12 febrúar 2026

/

Mál nr. 36/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 36/2026

Fimmtudaginn 12. febrúar 2026

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 14. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 18. desember 2024, um að synja umsókn hennar um húsnæðisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um húsnæðisbætur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 26. nóvember 2024. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 18. desember 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið synjað þar sem tekjur og/eða eignir allra heimilismanna skertu bætur að fullu.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 14. janúar 2026. Með bréfi, dags. 20. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir öllum gögnum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust samdægurs.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa sumarið 2024 ákveðið að selja íbúð sína og fara að leigja 60+ íbúð til að geta átt auðveldari efri ár. Það hafi bæði verið erfitt og dýrt fyrir kæranda eina að reka íbúð í gömlu húsi. Kærandi hafi verið öryrki síðastliðin fjögur ár og fengið bætur samkvæmt því. Einnig hafi kærandi ákveðið að byrja að taka út lífeyrinn sinn sem sé mikið skertur þar sem aukagjöld séu tekin af því sem sé kallað snemmtökulífeyrir. Kærandi hafi gert ráð fyrir að fá húsnæðisbætur þar sem mánaðarlaun hennar dugi ekki fyrir nema 2/3 af húsaleigunni sem sé 360.000 kr. Vissulega eigi kærandi pening í banka þar sem hún hafi selt íbúðina sína en það verði fljótt að fara þegar alls staðar sé rifið af henni. Örorkulífeyrir kæranda hafi lækkað vegna peninga í banka en áður hafi hún átt þann pening í fasteign sinni. Kærandi sé mjög ósátt við að fá ekki húsnæðisbætur vegna mismunar á útborguðum launum og hárrar húsaleigu. Þá þurfi kærandi að kaupa mat, lyf og aðrar nauðsynjar. Það hafi tekið marga mánuði að sækja um húsnæðisbætur þar sem húsið hafi ekki verið komið á skrá hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Síðan hafi kæranda verið neitað um húsnæðisbætur vegna peninga í banka. Það sé alveg með ólíkindum hvað sami aurinn sé marg skattlagður.

Kærandi tekur fram að útborguð laun hennar séu langt undir framfærsluviðmiðum sem henni finnist sérstakt þar sem hún hafi unnið allt sitt líf, borgað sína skatta og skyldur og gefið til samfélagsins vegna síns vinnuframlags. Kærandi hafi ætlað að nýta peningana úr sölu íbúðarinnar til að eiga áhyggjulaust ævikvöld en nú valdi þeir miklum áhyggjum og stressi því þeir verði augljóslega fljótir að fara.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 18. desember 2024, um að synja umsókn kæranda um húsnæðisbætur.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 14. janúar 2026 vegna framangreindrar ákvörðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir