12 febrúar 2026
/
Mál nr. 44/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 28. janúar 2026
í máli nr. 44/2025:
Rými – Ofnasmiðjan ehf.
gegn
Landspítalanum og
Kone ehf.
Lykilorð
Bindandi samningur.
Útdráttur
Ágreiningur málsins laut að útboði varnaraðila á lyftum fyrir Barnaspítala Hringsins. Í niðurstöðu nefndarinnar var rakið að tiltekin tilkynning varnaraðila hefði haft þau réttaráhrif að með henni hefði komist á bindandi samningur milli varnaraðila og K ehf. og að slíkur samningur yrði ekki felldur úr gildi, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Var kröfu kæranda, sem nefndin taldi ljóst að beindist að ákvörðun varnaraðila um val á tilboði K í útboðinu, því hafnað. Loks hafnaði nefndin því að skilyrði væru uppfyllt til að úrskurða kæranda til að greiða málskostnað sem rynni í ríkissjóð, sbr. 2. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. september 2025 kærði Rými – Ofnasmiðjan ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Landspítalans (hér eftir „varnaraðili“) nr. 35035 auðkennt „Lyftur fyrir Barnaspítala Hringsins“.
Kærandi krefst þess að „kærunefnd útboðsmála felli ákvörðun kaupanda úr gildi“. Þá krafðist kærandi þess að „kærunefnd útboðsmála stöðvi gerð samnings við hæstbjóðanda með heimild í 107. gr. laga nr. 120/2016“.
Varnaraðila og Kone ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum.
Varnaraðili sendi tölvupóst til nefndarinnar 3. október 2025 og krefst þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað og að honum verði dæmdur málskostnaður vegna málsins. Kone ehf. krefst þess í athugasemdum 9. sama mánaðar að hafnað verði kröfu um stöðvun samningsgerðar, það er sjálfkrafa stöðvun og/eða stöðvun um stundarsakir. Þá krefst Kone ehf. þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað.
Með erindi 6. október 2025 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðili legði fram tiltekin gögn. Varnaraðili svaraði erindinu 8. sama mánaðar, afhenti umbeðin gögn og kom á framfæri frekari upplýsingum. Í svari varnaraðila kom meðal annars fram að fyrir mistök hefði verið send út tilkynning um töku tilboðs til Kone ehf. þann 30. september 2025. Ástæða þess hefði verið að ekki hefðu allir starfsmenn innkaupadeildar spítalans vitað af því að kæra hefði borist deginum áður. Þá upplýsti varnaraðili að tilkynningin hefði verið afturkölluð.
Með erindi 9. október 2025 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðili afhenti nefndinni tilteknar upplýsingar, þar með talið afrit af afturköllun hans á tilkynningu um töku tilboðs. Varnaraðili svaraði erindinu degi síðar, afhenti umbeðin gögn og kom á framfæri leiðréttingu á þegar veittum upplýsingum. Nánar tiltekið tók varnaraðili fram að taka tilboðsins hefði ekki verið eiginlega afturkölluð heldur útboðið stöðvað 7. október 2025 vegna kærunnar. Tilkynning um töku tilboðs hefði verið send út eftir að kæran hefði borist en eins og fram væri komið hefðu ekki allir starfsmenn innkaupadeildar vitað af kærunni. Tilkynningin væri því í raun ekki gild sem slík.
Varnaraðili sendi viðbótarathugasemdir til nefndarinnar 15. október 2025.
Með útboðsgögnum dagsettum 10. júlí 2025 óskaði varnaraðili eftir tilboðum í tvær víralyftur, sjúkrahúslyftur, til sjúkra- og fólksflutninga í skála Barnaspítala Hringsins á Hringbraut. Tilboð voru opnuð 22. ágúst sama ár og bárust þar tvö tilboð, annars vegar frá kæranda að fjárhæð 33.518.535 krónur og hins vegar frá Kone ehf. að fjárhæð 42.068.422 krónur.
Varnaraðili sendi út tilkynningu 17. september 2025 um val á tilboði Kone ehf. Í tilkynningunni var vitnað til 1. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og kom fram að ef ákvörðunin yrði ekki kærð og útboðið stöðvað væri heimilt að ganga til samninga frá og með 30. september 2025. Jafnframt sagði í tilkynningunni að bjóðendur ættu rétt á rökstuðningi fyrir höfnun á tilboðum sínum samkvæmt 85. gr. laga nr. 120/2016 og nánar fjallað um inntak þess réttar. Með tölvupósti 18. september 2025 óskaði kærandi meðal annars eftir rökstuðningi fyrir ákvörðuninni sem varnaraðili veitti degi síðar.
Kæra málsins barst nefndinni 29. september 2025 klukkan 14:52. Kærunefnd útboðsmála tilkynnti varnaraðila um kæruna sama dag klukkan 16:32 og óskaði meðal annars eftir upplýsingum hvort búið væri að velja tilboð og tilkynna um það.
Varnaraðili tilkynnti bjóðendum 30. september 2025 að tilboð Kone ehf. hefði verið endanlega samþykkt og kominn væri á bindandi samningur milli aðila. Með tilkynningu 7. október 2025 til bjóðenda upplýsti varnaraðili bjóðendur að vegna kæru væri útboðið stöðvað þar til leyst yrði úr henni.
Kærunefnd útboðsmála tók ákvörðun 27. október 2025 og vísaði frá kröfum varnaraðila og Kone ehf. um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í hinu kærða útboði og hafnaði kröfu kæranda um að samningsgerð í útboðinu yrði stöðvuð.
Varnaraðili lagði fram greinargerð 6. nóvember 2025 og krafðist þess að nefndin hafnaði öllum kröfum kæranda um að fella ákvörðun varnaraðila úr gildi auk þess að kæranda yrði gert að greiða málskostnað eftir fyrirmælum 2. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Kærandi upplýsti með tölvupósti 1. desember 2025 að hann myndi ekki leggja fram frekari gögn.
I
Kærandi byggir í meginatriðum á að valforsenda um rekstur tveggja sjúkrahúslyfta í tvö ár útiloki raunverulega aðra aðila en þá sem þegar hafa starfað fyrir varnaraðila. Slík þrenging á markhópi dragi úr samkeppni og jafnræði bjóðenda og feli í sér brot á 15. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þá hafi hugtakið sjúkrahúslyfta enga staðlaða merkingu samkvæmt alþjóðlegum lyftustöðlum og sé ekki tæknilega skilgreint. Að krefjast slíkrar reynslu án skýringa geri útboðið óskiljanlegt og matskennt sem feli í sér brot gegn 49. gr. laga nr. 120/2016. Þá bendir kærandi á að krafa um sérstaka reynslu af lyftum, sem skilgreindar séu af kaupanda sjálfum án markvissra viðmiðana, sé óhófleg og mismuni öðrum fyrirtækjum sem hafi sambærilega reynslu í öðrum verkefnum. Loks bendir kærandi á að synjun varnaraðila á beiðni hans um aðgang að tilboðum og matsgögnum takmarki möguleika hans á að verjast ákvarðanatöku kaupanda og bregðast við með réttum lagalegum úrræðum.
Varnaraðili hafnar málatilbúnaði kæranda og byggir í meginatriðum á að hæfiskröfur útboðsins séu málefnalegar, gagnsæjar og í samræmi við jafnræðis- og meðalhófsreglur laga um opinber innkaup. Kröfurnar um reynslu og hæfi séu nauðsynlegar til að tryggja öryggi og áreiðanleika lyftnaþjónustunnar á spítalanum. Þá sé því mótmælt að hugtakið sjúkrahúslyfta hafi enga staðlaða merkingu samkvæmt alþjóðlegum lyftustöðlum og sé ekki tæknilega skilgreint. Hugtakið hafi almennt viðurkennda merkingu innan lyftuiðnaðarins, sérstaklega hjá framleiðendum sem sérhæfa sig í lausnum fyrir krefjandi umhverfi. Þetta sé meðal annars staðfest af framleiðanda þeirra lyftna sem kærandi hafi boðið en sá framleiðandi skilgreini sjálfur hvað sé átt við með hugtakinu á heimasíðu sinni. Hafi kærandi talið útboðsgögn óljós hafi honum borið að leita skýringa á fyrirspurnartíma. Þá hafi hæfiskrafan hvorki verið óhófleg né mismunað fyrirtækjum heldur réttmæt og nauðsynleg. Loks vísar varnaraðili til þess að hann hafi ekki brotið gegn andmælarétti kæranda heldur veitt honum ítarlegan rökstuðning fyrir ákvörðuninni til að kynna sér ástæður höfnunar og bregðast við þeim. Kærandi hafi nýtt sér andmælarétt með því að leggja fram kæru til nefndarinnar og tryggi þessi málsmeðferð að andmælaréttur kæranda hafi verið virtur í hvívetna. Þá hafi varnaraðila verið óheimilt að veita aðgang að tilboði annars bjóðanda og matsblöðum varnaraðila enda sé um trúnaðarupplýsingar að ræða, sbr. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 120/2016.
Kone ehf. byggir í meginatriðum á að þar sem bindandi samningur hafi komist á milli hans og varnaraðila geti nefndin ekki fallist á ógildingu á ákvörðun varnaraðila um val á tilboði, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Þá vísar Kone ehf. til þess að varnaraðili hafi sett skýrar tæknilegar kröfur í útboðsgögn en kærandi hafi ekki getað með fullnægjandi hætti sýnt fram á að boðin vara hafi uppfyllt þær kröfur. Þar sem kærandi beri ábyrgð á tilboði sínu og skýrleika þess hafi varnaraðila verið óheimilt að taka tilboðinu.
II
Ágreiningur þessa máls lýtur að útboði varnaraðila á lyftum fyrir Barnaspítala Hringsins. Fyrir liggur að 30. september 2025 sendi varnaraðili tilkynningu til bjóðenda um að tilboð Kone ehf. hefði verið endanlegt samþykkt og því kominn á bindandi samningur milli aðila. Að mati kærunefndar útboðsmála verður að leggja til grundvallar að þessi tilkynning hafi haft þau réttaráhrif að með henni komst á bindandi samningur milli varnaraðila og Kone ehf., sbr. 3. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og ákvörðun nefndarinnar í þessu máli frá 27. október 2025.
Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 segir að eftir að bindandi samningur hefur komist á samkvæmt lögunum verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Af gögnum málsins verður hvorki ráðið að fyrrgreindum samningi hafi verið sagt upp eða slitið með öðrum hætti né að Kone ehf. og varnaraðili hafi komið sér saman um að afturkalla fyrrgreinda tilkynningu. Þá hefur kærandi í kjölfar ákvörðunar nefndarinnar ekki haft uppi kröfu um að samningurinn verði lýstur óvirkur.
Eina krafan sem kærandi hefur uppi í málinu er að „kærunefnd útboðsmála felli ákvörðun kaupanda úr gildi“ en að mati nefndarinnar er ljóst að krafan beinist að ákvörðun varnaraðila 17. september 2025 að velja tilboð Kone ehf. í útboðinu. Með vísan til fyrrgreindra fyrirmæla 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verður að hafna þessari kröfu kæranda.
Í greinargerð sinni hafði varnaraðili uppi kröfu um að kæranda yrði gert að greiða málskostnað sem rynni í ríkissjóð. Í 2. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 er mælt fyrir um að ef kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa geti kærunefnd útboðsmála úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað sem renni í ríkissjóð. Að mati nefndarinnar verður að telja að skilyrði þessa ákvæðis séu ekki uppfyllt og verður kröfu varnaraðila því hafnað.
Úrskurðarorð:
Kröfu kæranda, Rými – Ofnasmiðjunnar ehf., um að „kærunefnd útboðsmála felli ákvörðun kaupanda úr gildi“, er hafnað.
Hafnað er kröfu varnaraðila, Landspítalans, um að kæranda verði gert að greiða málskostnað sem renni í ríkissjóð eftir 2. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Reykjavík, 28. janúar 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir