vernd einkum vegna almennra aðstæðna í heimaríki og óöryggis þar í landi. Kærendur mættu aftur til viðtala hjá Útlendingastofnun 19. ágúst 2024 ásamt löglærðum talmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Greindu kærendur frá því að þau hafi komið til Íslands til þess að heimsækja systur K en ákveðið að sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi í kjölfar forsetakosninga í Venesúela hinn 28. júlí 2024. Almennar og efnahagslegar aðstæður í heimaríki kærenda kváðu þau vera slæmar, sem og ástand heilbrigðiskerfisins og þá væri lyfjakostnaður mikill. M kvaðst heyra frá ættingjum sínum og í fréttum að ástandið í heimaríki fari versnandi. Kærendur óttist m.a. að þurfa að framfleyta sér í slíku ástandi.
Aðspurð um hvað kærendur óttist við almennt ástand í heimaríki kváðust þau einkum óttast að vera handtekin fyrir föðurlandssvik snúi þau aftur til heimaríkis þar sem þau hafi farið til annars lands í leit að betra lífi. Þá óttist kærendur um líf sitt og að þau geti verið beitt ofbeldi. Greindi M frá því að einstaklingar sem kvarti yfir stjórnvöldum og aðstæðum þar í landi séu handteknir, látnir hverfa eða myrtir og vísaði til þess að þeir sem snúi aftur til Venesúela væru fangelsaðir, látnir hverfa og kallaðir föðurlandssvikarar fyrir að hafa farið annað í leit að betra lífi. M greindi frá svokölluðum „comuna“ hópi og kvað meðlimi hópsins vera almenna og fátæka borgara sem tilkynni einstaklinga sem talið væri að hafi framið landráð eða gerst sek um föðurlandssvik til Colectivos sem væri að hans sögn ofbeldisfullur hópur á vegum ríkisins undir stjórn spilltra lögreglumanna. Móðir M hafi tjáð honum að „comuna“ tilkynni þá sem komi erlendis frá til Colectivos sem síðan handtaki viðkomandi. K greindi frá því að Colectivos handtaki alla sem séu ósammála ríkisstjórninni, taki þátt í kröfugöngum eða mæti á mótmæli. Meðlimi „comuna“ hópsins kvað M einnig tilheyra stjórnmálaflokki PSUV (s. Partido Socialista Unido de Venezuela) og að slíkir hópar séu í hverfi kærenda og hver hópur hefði leiðtoga. Aðspurður hvort hann vissi hverjir í hverfi kærenda tilheyri hópnum kvað M nágranna sinn tilheyra slíkum hópi og PSUV. Aðspurður hvort hann hafi orðið vitni að því þegar „comuna“ hafi tilkynnt einhvern í hverfinu svaraði M að hann hafi heyrt um slíkt og slíkt væri umtalað. Þá greindi M frá svokallaðri „Tuntun“ aðgerð venesúelskra stjórnvalda sem hann kvað felast í handtöku og fangelsun allra sem væru ósammála ríkisstjórninni, allra sem færu í kröfugöngur eða mæti á mótmæli ríkisstjórninni. Kvað M einstaklinga stundum vera fangelsaða en stundum látnir hverfa og að Colectivos sjái um það. K greindi einnig frá því að hús stjórnarandstæðinga væru merkt með „X“. Var hún þá spurð hvort húsnæði einhvers nákomins henni hafi verið merkt með X. Svaraði K því ekki en greindi frá því að á því svæði sem móðir hennar byggi hafi undanfarið komið bílar með þungvopnuðum mönnum sem skjóti upp í loft og haldi svo á brott. Það hafi gerst nýlega eftir kosningarnar 28. júlí 2024 og verið gert í því skyni að hræða almenning þannig að almenningur héldi sig innandyra og myndi ekki mæta á mótmæli.
Aðspurð hvort kærendur hafi sjálf orðið fyrir einhverju, t.d. af hálfu Colectivos, öðrum glæpahópum eða vopnuðu ráni kvað K svo ekki vera. Hún hafi hins vegar verið hrædd við að mæta á mótmæli vegna Colectivos sem hún kvað ráðast á mótmælendur. Þá var K spurð hvort hún hafi einhvern tíman mætt á mótmæli og kvaðst hún ekki hafa gert það. M kvaðst hafa verið rændur af þjófum í strætisvagni og greindi frá því að stundum væru einstaklingar rændir á götu úti. Hann hafi hins vegar ekki orðið fyrir barðinu á Colectivos, hann hafi reynt að vera lítið úti á götu og ekki verið úti á seint um kvöld.Aðspurð hvort kærendur hafi leitað til lögreglunnar eða yfirvalda í heimaríki kváðust þau ekki hafa gert það og töldu yfirvöld hvorki geta veitt sér aðstoð né vernd.
Kærendur kváðust hvorki vera aðilar að stjórnmálaflokki í heimaríki né virk í þágu tiltekins málstaðar þar í landi. Kvað K í forviðtali hjá stofnuninni að þeir sem vilji stjórnvöld burt væru ekki lengur minnihlutinn heldur meirihlutinn en að sögn kærenda í viðtölum þeirra væru þau sem tjái skoðanir andstæðar stjórnvöldum í hættu. Kærendur tilheyri ekki sérstöku þjóðarbroti í heimaríki en aðspurð hvort þau tilheyri minnihlutahópi í heimaríki kváðust þau vera mjög fátæk og kvað M kærendur tilheyra lágstéttinni af þeirri ástæðu.
Aðspurð hvort K telji að hún væri í hættu snúi hún aftur til Venesúela kvaðst hún ekki vita hvað geti komið fyrir en vísaði m.a. til þess að átök gætu hafist að nýju og að oft væri útgöngubann (s. toque de queda) eftir klukkan 18 á kvöldin. Kærendur töldu sig ekki geta búið annars staðar í Venesúela og verið örugg, ástandið væri alls staðar eins og ofsóknir víða í Venesúela. M greindi frá því að Colectivos taki myndir af einstaklingum sem væru nýkomnir til landsins og sendi á tengslanet Colectivos.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 9. október 2024 og kærunefnd bárust greinargerðir kærenda ásamt fylgiskjölum 22. október 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.
Í greinargerðum er aðstæðum kærenda lýst með sambærilegum hætti og í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun. Kærendur vísa jafnframt til rannsóknarskyldu stjórnvalda. Þá er vísað til landaskýrslna og mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja m.a. á því að þeir sem flúið hafi heimaríki, líkt og kærendur, séu í sérstakri hættu við endurkomu til heimaríkis þar sem öryggissveitir telji þá einstaklinga vera föðurlandssvikara. Fram kemur að kærendum hafi borist fregnir af því að á flugvellinum í Karakas sé setið fyrir þeim sem snúi aftur til Venesúela. Vegna framangreinds óttist kærendur að sæta rannsókn,vera pynduð, numin á brott og fangelsuð án dóms og laga við komu þeirra til landsins eða á heimasvæði þeirra. Kærendur byggja einnig á því að ómögulegt sé að leita til lögreglunnar í heimaríki vegna spillingar. K sæki jafnframt um alþjóðlega vernd vegna bágrar stöðu heilbrigðiskerfisins í Venesúela og þá tilheyri kærendur hópi fátækra í Venesúela. Kærendur telja einsýnt að þær ofsóknir og hótanir í garð ríkisborgara Venesúela sem fjallað hafi verið um í greinargerðinni, sérstaklega þeirra sem flúið hafi land, uppfylli alvarleikaþröskuld 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja m.a. á því að stjórnvöld í Venesúela geti ekki verndað þau gegn ofbeldi sökum spillingar. Þau telji enn vera uppi þær aðstæður í Venesúela sem ættu að gera íslenskum stjórnvöldum skylt að veita þeim vernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og að aðstæður í Venesúela séu ekki betri þegar úrskurður kærunefndar nr. 231/2022 var kveðinn upp 18. júlí 2022. Byggja þau einnig á því að úrskurður kærunefndar nr. 539/2023, dags. 27. september 2023 sé rangur hvað varði umfjöllun um aðstæður almennings og að úrskurðurinn hafi því ekki fordæmisgildi fyrir mál þeirra.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja að vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki hafi þau mikla þörf fyrir vernd samkvæmt ákvæðinu. Því til stuðnings vísa þau til þeirra röksemda sem fram hafi komið í greinargerðum þeirra.
Kærendur krefjast þess að þeim verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu venesúelskir ríkisborgarar.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela(U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela(U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED)(ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela(Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela(Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela(Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025(World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela(U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela(United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela(United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021(European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela(Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023– Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024– Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025– Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020(Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child(Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela(Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I(UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight(Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold(Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela(UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela(UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region(United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022(Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals(Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends(European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela(Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election(Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela(Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition(Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela(Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela(InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis(Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan(Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan(Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela(Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela(The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19(Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela(UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela(Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025(The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022(The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025(The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk(United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela(Britannica, síðast uppfært 16. janúar 2026);
- Venezuela Country Focus(European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus(European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022(Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory(InSightCrime, síðast uppfært 15. janúar 2026);
- Venezuela Situation(UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023(OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico(The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos(Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions(Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions(Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy(Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023(OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen(Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election(International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019(Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021)(Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
- (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier(Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency(Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis(World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela(Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela(Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela(Human Rights Watch, 16. janúar 2025).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Nicolás Maduro hefur neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningunum. Í kjölfarið hafi hluti stjórnarandstöðunnar lýst Juan Guaido sem bráðabirgðaforseta, en stjórnvöld undir forystu Maduro haldið áfram að fara með raunveruleg völd ríkisins og notið stuðnings öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum árið 2021 sem hafi farið fram undir alþjóðlegu kosningareftirliti, en framkvæmd þeirra hafi verið ábótavant. Samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar hafi hafist á ný í nóvember 2022 og þar komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan leyst upp bráðabirgðastjórn Juan Guaido í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar hafi enn verið að koma Maduro frá völdum. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 valdi stjórnarandstaðan Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 ógilti Hæstiréttur Venesúela þá niðurstöðu og frestaði forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið valdi stjórnarandstaðan Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og staðfesti landskjörstjórnin valið 26. mars 2024. Forsetakosningar fóru fram 28. júlí 2024 í Venesúela og landkjörstjórn lýsti því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan mótmælti niðurstöðum kosninganna og sagði Gonzalez vera rétt kjörinn forseta. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og var kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024 og 2025 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.
Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 tilkynnti saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í nóvember 2021 þá ákvörðun dómstólsins að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknaranum verið heimilað að opna skrifstofu sína í Karakas. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hafði dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita, þó talið var að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi í júní 2023 tilkynnt að rannsókninni yrði haldið áfram í Venesúela og að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas. Fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjuðu framangreindri ákvörðun en beiðni þeirra um að stöðva rannsóknina hafi verið hafnað 1. mars 2024.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.
Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020 hafi morðtíðni í landinu það ár verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa.Í skýrslu þeirra fyrir árið 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis hafi lækkað í 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa, samanborið við 40,4 árið 2022, en áfram hafi verið skráður verulegur fjöldi ofbeldistilvika, þar á meðal dauðsföll af hálfu yfirvalda og fjöldi tilvika þar sem gerendur hafi verið ótilgreindir.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Skotmörk slíkra brota séu einkum fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. innflutnings-, flutninga- og þjónustufyrirtæki auk smærri atvinnurekenda. Greiðslukröfur séu að jafnaði miðaðar við greiðslugetu þolanda og geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 dollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum og fylgi henni oft alvarlega hótanir, eignaspjöll og ofbeldi, þar á meðal árásir á heimili og fyrirtæki þolenda, auk hótana í gegnum síma og samskiptamiðla á borð við WhatsApp. Í skýrslunni eru einnig rakin dæmi þar sem einstaklingar hafi verið myrtir eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópa. Morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðum til að senda skilaboð til annarra að verða við kröfum hópsins. Þá kemur fram að fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist. Slíkar fjárkúganir eigi sér oftast stað í formi kröfu um mútugreiðslu, m.a. við eftirlitsstöðvar eða við leyfisveitingu. Samkvæmt skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um umfang fjárkúgunar í Venesúela, enda leggi þolendur sjaldnast fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Heimildir bendi jafnframt til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi og þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki átt annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu og einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.
Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Talið er að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022, en fátæktin sé enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Um 50% heimila hafi verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.
Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022, en það hafi ekki skilað sér í bættri almannaþjónustu, s.s. samgöngum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Af heimildum má ráða að hagvöxtur hafi verið um 4-5% árið 2023, um 8% árið 2024 og 9% árið 2025. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Bandaríkin hafi dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem aflétt hafi verið hafi verið komið á á ný eða aðrar settar á eftir forsetakosningarnar í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið.
Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.
Á árunum 2024 og 2025 héldu bandarísk stjórnvöld áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beindust að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Frá seinni hluta árs 2025 jókst þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak sem hafði það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á þessum tíma beittu bandarísk yfirvöld kyrrsetningu á fjölda olíuskipa sem sögð voru reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Þá buðu bandarísk stjórnvöld 50 milljónir dollara í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku Maduro. Þann 16. desember 2025 tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Aðgerðinni var lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.
Hinn 3. janúar 2026 stóðu bandarísk yfirvöld að umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í Karakas. Í kjölfar þeirra tilkynntu bandarísk yfirvöld að Nicolás Maduro, forseti Venesúela og eiginkona hans Cilia Flores, hefðu verið handtekin. Var það sagt byggja á ákærum bandarískra yfirvalda á hendur Maduro, meðal annars vegna meintrar fíkniefna hryðjuverkastarfsemi (e. Narco-terrorism), kókaíninnflutnings til Bandaríkjanna og vörslu á ólöglegum skotvopnum. Í kjölfar aðgerðanna voru Maduro og Flores flutt til Bandaríkjanna þar sem þau verði sótt til saka. Þá greindi Trump frá því að Bandaríkin myndu stýra Venesúela tímabundið á meðan valdaskipti ættu sér stað og eitt af forgangsmálum væri að koma olíuflutningi aftur í gang og nýta olíuauðlindir landsins í þágu almennings og fjármögnunar á uppbyggingu Venesúela. Í kjölfar handtöku Maduro héldu bandarískar hernaðar- og löggæslusveitir áfram að leggja hald á olíuskip sem reyndu að sniðganga bandarískar þvingunaraðgerðir. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu jafnframt að fyrstu birgðir af venesúelskri olíu, sem hafi verið haldlögð yrðu seld fyrir um 500 milljónir Bandaríkjadala, með þeim rökum að söluandvirðið myndi nýtast bæði Bandaríkjunum og efnahagslegri uppbyggingu í Venesúela.
Aðgerðir Bandaríkjanna hafa verið afar umdeildar á alþjóðavettvangi. Sameinuðu þjóðirnar, fjölmörg ríki og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þær harðlega og haldið því fram að þær brjóti gegn alþjóðalögum og hafrétti. Þá hefur verið kallað eftir formlegri umfjöllun innan Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar þeirra varðandi viðskipti, stjórnmál og mannréttindi. Þá er óljóst hvað framhaldið verður hvað varðar stjórn í Venesúela. Sem stendur hefur varaforseti landsins, Delcy Rodriguez, tekið við forsetaembættinu í fjarveru Maduro. Hefur hún verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld um framtíð landsins og stjórn þess. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að eina leiðin til þess að endurreisa lýðræðið í Venesúela eftir nýleg brot á fullveldi landsins og áralanga einræðisstjórn sé að virða vilja venesúelsku þjóðarinnar, tryggja ábyrgð og sjálfákvörðunarrétt og tryggja fullvalda og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þeirra í samræmi við alþjóðalög.
Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 18. janúar 2026, hafði 143 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Kveða samtökin þær tölur verulega lægri en opinberar tölur stjórnvalda í Venesúela og kalla eftir gegnsæi í upplýsingum stjórnvalda. Telja samtökin að enn séu um 700 pólitískir fangar í haldi. Af yfirlýsingu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna fyrir Venesúela frá 12. janúar 2026 hafði aðeins 50 pólitískum föngum verið sleppt af þeim um 800 sem hafi verið í haldi stjórnvalda í Venesúela, ítrekaði erindrekinn kröfu um skilyrðislausa lausn allra þeirra sem hafi verið í haldi.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á almennu öryggis- og efnahagsástandi í Venesúela ásamt því að þau óttist að vera beitt ofbeldi, handtekin og ásökuð um föðurlandssvik snúi þau aftur til heimaríkis sökum þess að hafa yfirgefið heimaríki. Þau hafi heyrt af því að þeir sem snúi aftur til heimaríkis, tjái skoðanir andstæðar stjórnvöldum, mæti í kröfugöngur eða á mótmæli eigi á hættu að vera handtekin, látin hverfa og jafnvel myrt. Kærendur telja sig ekki notið aðstoðar lögreglu eða annarra yfirvalda í heimaríki.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Þá hafi ríkisstjórn Maduro treyst á hersveitir, leyniþjónustu og Colectivos til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratug.
Með tilliti til frásagna kærenda og framangreindra landaheimilda telur kærunefnd ekki ástæðu til þess að draga í efa að þau séu á móti stjórnvöldum í heimaríki og að K hafi óttast að mæta á mótmæli sökum mögulegrar viðveru Colectivos. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur hvorki vera aðilar að stjórnmálaflokki né hafa verið virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Frásagnir kærenda bera ekki með sér að þau hafi komið að starfsemi stjórnmálaflokka, verið áberandi fyrir hönd slíkra flokka í heimaríki eða tekið þátt í mótmælum í heimaríki. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærendur eigi ekki frekar á hættu að verða fyrir áreiti en aðrir einstaklingar í heimaríki þeirra sem séu mótfallnir stjórnvöldum en heimildir bera með sér að einkum áberandi aðilar í stjórnarandstöðuflokkum, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir eru andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Með vísan til framangreinds hafa kærendur ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau hafi orðið fyrir ofsóknum eða hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í heimaríki sínu, í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu.
Kærendur byggja á því að þau óttist almennt ástand í Venesúela. Aðspurð hvort eitthvað hafi komið fyrir kærendur persónulega greindi M frá því að hafa í eitt sinn verið rændur í strætó. Kærendur óttist Colectivos og að þeirra sögn væri ekki hægt að treysta á vernd lögreglu eða annarra yfirvalda. Fram kemur í greinargerð að ómögulegt væri að leita til til lögreglunnar í heimaríki kærenda vegna spillingar.
Að teknu tilliti til upplýsinga um heimaríki kærenda telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að þau óttist almennt ástand þar í landi. Gögn málsins og framburður kærenda bera aftur á móti ekki með sér að þau hafi orðið fyrir áreiti í Venesúela sem hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna, eða að kærendur eigi slíkt á hættu. Þær heimildir sem kærunefnd hefur skoða bera með sér að stjórnvöld í heimaríki kærenda hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu. Þær aðgerðir benda ekki til þess að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd í skilningi c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi jafnframt brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna og geta þeir einstaklingar sem lenda í brotum af hendi lögreglu, svo sem fjárkúgunum, meðal annars leitað til ríkislögreglunnar (s. Policía Nacional Bolivariana) eða þolendaaðstoðar hjá almenningsráðuneytinu (s. Ministerio Público). Er það því mat kærunefndar að kærendur geti leitað til lögreglunnar eða annarra yfirvalda í heimaríki telji þau þörf á.
Kærendur hafa greint frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum sínum. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert i gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kærenda.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur m.a. til þess sem fram komi í aðalkröfu þeirra því til stuðnings. Þá telji kærendur stjórnvöld í Venesúela ekki geta verndað sig sökum spillingar og að enn séu uppi þær aðstæður í Venesúela sem ættu að gera íslenskum stjórnvöldum skylt að veita þeim vernd samkvæmt ákvæðinu.
Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Guatire borg í Miranda fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Miranda fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Venesúela síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað M andlega heilsu sína slæma vegna ástandsins í heimaríki. Hann væri kvíðinn, glími við vandamál í nýrum og fái sjóntruflanir. Var M þá spurður hvort hann hafi leitað til læknis vegna framangreindra vandamála og svaraði M að hann hefði farið einu sinni til nýrnalæknis á opinberum spítala og verið tjáð að vandamálið væri í nýrunum en ekkert verið aðhafst. Hann þyrfti að fara í frekari rannsóknir á einkareknum spítala en hafi ekki gert það vegna kostnaðar. Vandamálið hafi byrjað um tveimur árum fyrr og verkurinn komi og fari. M hafi ekki farið til augnlæknis vegna kostnaðar þar sem augnlæknar starfi á einkareknum spítölum. Hvað andlega heilsu K varðar kvaðst hún vera kvíðin og glíma við svefnleysi. Aðspurð um líkamlega heilsu greindi hún frá því að hafa farið í [...]aðgerð í heimaríki árið áður. Hún væri enn með verki og í vinstri nára. Hún hafi gengist undir aðrar aðgerðir, einkum [...]og væri með verki á sama svæði. Hún hafi leitað til opinbera heilbrigðiskerfisins í heimaríki vegna þessa en ekki farið á einkarekinn spítala vegna kostnaðar. Aðspurð kvaðst K ekki hafa þurft að greiða sjálf fyrir [...]. Kærendur kváðu almenna heilbrigðisþjónustu í heimaríki þeirra vera slæma og sjúklingar þurfi sjálfir að greiða fyrir nauðsynleg aðföng. Þá taki kærendur ekki lyf að staðaldri.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram heilsufarsgögn frá heimaríki þeirra, dags. 15. júní 2011, 29. júlí 2011, 9. febrúar 2014, 21. nóvember 2014 og 10. og 12. júní 2017. sem bera m.a. með sér að K hafi gengist undir áðurnefnda keisaraskurði. Einnig upplýsingar um [...]heilkennið sem af frásögn K verður ráðið að læknar í heimaríki kærenda hafi talið líklegt að ætti við í hennar tilviki.
Samkvæmt landaupplýsingum eru innviðir heilbrigðiskerfisins í Venesúela veikburða og skortur á heilbrigðisvörum og lyfjum. Stjórnvöld hafi stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá árinu 2023 hefur Venesúela glímt við lyfjaskort á undanförnum árum en aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Þá sé aðgengi að lyfjum fyrir þá sem geti greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð, þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að þau hafi verið búsett í leiguhúsnæði og að mestöll fjölskylda þeirra væri búsett í Venesúela, þar á meðal tvær uppkomnar dætur M og barnabörn. Kærendur hafi starfað sjálfstætt í heimaríki, M við viðgerðir en K við smásölu. Tekjur þeirra hafi verið mismunandi og þau hafi ekki alltaf átt nóg fyrir mat og annarri nauðsynjavöru. Þau hafi ekki fengið aðstoð frá stjórnvöldum og ekki sóst eftir aðstoð frá mannúðar- eða hjálparsamtökum. Vísaði M til þess að mannúðar- og hjálparsamtök hefðu ekki útibú á þeirra heimasvæði. K kvað systur sína stundum hafa aðstoðað kærendur lítillega.
Af gögnum málsins verður talið að kærendur hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að kærendur séu heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 30. júlí 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun.
Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kváðu þau systur K og börn hennar vera búsett hér á landi. Einnig væri frændi K búsettur á Spáni. Kærendur töldu það ósanngjarna ráðstöfun yrði þeim ákveðin brottvísun og endurkomubann á Schengen-svæðið.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir