29 janúar 2026
/
Mál nr. 725/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 725/2025
Fimmtudaginn 29. janúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 6. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 31. október 2025, um mánaðarlegar greiðslur til hennar vegna fæðingar barns.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 30. júní 2025, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna væntanlegrar fæðingar barns þann X 2025. Kæranda var kynnt greiðsluáætlun með ákvörðun, dags. 31. október 2025, þar sem fram kom að mánaðarleg greiðsla til hennar yrði 465.273 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 20. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 28. nóvember 2025, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. desember 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að beiðni hennar um að viðmiðunartímabil tekna verði stytt í sex mánuði eða endurmetið vegna breyttra aðstæðna hafi verið synjað. Kærandi hafi verið á atvinnuleysisbótum hluta viðmiðunartímabilsins en hefði byrjað í fullu starfi í desember 2024. Meðaltal 12 mánaða gefi því ekki raunhæfa mynd af tekjum hennar í upphafi fæðingarorlofs. Kærandi telji að ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs sé ósanngjörn og í ósamræmi við markmið laganna sem sé að tryggja réttláta og raunhæfa fjárhagslega stöðu foreldra í fæðingarorlofi. Kærandi óski því eftir að úrskurðarnefndin endurskoði ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs og meti hvort rétt sé að taka tillit til breytinga á tekjum hennar á síðari hluta tímabilsins.
III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs
Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 30. júní 2025, sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barns með áætlaðan fæðingardag X 2025. Fyrir hafi legið upplýsingar um greiðslur frá Atvinnuleysistryggingasjóði og upplýsingar úr skrám skattyfirvalda og Þjóðskrá Íslands.
Kæranda hafi verið send greiðsluáætlun, dags. 31. október 2025, þar sem fram hafi komið að umsókn hennar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt og að mánaðarleg greiðsla til hennar miðað við 100% fæðingarorlof yrði 465.273 kr.
Í 1. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof sé kveðið á um gildissvið laganna. Þar segi að lögin taki til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs. Þau eigi við um foreldra sem séu starfsmenn og/eða sjálfstætt starfandi. Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laganna öðlist foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns.
Óumdeilt sé að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um sex mánaða samfellt starf á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns og eigi tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 4. tölul. 4. gr. laganna. Ágreiningur málsins snúi að útreikningi á greiðslum.
Í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 sé meðal annars kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex almanaksmánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann almanaksmánuð sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá almanaksmánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr., án tillits til þess hvort laun samkvæmt því ákvæði eða reiknað endurgjald samkvæmt 2. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri almanaksmánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Í athugasemdum við 23. gr. frumvarpsins er hafi orðið að lögum nr. 144/2020 komi fram að átt sé við almanaksmánuði og að miðað sé við samfellt tímabil sem standi í tólf almanaksmánuði á undan fæðingarmánuði barns.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að til launa á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 1. til 3. mgr. teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt skuli telja til launa þau tilvik sem teljist til þátttöku á innlendum vinnumarkaði samkvæmt a. til f. lið 2. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020. Auk þess skuli telja til launa greiðslur samkvæmt a. og b. lið 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa. Þegar um sé að ræða 100% greiðslur á viðmiðunartímabili, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., sem foreldri hafi átt rétt á skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við. Hafi foreldri hins vegar kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma samhliða hlutastarfi eða leyfi, launuðu eða ólaunuðu, skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræði. Sama eigi við hafi foreldri kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falla undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma, enda þótt foreldri hafi ekki verið í ráðningarsambandi á sama tíma. Aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en sem nemi viðmiðunartekjum sem miða skuli við samkvæmt framangreindu, enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli greiðslna, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., og meðaltals heildarlauna bættan samhliða greiðslunum. Þegar greiðslur samkvæmt a. og b. lið 5. gr. laga nr. 88/2003 um Ábyrgðasjóð launa hafi komið til á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við.
Í 2. mgr. 22. gr. komi fram að til þátttöku á innlendum vinnumarkaði teljist samkvæmt b. lið, sá tími sem foreldri fái greiddar atvinnuleysisbætur, sé á biðtíma eftir slíkum bótum, hafi átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu eða hafi hætt atvinnuleit tímabundið vegna orlofs erlendis og ekki hafi liðið meira en tíu virkir dagar frá því að atvinnuleit hafi verið hætt og þar til atvinnuleit byrji að nýju samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið að minnsta kosti 25%. Greiðslur frá Atvinnuleysistryggingasjóði vegna atvinnuleysisbóta, sbr. 3. gr. laga nr. 144/2020 teljist því til launa samkvæmt 5. mgr. 23. gr. laganna.
Í 6. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila samkvæmt 1. til 3. mgr.
Fæðingardagur barns kæranda hafi verið áætlaður þann X 2025 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið X 2024 til X 2025.
Samkvæmt upplýsingum frá skattyfirvöldum hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem komi fram í staðgreiðsluskrá skattyfirvalda um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og Fæðingarorlofssjóður telji að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda.
Á tímabilinu X 2024 til X 2025 hafi kærandi fengið greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna atvinnuleysisbóta. Á tímabilinu X 2024 til X 2025 hafi kærandi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum, Garðabæ, sem séu hafðar með við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 komi skýrt fram að þegar um sé að ræða 100% greiðslur á viðmiðunartímabili, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. lið 2. mgr. 22. gr., sem foreldri hafi átt rétt á skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við. Við vinnslu máls á kærustigi hafi komið í ljós að greiðslur til kæranda frá Atvinnuleysistryggingasjóði hafi ekki verið rétt uppreiknaðar vegna X og X 2024. Það hafi nú verið leiðrétt, sbr. greiðsluáætlun sem hafi verið send kæranda þann 28. nóvember 2025, en samkvæmt greiðsluáætlun verði mánaðarleg greiðsla til hennar miðað við 100% fæðingarorlof 507.978 kr.
Í kæru óski kærandi eftir undanþágu frá ákvæðum um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði þar sem kærandi telji það ósanngjarnt og í ósamræmi við markmið laganna að greiðslur frá Atvinnuleysistryggingasjóði séu innan viðmiðunartímabils. Líkt og rakið hafi verið að framan skuli telja greiðslur í fæðingarorlofi til launa samkvæmt 5. mgr. 23. gr., sbr. b. lið 2. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020 og skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræði. Það hafi verið gert í tilviki kæranda. Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof sé ekki að finna neina heimild til þess að víkja frá 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Með vísan til framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að greiðsluáætlun sem hafi verið send kæranda þann 28. nóvember 2025 beri með sér réttan útreikning á greiðslum til hennar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 31. október 2025, um að mánaðarlegar greiðslur til kæranda vegna væntanlegrar fæðingar barns hennar yrðu 465.273 kr. Sú fjárhæð var hækkuð í 507.978 kr. með greiðsluáætlun, dags. 28. nóvember 2025.
Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns. Óumdeilt er að kærandi uppfyllir það skilyrði laganna og á tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 4. tölul. 4. gr.
Í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 segir að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna. Miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Auk þess segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr., án tillits til þess hvort laun samkvæmt því ákvæði eða reiknað endurgjald samkvæmt 2. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Áætlaður fæðingardagur barns kæranda var X 2025 og bar Fæðingarorlofssjóði því samkvæmt framangreindu að reikna mánaðarlegar greiðslur til kæranda sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem hún var á innlendum vinnumarkaði tímabilið X 2024 til og með X 2025. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi verið á atvinnuleysisbótum hluta tímabilsins sem gefi ekki raunhæfa mynd af tekjum hennar.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 segir að til launa á innlendum vinnumarkaði teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt skuli telja til launa þau tilvik sem teljast til þátttöku á innlendum vinnumarkaði samkvæmt a. til f. liðum 2. mgr. 22. gr. og greiðslur samkvæmt a. og b. liðum 5. gr. laga nr. 88/2003 um Ábyrgðasjóð launa. Samkvæmt b. lið 2. mgr. 22. gr. telst til þátttöku á innlendum vinnumarkaði sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum, hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu eða hefur hætt atvinnuleit tímabundið vegna orlofs erlendis og ekki hafa liðið meira en tíu virkir dagar frá því að atvinnuleit var hætt og þar til atvinnuleit hefur hafist að nýju samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið að minnsta kosti 25%. Greiðslur frá Atvinnuleysistryggingasjóði vegna atvinnuleysisbóta, sbr. 3. gr. laga nr. 144/2020 teljast því til launa samkvæmt 5. mgr. 23. gr. laganna.
Í 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 kemur einnig fram að þegar um sé að ræða 100% greiðslur á viðmiðunartímabili, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., sem foreldri hafi átt rétt á skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við. Hafi foreldri hins vegar kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma samhliða hlutastarfi eða leyfi, launuðu eða ólaunuðu, skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræði. Sama eigi við hafi foreldri kosið að dreifa greiðslum, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., hlutfallslega á lengri tíma, enda þótt foreldri hafi ekki verið í ráðningarsambandi á sama tíma. Aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en sem nemi viðmiðunartekjum sem miða skuli við samkvæmt framangreindu, enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli greiðslna, í tengslum við tilvik sem falla undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., og meðaltals heildarlauna bættan samhliða greiðslunum.
Í samræmi við ákvæði 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 var í greiðsluáætlun, dags. 25. nóvember 2025, tekið mið af þeim viðmiðunartekjum sem greiðslur til kæranda frá Atvinnuleysistryggingasjóði voru miðaðar við. Líkt og Fæðingarorlofssjóður tekur fram í greinargerð sinni er enga heimild að finna í lögum nr. 144/2020 til að víkja frá framangreindu ákvæði 5. mgr. 23. gr. við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Að því virtu og með vísan til framangreinds er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 28. nóvember 2025, um mánaðarlegar greiðslur til kæranda, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 28. nóvember 2025, um mánaðarlegar greiðslur til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir