12 febrúar 2026
/
Mál nr. 28/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 2. febrúar 2026
í máli nr. 28/2025:
Vestfirskir verktakar ehf. og
VBF Mjölnir ehf.
gegn
Vegagerðinni og
Leonhard Nilsen & Sønner AS
Lykilorð
Fjárhagslegt hæfi. Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.
Útdráttur
V ehf. og VM ehf. lögðu fram sameiginlegt tilboð í útboði V um byggingu tveggja steyptra brúa á Vestfjarðarvegi um Gufudalssveit. Tilboð þeirra var lægst, en var hafnað á þeirri forsendu að bjóðendur uppfylltu ekki kröfu um fjárhagslegt hæfi samkvæmt grein 1.10.3 í útboðslýsingu, þar sem kveðið var á um að eigið fé bjóðanda skyldi nema að lágmarki 5% af tilboðsfjárhæð samkvæmt ársreikningi og að allir bjóðendur skyldu sýna fram á jákvætt eigið fé samkvæmt ársreikningi. V ehf. og VM ehf. kröfðust þess að ákvörðun V um að hafna tilboði þeirra yrði felld úr gildi og að veitt yrði álit á skaðabótaskyldu V ehf. gagnvart þeim. Byggðu þau einkum á því að drög að ársreikningum fyrir árið 2024 sýndu að skilyrði um eigið fé væri uppfyllt. Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar þar sem bindandi samningur hefði verið gerður við annan bjóðanda, sem ekki yrði felldur úr gildi eða breytt. Við mat á kröfu um álit á skaðabótaskyldu V var horft til þess að útboðsgögn væru skýr um að bjóðendur skyldu sýna fram á að kröfur um fjárhagsstöðu í grein 1.10.3 væru uppfylltar með því að leggja fram ársreikninga fyrir árin 2022 og 2023. Samkvæmt þeim ársreikninum hefði hvorki eigið fé VM ehf. né V ehf. náð fyrrgreindu lágmarki og eigið fé þess síðarnefnda í reynd verið neikvætt bæði árin. Þar sem ákvörðun V var ekki talin ólögmæt var kröfu um álit á skaðabótaskyldu einnig hafnað.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 23. júní 2025 kæra Vestfirskir verktakar ehf. og VBF Mjölnir ehf. útboð varnaraðila, Vegagerðarinnar, nr. VG2025-047, auðkennt ,,Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit, brýr á Djúpafjörð við Grónes og Gufufjörð“. Kærendur krefjast þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboð kærenda í fyrrgreindu útboði. Þá krefjast kærendur álits á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér og málskostnaðar.
Varnaraðili krefst þess í greinargerð 4. júlí 2025 að öllum kröfum kæranda verði hafnað.
Leonhard Nilsen & Sønner AS krefjast þess í greinargerð 7. júlí 2025 að öllum kröfum kæranda verði hafnað.
Í öndverðu kröfðust varnaraðili og Leonhard Nilsen & Sønner þess að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 18. september 2025 var fallist á þá kröfu.
Kærendur lögðu fram frekari athugasemdir af sinni hálfu 21. október 2025.
Varnaraðili upplýsti nefndina 10. desember 2025 um að samningur hefði komist á við Leonhard Nilsen & Sønner AS.
I
Í mars 2025 auglýsti varnaraðili útboð nr. VG2025-047, auðkennt ,,Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit, brýr á Djúpafjörð við Grónes og Gufufjörð“. Verkið snýr að byggingu tveggja steyptra brúa á Vestfjarðarvegi um Gufudalssveit, annars vegar 58 metra langrar brúar á Djúpafjörð við Grónes og hins vegar um 130 metra langrar brúar á Gufufjörð.
Í grein 1.10 í útboðslýsingu var fjallað um hæfi bjóðenda. Kom þar fram að uppfyllti bjóðandi ekki allar hæfiskröfur útboðsins kynni það að valda því að tilboð hans yrði metið óaðgengilegt og því vísað frá, sbr. 2. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Tekið var fram að tveimur eða fleiri fyrirtækjum væri heimilt að standa sameiginlega að tilboði og teldust þau þá bera sameiginlega og óskipta ábyrgð á efndum samnings gagnvart verkkaupa. Þá kom fram að hæfi bjóðenda yrði metið á grundvelli þeirra upplýsinga sem þeir sendu inn með tilboðum sínum, eða gögnum sem varnaraðili hefði áskilið sér rétt til að óska eftir.
Í grein 1.10.3 kom fram að fjárhagsstaða bjóðanda skyldi vera það trygg að hann gæti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart kaupanda, sbr. 71. gr. laga um opinber innkaup. Tekið var fram að fyrirtæki væri heimilt eftir því sem við ætti og vegna tiltekins samnings að byggja á fjárhagslegri getu annarra aðila óháð lagalegum tengslum við þá. Í greininni voru taldar upp fjárhagskröfur sem bjóðandi skyldi uppfylla. Á meðal þess var að meðalársvelta fyrirtækis bjóðanda síðastliðin þrjú ár skyldi að lágmarki nema 80% af tilboði bjóðanda, án virðisaukaskatts. Þá skyldi eigið fé bjóðanda „vera jákvætt sem nemur a.m.k. 5% af tilboðsfjárhæð samkvæmt ársreikningi“. Í því efni kom fram að framlagður ársreikningur skyldi vera í samræmi við lög um ársreikninga nr. 3/2006, reglugerðir og settar reikningsskilareglur eftir því sem við ætti, auk þess sem hann skyldi vera án athugasemda um rekstrarhæfi. Einnig kom fram að „[legði] fleiri en einn aðili fram sameiginlegt tilboð [bæru] þeir saman óskipt ábyrgð á að efna skuldbindingar samkvæmt tilboðinu. Allir bjóðendur [skyldu] sýna fram á jákvætt eigið fé skv. ársreikningi. Heimilt [væri] að leggja saman veltu hjá allt að þremur bjóðendum sem [skiluðu] sameiginlegu tilboði til að tilboð [uppfyllti] kröfu um lágmarksveltu.“ Þá voru gerðar nánar tilteknar kröfur um að bjóðendur væru í skilum með opinber gjöld og lífeyrissjóðsiðgjöld starfsmanna. Tekið var fram að bjóðendur skyldu sýna fram á að fjárhagskröfur væru uppfylltar með því að leggja fram „[á]rsreikninga fyrir árin 2022 og 2023“ auk skriflegra yfirlýsinga um skil opinberra gjalda og iðgjalda í lífeyrissjóði.
Tilboð voru opnuð 29. apríl 2025 og bárust fjögur tilboð. Kærendur lögð fram sameiginlegt tilboð, að fjárhæð 1.626.014.020 krónur, og var það lægsta tilboðið sem barst. Leonhard Nilsen & Sønner AS átti þriðja lægsta tilboðið, að fjárhæð 1.852.194.945 krónur.
Með tilboði kærenda fylgdu óendurskoðaðir ársreikningar Vestfirskra verktaka ehf. vegna áranna 2022 og 2023. Samkvæmt ársreikningi félagsins vegna ársins 2022 var eigið fé þess neikvætt um 122.531.222 krónur og neikvætt um 204.482.576 krónur samkvæmt ársreikningi félagsins vegna ársins 2023. Einnig fylgdu með tilboðinu óendurskoðaðir ársreikningar VBF Mjölnis ehf. vegna áranna 2022 og 2023 og drög að ársreikningi vegna ársins 2024. Samkvæmt þeim var eigið fé félagsins jákvætt árið 2022 um 30.772.496 krónur og um 63.001.097 krónur á árinu 2023. Samkvæmt drögum að ársreikningi vegna 2024 var eigið fé þess jákvætt um 129.756.881 krónu.
Af gögnum málsins verður ráðið að í kjölfar opnunar tilboða tilkynnti varnaraðili kærendum um að gögn með tilboði þeirra væru ófullnægjandi. Ætti það annars vegar við um gögn sem sýndu fram á verkreynslu bjóðanda og yfirstjórnanda og hins vegar um fjárhagstöðu Vestfirskra verktaka ehf. og bauð varnaraðili kærendum meðal annars að leggja fram ársreikning félagsins fyrir árið 2024 eða, ef hann lægi ekki fyrir, drög að ársreikningi fyrir það ár sem sýndi fram á fjárhagstöðu félagsins. Í kjölfarið hafi kærendur afhent drög að samstæðureikningi Vestfirskra verktaka ehf. og Skeið ehf. vegna ársins 2024, sem sýndi jákvætt eigið fé að fjárhæð 52.184.935 krónur. Í tölvupósti varnaraðila til kæranda 15. maí 2025 kom fram að Skeið ehf. væri ekki aðili að tilboðinu og samstæðureikningurinn sýndi ekki fram á fjárhagsstöðu Vestfirskra verktaka ehf. Var kærendum veittur frestur til 20. maí 2025 til að skila fullnægjandi gögnum. Með tölvupósti 19. þess mánaðar sendu kærendur varnaraðila staðfestingu endurskoðanda Vestfirskra verktaka ehf. um að stjórn félagsins og Skeiðs ehf. hefðu samþykkt að sameina félögin undir nafni Vestfirskra verktaka ehf., með gildi frá 1. janúar 2025. Félögin tvö væru í eigu sömu aðila og hefðu starfað náið saman síðustu ár. Þá kom fram að endurskoðandanum hefði verið falið að sjá um vinnu við að sameina félögin. Með tölvupósti kærenda 23. maí 2025 var varnaraðila send drög að ársreikningi Vestfirskra verktaka ehf. fyrir árið 2024 þar sem fram kom að eigið fé þess væri jákvætt um 2.556.155 krónur.
Varnaraðili tilkynnti bjóðendum 12. júní 2025 um að ákveðið hefði verið að velja tilboð Leonhard Nilsen & Sønner AS. Í bréfi varnaraðila kom fram að tilboð kærenda hefði verið metið óaðgengilegt þar sem það uppfyllt ekki kröfu um fjárhagslegt hæfi í grein 1.10.3 í útboðslýsingu, þar sem meðal annars kæmi fram að eigið fé bjóðanda skyldi vera jákvætt sem nemur a.m.k. 5% af tilboðsfjárhæð samkvæmt ársreikningi og að allir bjóðendur skyldu sýna fram á jákvætt eigið fé samkvæmt ársreikningi. Eftir yfirferð gagna væri það niðurstaða varnaraðila að eigið fé Vestfirskra verktaka ehf. væri neikvætt og uppfyllt ekki fyrrgreinda kröfu. Þá kom fram að tilboð þess bjóðanda sem lagði fram næstlægsta tilboðið hefði jafnframt verið metið óaðgengilegt.
I
Kærendur telja ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði þeirra brjóta gegn lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup enda hafi tilboð þeirra fullnægt skilyrðum um fjárhagslegt hæfi í grein 1.10.3 í útboðslýsingu. Kærendur vísa til þess að bjóðanda hafi verið heimilt, eftir því sem við á og vegna tiltekins samnings, að byggja á fjárhagslegri getu annarra aðila óháð lagalegum tengslum við þá. Kærendur tiltaka að þegar félög geri sameiginleg tilboð og séu in solidum ábyrg fyrir efndum sé í reynd byggt á sameiginlegri fjárhagslegri getu þeirra. Þá vísa kærendur til þess að skilyrði sem sett séu fyrir þátttöku fyrirtækja í útboðum, þar á meðal á grundvelli fjárhagsstöðu sbr. 71. gr. laga nr. 120/2016, verði að tengjast efni samnings með málefnalegum hætti og fullnægja kröfum um jafnræði og meðalhóf, sbr. 15. gr. sömu laga. Af þessu leiði að vafa um inntak skilyrða verði að meginstefnu að meta kærendum í hag við úrlausn málsins.
Kærendur byggja á því að með kröfu um að eigið fé bjóðanda skuli vera jákvætt sem nemur a.m.k. 5% af tilboðsfjárhæð, sé átt við sameiginlegt eigið fé félaga sem leggja fram sameiginlegt tilboð. Gagnstæður skilningur fæli í sér að gerð væri krafa um að eigið fé félaga sem standa saman að boði þyrfti að vera tvöfalt meira en annarra. Í tilviki tilboðs kæranda nemi 5% viðmiðið um 81,3 milljónum króna. Að virtu eiginfjárhlutfalli kæranda VBF Mjölnis ehf. sé tilskildu eiginfjárhlutfalli náð, en kærendur kveða eigið fé þess félags hafa verið um 129,8 milljónir króna árið 2024 og um 179 milljónir króna árið 2023. Kröfu um fjárhagslegt hæfi sé því fullnægt óháð stöðu kæranda Vestfirskra verktaka ehf.
Kærendur byggir á því að tilboð þeirra hafi jafnframt uppfyllt kröfu um að eigið fé allra bjóðenda væri jákvætt samkvæmt ársreikningi, enda ljóst að eigið fé Vestfirskra verktaka ehf. hafi verið jákvætt á síðast rekstrarári, þ.e. árið 2024, samkvæmt drögum að árreikningi þess árs, sem varnaraðili hafi kallað sérstaklega eftir. Beri að líta til þess árs enda endurspegli nýjustu tölur best hvernig efnahag félagsins sé fyrirkomið. Byggja kærendur á því að við mat á því hvert eigið fé félagsins er beri að leggja til grundvallar samstæðureikning Vestfirskra verktaka ehf. og Skeiðar ehf. Kærendur kveða Skeið ehf. renna að fullu saman við Vestfirskra verktaka ehf. sem sé yfirtökufélagið og taki við réttindum og skyldum Skeiðar ehf. Samstæðureikningurinn gefi því rétta mynda af efnahag félagsins. Þá byggja kærendur á því að jafnvel þó aðeins sé litið til draga að ársreikningi Vestfirskra verktaka ehf. fyrir árið 2024, sé skilyrði útboðsgagna um jákvætt eigið fé uppfyllt.
Kærendur byggja á því að þar sem fjárhagslegum kröfum til kærenda hafi verið fullnægt, með gögnum sem varnaraðili óskaði eftir, hafi engin efni verið til að hafna tilboði þeirra á þeim grundvelli að það væri ógilt eða óaðgengilegt. Ákvörðun varnaraðila hafi því verið ólögmæt og beri að fella hana úr gildi. Verði ekki fallist á þá kröfu kærenda sé þess krafist að nefndin veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila vegna brota á útboðsreglum.
II
Varnaraðili byggir á því að tilboð kærenda hafi ekki uppfyllt lágmarkskröfur útboðsins um fjárhagslegt hæfi og hann hafi því ekki átt annan kost en að meta tilboð kærenda óaðgengilegt.
Varnaraðili kveður skilmála útboðsins hafa verið skýra um að kærendum hafi hvorum um sig borið að uppfylla fjárhagskröfu útboðsins um jákvætt eigið fé, sem í tilviki kærenda hafi verið a.m.k. 81.300.701 króna. Í útboðsgögnum hafi hvorki komið fram að heimilt væri að leggja saman eigið fé aðila sem stæðu saman að tilboð til að fullnægja kröfunni, né að kröfunni væri náð ef eigið fé væri jákvætt og fyrrgreindri lágmarksfjárhæð eigin fjár væri náð samanlagt. Varnaraðili bendir á að í grein 1.10.3 í útboðslýsingu hafi komið að ef fleiri en einn aðili legði fram sameiginlegt tilboð bæru þeir saman óskipta ábyrgð á efni skuldbindingar samkvæmt tilboðinu og að allir bjóðendur skyldu sína fram á jákvætt eigið fé. Hins vegar hafi verið tilgreind undantekning frá fjárhagskröfu um meðalársveltu fyrirtækis bjóðanda þannig að heimilt væri að leggja saman veltu hjá allt að þremur bjóðendum sem skiluðu sameiginlegu tilboði. Ef ætlunin hafi verið að láta hið sama gilda við mat á eiginfé eða undanskilja einhvern bjóðanda frá áskildri lágmarksfjárhæð þess hefði borið að tilgreina það á sama hátt með skýrum hætti.
Varnaraðili vísar til þess að samkvæmt afhentum ársreikningum kæranda Vestfirskra verktaka ehf. hafi eigið fé félagsins verið neikvætt árið 2022 og 2023. Í því skyni að ganga enn frekar úr skugga um hvort kröfum um eigið fé væri fullnægt hafi varnaraðili óskað eftir viðbótargögnum um fjárhag félagsins. Kærandi hafi þá lagt fram drög að ársreikningi vegna ársins 2024 þar sem fram kom að eigið fé næmi 2.556.155 krónum. Þá þegar hafi verið ljóst að kærendur uppfylltu ekki lágmarkskröfur útboðsgagna til fjárhagslegs hæfis. Varnaraðili byggir á því að ekki hafi verið heimilt að líta til samrunaársreiknings Vestfirskra verktaka ehf. og Skeiðar ehf., enda hafi Skeið ekki verið aðili að tilboðinu né hafi í tilboðsgögnum verið upplýst um fyrirhugaðan samruna. Ekki sé því unnt að líta til þess ársreiknings enda fæli það í sér breytingar á grundvallarþáttum tilboðsins. Þá sé krafa um lágmarks eigið fé bjóðanda auk þess ekki uppfyllt þótt litið yrði til hans.
Varnaraðili vísar til þess að samkvæmt ársreikningum kæranda VBF Mjölnis ehf. fyrir árin 2022 og 2023 hafi það félag heldur ekki uppfyllt kröfu um að eigið fé næmi a.m.k. 5% af tilboðsfjárhæð, samkvæmt ársreikningum fyrir árin 2022 og 2023. Þrátt fyrir að eigið fé félagsins hafi verið jákvætt um 129,8 milljónir króna samkvæmt drögum að ársreikningi vegna ársins 2024, hafi kærendur ekki uppfyllt kröfur útboðsins þar sem eigið fé kæranda Vestfirskra verktaka ehf. hafi ekki verið nægjanlegt til að uppfylla kröfuna.
Varnaraðili bendir á að útboðið lúti að samningi um stóra og flókna verkframkvæmd þar sem samningsfjárhæð sé yfir milljarður íslenskra króna. Kröfur útboðsgagna um fjárhagstöðu bjóðanda sé því hvorki ósanngjörn né óeðlileg. Þá telur varnaraðili að krafa um jákvætt eigið fé bjóðanda að tiltekinni fjárhæð feli ekki í sér aukna kröfu til þeirra sem standa sameiginlega að útboði, líkt og kærendur haldi fram. Þvert á móti þurfi allir bjóðendur að lúta sömu kröfu en með henni hafi verið leitast við að tryggja að bjóðendur hefðu getu til að efna skyldur samkvæmt samningnum. Þetta sé einnig í samræmi við kröfu varnaraðila um óskipta ábyrgð þar sem við slíkar aðstæður eigi varnaraðili að geta gengið að öðrum hvorum fyrir allri kröfunni.
Varnaraðili telur að kröfur útboðsins hafi verið í samræmi við meginreglur laga um opinber innkaup um jafnræði og meðalhóf auk þess sem mat tilboða hafi verið í samræmi við lögin og skilmála útboðsgagna. Kveðst varnaraðili hafa gætt fyllsta meðalhófs með því að gefa kærendum tækifæri á að koma að frekari skýringum og viðbótarupplýsingum eftir opnun tilboða.
Varnaraðili vísar til meginreglu opinberra innkaupa um að bjóðendur beri ábyrgð á tilboðum sínum. Hann kveður kærendur hvorki hafa leitt í ljós að þeir hafi átt raunhæfa möguleika á að vera valdir né að verulegar líkur séu á broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim.
Hagsmunaaðili, Leonhard Nilsen & Sønner AS, byggir á því að kærendur hafi hvorki sýnt fram á né leitt líkur að því að brotið hafi verið gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim við umrædd innkaup og að brotin séu þess eðlis að þau geti leitt til ógildingar á ákvörðunum varnaraðila í útboðinu, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. fyrrgreindra laga. Vísar hann til þess að Vestfirskir verktakar ehf. hafi ekki uppfyllt kröfur útboðslýsingar um fjárhagslegt hæfi sökum þess að eigið fé þess félags var neikvætt samkvæmt ársreikningum 2022 og 2023. Drög sem lögð hafi verið fram af ársreikningi félagsins, annars vegar samstæðureikningur þess og Skeiðs ehf. og hins vegar árreikningur félagsins fyrir árið 2024, uppfylli í engu þær kröfur sem gerðar séu til slíkra reikninga auk þess að bera með sér að vera ranglega útbúnir. Þá uppfylli kærendur ekki það skilyrði útboðsgagna um að eigið fé sé jákvætt sem nemur a.m.k. 5% af tilboðsfjárhæð samkvæmt ársreikningi hvort sem horft sé til eigin fjár hvors kæranda fyrir sig eða sameiginlega. Við það mat sé ekki unnt að líta til draga að ársreikningi kæranda VBF Mjölnis ehf. fyrir árið 2024 þar sem hann uppfylli, líkt og ársreikningar kæranda Vestfirskra verktaka fyrir það ár, ekki skilyrði laga um ársreikninga, reglugerðir og settar reikningsskilareglur. Ljóst sé að krafa um eigið fé sé ekki uppfyllt sé horft til ársreiknings VBF Mjölnis ehf. fyrir árið 2023. Þar að auki sé ekki unnt að horfa eingöngu til eigin fjár VBF Mjölnis ehf., sé ætlunin að byggja á því að horfa skuli til sameiginlegs eigin fjár kærenda, heldur þurfi þá að leggja saman eigið fé. Samanlagt eigið fé kærenda fyrir árið 2023 sé neikvætt sem nemur 141.481.479 krónum. Loks telur Leonhard Nilsen & Sønner AS vafa leika á því hvort kærendur hafi uppfyllt skilyrði útboðslýsingar er varða tæknilegt og faglegt hæfi í grein 1.10.4 í útboðslýsingu.
III
Kærendur krefjast þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboð þeirra í fyrrgreindu útboði auk álits á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér. Varnaraðili hefur upplýst um að komist hafi á bindandi samningur við Leonhard Nilsen & Sønner AS í útboðinu. Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verður bindandi samningur, sem hefur komist á eftir lögunum, ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þeirri ástæðu að bindandi samningur er kominn á milli varnaraðila og annars bjóðanda í útboðinu, sem ekki verður felldur úr gildi eða breytt, verður að hafna kröfu kærenda um að fella úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði þeirra. Getur því aðeins komið til skoðunar krafa kærenda um að nefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila.
Í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna tjóns sem brot á lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skuli miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði.
Kærendur lögðu fram sameiginlegt tilboð í hinu kærða útboði varnaraðila og áttu lægsta tilboðið sem barst, að fjárhæð 1.626.014.020 krónur. Var tilboði þeirra aftur á móti hafnað sem óaðgengilegu þar sem kærandi Vestfirskir verktakar ehf. var ekki talinn uppfylla kröfur um fjárhagslegt hæfi, nánar tiltekið í grein 1.10.3 í útboðslýsingu um að eigið fé bjóðanda skyldi að lágmarki nema 5% af tilboðsfjárhæð samkvæmt ársreikningi og að allir bjóðendur skyldu sýna fram á jákvætt eigið fé samkvæmt ársreikningi.
Í grein 1.10.3 kom fram að bjóðendur skyldu sýna fram á að fjárhagskröfur væru uppfylltar með því að leggja fram ársreikninga fyrir árin 2022 og 2023. Samkvæmt ársreikningum sem lagðir voru fram með tilboði kærenda var eigið fé kæranda Vestfirskra verktaka ehf. neikvætt um 122.531.222 krónur árið 2022 og neikvætt um 204.482.576 krónur árið 2023. Samkvæmt ársreikningum kæranda VBF Mjölnis ehf. var eigið fé félagsins jákvætt árið 2022 um 30.772.496 krónur og um 63.001.097 krónur á árinu 2023. Kærendur lögðu einnig fram með tilboði sínu drög að hluta ársreiknings fyrir árið 2024 þar sem fram kom að eigið fé VBF Mjölnis ehf. væri 129.756.881 króna.
Eftir skil tilboða, og með heimild varnaraðila, lögðu kærendur fram drög að ársreikningi Vestfirskra verktaka ehf. fyrir árið 2024 þar sem fram kom að eigið fé þess væri jákvætt um 2.556.155 krónur. Einnig voru lögð fram drög að samstæðuársreikningi Vestfirskra verktaka ehf. og Skeiðar ehf. vegna ársins 2024, sem gaf til kynna eigið fé að fjárhæð 52.184.935 krónur. Einnig var lögð fram staðfesting endurskoðanda um að stjórnir Vestfirskra verktaka ehf. og Skeiðs ehf. hefðu samþykkt að sameina félögin undir nafni Vestfirskra verktaka ehf., með gildi frá 1. janúar 2025.
Kærendur byggja kröfur sínar á því að framlögð drög að ársreikningum fyrir árið 2024 staðfesti að skilyrðum útboðsgagna um eigið fé þeirra hafi verið fullnægt þar sem eigið fé beggja félaga það ár hafi verið jákvætt og samanlagt uppfyllt kröfu um jákvætt eigið fé bjóðanda sem nemur að minnsta kosti 5% af tilboðsfjárhæð.
Útboðsgögn hins kærða útboðs voru skýr um að bjóðendur skyldu sýna fram á að kröfur um fjárhagsstöðu í grein 1.10.3 væru uppfylltar með því að leggja fram ársreikninga fyrir árin 2022 og 2023. Í tilviki kærenda þurfti eigið fé þeirra samkvæmt ársreikningum að nema að lágmarki 81.300.701 krónu til að uppfylla þá kröfu að eigið fé bjóðanda næmi að lágmarki 5% af tilboðsfjárhæð. Samkvæmt ársreikningum fyrir árin 2022 og 2023 náði hvorki eigið fé VBF Mjölnis ehf. né Vestfirskra verktaka ehf. fyrrgreindu lágmarki og var eigið fé þess síðarnefnda í reynd neikvætt bæði árin. Útboðsgögn voru skýr um að horfa skyldi til fyrrgreindra ársreikninga við mat á því hvort fullnægt væri kröfum um fjárhagstöðu bjóðanda og verður því ekki fallist á með kærendum að þeir hafi getað fullnægt skilyrði um fjárhagsstöðu með því að byggja á öðrum ársreikningum. Í ljósi þessa verður ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði þeirra ekki talin hafa verið ólögmæt. Verður því að hafna kröfu kærenda um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila.
Af framangreindri niðurstöðu leiðir að kröfu kærenda um málskostnað verður hafnað.
Úrskurðarorð
Kröfum kærenda, Vestfirskra verktaka ehf. og VBF Mjölnis ehf., í máli þessu er hafnað.
Málskostnaður fellur niður.
Reykjavík, 2. febrúar 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir