28 janúar 2026
/
Úrskurður nr. 67/2026
Hinn 28. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 67/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU24040068 og KNU24040069
Kæra [...] þeirra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 8. apríl 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. mars 2024, um að synja þeim og barni þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A), ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom M til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 7. mars 2023. Kvaðst hann sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna ástandsins í Venesúela og hann væri að leita að betra lífi fyrir sig og sína fjölskyldu sem hafi ekki getað ferðast með honum vegna fjárhags fjölskyldunnar. Hann væri heilsuhraustur og hafi starfað sem vörubifreiðastjóri í Venesúela. Þar áður hafi hann dvalið í Perú í tvö ár. Samkvæmt lögregluskýrslu kom K til landsins frá Venesúela og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og A 20. janúar 2024. Í þeirri lögregluskýrslu kemur fram að K hafi starfað sem ritari í byggingariðnaði og að K og A væru við góða heilsu.
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 29. ágúst 2023 og 31. janúar 2024 ásamt löglærðum talsmönnum sínum. Kváðust kærendur hafa verið búsett í San Francisco de Yare í Miranda fylki áður en þau fóru frá heimaríki. M kvaðst hafa verið aðili að stjórnarandstöðuflokki sem nefnist Popular Vecinal Aðspurður kvaðst hann hafa tilheyrt minnihlutahópi því um hafi verið að ræða lítinn stjórnmálaflokk á móti ríkinu. M hafi seinast mætt á mótmæli árið 2016 og það ár hafi hann oft mætt á mótmæli. Hann hafi þó hætt að mótmæla árið 2016 vegna þess að þá hafi A fæðst og M orðið hræddur við að eitthvað kæmi fyrir sig. Á sama tíma hafi hann einnig hætt í framangreindum stjórnmálaflokki. Auk þessa hafi M verið í hópi sem hafi gefið fólki súpu og leitað að fatnaði til að gefa börnum sem skort hafi föt. Þá kvaðst M hafa rekið matvöruverslun í heimaríki.
Ástæðu flótta frá heimaríki kváðu kærendur hafa verið hótanir og fjárkúganir sem þau hafi orðið fyrir. Kvaðst M vita að glæpahópurinn La Banda de Carlos Capa hafi staðið þar að baki þar sem sá hópur væri versti hópurinn í heimafylki hans. Aðspurður hvort alltaf hafi verið um að ræða sömu glæpamenn eða hvort aðrir hafi komið við sögu kvaðst M hafa úrklippur úr blöðum þar sem fram kæmi að hópurinn kúgi fé af fólki. Margir glæpahópar væru til staðar en La Banda de Carlos Capa væri aðal hópurinn og sá stærsti í heimafylki hans. Fjárkúganirnar kvað M hafa hafist í janúar 2022 en glæpahópurinn hafi farið í allar verslanirnar á svæðinu og krafið eigendur um 400 dollara á mánuði. Aðspurður um ástæðu fjárkúgananna kvað hann þær í raun hafa verið líkt og leiga fyrir fólk sem rak verslanir á svæðinu. Hafi M ekki getað greitt hafi hann stundum látið glæpahópinn hafa varning úr versluninni. Komið hafi að því að hópurinn hafi krafið M um 5.000 dollara en þá hafi M neitað að borga og lagt fram kæru 2. október 2022. Glæpahópurinn hafi að sögn M tengiliði hjá ríkinu og heyrt af því að M hefði lagt fram framangreinda kæru. Dag einn í október 2022, þegar M hafi verið að opna verslunina, hafi meðlimir hópsins ráðist á M og hótað honum. Hópurinn hafi m.a. tjáð M að hann yrði fordæmi fyrir aðra verslunareigendur. M hafi farið á spítala eftir árásina og á sama tíma fengið hótanir sem snúið hafi að því að hann skyldi draga kæruna til baka. Lögreglan hafi tjáð M að þau myndu rannsaka málið en skömmu síðar hafi lögreglan beðið M um að draga kæruna til baka og hótað honum. Á endanum hafi hann dregið kæruna til baka. Var M þá spurður hvort meðlimir glæpahópsins hafi komið aftur eftir að hann hafi kært og svaraði M því að þeir hafi oft komið aftur og beðið hann um pening. Hann hafi ekki getað borgað þeim og því þurft að yfirgefa heimili sitt. Eftir framangreinda árás í október 2022 hafi M farið í felur, hætt að vinna og yfirgefið heimabæ sinn. Fjölskyldan hafi farið saman til Karakas og fengið að búa í íbúð í eigu systur K og dvalið þar frá nóvember 2022 til janúar 2023. Kærandi greindi frá því að K og A væru enn búsettar í Karakas. Aðspurður um hvort glæpahópurinn hafi einhvern tíman beitt fjölskyldu M ofbeldi greindi hann frá því að eftir brottför sína frá Venesúela hafi hópurinn elt K og A. Þeir hafi klætt sig eins og lögreglumenn og spurt íbúa um aðra íbúa og mannaferðir. Glæpahópurinn hafi einhvern veginn fundið út úr því að M hafi farið til Íslands og hafi þá elt K og sent henni myndir af henni sem þeir hafi tekið þegar þeir hafi elt hana. Þá hafi K flust út í sveit. Var M þá spurður hvort K og A væru enn að fá hótanir og svaraði hann því að stundum þegar K fari aftur til systur sinnar heyri hún að glæpahópurinn hafi spurst fyrir um hana, taki myndir af og elti K. Þá fari K aftur í sveitina. Aðspurður hvernig hópurinn hafi fundið K og A kvað M hópinn hafa tengiliði innan lögreglunnar og viljað nota M sem dæmi fyrir aðrar verslanir. Þegar M hafi yfirgefið heimili sitt hafi hópurinn byrjað að hóta honum með skilaboðum og símleiðis. Aðspurður kvaðst M telja að hann hafi fengið síðasta hótanabréfið í lok janúar 2023.
K greindi frá því að hótanir og fjárkúganir hafi byrjað um mitt ár 2022. M hafi leigt verslunarrými og kærendur þurft að greiða til að halda aftur af hótunum. Þau hafi þurft að loka versluninni um það bil 2021 til 2022 þar sem þau hafi ekki átt efni á að greiða umbeðnar fjárhæðir og þurft að flýja. Þau hafi því verið á ferðinni og aldrei á sama staðnum. Kvað hún stóran glæpahóp hafa staðið að baki þeim fjárkúgunum og hótunum sem kærendur hafi orðið fyrir og að sá sem hafi hótað kærendum gengi undir nafninu Carlitos Capa og væri einn af tíu eftirlýstustu glæpamönnum Venesúela. K greindi frá því að hún og M hafi verið beðin um 40 til 60 dollara ýmist vikulega eða aðra hverja viku og glæpahópurinn hafi beint sjónum sínum að þeim vegna þess að þau hafi rekið verslun. Kvað hún kærendur hafa greitt mútur til þess að ekki væri brotist inn til þeirra og til þess að halda öðrum glæpahópum frá því að áreita kærendur. Hótanirnar hafi að hennar sögn borist bæði sem skilaboð í síma auk þess sem hópurinn hafi sent menn með skilaboð til þeirra. K kvaðst sjálf ekki hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi en hún hafi verið vitni að því þegar hópurinn hafi beitt M ofbeldi. Þegar kærendur hafi leitað aðstoðar lögreglu hafi lögreglan látið glæpahópinn vita af því og hótanirnar orðið verri. Tveimur dögum eftir að kærendur hafi leitað til lögreglunnar hafi þau fengið mjög slæmar hótanir og þeim m.a. verið tjáð að þeir vissu að kærendur hafi tilkynnt þá. Aðspurð um hvort hún hefði einhver gögn til stuðnings frásögn sinni lýsti K því að þegar henni hafi borist umræddar hótanir hafi hún sent þær til M og eytt þeim hjá sér.
Aðspurð um hvað kærendur teldu að myndi gerast snéru þau aftur til heimaríkis taldi M að hann myndi þurfa að fela sig, hann óttist um líf sitt í heimaríki og geti ekki veitt A framtíð. Kærendur kváðu A hafa verið í fjarnámi undir lokin þar sem hún hafi ekki komist í skólann vegna öryggis hennar vegna þess sem hafi komið fyrir M og A hafi fengið hótanir í skólanum. Kvaðst M þurfa að byrja alveg frá byrjun í heimaríki og það sjái hann ekki fyrir sér. Kvaðst K halda að kærendum yrði sennilega rænt því glæpahópurinn hafi komist að því að þau hafi flúið landið. Kærendur töldu sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki og verið örugg. Taldi M yfirvöld í Venesúela ekki geta veitt sér aðstoð eða vernd og vísaði til þess að þegar hann hafi sótt um hjálp til ríkisins hafi yfirvöld ekkert gert.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli A kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við A með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og A synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Var A brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 8. apríl 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 22. apríl 2024. Með tölvubréfum 1. og 24. október 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Svör kærenda bárust kærunefnd með tölvubréfi 9. og 29. október 2025.
Hinn 16. október 2024 bárust kærunefnd upplýsingar frá Útlendingastofnun þess efnis að kærendur hefðu eignast barn (hér eftir B) 12. október 2024 og varð B þá hluti af málsmeðferðinni.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er um málsatvik vísað til greinargerða kærenda til Útlendingastofnunar og fyrirliggjandi gagna. Í greinargerðum kærenda til stofnunarinnar er málsatvikum lýst á sambærilegan hátt og í viðtölum þeirra ásamt því að í þeim er gerð nánari grein fyrir framlögðum gögnum.
Í greinargerð kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Byggja kærendur á því að með hliðsjón af einstaklingsbundnu mati á væntanlegum aðstæðum A beri að veita fjölskyldunni vernd hér á landi. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Byggja kærendur á því að hinar kærðu ákvarðanir séu haldnar verulegum annmarka einkum með tilliti til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar samkvæmt. 10. gr. stjórnsýslulaga og rannsóknarreglu útlendingaréttar samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Framangreint leiði til þess að fella verði hinar kærðu ákvarðanir úr gildi. Kærendur byggja á því að engin raunveruleg umfjöllun hafi verið um ofsóknaraðila kærenda. Kærendur hafi borið statt og stöðugt um hótanir, ofbeldi og fjárkúganir frá glæpahópi Carlos Capa og lagt fram talsvert magn gagna máli þeirra til stuðnings. Árétta kærendur að þau óttist glæpahópinn í heild sinni en ekki einungis höfuðpaur hópsins. Að mati kærenda hafi málsmeðferð stofnunarinnar og rökstuðningur ákvarðana í málum þeirra ekki verið í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar, m.a. 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga. Þannig verði ekki hjá því komist að vísa málinu til nýrrar meðferðar hjá stofnuninni.
Þá vísa kærendur til hagsmuna A og m.a. til þess að stjórnvöldum sé skylt að hafa það sem börnum sé fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar séu um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2002. Kærendur mótmæla þeim ályktunum Útlendingastofnunar að yfirvöld í Venesúela hafi stigið mikilvæg skref til að tryggja réttindi og lífsgæði barna í Venesúela. Vísa kærendur m.a. til þess að það myndi ganga þvert gegn hagsmunum A að dvelja í heimaríki þar sem henni stafi hætta af fjárkúgunum sem beinist að þeim eða myndi að öðrum kosti myndu þau búa við skert framfærsluöryggi.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og A verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila samkvæmt a- til c-liðum 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli stjórnmálaskoðana kærenda og aðildar þeirra að þjóðfélagshópi. Að auki telji kærendur að líta verði á málið með hliðsjón af almennu ástandi í landinu. Kærendur byggi á ástæðuríkum ótta við ofsóknir á grundvelli aðildar að þjóðfélagshópi samkvæmt d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga sem verslunarrekendur í Miranda fylki, í ljósi reynslu sinnar af fjárkúgunum og ofbeldi glæpahóps Carlos Capa. Vísa kærendur til fyrri umfjöllunar um málsástæður þeirra í greinargerðum til Útlendingastofnunar. Þær ofsóknir sem kærendur óttist séu ofbeldi og líflát af hálfu framangreinds glæpahóps í skilningi 1. mgr. 37. gr. og a- og b-liðar 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að þeir sem standi að baki ofsóknum séu einkum glæpahópur Carlos Capa, sbr. b- og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga en stjórnvöld séu einnig orsakavaldur í skilningi a-liðar ákvæðisins. Annars vegar vegna tengsla glæpahópsins við lögregluna auk þess sem yfirvöld hafi neitað kærendum um vernd en M hafi greint frá því að lögreglan hafi hótað honum og sagt honum að afturkalla kæruna. Til viðbótar hafi ríkið að sögn M ekki beitt sér gegn glæpahópnum heldur nýtt hópinn t.d. til þess að stöðva mótmæli. Hins vegar vegna þess að stjórnvöld séu stórum hluta til valdur að því ástandi sem ríki í Venesúela. Að mati kærenda sé ljóst að þau geti ekki treyst á vernd lögreglu í heimaríki gagnvart glæpastarfsemi þar í landi.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til röksemda í aðalkröfu sinni varakröfunni til stuðnings. Byggja kærendur einnig á því að úrlausn á varakröfu í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki tekið mið af landaupplýsingum frá heimasvæði kærenda eða stöðu þeirra sem þolendur glæpahóps sem enn sé til staðar, þrátt fyrir að höfuðpaur hópsins hafi fallið frá. Kærendur hafi einnig lýst gerræðislegum tilburðum stjórnvalda í sinn garð, rakið ómannúðlega og vanvirðandi meðferð sem stjórnarandstæðingar verði fyrir í Venesúela og lýst ótryggu öryggisástandi vegna einstaklingsbundinna þátta. Vísa kærendur til þess að þau hafi fulla ástæðu til að óttast refsingar og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Vísa kærendur einnig til þeirra heimilda sem raktar hafi verið í greinargerðum til Útlendingastofnunar. Árétta kærendur að Útlendingastofnun hafi ekki tekið mið af þeim heimildum og vísa til þess að vanræksla á að taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda varði við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og A verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til sömu málsástæðna og raktar séu í aðal- og varakröfu þeirra. Vísa kærendur einnig til þess að þau tilheyri þjóðfélagshópi einstaklinga sem hafi þurft að gefa eftir rétt sinn til að vera ekki svipt atvinnu sinni að geðþótta og hafi því aukna verndarþörf. Kærendur standi frammi fyrir heimilisleysi snúi þau aftur til heimaríkis og það myndi reynast þeim erfitt að starfa við verslunarreksturs sökum tíðs rafmagnsleysis í Venesúela. Auk þess eigi kærendur von á barni og fjölskyldan í enn viðkvæmari stöðu fyrir vikið. Raunhæf ástæða sé til að ætla að kærendur eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirða meðferð þar sem langvarandi neyðarástand hafi ríkt í Venesúela. Vísa kærendur til þess að réttarkerfi Venesúela sé að hruni komið og mannréttindabrot ríkjandi auk þess sem yfirvöld veiti almenningi ekki viðhlítandi vernd gegn ofbeldi eða glæpum. Um sé að ræða erfiðar efnahagslegar- og félagslegar aðstæður auk almenns ótryggs ástands í landinu.
Til þrautaþrautavara krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kærenda er gerð krafa um að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af óvissu sem ríki um hagi útlendinga sem voru endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023 og með hliðsjón af því að ekki hafi fengist lendingarleyfi fyrir áætlað leiguflug í lok febrúar 2024. Vísa kærendur til þess að það sé sérstaklega mikilvægt að fyrirgera ekki hagsmunum barna kærenda.
Með endursendingu kærenda og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn m.a. 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og A. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og A hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og A séu venesúelskir ríkisborgarar. Fyrir liggur að B fæddist hér á landi og foreldrar B hafi venesúelskt ríkisfang. Í ljósi framangreinds leggur kærunefnd til grundvallar að B sé einnig venesúelskur ríkisborgari.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela(U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela(U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED)(ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela(Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela(Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela(Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025(World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela(U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela(United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela(United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021(European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela(Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023– Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024– Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025– Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020(Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child(Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela(Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I(UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight(Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold(Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela(UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela(UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region(United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022(Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals(Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends(European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela(Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election(Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela(Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition(Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela(Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela(InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis(Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan(Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan(Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela(Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela(The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19(Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela(UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela(Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025(The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022(The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025(The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk(United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela(Britannica, síðast uppfært 16. janúar 2026);
- Venezuela Country Focus(European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus(European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022(Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory(InSightCrime, síðast uppfært 15. janúar 2026);
- Venezuela Situation(UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023(OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico(The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos(Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions(Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions(Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy(Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023(OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen(Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election(International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019(Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021)(Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
- (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier(Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency(Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis(World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela(Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela(Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025 – Veneuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Nicolás Maduro hefur neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningunum. Í kjölfarið hafi hluti stjórnarandstöðunnar lýst Juan Guaido sem bráðabirgðaforseta, en stjórnvöld undir forystu Maduro haldið áfram að fara með raunveruleg völd ríkisins og notið stuðnings öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum árið 2021 sem hafi farið fram undir alþjóðlegu kosningareftirliti, en framkvæmd þeirra hafi verið ábótavant. Samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar hafi hafist á ný í nóvember 2022 og þar komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan leyst upp bráðabirgðastjórn Juan Guaido í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar hafi enn verið að koma Maduro frá völdum. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 valdi stjórnarandstaðan Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 ógilti Hæstiréttur Venesúela þá niðurstöðu og frestaði forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið valdi stjórnarandstaðan Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og staðfesti landskjörstjórnin valið 26. mars 2024. Forsetakosningar fóru fram 28. júlí 2024 í Venesúela og landkjörstjórn lýsti því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan mótmælti niðurstöðum kosninganna og sagði Gonzalez vera rétt kjörinn forseta. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og var kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024 og 2025 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.
Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 tilkynnti saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í nóvember 2021 þá ákvörðun dómstólsins að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknaranum verið heimilað að opna skrifstofu sína í Karakas. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hafði dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita, þó talið var að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi í júní 2023 tilkynnt að rannsókninni yrði haldið áfram í Venesúela og að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas. Fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjuðu framangreindri ákvörðun en beiðni þeirra um að stöðva rannsóknina hafi verið hafnað 1. mars 2024.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.
Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020 hafi morðtíðni í landinu það ár verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa.Í skýrslu þeirra fyrir árið 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis hafi lækkað í 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa, samanborið við 40,4 árið 2022, en áfram hafi verið skráður verulegur fjöldi ofbeldistilvika, þar á meðal dauðsföll af hálfu yfirvalda og fjöldi tilvika þar sem gerendur hafi verið ótilgreindir.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Skotmörk slíkra brota séu einkum fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. innflutnings-, flutninga- og þjónustufyrirtæki auk smærri atvinnurekenda. Greiðslukröfur séu að jafnaði miðaðar við greiðslugetu þolanda og geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 dollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum og fylgi henni oft alvarlega hótanir, eignaspjöll og ofbeldi, þar á meðal árásir á heimili og fyrirtæki þolenda, auk hótana í gegnum síma og samskiptamiðla á borð við WhatsApp. Í skýrslunni eru einnig rakin dæmi þar sem einstaklingar hafi verið myrtir eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópa. Morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðum til að senda skilaboð til annarra að verða við kröfum hópsins. Þá kemur fram að fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist. Slíkar fjárkúganir eigi sér oftast stað í formi kröfu um mútugreiðslu, m.a. við eftirlitsstöðvar eða við leyfisveitingu. Samkvæmt skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um umfang fjárkúgunar í Venesúela, enda leggi þolendur sjaldnast fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Heimildir bendi jafnframt til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi og þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki átt annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu og einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.
Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Talið er að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022, en fátæktin sé enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Um 50% heimila hafi verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.
Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022, en það hafi ekki skilað sér í bættri almannaþjónustu, s.s. samgöngum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Af heimildum má ráða að hagvöxtur hafi verið um 4-5% árið 2023, um 8% árið 2024 og 9% árið 2025. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Bandaríkin hafi dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem aflétt hafi verið hafi verið komið á á ný eða aðrar settar á eftir forsetakosningarnar í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið.
Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.
Á árunum 2024 og 2025 héldu bandarísk stjórnvöld áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beindust að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Frá seinni hluta árs 2025 jókst þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak sem hafði það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á þessum tíma beittu bandarísk yfirvöld kyrrsetningu á fjölda olíuskipa sem sögð voru reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Þá buðu bandarísk stjórnvöld 50 milljónir dollara í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku Maduro. Þann 16. desember 2025 tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Aðgerðinni var lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.
Hinn 3. janúar 2026 stóðu bandarísk yfirvöld að umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í Karakas. Í kjölfar þeirra tilkynntu bandarísk yfirvöld að Nicolás Maduro, forseti Venesúela og eiginkona hans Cilia Flores, hefðu verið handtekin. Var það sagt byggja á ákærum bandarískra yfirvalda á hendur Maduro, meðal annars vegna meintrar fíkniefna hryðjuverkastarfsemi (e. Narco-terrorism), kókaíninnflutnings til Bandaríkjanna og vörslu á ólöglegum skotvopnum. Í kjölfar aðgerðanna voru Maduro og Flores flutt til Bandaríkjanna þar sem þau verði sótt til saka. Þá greindi Trump frá því að Bandaríkin myndu stýra Venesúela tímabundið á meðan valdaskipti ættu sér stað og eitt af forgangsmálum væri að koma olíuflutningi aftur í gang og nýta olíuauðlindir landsins í þágu almennings og fjármögnunar á uppbyggingu Venesúela. Í kjölfar handtöku Maduro héldu bandarískar hernaðar- og löggæslusveitir áfram að leggja hald á olíuskip sem reyndu að sniðganga bandarískar þvingunaraðgerðir. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu jafnframt að fyrstu birgðir af venesúelskri olíu, sem hafi verið haldlögð yrðu seld fyrir um 500 milljónir Bandaríkjadala, með þeim rökum að söluandvirðið myndi nýtast bæði Bandaríkjunum og efnahagslegri uppbyggingu í Venesúela.
Aðgerðir Bandaríkjanna hafa verið afar umdeildar á alþjóðavettvangi. Sameinuðu þjóðirnar, fjölmörg ríki og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þær harðlega og haldið því fram að þær brjóti gegn alþjóðalögum og hafrétti. Þá hefur verið kallað eftir formlegri umfjöllun innan Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar þeirra varðandi viðskipti, stjórnmál og mannréttindi. Þá er óljóst hvað framhaldið verður hvað varðar stjórn í Venesúela. Sem stendur hefur varaforseti landsins, Delcy Rodriguez, tekið við forsetaembættinu í fjarveru Maduro. Hefur hún verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld um framtíð landsins og stjórn þess. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að eina leiðin til þess að endurreisa lýðræðið í Venesúela eftir nýleg brot á fullveldi landsins og áralanga einræðisstjórn sé að virða vilja venesúelsku þjóðarinnar, tryggja ábyrgð og sjálfákvörðunarrétt og tryggja fullvalda og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þeirra í samræmi við alþjóðalög.
Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 18. janúar 2026, hafði 143 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Kveða samtökin þær tölur verulega lægri en opinberar tölur stjórnvalda í Venesúela og kalla eftir gegnsæi í upplýsingum stjórnvalda. Telja samtökin að enn séu um 700 pólitískir fangar í haldi. Af yfirlýsingu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna fyrir Venesúela frá 12. janúar 2026 hafði aðeins 50 pólitískum föngum verið sleppt af þeim um 800 sem hafi verið í haldi stjórnvalda í Venesúela, ítrekaði erindrekinn kröfu um skilyrðislausa lausn allra þeirra sem hafi verið í haldi.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Af landaheimildum, m.a. skýrslu frá InSight Crime frá júlí 2023, má sjá að Maduro hafi sett á stofn friðarsveitir (CUPAZ) árið 2019 í þeim tilgangi að berjast gegn vaxandi stjórnarandstöðu og mótmælum í landinu. CUPAZ hafi ráðist í árangursríkar aðgerðir í Miranda fylki gegn glæpahópum sem höfðu ráðið ríkum þar. Heimildir benda til þess að rígur hafi verið á milli glæpagengis undir stjórn Carlos Capa, og CUPAZ hópanna um yfirráð á svæðinu árið 2023. Hafi Carlos ítrekað komið sér undan því að vera handsamaður af stjórnvöldum, meðal annars með aðstoð íbúa Valles de Tuy svæðisins, þar sem heimabær kæranda er staðsettur. Þá hafi Carlos Capa látist í lögregluaðgerðum í mars 2024.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau hafi orðið fyrir fjárkúgunum, hótunum og ofbeldi af hálfu Carlos Capa og glæpahóps hans. Kærendur telja yfirvöld í heimaríki ekki geta veitt sér aðstoð eða vernd.
Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðu kærendur aðalástæðu flótta þeirra frá heimaríki hafa verið hótanir og fjárkúganir í þeirra garð vegna verslunarreksturs þeirra. Greindi M frá því að hann hafi hafið verslunarrekstur í Venesúela í byrjun árs 2022 og fjárkúganir hafist í janúar 2022. Glæpahópurinn hafi krafist um það bil 400 dollara á mánuði. M greindi frá því að þegar hann hafi ekki getað borgað hafi hann látið glæpahópinn fá vörur úr versluninni. M greindi frá því að þegar glæpahópurinn hafi krafist 5.000 dollara hafi hann neitað að greiða og lagt fram kæru hjá lögreglunni 2. október 2022. Hafi glæpahópurinn frétt af kærunni í gegnum tengiliði sína hjá ríkinu og í kjölfarið komið dag einn þegar hann hafi verið að opna verslunina, ráðist á hann og hótað honum vegna kærunnar. Aðspurður hvað hefði gerst eftir að hann hefði kært svaraði M því að „þeir“ hefðu látið hann draga kæruna til baka. Þá hafi lögreglan hafi krafist þess sama og hótað honum skömmu eftir framlagningu kærunnar. Á endanum hafi M dregið kæruna til baka. M greindi frá því að glæpahópurinn hafi oft komið aftur eftir framlagningu kærunnar og krafið hann um pening. Þar sem hann hafi ekki getað borgað hafi fjölskyldan farið til Karakas og dvalið þar í íbúð í eigu systur K frá nóvember 2022 til janúar 2023. Eftir að M hafi farið frá heimili sínu hafi glæpahópurinn byrjað að hóta honum símleiðis með skilaboðum og hljóðskilaboðum. Síðasta hótunarbréfið hafi líklega borist í lok janúar 2023 þegar fjölskyldan hafi verið í Karakas. Fjölskyldan hafi aðeins haft efni á farmiða fyrir M og þegar hann hafi verið farinn frá Venesúela hafi glæpahópurinn veitt K og A eftirför og tekið af þeim myndir. Að sögn M hafi glæpahópurinn La Banda de Carlos Capa staðið að baki fjárkúgunum í garð kærenda. M kvaðst vita það þar sem hópurinn væri sá versti í heimafylki kærenda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því aðspurð um ástæður flótta að hún og M hafi orðið fyrir fjárkúgunum og fengið mikið af hótunum sem hafi snúið að því að þeim eða börnum þeirra yrði rænt og að M yrði beittur ofbeldi. K greindi frá því að ástæðan fyrir hótunum og fjárkúgunum glæpahópsins hafi verið verslunarrekstur þeirra. Þau hafi þurft að borga mútur svo ekki yrði brotist inn til þeirra og til að halda öðrum glæpahópum frá þeim. Þar sem kærendur hafi ekki fundið leiðir til að borga hafi þau flust á milli staða. Kvað K mann að nafninu Carlitos Capa hafa hótað þeim og að glæpahópur hans hafi staðið að baki fjárkúgunum í garð kærenda. Þá vísaði K til þess að umræddur maður væri einn af tíu eftirlýstustu glæpamönnum landsins. K kvað hótanirnar og fjárkúganirnar hafa hafist um mitt ár 2022 og hún og M hafi verið krafin um 40 til 60 dollara ýmist vikulega eða aðra hverja viku. Hótanir hafi að sögn K borist bæði sem skilaboð í síma auk þess sem glæpahópurinn hafi sent menn til þeirra með skilaboð. Hún hafi sjálf ekki orðið fyrir ofbeldi en verið vitni að því sem hópurinn hafi gert við M. K greindi frá því að hún og M hefðu farið til lögreglunnar en lögreglan hefði látið glæpahópinn vita og í kjölfarið hafi hótanirnar versnað. Aðspurð hvenær hún og M hafi byrjað að flytja sig um og flýja frá hópnum sem ógnaði þeim svaraði K því að um það bil 2021 til 2022 hafi þau þurft að loka versluninni þar sem þau hafi ekki átt fyrir mútunum.
Í umsóknum sínum um alþjóðlega vernd kvaðst M hafa starfað sem vörubifreiðastjóri áður en hann kom til Íslands og kvaðst K hafa starfað sem ritari í byggingariðnaði. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst M hafa átt og rekið matvöruverslun en K greindi frá því að hún hafi ekki verið í launuðu starfi áður en hún fór frá heimaríki. Með tölvubréfi kærunefndar 1. október 2025 var óskað eftir skýringum á misræmi í frásögn M á milli umsóknar hans um alþjóðlega vernd annars vegar og viðtals hjá Útlendingastofnun hins vegar. Í svörum sínum til kærunefndar 9. október 2025 svaraði M því að ekki væri um misræmi að ræða og tók fram að hann hefði starfað sem vörubifreiðastjóri í Perú frá 2020 til 2021, snúið aftur til Venesúela 15. desember 2021 og opnað matvöruverslun í heimaríki í byrjun árs 2022. Með tölvubréfi kærunefndar 24. október 2025 til kærenda voru þau spurð að því hvað matvöruverslunin sem þau hafi átt hafi heitið og hvort þau gætu lagt fram gögn sem gætu sýnt fram á tilvist og rekstur verslunarinnar. Í svörum kærenda 29. október 2025 kom fram að rekstur verslunarinnar hefði verið óformlegur og verslunin hvorki verið formlega skráð né með skráð heiti. Samhliða svörum kærenda lögðu þau fram m.a. þrjár ljósmyndir er þau byggja á að sýni umrætt verslunarrými. Af ljósmyndunum verður ekkert ráðið um tengingu M og K við rýmið. Hafa ljósmyndirnar því takmarkað sönnunargildi fyrir mál kærenda. Kærendur lögðu einnig fram afrit leigusamning vegna rýmisins sem þau kváðu hafa verið felldan úr gildi vegna þess að þau hefðu þurft að hætta rekstrinum, yfirgefa svæðið og hætta greiðslu leigu í kjölfar fjárkúgana. Skjalið er dagsett 1. janúar 2022 og af því verður ráðið að samningsaðilar séu M og nafngreindur leigusali. Í samningnum er ekki vísað til tiltekinnar nafngreindrar verslunar en fram kemur að samið sé um leigu á atvinnuhúsnæði til eins árs með möguleika á framlengingu. Þrátt fyrir misræmi í framburði M varðandi störf hans áður en hann yfirgaf heimaríki telur kærunefnd með vísan til gagna málsins ekki ástæðu til að draga í efa að hann hafi tekið verslunarrými á leigu 1. janúar 2022 og hafi í kjölfarið opnað matvöruverslun.
Líkt og að framan hefur verið rakið byggja kærendur á því að þau hafi orðið fyrir fjárkúgunum og hótunum frá meðlimum glæpahóps Carlos Capa vegna verslunarreksturs þeirra.
Við meðferð mála kærenda hjá Útlendingastofnun lögðu þau fram ýmis gögn. Meðal annars lögðu kærendur fram ljósmyndir af fjórum handrituðum skilaboðum sem þau byggi á að innihaldi hótanir frá meðlimum glæpahóps Carlos Capa og hafi verið skilin eftir við útidyrahurð kærenda í júlí og ágúst 2022, þegar kærendur voru enn í heimabæ þeirra. Orðalag skilaboðanna er almenns eðlis og í þeim er ekki vísað til kærenda, Carlos Capa eða glæpahóps hans með beinum hætti. Af ljósmyndunum verður ekki ráðið m.a. hvenær og hvar skilaboðin hafi verið skilin eftir, hver hafi staðið þeim að baki, að þeim hafi verið beint að kærendum eða um ástæður að baki skilaboðunum. Kærendur lögðu einnig fram gögn sem af skýringum við gögnin verður ráðið að þeim hafi borist eftir brottför M frá heimaríki. Einkum skjáskot af skilaboðum sem K hafi sent til M hinn 20. júlí 2023 þar sem hún lýsi atvikum sem aðrir hafi tjáð henni. Um er að ræða einhliða lýsingar K og ekkert sem þar kemur fram rennir stoðum undir að um áreiti umrædds glæpahóps sé að ræða. Jafnframt lögðu kærendur fram upptöku af hljóðskilaboðum sem þau byggja á að þeim hafi borist í mars til maí 2023 ásamt myndbandi sem borist hafi K í júlí 2023 frá glæpahópi Carlos Capa. Ekkert sem í framangreindum gögnum kemur fram rennir stoðum undir að um áreiti umrædds glæpahóps sé að ræða. Hafa gögnin samkvæmt framangreindu takmarkaða þýðingu fyrir mál kærenda.
Til stuðnings frásagna kærenda um árás glæpahóps á M lögðu þau einnig fram þrjár ódagsettar ljósmyndir sem þau byggja á að sýni áverka á M eftir árásina og ljósmynd af handrituðum sjúkragögnum frá heimaríki kærenda, dags. 2. september 2022 vegna læknisheimsóknar M í kjölfar árásarinnar. Eins og fram hefur komið eru ljósmyndirnar ódagsettar og af þeim verður ekkert ráðið um ástæðu og tímasetningu áverkanna eða meinta gerendur. Framangreind sjúkragögn renna stoðum undir að M hafi leitað sér læknisaðstoðar í heimaríki 2. september 2022. Á hinn bóginn kemur ekkert fram í þeim sem staðfestir ástæður að baki læknisheimsóknar M eða rennir stoðum undir að læknisheimsóknin hafi verið vegna meintrar árásar á M. Er dagsetning á sjúkragögnunum einnig á skjön við skýra frásögn M í viðtali að glæpahópur hefði ráðist á hann í október 2022. Hafa framangreind gögn því takmarkaða þýðingu í máli kærenda.
Kærendur lögðu einnig fram afrit skjals sem þau byggja á að sé kæra M til lögreglunnar í heimaríki. Skjalið er dagsett 2. september 2022 og dagsetning brots þar skráð 2. september 2029. Í haus skjalsins má sjá óskýrt vatnsmerki CICPC lögreglunnar og óskýrt merki annarrar stofnunar, málsnúmer og auðkennisupplýsingar um brotaþola, sem af upplýsingunum verður ráðið að hafi verið M. Samkvæmt texta í hausnum á skjalið að stafa frá CICPC rannsóknarlögreglunni í í Santa Teresa del Tuy (sp. Cuerpo de Investigaciones Científicas, Penales y Criminalísticas). Athygli vekur að bókstafinn „s“ vantar í lokin á orðinu „Ciminalística“ í titli skjalsins. Fyrir miðju skjalsins eru kassar sem hægt er að merkja við. Í niðurlagi skjalsins hægra megin má sjá óskýrt vatnsmerki og óskýran stimpil embættis sem inniheldur óskýrt skjaldamerki en ber með sér að stafa frá embætti í Miranda fylki. Í niðurlagi skjalsins vinstra megin er að finna óskýra vísun til venesúelskra stjórnvalda. Skjalið ein blaðsíða að lengd og ekki í lit. Atvikalýsing stöðvast í miðri setningu en ber með sér að haft sé eftir brotaþola að ótilgreindir vopnaðir einstaklingar sem tilheyri glæpahópnum CUPAZ (sp. Cuadrillas Defensoras de la Paz) undir forystu Carlos Capa hafi hótað brotaþola lífláti ef hann greiddi þeim ekki 5.000 dollara og að þeir hafi ráðist á hann vegna þess að hann hafi ekki greitt umbeðna upphæð. Fram kemur að brotið hafi átt sér stað klukkan fimm um morguninn.
Talsvert misræmi var á milli frásagnar M í viðtali og framlagðrar kæru M. Þá var einnig misræmi á milli frásagna kærenda í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun varðandi upphaf fjárkúgana og umbeðnar upphæðir. Í ljósi framangreinds misræmis óskaði kærunefnd eftir frekari skýringum frá kærendum varðandi málatilbúnað þeirra og framlögð gögn með tölvubréfi dags. 1.október 2025.
Í tölvubréfi kærunefndar 1. október 2025 vakti nefndin athygli á því að í viðtali hjá Útlendingastofnun hefði M greint frá því að hafa lagt fram kæru 2. október 2022 og að glæpahópur hafi ráðist á hann síðar í október 2022 og því til stuðnings hefði hann lagt fram afrit kæru sem dagsett væri 2. september 2022. Kæmi fram í kærunni að líkamsárásin hafi átt sér stað 2. september 2029. Óskaði nefndin skýringa á framangreindu misræmi. Þá var athygli kærenda vakin á því að atvikalýsing í kærunni stöðvaðist í miðri setningu sem gæfi til kynna að það vantaði blaðsíðu. Óskaði kærunefnd eftir því að kærendur legðu fram seinni blaðsíður kærunnar eða frumrit hennar en gætu þau það ekki að veita skýringar á skorti þar á. Jafnframt óskaði nefndin skýringa á því hvers vegna M hefði í framlagðri kæru vísað til þess að ótilgreindir einstaklingar CUPAZ undir forystu Carlos Capa hafi ráðist á sig og fjárkúgað í ljósi þess að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi hann vísað til þess að glæpahópurinn La Banda de Carlos Capahafi kúgað fé af honum. Vakti nefndin athygli kærenda á að samkvæmt heimildum væri CUPAZ friðarsveitir á vegum venesúelskra stjórnvalda. Þá vísaði kærunefnd til þess að M hefði greint frá því í viðtali að fjárkúganir hefðu hafist í janúar 2022 og kærendur verið krafin um um það bil 400 dollara á mánuði en K hefði greint frá því í viðtali að fjárkúganir hefðu hafist um mitt ár 2022 og kærendur verið krafin um 40 til 60 dollara ýmist vikulega eða aðra hverja viku. Óskað var eftir skýringum kærenda á framangreindu misræmi.
Hinn 9. október 2025 bárust svör kærenda. Greindu þau m.a. frá því að dagsetning árásar væri á framlagðri kæru ranglega skráð 2. september 2029 sökum stjórnsýslulegra mistaka. Vísuðu kærendur til þess að rétt væri að tilkynnt brot hafi átt sér stað 2. september 2022 og það hefði farið fram með þeim hætti sem M hafi lýst í framlagðri kæru. Í svörunum tóku kærendur einnig fram að eftir að M hefði neitað að halda áfram að greiða hafi glæpahópurinn ráðist á hann kvöld eitt þegar hann hafi verið að loka versluninni og krafið hann um greiðslu. Árásin hafi leitt til þess að hann hefði lagt fram kæru hjá lögregluyfirvöldum morguninn 2. september 2022. Viðbrögð fjárkúgunaraðilanna við kærunni hafi verið frekara ofbeldi auk þess hafi þeir krafið M um staka greiðslu að fjárhæð 5.000 dollara í reiðufé og þrýst á hann að draga kæruna til baka. Kærendur veittu ekki skýringar á því hvers vegna atvikalýsing stöðvaðist í miðri setningu eða hvers vegna einungis eins blaðsíða kærunnar væri lögð fram. Kærendur lögðu ekki fram frumrit kærunnar og útskýrðu ekki skort þar á. Þá kom fram í svörum kærenda að þótt CUPAZ komi fram út á við sem friðarsveitir stjórnvalda sé hið gagnstæða raunin og CUPAZ tengist spillingu og fjárkúgunum, hafi bein tengsl við glæpahópa og veiti þeim upplýsingar. M hafi vísað til CUPAZ í framlagðri kæru vegna þess að raunin sé sú að CUPAZ aðstoði við fjárkúganir og ofsóknir gegn verslunarfólki líkt og kærendum. Hvað varðaði upphaf fjárkúgananna svöruðu kærendur því að þær hefðu hafist skömmu eftir opnun verslunarinnar árið 2022 og til að byrja með hafi umræddir aðilar komið fram undir því yfirskyni að um væri að ræða valfrjálsar greiðslur en um mitt ár 2022 hafi það orðið að skyldugreiðslum í reiðufé og erlendum gjaldeyri. Til að byrja með hafi 40 til 60 dollara verið krafist ýmist vikulega eða aðra hverja viku sem hafi samtals verið að meðaltali um 400 dollarar á mánuði. Kærendur vísuðu til þess að í viðtali K hefði hún greint frá stökum greiðslum en M frá mánaðarlegri samtölu greiðslna.
Við yfirferð svaranna varð frekara misræmi ljóst auk þess sem fullnægjandi skýringa skorti enn á tilteknum atriðum, einkum varðandi atburðarásina í tengslum við atvik sem hafi leitt til kæru M til lögreglunnar í heimaríki og meinta gerendur.
Með tölvubréfi 24. október 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari svörum frá kærendum. Var athygli M vakin á því að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi hann lýst því að þegar hann hafi verið krafinn um 5.000 dollara hafi hann neitað að greiða og farið og kært glæpahópinn. Glæpahópurinn hafi heyrt af því og dag einn þegar hann hafi verið að opna verslunina hafi meðlimir hópsins komið og lamið hann. Í viðtalinu hafi M tekið fram að atvikið hefði gerst í október og að hann hefði lagt fram kæru 2. október 2022. Í lok viðtalsins hafi M tekið sérstaklega fram að stærsti atburðurinn hefði átt sér stað í október 2022. Í svörum sínum til kærunefndar 9. október hafi M hins vegar greint frá því að eftir að hann hefði neitað greiða hafi meðlimir hópsins komið í verslunina kvöld eitt þegar hann var að loka og lamið hann og hann hefði kært þá að morgni 2. september. Óskað var eftir skýringum framangreindu misræmi. Þá var með tölvubréfinu ítrekað að atvikalýsing í framlagðri kæru stöðvaðist í miðri setningu. Voru kærendur spurð að því hvort þau gætu lagt fram seinni blaðsíðu kærunnar. Þá óskaði nefndin upplýsinga um það hvenær M hafi dregið kæruna til baka og hvort hann gæti lagt fram gögn um afturköllun kærunnar. Vakti nefndin einnig athygli kærenda á því að heimildir bendi til þess að rígur hafi verið á milli CUPAZ og glæpahóps Carlos Capa í Miranda fylki og að Carlos Capa hafi verið eftirlýstur af yfirvöldum í mörg ár áður en hann hafi látist í lögregluaðgerðum í mars 2024. Óskaði nefndin því nánari skýringa kærenda á því hvers vegna M hafi í framlagðri kæru vísað til þess að CUPAZ hafi verið undir stjórn Carlos Capa og hvort kærendur hefðu frekari upplýsingar um samstarf glæpahóps hans og CUPAZárin 2022 og 2023.
Svör kærenda bárust hinn 29. október 2025. Áréttaði M að hann hefði í viðtali tekið skýrt fram að árásin hefði átt sér stað í byrjun september 2022 og að hann hefði síðar í september farið að verða fyrir hótunum og fjárkúgunum sem hafi haldið áfram fram í byrjun október. Þær hafi falist í kröfum um mánaðarlegar greiðslur upp á 400 dollara en 5.000 dollara hafi verið krafist í hefndarskyni fyrir það að M hefði lagt fram kæru hjá lögreglunni. Taldi M rugling hvað dagsetningar varðaði geta hafa orsakast af rangtúlkun eða kvíða hans í viðtalinu. Í svörum sínum vildi M taka skýrt fram að kæran sem hann hefði lagt fram hefði verið skráð á eina blaðsíðu og upprunalega skjalið hefði verið gefið út á því formi af lögbærum lögregluyfirvöldum. Þá kvaðst M vilja upplýsa um það að fyrir tveimur vikum hefði hann sent talsmanni sínum afrit af allri síðunni og með svörum sínum leggi hann aftur fram afrit af kærunni. Þá kvaðst M ekki hafa afturkallað kæruna heldur hafi kæran þvert á móti verið virk frá framlagningu hennar í heimaríki. M gæti því ekki lagt fram gögn um afturköllun kærunnar. M kvaðst ekki hafa undir höndum gögn sem sýnt gætu fram að á Carlos Capa hafi formlega verið hluti af CUPAZ eða farið með stjórn yfir CUPAZ. M kvaðst byggja þessar upplýsingar á viðveru og aðgerðum einstaklinga tengdum glæpahópi Carlos Capa. Vísaði M til þess að meðlimir glæpahóps Carlos Capa störfuðu innan öryggisstofnana og einnig innan CUPAZ. M kvaðst ekki hafa opinber skjöl undir höndum sem sanni samstarf Carlos og CUPAZ á árunum 2022 til 2023 en gæti út frá eigin reynslu staðfest að samskipti og umburðarlyndi hafi verið í aðgerðum á svæðinu á milli vopnaðra aðila og tiltekinna embættismanna eða aðila sem tengist svokölluðum „friðarfjórðungum“ (e. peace quadrants)..
Þar sem M hélt því fram að hann hefði greint skýrt frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hefði lent í árás í september og kært til lögreglu 2. september 2022 þrátt fyrir að annað kæmi fram á endurriti viðtalsins taldi kærunefnd ástæðu til að hlusta á hljóðupptöku viðtalsins. Við hlustun á hljóðupptöku viðtalsins við M greinir hann frá því að glæpahópur hafi ráðist á sig í október 2022. Nánar spurður að því hvort atvik hefðu hafist í janúar og hætt í október svarar hann því að glæpahópur hafi ráðist á sig í október. Aðspurður um hvenær hann hefði kært atvikið segir M það hafa verið 2. október. Var M einnig spurður að því hvort hann hafi kært árásina árið 2022 og svarar hann að það hafi verið í október 2022. Af upptöku viðtals M verður ekki ráðið að frásögn M hafi verið stöðvuð eða að hann hafi átt erfitt með að skilja túlkinn. Skýringar M að hann hafi í viðtali sínu skýrlega greint vísað til september 2022 og ruglingur geti hafa orsakast af rangtúlkun eða kvíða eru ótrúverðugar og draga úr trúverðugleika frásagnar hans.
Þá fær vísan til ótilgreindra einstaklinga CUPAZ undir stjórn Carlos Capa í kærunni ekki stoð í heimildum en eins og áður segir nefndist hópur Carlos Capa La Banda de Carlos Capa ásamt því að heimildir bendi til þess að rígur hafi verið á milli CUPAZ og glæpahóps Carlos Capa. Auk þess minntust hvorki M né K á CUPAZ í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er um að ræða kjarna í frásögn kærenda sem hægt er að gera ráð fyrir að þau ættu að vera staðföst um. Dregur framangreint misræmi og skortur á skýringum þar á því verulega úr trúverðugleika frásagna kærenda um fjárkúganir og hótanir af hálfu Carlos Capa eða glæpahóps hans.
Með svörum sínum til kærunefndar 29. október 2025 lögðu kærendur aftur fram afrit umræddrar kæru. Athygli vekur að á hinu nýja skjali eru vatnsmerkin tvö í haus skjalsins í lit og vatnsmerkið í efra hægra horni þess óskýrar en áður. Texti skjalsins er í verri gæðum en áður og hefur að einhverju leyti hliðrast til, þar á meðal titill skjalsins. Þá vantar áðurnefnda kassa fyrir miðju skjalsins. Áðurnefndur stimpill embættis, sem innihélt óskýrt skjaldamerki, í neðra hægra horni skjalsins er umtalsvert óskýrari en áður og nánast ógreinanlegur. Hefur stimpillinn auk þess minnkað og af honum verður ekkert ráðið um það embætti sem stimpillinn eigi að vísa til. Til viðbótar vantar vatnsmerki í neðra hægra horni skjalsins sem og vísun til venesúelskra stjórnvalda í neðra vinstra horn skjalsins. Atvikalýsing er óbreytt að því undanskyldu að atvikalýsing stöðvast ekki í miðri setningu heldur hefur orðinu „residencia“ verið bætt við í lokin ásamt punkti.
Líkt og að framan greinir hafa kærendur lagt fram tvær útgáfur af kæru M til lögreglu. Kærendur hafa ekki lagt fram frumrit skjalsins eða veitt skýringar á því hvers vegna þau geta ekki lagt fram frumrit þess. Þar sem aðeins er um afrit að ræða er ekki mögulegt að rannsaka skjölin m.a. með tilliti til fölsunar. Dregur það úr gildi beggja skjala. Með samanburði á skjölunum tveimur er ljóst, líkt og að framan hefur verið rakið, að ásýnd þess og innihald hefur tekið töluverðum breytingum frá því skjalið var lagt fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Staðhæfingar kærenda í svörum þeirra þess efnis að skjalið sé óbreytt frá því það var upphaflega lagt fram draga því verulega úr trúverðugleika skjalanna. Að mati kærunefndar verður ekki annað ráðið en að kærendur hafi lagt fram tvær augljóslega mismunandi útgáfur af framangreindu skjali þrátt fyrir að um sé að ræða skjal sem eigi að hafi verið gefið út af opinberu lögregluembætti. Breytingar á skjalinu rýra því að mati kærunefndar verulega trúverðugleika þess og benda til þess að annað hvort hafi verið átt við skjalið eftir framlagningu þess hjá Útlendingastofnun og í kjölfar fyrirspurna kærunefndar eða að bæði skjölin hafi verið útbúin fyrir mál kærenda hjá íslenskum stjórnvöldum í því skyni að hafa áhrif á meðferð mála þeirra hjá stjórnvöldum. Að mati kærunefndar bendir framangreint ekki til þess að um sé að ræða skjal sem gefið sé út af lögregluyfirvöldum í heimaríki kæranda. Verða skjölin því ekki lögð til grundvallar við úrlausn málsins.
Framburður M og skýringar hans varðandi meinta árás glæpahóps á hann haustið 2022 og kæru hans til lögreglu hefur verið talsvert óstöðugur og mótsagnakenndur líkt og að framan hefur verið rakið. Að mati kærunefndar verður ekki hjá því komist að horfa til þess misræmis sem er að finna í framburði kærenda, breytinga á frásögnum þeirra og ótraustra skýringa kærenda þar að lútandi. Þá hafa kærendur lagt fram tvær útgáfur af skjali sem ótrúverðugt er að sé gefið út af lögregluembætti í heimaríki þeirra. Þvert á móti bera ólíkar útgáfur skjalsins með sér að vera sérstaklega útbúnar með það að markmiði að styrkja umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd. Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að málatilbúnaður kærenda um fjárkúganir Carlos Capa eða glæpahóps hans í þeirra garð og árás hópsins á M haustið 2022 sé heildstætt metinn ótrúverðugur og verður hann ekki lagður til grundvallar við úrlausn málsins.
Þrátt fyrir að ekki verið lagt til grundvallar að kærendur hafi orðið fyrir fjárkúgunum af hálfu glæpahóps Carlos Capa telur kærunefnd, með tilliti til gagna málsins og upplýsinga um heimaríki kærenda, ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur hafi í tengslum við verslunarrekstur þurft að greiða verndargjald til ótilgreindra einstaklinga eða ótilgreinds glæpahóps í heimaríki. Af heimildum um heimaríki kæranda er ljóst að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hafi slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Af frásögn M í viðtali hjá Útlendingastofnun má ráða að hann hafi lokað versluninni í nóvember 2022 og kærendur hafi í sama mánuði flutt til systur K í Karakas. Þá verður af frásögn M ráðið að kærendur hafi snúið aftur til San Francisco de Yare í janúar 2023 og að hann hafi dvalið þar þangað til hann yfirgaf heimaríki í mars s.á. Greindi M frá því að hafa búið þar áður en hann yfirgaf landið í byrjun mars 2023. Í málinu liggur fyrir að K og A komu til Íslands í janúar 2024. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. janúar 2024 greindi K frá því að hafa búið í San Francisco de Yare áður en hún og A yfirgáfu heimaríki. Verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að kærendur hafi dvalið vandkvæðalaust í heimabæ sínum San Francisco de Yare áður en þau yfirgáfu landið. Af heimildum má ráða að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa þar í landi. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómkerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kærenda er byggt á því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Venesúela sökum stjórnmálaskoðana sinna.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa veriðaðili að stjórnmálaflokknum Popular Vecinal í heimaríki og hafa seinast mætt á mótmæli árið 2016. Sama ár hafi hann hætt þátttöku sinni í mótmælum og framangreindum flokki í kjölfar fæðingar A. K kvaðst hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Ekki er ástæða til að draga í efa að M hafi mætt á mótmæli og verið aðili að stjórnarandstöðuflokki. Frásagnir kærenda bera hins vegar ekki með sér að þau hafi sætt ofsóknum eða áreiti vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld sem hafi eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá horfir kærunefnd til þess að kærendur fengu útgefin venesúelskt vegabréf 15. desember 2022 og 21. júlí 2023 og má á þeim sjá útstimplun frá Simon Bolivar flugvellinum 5. mars 2023 og 12. janúar 2024. Gefur það til kynna að kærendur hafi getað farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvuð af yfirvöldum og ber það ekki með sé að þau séu undir sérstöku eftirliti stjórnvalda í heimaríki. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þau eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kærenda er gerð krafa um að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af óvissu sem ríki um hagi útlendinga sem voru endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023 og með hliðsjón af því að ekki hafi fengist lendingarleyfi fyrir áætlað leiguflug í lok febrúar 2024. Samkvæmt framangreindum heimildum um endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að úrlausn á varakröfu þeirra í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki tekið mið af landaupplýsingum frá heimasvæði kærenda eða stöðu þeirra sem þolendur glæpahóps. Kærendur hafi lýst gerræðislegum tilburðum stjórnvalda í sinn garð, rakið ómannúðlega og vanvirðandi meðferð sem stjórnarandstæðingar verði fyrir í Venesúela og lýst ótryggu öryggisástandi vegna einstaklingsbundinna þátta og vísa til þess að þau hafi fulla ástæðu til að óttast refsingar og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Þá vísa kærendur til röksemda í aðalkröfu þeirra varakröfu þeirra til stuðnings.
Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í San Francisco de Yare í Miranda fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Miranda fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og börn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og börn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Venesúela síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að þau og A væru við góða heilsu. M kvað sér hafa liðið illa, hann verið þunglyndur og kvíðinn. Þau hafi þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í heimaríki og getað greitt fyrir þá þjónustu en í einhverjum tilvikum þó með aðstoð fjölskyldu sinnar.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða börn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og A hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þó greiða þurfi fyrir hana. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá kvaðst M hafa rekið matvöruverslun í Venesúela. Þá verður af gögnum málsins ráðið að M hafi einnig starfað sem bílstjóri hjá fyrirtæki. Í umsókn sinni um alþjóðlega vernd kvaðst K hafa starfað sem ritari í byggingariðnaði en í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst hún ekki hafa verið í launuðu starfi síðustu ár en hún hafi verið það áður en hún gekk í hjónaband. Eftir það hafi M séð um framfærslu hennar auk þess sem hún hafi sinnt handsnyrtingu heima hjá sér. Fjölskyldan hafi hvorki þegið aðstoð frá stjórnvöldum né sóst eftir aðstoð mannúðar- eða hjálparsamtökum. Þá sé fjölskylda M búsett í Venesúela og kærendur hafi einhverja aðstoð fengið frá þeim við greiðslu heilbrigðiskostnaðar.
Af gögnum málsins verður talið að kærendur hafi getað framfleytt sér og A í heimaríki. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að kærendur séu heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu, að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 38. gr. og 39. gr. laganna. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-lið 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi er, ekki liggi fyrir ástæður sem geti leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Samkvæmt 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga gildir ákvæði 2. mgr. 74. gr. ekki um útlending sem m.a. á sjálfur þátt í því að niðurstaða fáist ekki innan tímamarka, sbr. d-lið 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
M lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 7. mars 2023 og K lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd fyrir sig og A 20. janúar 2024. Kærendur hafa því ekki fengið niðurstöðu í málum sínum innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur og A teljast því ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 74. gr. laga um útlendinga.
Af skilyrðum ákvæðisins er ljóst að svo til greina komi að veita dvalarleyfi á grundvelli þess verði umsækjandi að hafa sannað á sér deili, aðstoðað við rannsókn málsins og að öðru leyti sýnt af sér háttsemi sem samrýmanleg er ákvæðum laganna.
Í málum kærenda liggur fyrir að teknar voru skýrslur af þeim við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun. Þá hafa kærendur sannað auðkenni sitt og ekki liggja fyrir ástæður í málum þeirra sem leitt geta til brottvísunar þeirra. Teljast því skilyrði a til c-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Við mat á því hvort að skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sé uppfyllt verður að líta til orðalags ákvæðisins þar sem ekki er að finna nánari útskýringar í lögskýringargögnum. Gerir ákvæðið þá kröfu að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn málsins. Verður ekki annað ráðið en að hér sé gerð krafa um að útlendingur hafi veitt réttar upplýsingar frá upphafi málsmeðferðar og aðstoðað þannig við úrlausn málsins. Þá sé skilyrðið ekki uppfyllt ef frásögn umsækjanda um aðstæður sínar og ástæður umsóknar um vernd hér á landi teljist ótrúverðug að verulegu leyti.
Í þessu máli liggur fyrir að frá vinnslu mála kærenda hjá Útlendingastofnun tóku frásagnir þeirra nokkrum breytingum um málsatvik, aðallega hvað varðar atburði í kringum meinta árás á M, dagsetningu kæru hans til lögreglunnar í heimaríki og meinta gerendur. Þá lögðu kærendur fram afrit skjals til kærunefndar sem þau kváðu vera óbreytta útgáfu af áður framlagðri kæru sem útgefna af lögregluembætti í heimaríki. Við skoðun skjalsins var ljóst að það hafði tekið breytingum frá því skjali sem kærendur höfðu lagt fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Líkt og að framan greinir er það niðurstaða kærunefndar að ótrúverðugt sé að umrætt skjal sé útgefið af lögregluembætti í heimaríki kærenda og ber þvert á móti með sér að vera sérstaklega búið til með það að markmiði að styrkja umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd.
Með vísan til þessa er það niðurstaða nefndarinnar að kærendur hafi ekki aðstoðað við úrlausn málsins í skilningi d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þar sem skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eru ekki uppfyllt kemur ekki til skoðunar hvort ákvæði 3. mgr. sömu greinar eigi við í málinu.
Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd að ekkert standi í vegi fyrir því að börnin A og B fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Þá er það niðurstaða kærunefndar með teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna A og B að það sé þeim fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns. Að mati kærunefndar eru því engar forsendur til að víkja frá kröfum framangreinds d-liðar 2. mgr. 74.gr., sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé heimilt að veita kærendum og börnunum A og B dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og A til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðust ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. M teldi það ekki ósanngjarna ráðstöfun yrði sér ákvörðuð brottvísun og endurkomubann á Schengen-svæðið því um væri að ræða landslög en K taldi svo vera.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar. Endurkomubann kærenda M og K verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants M and K leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir