29 janúar 2026
/
Mál nr. 719/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 719/2025
Fimmtudaginn 29. janúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 4. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 21. október 2025, um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 1. apríl til 31. maí 2025.
I. Málavextir og málsmeðferð
Kærandi þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu apríl til maí 2025. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 21. október 2025, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en heimilt væri fyrir tímabilið 1. apríl til 31. maí 2025. Henni bæri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði 136.549 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 6. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst 20. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hún telji sig ekki hafa fengið ofgreitt frá Fæðingarorlofssjóði. Hluti af greiðslunum sem kærandi hafi fengið á þeim tíma hefði einfaldlega verið til að bæta upp mismuninn á milli fullra launa sinna og þess sem hún hafi fengið úr Fæðingarorlofssjóði. Ekki hafi verið um aukagreiðslur að ræða heldur leiðréttingar svo að heildartekjur hennar myndu samsvara venjulegum launum hennar. Kærandi vilji einnig útskýra tvær sérstakar greiðslur sem kunni að hafa valdið ruglingi. Í apríl hafi hún fengið aukagreiðslu sem kallist fæðingarstyrkur sem sé foreldrastyrkur sem stéttarfélagið hennar, SSF, krefjist. Í maí hafi hún fengið aðra greiðslu sem kallist orlofsuppbót sem sé árleg orlofsuppbót sem stéttarfélagið hennar krefjist einnig. Báðar greiðslurnar séu staðlaðar samkvæmt reglum stéttarfélagsins og ættu ekki að teljast sem ofgreidd laun. Kærandi óski eftir því að útreikningur ofgreiðslunnar verði yfirfarinn með hliðsjón af þessum greiðslum.
III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs
Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærð sé ákvörðun sjóðsins um að endurkrefja kæranda um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið apríl og maí 2025 þar sem hún hafi fengið of háar greiðslur frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu X.
Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 3. september 2025, hafi athygli hennar verið vakin á því að stofnunin væri með mál hennar til meðferðar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir tímabilið apríl og maí 2025. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.
Þar sem engin gögn, útskýringar, andmæli né ósk um lengri frest hafi borist frá kæranda hafi henni verið send greiðsluáskorun, dags. 9. október, þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu á hluta af útborgaðri fjárhæð ásamt 15% álagi.
Í framhaldinu hafi skýringar borist frá kæranda ásamt launaseðlum, auk skýringa vinnuveitanda, dags. 20. október 2025. Í kjölfarið hafi kæranda verið send ný greiðsluáskorun með lægri endurkröfu fjárhæð, dags. 21. október, sem sé sú ákvörðun sem nú sé kærð. Litið hafi verið svo á samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins og innsendum skýringum og gögnum að kærandi hefði fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof og 2. mgr. 41. gr. laganna.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 144/2020 sé fæðingar- og foreldraorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu barns, frumættleiðingu barns sem sé yngra en átta ára og töku barns sem sé yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra til fæðingarorlofs og í 13. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.
Í 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020 sé kveðið á um skerðingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þar komi meðal annars fram í 1. og 2. málsl. að réttur foreldris sem sé starfsmaður og/eða sjálfstætt starfandi, sbr. 3. til 5. tölul. 4. gr., til greiðslna í fæðingarorlofi sé bundinn því að foreldri uppfylli skilyrði um rétt til fæðingarorlofs samkvæmt III. og IV. kafla og leggi niður launuð störf á því tímabili sem það nýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem myndi stofn til tryggingagjalds samkvæmt lögum um tryggingagjald og séu hærri en sem nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs foreldris í þeim almanaksmánuði eða hluta úr almanaksmánuði sem greitt sé fyrir, sbr. 4. mgr. 24. gr. og 13. gr., skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Þá komi fram í 7. og 8. málsl. sömu greinar að heimilt sé að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launahækkana sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris frá því að viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. ljúki og fram að fyrsta degi fæðingarorlofs foreldris. Taka skuli tillit til breytinga á framangreindu tímabili á sama hátt og gert sé við útreikninga á meðaltali heildarlauna foreldris samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. laganna.
Með umsókn, dags. 17. janúar 2025, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sjö mánuði vegna barns sem hafi fæðst X. Tilkynning um tilhögun fæðingarorlofs hafi borist frá kæranda og hún hafi verið afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 26. febrúar 2025.
Á viðmiðunartímabili kæranda samkvæmt 1. mgr. 23 gr. laga nr. 144/2020 hafi viðmiðunarlaun hennar verið 783.380 kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili hafi lokið og fram að upphafi töku fæðingarorlofs hafi þau hækkað í 943.033 kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu samkvæmt 7. og 8. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna. Þá heimili 8. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna ekki að eingöngu skuli miðað við launakjör foreldris á því tímamarki er foreldri hafi töku fæðingarorlofs heldur beri að miða við meðaltal heildarlauna á því viðmiðunartímabili samkvæmt 7. málsl. sem liggi til grundvallar hverju sinni. Ekki sé heimilt að taka tillit til launabreytinga eftir upphaf fæðingarorlofs foreldris við mat á ofgreiðslu samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laganna.
Tímabilið 1. til 30. apríl 2025 hafi kærandi fengið greiddar 626.704 kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem hafi numið mismun á 943.033 kr. og fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóðs, eða 316.329 kr. án þess að það kæmi til skerðingar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir apríl 2025 hafi kærandi þegið [469.751] kr. í laun. Í skýringum kæranda og vinnuveitanda hennar hafi komið fram að um sé að ræða greiðslu mismunar á launum og greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði vegna apríl 2025 og fæðingarstyrk frá vinnuveitanda. Í greiðsluáskorun, dags. [21.] október 2025, hafi láðst að taka tillit til og undanskilja fæðingarstyrk frá vinnuveitanda og því lækki endurkrafa vegna apríl, sbr. greiðsluáskorun til kæranda, dags. 20. nóvember 2025. Að teknu tilliti til fæðingarstyrks frá vinnuveitanda sé greiðsla vegna apríl 373.106 kr. Hún hafi því fengið 56.777 kr. hærri greiðslu frá vinnuveitanda sínum á því tímabili en hún hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir apríl sé því 31.783 kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Tímabilið 1. til 31. maí 2025 hafi kærandi fengið greiddar 626.704 kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem hafi numið mismun á 943.033 kr. og fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, eða 316.329 kr. án þess að það kæmi til skerðingar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins fyrir maí 2025 hafi kærandi þegið 433.106 kr. í laun. Í skýringum kæranda og vinnuveitanda hennar hafi komið fram að um sé að ræða greiðslu mismunar á launum og greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði, að teknu tilliti til orlofsuppbótar. Greiðsla vegna maí sé 373.106 kr. Hún hafi því fengið 56.777 kr. hærri greiðslu frá vinnuveitanda sínum en hún hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir maí 2025 sé því 31.783 kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.
Í 41. gr. laga nr. 144/2020 sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða hærri fæðingarstyrk en því hafi borið samkvæmt ákvæðum laga þessara miðað við álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Fella skuli niður álagið samkvæmt þessari málsgrein sýni foreldri fram á með skriflegum gögnum að því verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt skýringum kæranda og vinnuveitanda hennar sé um að ræða greiðslur vinnuveitanda samhliða greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sem byggi á kjarasamningi aðila. Eins og mál þetta sé vaxið sé það mat Fæðingarorlofssjóðs að rangt hafi verið að fella ekki niður 15% álag á kæranda þegar gögn hafi borist. Fæðingarorlofssjóður muni því ekki gera kröfu til 15% álags í málinu.
Í kæru telji kærandi að greiðslur frá vinnuveitanda samhliða greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði eigi ekki að hafa áhrif á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði þar sem þær greiðslur eigi sér stoð í kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Kærandi hafi fengið þrenns konar greiðslur frá vinnuveitanda, greiðslu mismunar á óskertum launum og greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslu fæðingarstyrks frá vinnuveitanda og greiðslu orlofsuppbótar. Þegar gögn hafi borist frá kæranda hafi verið tekið tillit til orlofsuppbótar og sú greiðsla undanskilin útreikningi. Því miður hafi láðst í greiðsluáskorun, dags. [21.] október 2025, að taka tillit til og undanskilja fæðingarstyrk frá vinnuveitanda sem greitt sé samkvæmt ákvæði 6.2.4 í kjarasamningi en það hafi verið gert nú, sbr. greiðsluáskorun, dags. 20. nóvember 2025. Eftir standi greiðslur frá vinnuveitanda sem byggi á ákvæði 6.2.1 í kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins.
Þó að vinnuveitanda sé vissulega heimilt að bæta upp tekjumissi við töku fæðingarorlofs sé einnig tekið fram að fái foreldri bættan tekjumissinn, sem Fæðingarorlofssjóði sé ætlað að bæta, frá vinnuveitanda þyki eðlilegt að þær greiðslur komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þar sem greiðslur frá vinnuveitanda hafi verið hærri en sem nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs foreldris í þeim almanaksmánuði eða hluta úr almanaksmánuði sem greitt sé fyrir, sbr. 4. mgr. 24. gr. og 13. gr., skuli þær koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt skýrum fyrirmælum í 25. gr. laganna og athugasemdum við þá grein. Þannig heimili ákvæðin ekki að miðað sé einvörðungu við launakjör foreldris eins og þau séu við upphaf fæðingarorlofs né að tekið sé tillit til launabreytinga eftir fyrsta dag fæðingarorlofs.
Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda 63.566 kr. útborgað. Ekki sé gerð krafa um 15% álag. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði 63.566 kr., sbr. leiðrétt greiðsluáskorun til hennar ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 20. nóvember 2025.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 1. apríl til 31. maí 2025.
Í V. kafla laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof er kveðið á um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Þar segir í 1. mgr. 25. gr. að réttur foreldris sem sé starfsmaður og/eða sjálfstætt starfandi, sbr. 3. til 5. tölul. 4. gr., til greiðslna í fæðingarorlofi sé bundinn því að foreldri uppfylli skilyrði um rétt til fæðingarorlofs samkvæmt III. og IV. kafla og leggi niður launuð störf á því tímabili sem það nýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem mynda stofn til tryggingagjalds samkvæmt lögum um tryggingagjald og eru hærri en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 24. gr. og meðaltals heildarlauna á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. í réttu hlutfalli við tilhögun fæðingarorlofs foreldris í þeim almanaksmánuði eða hluta úr almanaksmánuði sem greitt er fyrir, sbr. 4. mgr. 24. gr. og 13. gr., skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Um þetta segir í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga nr. 144/2020 að gert sé ráð fyrir því að foreldri geti fengið þann tekjumissi sem Fæðingarorlofssjóði sé ekki ætlað að bæta greiddan frá vinnuveitanda samhliða fæðingarorlofi. Samkvæmt 4. málsl. 1. mgr. 25. gr. skulu eingöngu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi í hverjum almanaksmánuði koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Um þetta segir í athugasemdum við ákvæðið að átt sé við tímabil sem hefjist frá og með fyrsta degi fæðingarorlofs foreldris innan tiltekins almanaksmánaðar og ljúki frá og með þeim degi sem foreldrið nýti ekki lengur rétt sinn til fæðingarorlofs innan tiltekins almanaksmánaðar. Hið sama gildi hvort sem foreldri nýti rétt sinn til fæðingarorlofs að fullu eða samhliða minnkuðu starfshlutfalli á fyrrnefndu tímabili.
Í 7. og 8. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna kemur fram að þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launahækkana sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris frá því að viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. ljúki og fram að fyrsta degi fæðingarorlofs foreldris. Taka skuli tillit til breytinga á framangreindu tímabili á sama hátt og gert sé við útreikninga á meðaltali heildarlauna foreldris samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. Foreldri skuli sýna fram á með skriflegum gögnum á hvaða grundvelli umræddar launabreytingar samkvæmt 7. málsl. séu byggðar og Vinnumálastofnun sé heimilt að óska eftir staðfestingu frá vinnuveitanda á þeim gögnum sem foreldri leggi fram í þessu sambandi, sbr. 9. málsl. ákvæðisins.
Um framangreint er ítarlega fjallað í athugasemdum með ákvæði 25. gr. í frumvarpi til laga nr. 144/2020 en þar segir meðal annars svo:
„Ljóst er að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eiga eingöngu að bæta þann tekjumissi sem foreldrar verða fyrir er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri bættan tekjumissinn, sem Fæðingarorlofssjóði er ætlað að bæta, frá vinnuveitanda þykir eðlilegt að þær greiðslur komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Er því eins og áður segir miðað við að greiðslur sem eru hærri en sem nemur mismun á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris á mánuði á viðmiðunartímabili komi til frádráttar fæðingarorlofsgreiðslum. Er þar með tekið tillit til þess að vinnuveitandi geti bætt starfsmanni sínum upp þann tekjumissi sem Fæðingarorlofssjóður bætir ekki. Er því við það miðað í frumvarpinu að foreldrar geti hagað störfum sínum líkt og þeir kjósa utan þess tíma er þeir eru skráðir í fæðingarorlof án þess að það hafi áhrif á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á því tímabili sem þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Þannig á það ekki að koma að sök, í tengslum við útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabil þar sem foreldri nýtir rétt sinn til fæðingarorlofs, þótt foreldri hafi unnið fleiri yfirvinnutíma en á viðmiðunartímabili eða tekið að sér aukavaktir rétt fyrir töku fæðingarorlofs enda oftast eðlilegar ástæður sem liggja þar að baki, svo sem vinna við stór verkefni eða breytt vaktafyrirkomulag. Í því sambandi skiptir það jafnframt ekki máli þótt vinnan hafi farið fram innan sama almanaksmánaðar og fæðingarorlof hófst svo lengi sem vinnan fór fram áður en orlofið hófst.“
Þá segir í 10. málsl. 1. mgr. 25. gr. að ef foreldri hafi fengið óvenjuháar greiðslur frá vinnuveitanda fyrir eða eftir fæðingarorlof eða meðan á fæðingarorlofi standi miðað við tekjur á viðmiðunartímabili samkvæmt 1. til 3. mgr. 23. gr. þannig að ætla megi að þær hafi að hluta eða öllu leyti verið ætlaðar fyrir sama tímabil og það tímabil sem foreldri nýti rétt sinn til fæðingarorlofs skuli Vinnumálastofnun óska eftir að viðkomandi foreldri sýni fram á með skriflegum gögnum fyrir hvaða tímabil umræddar greiðslur hafi verið ætlaðar. Hið sama gildi um óvenjuháar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris á tímabili þar sem foreldri hafi minnkað starfshlutfall sitt samhliða nýtingu réttar til fæðingarorlofs, sbr. 11. málsl. ákvæðisins. Að endingu segir í 12. málsl. 1. mgr. 25. gr. að Vinnumálastofnun sé heimilt að óska eftir staðfestingu frá vinnuveitanda á þeim gögnum sem foreldri leggi fram í þessu sambandi.
Í greiðsluáætlun frá 26. febrúar 2025 kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili, frá ágúst 2023 til og með júlí 2024, hafi verið 783.380 kr. og áætluð greiðslufjárhæð á mánuði miðað við 80% af meðaltali heildarlauna væri því 626.704 kr. miðað við 100% fæðingarorlof. Frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að upphafi töku fæðingarorlofs höfðu þau hækkað í 943.033 kr. miðað við 100% fæðingarorlof. Tekið var mið af þeirri fjárhæð við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu samkvæmt 7. og 8. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 144/2020, kæranda til hagsbóta.
Kærandi fékk greiddar 626.704 kr. úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2025 og var á því tímabili einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismun á 943.033 kr. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði, eða 316.329 kr., án þess að kæmi til skerðingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Það sama á við um tímabilið 1. til 31. maí 2025. Í apríl 2025 fékk kærandi 373.106 kr. frá vinnuveitanda sínum fyrir þann mánuð, eftir að fæðingarstyrkur hafði verið dreginn frá, eða 56.777 kr. umfram það sem heimilt var samkvæmt framangreindu. Í maí 2025 fékk kærandi 373.106 kr. frá vinnuveitanda sínum fyrir þann mánuð, eftir að orlofsuppbót hafði verið dregin frá, eða 56.777 kr. umfram það sem heimilt var samkvæmt framangreindu. Ofgreiðsla fyrir tímabilið 1. apríl til 31. maí 2025 nam því samtals 63.566 kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda, sbr. leiðrétt greiðsluáætlun til kæranda frá 20. nóvember 2025.
Í 41. gr. laga nr. 144/2020 er kveðið á um leiðréttingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar segir í 2. mgr. að hafi foreldri fengið hærri greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði eða hærri fæðingarstyrk en því hafi borið samkvæmt ákvæðum laganna miðað við álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd að viðbættu 15% álagi óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Fella skuli niður álagið sýni foreldri fram á með skriflegum gögnum að því verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Af fyrirliggjandi gögnum er ljóst að kærandi fékk ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið 1. apríl til 31. maí 2025 þar sem hún fékk of háar greiðslur frá vinnuveitanda samhliða greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. það sem að framan er rakið. Ákvæði 41. gr. laga nr. 144/2020 er fortakslaust að því er varðar skyldu til að endurgreiða ofgreiddar bætur óháð ásetningi eða gáleysi foreldris. Fyrir liggur að Fæðingarorlofssjóður hefur fellt niður álagið sem var upphaflega lagt á endurkröfuna og er því ekki ágreiningur um það atriði.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 1. apríl til 31. maí 2025 því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja A, um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna að fjárhæð 63.566 kr. fyrir tímabilið 1. apríl til 31. maí 2025, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir