09 febrúar 2026
/
Úrskurður nr. 104/2024
Hinn 9. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 104/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU23060130 og KNU23060129
Kæra [...]og barna þeirra
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14. júní 2023 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir M), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. maí 2023 um að synja kærendum og börnum þeirra, [...] fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir A), [...] fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir B) og [...] fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir C), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærendur krefjast þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvarðanir um brottvísun og endurkomubann verði felldar úr gildi. Þá er vísað til 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, en samkvæmt ákvæðinu eigi maki útlendings sem nýtur alþjóðlegrar verndar og börn hans yngri en 18 ára einnig rétt á alþjóðlegri vernd nema sérstakar ástæður mæli því í mót.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi 13. október 2022 fyrir sig og börn þeirra. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 22. nóvember 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 31. maí 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum og börnum þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærendum og börnum þeirra var jafnframt brottvísað frá landinu og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru ákvarðanirnar kærðar til kærunefndar útlendingamála 14. júní 2023. Kærunefnd barst greinargerð kærenda 28. júní 2023. Viðbótargögn bárust kærunefnd 30. nóvember 2023. Með tölvubréfi 18. janúar 2024 óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum frá kæranda. Svör bárust 26. janúar 2024 og 1. febrúar 2024.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki sínu vegna fjárkúgana og ofríkis glæpagengisins Tren de Aragua og vegna almenns ástands.
Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Börn kærenda A og B komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. desember 2022. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli C, kom fram að hann væri svo ungur að árum að ekki væri tilefni til að taka viðtal við hann. Fram kom að umsókn C væri grundvölluð á framburði foreldra hans og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra barnanna, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að börnum kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis.
Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu.
Útlendingastofnun tilkynnti kærendum og börnum þeirra jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kærenda
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt viðbótarvernd skv. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggja kærendur á því að þau uppfylli skilyrði viðbótarverndar bæði vegna almenns ástands í Venesúela og vegna persónulegra aðstæðna þeirra.
Í greinagerð kærenda kemur fram að fjölskyldan hafi búið á svæði í Venesúela þar sem glæpagengi fari með stjórn. M hafi rekið verslun með varahluti fyrir mótorhjól og hafi meðlimir glæpagengisins Tren de Aragua komið reglulega til hans og reynt að kúga fjármuni frá honum með hótunum. M hafi borgað þeim eftir tökum en stundum hafi þeir rænt af honum. Eitt sinn hafi þeir ráðist á hann og skorið og beri hann enn áverka eftir það. Þá hafi þeir haft í hótunum um að gera M, eiginkonu hans og börnum þeirra mein. M kvaðst einnig hafa orðið fyrir kúgunum af hálfu fulltrúa frá hinu opinbera en hann kvað þá vinna náið með glæpagengjunum. Eftir að M hafi ekki lengur getað greitt genginu hafi kærendur ákveðið að flýja frá Venesúela. Þá greina kærendur frá slæmu almennu öryggisástandi sem og skorti á mat, vatni og rafmagni. Tekjur heimilisins hafi ekki dugað fyrir nauðsynjum og fjölskyldan óttist skort á aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Venesúela. Vísa kærendur til framburða barnanna en samkvæmt honum sé ljóst að þau upplifi sig í mikilli hættu í Venesúela. Börnin telji ekki óhætt að vera utandyra og óttist ofbeldi og mannrán. Einnig hafi þau upplifað þann skort sem fjölskyldan hafi búið við. Þá vísa kærendur til þess að börnin hafi ekki fullnægjandi aðgang að menntakerfinu. Auk þess beri frásögn kærenda með sér að þau hafi óttast yfirvöld í Venesúela og verið mótfallin stefnu þeirra.
Hvað almennt ástand varði vísa kærendur til þess að hinar kærðu ákvarðanir gangi í berhögg við skýrt fordæmi kærunefndar útlendingamála hvað varði mat á viðbótarvernd vegna aðstæðna í Venesúela sbr. úrskurð kærunefndar útlendingamála nr. 231/2022 frá 18. júlí 2022. Eins og fram komi í úrskurðinum hafi kærunefnd talið að þrátt fyrir að nýlegar upplýsingar gæfu til kynna að nokkrar breytingar hefðu orðið í Venesúela hafi nefndin ekki talið forsendur til að draga of víðtækar ályktanir af þeim. Kærendur telji hið sama eiga við nú.
Kærendur leggja áherslu á að afstaða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafi ekki breyst eftir uppkvaðningu úrskurðarins. Líkt og tekið hafi verið fram í úrskurði kærunefndar séu leiðbeiningar Flóttamannastofnunar frá árinu 2019 um að senda venesúelska ríkisborgara ekki aftur til Venesúela gegn þeirra vilja enn í gildi. Í úrskurðinum segi enn fremur réttilega að íslensk stjórnvöld hafi að meginstefnu til fylgt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar varðandi endursendingar til annarra ríkja. Í úrskurðinum hafi komið fram að ekki yrði ráðið af þeirri ákvörðun sem málið varðaði af hverju Útlendingastofnun hafi vikið frá þeim leiðbeiningum. Í hinum kærðu ákvörðunum vísi Útlendingastofnun til þess að leiðbeiningar Flóttamannastofnunar séu ekki bindandi fyrir íslensk stjórnvöld. Kærendur vísa í því sambandi til framangreindrar niðurstöðu kærunefndar auk skyldu íslenskra stjórnvalda skv. 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga til að eiga samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, m.a. um framkvæmd og túlkun þess samnings og laga um útlendinga.
Hvað varðar möguleika á flutningi innan heimaríkis, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, vísa kærendur til fyrrnefnds úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 231/2022 um að það hafi verið yfirvöld í heimaríki kærenda sem hafi verið að mestu leyti ábyrg fyrir þeirri stöðu sem þar ríkti. Hafi það verið mat nefndarinnar að ekki væri raunhæft eða sanngjarnt að ætlast til þess af kæranda í því máli að hann settist að annars staðar í heimaríki sínu. Með hliðsjón af framangreindu telji kærendur ljóst að krafa um innri flutning sé hvorki raunhæf eða sanngjörn gagnvart kærendum og börnum þeirra.
Kærendur vísa til þess að í Venesúela sé enn mannréttinda- og mannúðarkrísa. Ekki verði annað séð en að nýlegar heimildir séu sama efnis og fyrri skýrslur um ástandið í landinu. Þá óttist kærendur ofsóknir glæpagengis sem yfirvöld geti ekki eða vilji ekki veita þeim vernd gagnvart. Vísað er til 2. mgr. 45. gr. útlendingalaga, en samkvæmt ákvæðinu eigi maki útlendings sem nýtur alþjóðlegrar verndar og börn hans yngri en 18 ára einnig rétt á alþjóðlegri vernd nema sérstakar ástæður mæli því í mót.
Kærendur vísa til 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þegar lagt sé mat á það hvort barn teljist vegna aðstæðna sinna uppfylla skilyrði 1. mgr. og 2. mgr. 37. gr. beri m.a. að horfa til öryggis þess, velferðar og félagsleg þroska. Kærendur vekja athygli á því að með frumvarpi að lögum nr. 14/2023 um breytingar á lögum um útlendinga, sem tóku gildi 6. apríl 2023, hafi verið lögð aukin áhersla á mat á hagsmunum barna sem sækja um alþjóðlega vernd og vísað til þess að undanfarin ár hafi verið lögð áhersla á markvissa innleiðingu ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, einkum 3. og 12. gr. samningsins um umsóknir barna um alþjóðlega vernd, sbr. athugasemdir við 9. gr. frumvarpsins. Af framburðum eldri barna kærenda sé ljóst að þau upplifi sig í mikilli hættu í Venesúela. Þau telji ekki óhætt að vera utandyra og óttist ofbeldi og mannrán. Einnig hafi þau upplifað þann skort sem fjölskyldan hafi búið við. Kærendur telja ljóst að börnin njóti ekki öryggis í heimabæ sínum. Velferð þeirra og félagslegum þroska yrði þar stefnt í hættu og framfærsla þeirra ekki tryggð. Líkt og rakið hefur verið að framan sé ekki hægt að leggja til grundvallar að kærendur og börn þeirra, njóti verndar yfirvalda í Venesúela. Það sé vilji barnanna að vera ekki send aftur til Venesúela í þessar aðstæður. Samkvæmt öllu framangreindu væri það börnunum fyrir bestu að verða ekki send í framangreindar aðstæður í Venesúela.
Til stuðnings varakröfu kærenda um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, byggja kærendur á því að í Venesúela eigi sér stað viðvarandi mannréttindabrot sem yfirvöld verndi ekki kærendur fyrir. Kærendur hafi búið við óöryggi í Venesúela og ítrekað orðið fyrir áreiti, kúgunum og hótunum af hálfu glæpagengis. Tekjur heimilisins hafi ekki dugað fyrir nauðsynjum og fjölskyldan hafi óttast skort á heilbrigðisþjónustu í landinu. Skortur hafi verið á mat, vatni og rafmagni. Aðgangur barnanna að menntakerfinu hafi verið skertur. Kærendur lögðu fram heilsufarsgögn þar sem fram komi að K hafi lærbrotnað og þarfnist aðgerðar á kjálka eftir að ekið hafi verið á hana í Chile. Áverkarnir hafi mikil áhrif á daglegt líf hennar, hreyfigeta hennar sé skert og hún eigi í erfiðleikum með að innbyrða mat vegna áverka á kjálka. K sé með lausa skrúfu í kjálkabeini sem valdi henni sársauka og sýkingum. Ljóst sé að K hafi mikla þörf fyrir sérhæfða læknisaðstoð og að teknu tilliti til stöðu heilbrigðiskerfisins í Venesúela megi telja víst að hún myndi ekki fá þar þá heilbrigðisaðstoð sem hún þarfnist. Af framangreindu megi telja víst að yrði kærendum gert að snúa aftur til Venesúela myndu þau búa við afar erfiðar félagslegar aðstæður. Kærendur telja ljóst að börn þeirra muni ekki njóta öryggis í heimabæ sínum auk þess sem velferð þeirra og félagslegum þroska væri stefnt í hættu. Þá megi vera ljóst af frásögnum kærenda og heimildum um bágt ástand efnahags- og félagsmála í Venesúela að framfærsla barnanna sé ekki trygg. Telja kærendur að í ljósi þeirrar mannúðarkrísu sem ríki í Venesúela muni mat á hagsmunum barnanna leiða til þeirrar niðurstöðu að það sé þeim fyrir bestu að vera veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærendur vísa til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 522/2017 og 523/2017 frá 22. september 2017. Í þeim málum hafi foreldrum barns sem talið var þarfnast verndar á grundvelli mannúðarsjónarmiða veitt samskonar vernd með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar.
Þrautavarakrafa kærenda er að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi hvað varðar brottvísanir kærenda og barna þeirra og endurkomubönn kærenda. Ákvæðum laga nr. 136/2022 verði ekki beitt afturvirkt um umsóknir kærenda þar sem um íþyngjandi ákvarðanir stjórnvalda sé að ræða. Til hliðsjónar vísa kærendur til álits umboðsmanns Alþingis nr. 1832/1996. Í öllu falli beri að taka tillit til réttmætra væntinga aðila máls, meðalhófs og jafnréttis. Þar sem um hafi verið að ræða breytingar á lögum og framkvæmd sem viðtekin hafði verið til langs tíma hafi kærendur haft réttmætar væntingar þegar þau lögðu fram umsóknir sínar 13. október 2022 um að umsóknir þeirra sættu hinni viðteknu meðferð. Þá telja kærendur að markmið með lögum nr. 136/2022 myndi nást án þess að ákvæðum þeirra yrði beitt afturvirkt um umsóknir um alþjóðlega vernd sem lagðar höfðu verið fram áður en lögin voru samþykkt. Þannig væri það í samræmi við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga að beita þeim aðeins í tilviki umsókna sem lagðar voru fram eftir að lögin voru samþykkt. Af frumvarpi til laga nr. 136/2022 verði ekki annað séð en að breytingarnar hafi einkum haft þann tilgang að aðlaga íslenska löggjöf að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB í kjölfar reglubundinnar úttektar á þátttöku Íslands í Schengen samstarfinu sem gerð hafi verið árið 2017. Verði samkvæmt því ekki séð að þær umsóknir sem voru til meðferðar hjá Útlendingastofnun þegar lögin voru samþykkt hafi nokkuð að gera með markmið lagabreytinganna né að legið hafi á að beita ákvæðum laganna um slíkar umsóknir.
Kærendur lögðu fram fylgiskjöl með greinargerð sinni til kærunefndar. Hinn 21. júlí og 30. nóvember 2023 lögðu kærendur fram frumrit sömu gagna. Gögnin sem kærendur lögðu fram með greinargerð og síðar í frumriti lutu að þjálfun M sem rannsakanda hjá lögreglunni hjá C.I.C.P.C. Academy, í Venesúela árið 2015. Fylgdu þær skýringar í tölvupósti til kærunefndar dags. 9. október 2023 að M hafi að þjálfun lokinni hafið starfsnám en hætt þegar hann komst að því að rannsóknardeildin væri auk rannsókna á glæpum látin taka þátt í pyndingum, illri meðferð og fjárkúgunum á sakborningum. Kæranda hafi borist hótanir vegna ákvörðunar sinnar og þeirrar vitneskju sem hann hafi fengið og kveði atburðina hafa áhrif á stöðu sína í dag. Kærunefnd óskaði eftir nánari skýringum frá kæranda á því hvaða þýðingu hann teldi gögnin hafa fyrir málið og bárust þær skýringar 1. febrúar 2024.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur og börn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.
Réttarstaða barna kærenda
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd með foreldrum sínum og haldast mál fjölskyldunnar því í hendur.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 17. janúar 2024);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 21. janúar 2024);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 17. janúar 2024);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela Protection Analysis Update (Global Protection Cluster, september 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2022 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 40,4 morð á hverja hundrað þúsund íbúa.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Í skýrslu EASO, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að sambönd einstaklinga af sama kyni séu ekki refsiverð í Venesúela. Stjórnarskrá Venesúela leggi bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Þrátt fyrir það verði LGBTI+ einstaklingar fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir hópar sem verði aðallega fyrir ofbeldi og mismunun séu trans- og intersex einstaklingar. LGBTI+ einstaklingar verði ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu kanadíska flóttamanna- og innflytjendaráðsins frá 2021 kemur fram að LGBTI+ einstaklingar geti lagt fram kvartanir vegna mismununar og brota gegn þeim en ekkert kerfi hafi verið til staðar til að taka við kvörtunum og leysa úr þeim með fullnægjandi hætti. Þá veigri einstaklingar sem verði fyrir ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar sér við því að leita sér aðstoðar vegna vantrausts í garð lögregluyfirvalda. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTI+ hópsins. Í fyrrnefndri skýrslu EASO kemur fram að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga í Venesúela. Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 8. ágúst 2023 kemur fram að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til að stuðla að því að LBGTI+ einstaklingar hljóti vernd og aðstoð í mannúðaraðgerðum. Leiðbeiningarnar feli í sér leiðsögn til mannúðarsamtaka, embættismanna, stofnana Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka í landinu um hvernig veita eigi LBGTI+ einstaklingum viðeigandi þjónustu og stuðning án mismununar. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að í mars 2023 hafi hæstiréttur Venesúela ógilt ákvæði í lögum landsins um herrétt (e. The Code of Military Justice) sem lagði refsingu við samkynja samböndum innan hersins. Þá hvatti Türk stjórnvöld í Venesúela til þess að vinna áfram að því að bæta réttindi LGBTI+ samfélagsins í landinu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.
Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins.
Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Talið sé að 100 til 150 þúsund íbúar Venesúela séu múslimar eða 0,3 til 0,5 prósent af íbúum landsins. Af þeim séu sjíta múslimar í minnihluta.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda og barna þeirra haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra og barna þeirra, A og B, hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda.
Kærendur krefjast þess ekki fyrir kærunefnd útlendingamála að þeim verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Engu að síður metur nefndin alla þætti kærumáls að nýju, sbr. m.a. 1. málsl. 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki sínu vegna fjárkúgana af hálfu glæpahóps. Þá byggir M á því fyrir kærunefnd að hann eigi á hættu ofsóknir þar sem hann hafi hætt í starfsnámi hjá rannsóknarlögreglunni í Venesúela. Kærendur telji stjórnvöld í Venesúela ekki hafa getu til að veita þeim vernd.
Í viðtali K hjá Útlendingastofnun kvaðst hún hafa farið frá Venesúela til Chile á árinu 2019. Í Venesúela hafi þau búið í Puerto Cabello í Carabobo fylki. Kvað hún ástæðu þess að þau fóru vera að eiginmaður hennar, M, hafi fengið líflátshótanir frá glæpahópnum Tren de Aragua sem sé virkur þar sem fjölskyldan hafi búið og beitt þau fjárkúgunum. Kærendur hafi skilið börnin A og B eftir hjá móður K í Venesúela. K kvað móður sína hafa fengið hótanir frá umræddum glæpahópi viku eftir að K hafi farið til Chile og K óttist um öryggi þeirra. Í viðtalinu greindi K frá því að kærendur hafi verið með verslun og að hún hafi unnið ýmis störf í gegnum árin til að reyna að framfleyta þeim. Hún hafi óttast um öryggi barna sinna auk þess sem heilbrigðisþjónusta og lyf hafi verið dýr eða ófáanleg og börnin haft skert aðgengi að menntun. Þá kvaðst K óttast að hún eða börn hennar yrðu fyrir ofbeldi og K hafi viljað betri framtíð fyrir börnin. K kvað fjölskylduna hafa falið sig á heimili móður K af ótta við glæpahópinn. K kvað móður sinni hafa borist hótanir frá umræddum glæpahópi viku eftir að hún fór til Chile, en þá dvöldu börn þeirra enn hjá móður K. Í Chile kvaðst K hafa ekið mótorhjóli og bíl hafi verið ekið á hana 15. maí 2021. Lagði K fram sjúkragögn frá Chile þessu til staðfestingar. K telji að meðlimir glæpahóps hafi keyrt á hana af ásetningi. Nokkrum dögum síðar hafi maður hringt í M og haft uppi hótanir tengdar fjárkúgun. K kvað manninn þó ekki hafa minnst á það í símtalinu að keyrt hafi verið á K. K kvað þau hafa síðast fengið hótun frá glæpahópnum í ágúst 2021. En þá hafi M skipt um símanúmer og hafi þau ekki svarað símtölum frá óþekktum símanúmerum. Þau hafi síðan farið frá Chile í október 2022. K kvað hótanir glæpahópsins í Venesúela hafa byrjað árið 2012 og staðið til 2019 þegar K og M hafi farið til Chile. Á þessu tímabili hafi þau borgað glæpahópnum í þrígang og ekki verið beitt ofbeldi.
Í viðtali M hjá Útlendingastofnun kvað hann ástæðu þess að hann hafi farið frá Venesúela þá að hann hafi sætt fjárkúgunum af hálfu glæpahóps og stjórnvalda. Fjárkúganirnar hafi orðið til þess að hann hafi ekki getað starfrækt verslun sína lengur. Hafi hann því breytt starfsemi sinni. Kvað kærandi að á sig hafi verið ráðist og hann rændur, hann telji að hann hafi verið skotmark þar sem glæpahópar hafi talið að hann ætti peninga. M óttist glæpahópa og almennt óöryggi í Venesúela. Hann óttist að þau fjölskyldan hafi ekki fullnægjandi aðgang að nauðsynjum, s.s. mat og lyfjum. M kvaðst hafa óttast glæpahópa og stjórnleysi í Venesúela. Meðal annars hafi hann óttast að glæpahópar myndu fara inn í skóla barna þeirra. Þá ætti sér stað innræting í skólum barna í Venesúela, en þau K væru mótfallin því. M kvað aðstæður barna sinna vera þær að þau væru í hættu á að láta lífið því þau fengju ekki næga næringu og hefðu ekki aðgang að lyfjum, s.s. hitalækkandi lyfjum. Þá hefðu þau ekki aðgengi að skóla og gætu hvergi unnið í framtíðinni í Venesúela. Svæðinu þar sem þau hafi búið hafi verið stjórnað af vopnuðum glæpahópum sem yrði að hlýða. Börn væru hvergi örugg. M kvaðst hafa orðið fyrir árásum næstum mánaðarlega. Meðal annars hafi mótorhjóli verið stolið af honum og hann skorinn á hendi. Kvaðst M ekki hafa getað séð fyrir sjálfum sér þar sem hann þurfti að greiða verndarfé. Þá kvaðst M vera með ör á enni eftir árás. Kvað hann þessar árásir ekki vera venjuleg tilfallandi rán, heldur væru þær skipulagðar af vopnuðum hópi sem hafi vitað hvar eiginkona M og börn þeirra hafi haldið til. M kvað hópinn sem fjárkúgaði hann og beitti hann ofbeldi kallast Tren de Aragua. M kvaðst ekki hafa getað fengið vernd stjórnvalda þar sem fulltrúar þeirra væru í samstarfi við glæpahópana og að þeir sem kvarti eigi á hættu að vera fangelsaðir fyrir upplognar sakir. M kvað glæpahópinn ekki hafa gert fjölskyldu hans mein þar sem hann hafi borgað þeim. Kvað M hópinn myndu drepa sig sneri hann til baka og hann hefði ekki að neinu að hverfa þar sem hann hafi eytt peningum sínum í ferðir. Í Chile hafi glæpahópurinn einnig hótað honum í gegnum síma. M kvað hópinn þó ekki hafa elt sig á milli landa heldur starfi hópurinn bæði í Chile og Venesúela og nýti sér bága stöðu Venesúelamanna búsettra í Chile. Þá kvað M eina ástæðu þess að þau hafi farið til Chile vera þá að auðveldara væri að endurnýja vegabréf utan Venesúela. M kvað heilsu barnanna vera góða en hann hafi ekki sagt þeim frá hótunum og ofbeldi glæpahópsins.
Nokkurs misræmis gætir í frásögn M og K af tíðni fjárkúgana, tíðni greiðslna og hvort kærendur hafi verið beitt líkamlegu ofbeldi í Venesúela. Dregur það úr trúverðugleika frásagnar M að hún fái ekki stuðning í frásögn eiginkonu hans nema að hluta til. Þá verður ekki metið trúverðugt að tengsl séu á milli umferðarslyss sem K lenti í árið 2021 og meintra fjárkúgana sem kærendur kváðust hafa orðið fyrir í Chile og Venesúela, enda höfðu kærendur þá búið í Chile í tvö ár án þess að hafa orðið fyrir ofbeldi. K kvað mann sem hringdi í M í kjölfar slyssins ekki hafa minnst á slysið. Auk þess kvaðst M ekki hafa verið eltur á milli landa af Tren de Aragua. K greindi frá því að þeim hefðu ekki borist frekari hótanir eftir að M skipti um símanúmer árið 2021, þangað til þau yfirgáfu Chile árið 2022.
M greindi ekki frá því hjá Útlendingastofnun að hann hafi starfað fyrir rannsóknarlögregluna. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði M fram skjal sem sýna á fram á þjálfun hans sem rannsakanda hjá lögreglunni hjá C.I.C.P.C. Academy, í Venesúela árið 2015. Af því tilefni óskaði kærunefnd m.a. eftir útskýringum á því af hverju M hefði ekki greint frá þessu hjá Útlendingastofnun. Gaf M þá skýringu að hann hafi greint frá því í viðtalinu að honum hafi verið hótað bæði af glæpagengjum og yfirvöldum. M hafi ekki haft gögn um þjálfun hjá lögreglunni á þeim tíma sem viðtalið fór fram. M kvaðst hafa verið hótað vegna þeirra upplýsinga um starfshætti lögreglunnar sem hann hafði og andstöðu við yfirvöld. Hann hafi fengið hótanir frá því hann hætti að mæta í starfsnámið. Fyrst um sinn hafi hótanirnar borist daglega en fram að þeim tíma sem hann fór frá landinu hafi M borist hótanir. Kvað M hótanirnar hafa borist í persónu og í gegnum síma. Meðal annars hafi honum verið hótað að honum yrðu gerðar upp sakir til að koma honum í fangelsi. M kvaðst telja nafngreinda yfirmenn hafa staðið á bak við hótanirnar og lögreglan hafi líka notast við glæpamenn til að koma hótunum á framfæri. M kvaðst hafa orðið vitni að pyndingum, illri meðferð og fjárkúgun á sakborningum en hann hafi ekki tekið þátt í því sjálfur heldur hafi hann hætt í starfsnáminu. M kvað hótanirnar hafa verið ógn við öryggi fjölskyldunnar og þær hafi verið á meðal ástæðna þess að þau flúðu. M kvað umrædda atburði hafa þau áhrif á stöðu sína í dag að fjölskyldan lifi í ótta og finnist þau þurfa að vera stöðugt vör um sig.
Kærunefnd telur M ekki hafa gefið haldbært svar við spurningu nefndarinnar um hvers vegna M hafi ekki greint frá því hjá Útlendingastofnun að hann hafi starfað fyrir rannsóknarlögregluna. Það að hann hafi ekki haft gögn þess efnis undir höndum á þeim tíma sem viðtalið fór fram hefur ekki haft áhrif á getu M til að greina frá því í viðtalinu. Það að M hafi greint frá því í viðtalinu að hafa verið hótað bæði af glæpagengjum og yfirvöldum er mjög almenns eðlis og verður ekki lagt að jöfnu við að M hafi greint frá starfsnámi hjá lögreglu í viðtali hjá Útlendingastofnun. Auk þess verður ekki séð að starfshættir lögreglu í Venesúela almennt hafi verið slíkt leyndarmál að tilefni hafi verið til að ofsækja M vegna vitneskju hans um þá. Þá er til þess að líta að samkvæmt framlögðum gögnum var M í umræddu námi frá 2014 til 2015 og opinberar staðfestingar á því eru dagsettar á árinu 2017. Er því nokkuð langt síðan umræddir atburðir eiga að hafa átt sér stað og M fór ekki frá Venesúela fyrr en 2019 og sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 2022. Dregur þetta úr trúverðugleika frásagnar M um að lögregluyfirvöld hafi ofsótt hann í Venesúela. Auk þess fær frásögn M að þessu leyti ekki stuðning í frásögn K en hún greindi ekki frá atvikum er tengjast áreiti af þessum ástæðum. Verður því ekki lagt til grundvallar að M hafi verið ofsóttur af venesúelskum stjórnvöldum eða eigi þær á hættu.
Af heimildum um heimaríki kæranda er ljóst að fjárkúgun hefur aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengi að reiðufé. Hefur slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa aðgengi að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpagengi hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá hefur fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita einnig aukist sem einkum fellst í að krafist er greiðslu til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiðslu frá vörubílstjórum og frá nautgripabændum. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ónæg. Þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum.
Heimildir um Venesúela bera ekki með sér að glæpahópurinn Tren de Argua stjórni þar verulegum hluta landsvæðis þess. Þá bera heimildir ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna. Af gögnum sem kærunefnd hefur skoðað er ljóst að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í víðtækar aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópsins í fangelsum, meðal annars í Carabobo, heimafylki kærenda. Þær aðgerðir benda ekki til þess að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd í skilningi c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Auk þess gefa þessar upplýsingar til kynna að Tren de Argua njóti ekki sérstakrar verndar stjórnvalda eða starfi með einhverjum hætti í skjóli þeirra.
Ekki er hægt að útiloka að einhvers konar fjárkúgun hafi átt sér stað gagnvart kærendum enda benda landaheimildir til þess að slík afbrot séu nokkuð algengt. Þrátt fyrir það er ekki talið trúverðugt að kærendur eigi á hættu ofsóknir af hendi glæpahópsins Tren de Argua eða að M eigi á hættu ofsóknir vegna þjálfunar sinnar hjá lögreglunni. Er þar sérstaklega vísað til fyrrgreinds misræmis í frásögnum kærenda, upplýsinga um stöðu glæpahópsins Tren de Argua, þess að gögn og frásögn M um þjálfun sína hjá lögreglu árin 2014 til 2015 komu seint fram, þess tíma sem liðinn er frá meintum atburðum og þess að kærendur gátu án afskipta stjórnvalda yfirgefið landið og aflað sér vegabréfa. Þá hafa kærendur ekki greint frá því að þau hafi leitað til lögreglunnar vegna fjárkúgana, áreitis eða ofbeldis en það er mat kærunefndarinnar, með vísan til framangreinda landaupplýsinga, að kærendur geti leitað aðstoðar hjá lögregluyfirvöldum.
Það áreiti og meðferð sem kærendur hafa lýst og lagt fram gögn um ná ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá verður ekki talið að aðstæður eða gögn málsins beri með sér að kærendur eigi á hættu að sæta ofsóknum af þeim ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Útlendingastofnun tók viðtal við A og B, þar sem þau lýstu aðstæðum sínum í heimaríki og ástæðum flótta. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni A og B samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum A og B nægilega komið á framfæri með framburði þeirra, kærenda og hagsmunagæslu talsmanns.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst A hafa gengið í skóla en hafi ekki getað farið út að leika sér eða til að hitta vini sína vegna ótta við mannrán, ofbeldi, að lenda á milli í vopnuðum átökum eða að verða fyrir öðrum glæpum. Þá kvað A kennarana sína ekki sinna kennslunni vel og hafi skilið börnin eftir án umsjónar. Fyrir liggur að börnin eiga ömmu og aðra ættingja í Venesúela. A vísaði einnig til almenns ástands í landinu, hún hafi ekki getað fengið heilbrigðisþjónustu, heilbrigðiskerfið hafi skort aðföng og að lyf hafi verið of dýr. Einnig vísaði A til stöðugt hækkandi verðlags og óöryggis.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst B hafa gengið í skóla og hafa farið beint heim að leika sér við systur sína eftir skóla. Hættulegt hafi verið að leika sér utandyra. Stundum hafi henni liðið vel og stundum illa vegna þess að foreldrar hennar hafi verið í Chile til að vinna fyrir mat handa fjölskyldunni. B lýsti slæmum aðbúnaði á spítölum í Venesúela, ekki sé hægt að fá rétta heilbrigðisþjónustu því ekki séu til lyf eða búnaður. Þegar hún hafi veikst hafi amma hennar þurft að lækna hana með tei.
Útlendingastofnun taldi ekki ástæðu til að taka viðtal við C vegna ungs aldurs hans. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna kærenda samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum þeirra nægilega komið á framfæri með framburði A og B, kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að börn kærenda fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis, enda hafa kærendur ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau og börn þeirra hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.
Kærunefnd horfir m.a. til þess að börnin sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem séu almennt heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki sínu og bera gögn málsins með sér að kærendur geti leitað sér læknisþjónustu í Venesúela og fengið hana. Einstaklingsbundnar aðstæður barna kærenda eru ekki með þeim hætti að þau teljist í hættu við endursendingu til heimaríkis.
Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna, að það sé þeim fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærendur og börn þeirra hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úrátökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að frá að hafa búið í Carabobo fylki í Venesúela þar til þau flúðu heimaríki. Samkvæmt landaupplýsingum er heimafylki kærenda, Carabobo, staðsett í norðurhluta landsins. Fram kemur í landaupplýsingum að ofbeldi og morðtíðni í heimafylki umsækjenda hafi verið lægra árið 2022 en í Karakas, nærliggjandi svæðum borgarinnar og Miranda fylki sem kærunefnd hefur þegar tekið til skoðunar í úrskurði sínum nr. 525/2023. Þá beri heimildir ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), séu ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur koma frá eða í Venesúela almennt.
Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það jafnframt mat kærunefndar að ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda gefi tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður þeirra leiði til þess að þau eða börn þeirra eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefnd að aðstæður kærenda og barna þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Með vísan til framangreindra gagna hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda, aðstæðna í heimaríki þeirra er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hafa lent í umferðarslysi í Chile árið 2021 þar sem keyrt hafi verið á hana. K hafi lærbrotnað, slasast á kjálka og misst tennur. Kvaðst K hafa farið til sjúkraþjálfara og sálfræðings eftir slysið en á þeim tíma sem viðtalið var tekið liði henni vel. K kvað skort á lyfjum í Venesúela en hún hafi stundum leitað þar til læknis ef hún hefði verki. Kvaðst hún hafa fengið þá læknisaðstoð í Venesúela sem hún hafi leitað eftir.
M greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera við góða i líkamlega heilsu fyrir utan meiðsli á öxl sem hann hafði hlotið í Chile. M greindi frá því að hafa glímt við kvíða í Chile og Venesúela. Hann hafi í hvorugu landinu getað leitað til geðlæknis. Kvaðst M hafa leitað til læknis í Venesúela vegna almennra veikinda en hann hafi þurft að greiða fyrir lyf og áhöld sem læknar hafi notað.
Í skýrslu lögreglu, dags. 13. október 2022, sem tekin var vegna beiðni fjölskyldunnar um alþjóðlega vernd hér á landi, kemur fram að allir fjölskyldumeðlimirnir séu bólusettir og hafi fengið 2-4 skammta af Sinovac eða Pfizer. Þá kemur fram að börnin séu með ofnæmi fyrir sýklalyfjum og K notist við hækju eftir slys. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst K eiga erfitt með að rétta úr fæti sínum, ætti erfitt með að standa almennilega eða beygja hné sitt. Þá ætti hún erfitt með að matast vegna vandamáls í kjálka og tönnum og þyrfti hún á nýjum tönnum að halda sem hún hafi ekki haft efni á.
Meðal gagna málsins er beiðni frá Vinnumálastofnun, dags. 9. maí 2023, þar sem óskað er eftir neyðarþjónustu tannlæknis fyrir K. Þá eru meðal gagna málsins tölvupóstsamskipti við tannlækni á Íslandi, dags. 22. maí 2023, þar sem fram kemur að K hafi lent í áðurnefndu slysi 2021 og undirkjálki hennar hafi brotnað og verið festur með títanplötum og skrúfum. Ein af skrúfunum hafi færst til og valdi henni sársauka. K hafi nefnt að þetta hafi gerst áður og að skrúfu hafi þurft að fjarlægja. Þessa aðgerð verði að framkvæma af kjálkaskurðlækni. Kærunefnd telur að ekki sé um skyndilegan, lífshættulegan, eða mjög alvarlegan sjúkdóm að ræða. Auk þess hefur K greint frá því að hafa haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimaríki.
Í viðtali við M kvað hann heilsu barna sinna vera góða og að þau væru ekki með sjúkdóma. Frásögn A og B auk annarra gagna málsins gefa ekki tilefni til að ætla annað. Kærunefnd telur málið nægilega upplýst hvað varðar heilsufar kærenda og barna þeirra á heildina litið. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að heilsufar barna kærenda sé með þeim hætti að það falli undir 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísast til 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum þar sem segir að þegar stjórnvöld taki ákvörðun um veitingu og útgáfu dvalarleyfis á umræddum forsendum skuli taka mið af fyrirliggjandi gögnum, þar á meðal læknisvottorðum og öðrum læknisfræðilegum gögnum. Umsækjandi beri sjálfur ábyrgð á að afla slíkra gagna og leggja fram við meðferð málsins hjá stjórnvöldum. Kærendur hafa ekki lagt fram gögn um að börn þeirra þurfi heilbrigðisaðstoð.
Verður ekki talið að kærendur og börn þeirra hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Í viðtölum kærenda hjá Útlendingastofnun kváðust þau hvorki tilheyra minnihlutahópi né sérstöku þjóðerni í heimalandi sínu. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að börn kærenda tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi sem hafi sérstaka verndarþörf.
Verður því ekki talið að kærendur eða börn þeirra geti ekki fengið aðstoð frá stjórnvöldum vegna félagslegra aðstæðna. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við mat á þörf fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hefur kærunefnd litið sérstaklega til aðstæðna barna í Venesúela. í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barna kærenda í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásögn kærenda, barnanna A og B, upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau og börn þeirra hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 13. október 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.
Athugasemdir kærenda við málsmeðferð og ákvarðanir Útlendingastofnunar
Kærendur gerðu ýmsar athugasemdir við málsmeðferð og mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika og heimildum um Venesúela. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Þar á meðal er trúverðugleikamat, mat á málsmeðferð Útlendingastofnunar og mat á almennu ástandi í Venesúela. Með vísan til úrskurðaframkvæmdar kærunefndar og þar sem nefndin hefur komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun er ekki ástæða til að gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kærenda er því haldið fram að beiting brottvísunar og endurkomubanns feli í sér afturvirkni en kærendur hafi haft réttmætar væntingar um að umsóknir þeirra færi samkvæmt eldri lögum sem gildandi voru þegar þær voru lagðar fram 13. október 2022. Í lögum um landamæri kemur ekki annað fram en að lögin taki þegar gildi. Lög um landamæri voru undirrituð af forseta Íslands 28. desember 2022 og birt í A-deild Stjórnartíðinda 9. janúar 2023 og höfðu því tekið gildi þegar hinar kærðu ákvarðanir voru teknar. Kærendur voru upplýst um lagabreytinguna og gefið færi á að koma að andmælum við mögulegri brottvísun og endurkomubanni. Verður því ekki fallist á málsástæðu kærenda um að óheimilt væri að ákvarða brottvísun í máli þeirra í samræmi við lagabreytinguna. Af þeim sökum telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar hvað þetta varðar.
Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi 13. október 2022 fyrir sig og börn sín. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum og börnum þeirra úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var með tölvubréfi dags. 8. febrúar 2023 leiðbeint af Útlendingastofnun um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kváðu kærendur bróður M hafa dvalarleyfi hér á landi. Slík ákvörðun yrði íþyngjandi fyrir fjölskylduna af ástæðum sem áður er fjallað um, vegna kvilla sem K þjáist af enda hafi hún reynt að fá læknisaðstoð hér á landi vegna lausrar skrúfu í kjálkabeini sem valdi henni sársauka. Þá séu aðstæður slæmar í Venesúela og heilbrigðiskerfi bágborið. Auk þess sé ljóst að ákvörðun um brottvísun og endurkomubann taki ekki mið af því sem börnum kærenda sé fyrir bestu.
Af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kærenda eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra er þeim brottvísað og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and their children are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Valgerður María Sigurðardóttir