19 febrúar 2026

/

Mál n. 794/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 794/2025

Fimmtudaginn 19. febrúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dagsett sama dag, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 6. október 2025 og var umsóknin samþykkt 31. október 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. desember 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. desember 2025. Með bréfi, dags. 8. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Viðbótarskýringar bárust frá kæranda 8. desember 2025 og voru þær sendar Vinnumálastofnun 11. desember 2025. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að Vinnumálastofnun hafi tekið ákvörðun um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til handa kæranda í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið byggð á því að kærandi hafi ekki mætt á tvo boðaða fundi hjá stofnuninni. Kærandi viðurkenni að henni beri skylda til að mæta á slíka fundi og virði þær skyldur. Jafnframt komi fram að kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun til að skýra ástæður þess að hún hafi ekki mætt á umrædda fundi. Að sögn kæranda hafi netfang hennar og aðgangur að samfélagsmiðlum orðið fyrir tölvuárás (e. hacked) í um það bil tíu daga sem hafi leitt til þess að aðgangur hennar að þessum miðlum hafi verið takmarkaður. Daginn sem seinni fundurinn hafi átt að fara fram hafi kærandi farið inn á „Mínar síður“ til að tilkynna um tekjur og atvinnuleit og hafi þá fyrst séð skilaboð frá Vinnumálastofnun.

Kærandi tekur fram að vegna takmarkaðs aðgangs hennar að tölvupósti og samfélagsmiðlum hafi eina leiðin til að hún yrði vör við skilaboð frá Vinnumálastofnun verið sú að hún færi sjálf inn á „Mínar síður“. Áður en til þess hafi komið hafi kærandi átt símtal við starfsmann Vinnumálastofnunar sem hafi upplýst hana um að líklega yrði boðað til annars fundar í desember. Af þeim sökum hafi kærandi ekki haft fundinn sérstaklega í huga. Kærandi geri sér grein fyrir því að um sérstakar aðstæður hafi verið að ræða en hafi vænst þess að stofnunin sýndi henni skilning. Hún hafi átt í miklum erfiðleikum með að endurheimta aðgang að reikningum sínum og það hafi verið henni mikið óhagræði. Þrátt fyrir samskipti hennar við stofnunina hafi greiðslur atvinnuleysisbóta engu að síður verið stöðvaðar. Kærandi bendi einnig á að hún hafi stundað nám og sótt námskeið allan nóvembermánuð sem Vinnumálastofnun gæti fengið staðfest. Kærandi hafi ekki haft neina ástæðu til að mæta ekki á þessa tvo fundi aðra en þá að hafa haft takmarkaðan aðgang að reikningum sínum.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 6. október 2025. Með erindi, dags. 31. október 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Í umsókn sinni hafi kærandi skráð að farsímanúmer hennar væri X og símanúmer X.

Þann 12. nóvember 2025 hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 14. nóvember 2025, klukkan 10:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðun þessi hafi verið send með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang í kerfi stofnunarinnar. Smáskilaboðin hafi borist í farsíma kæranda þann 12. nóvember 2025, klukkan 09:02. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan fund né tilkynnt um forföll. Kærandi hafi haft samband þann 14. nóvember 2025 og sagst hafa misst af fundinum þar sem tölvupóstur stofnunarinnar hefði farið í „ruslpóstmöppu“. Kærandi hafi verið upplýst um að hún kæmi til með að fá nýja boðun.

Þann 18. nóvember 2025 hafi kærandi aftur verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 20. nóvember 2025, klukkan 11:15. Athygli kæranda hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðun þessi hafi verið send með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang í kerfi stofnunarinnar. Smáskilaboðin hafi borist í farsíma kæranda þann 18. nóvember 2025, klukkan 14:11. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan fund né tilkynnt um forföll. Kærandi hafi sent eftirfarandi tölvupóst þann 20. nóvember 2025:

„I’m reaching out in hope to get some help from you. My email account has been hacked and as a result, important emails end up in my spam folder or completely erased from my inbox ! Last time your email was in my spam folder and today I went into Vinnumálastofnun pages and I saw.I apologize but I didn’t keep my mind on it because I spoke with a colleague of yours on the phone that said that I would get a new meeting in December. Is there a chance that I could get another meeting please?“

Kærandi hafi í símtali við stofnunina þann 24. nóvember 2025 sagst hafa orðið fyrir því að brotist hafi verið inn í símann hennar og tölvu og því hafi hún ekki séð skilaboðin um kynningarfundinn.

Vinnumálastofnun hafi formlega óskað eftir skýringum frá kæranda á fjarveru á boðaðan fund með erindi, dags. 2. desember 2025. Þann sama dag hafi eftirfarandi skýringar borist frá kæranda:

„Hello, Thank you for your kind email. As stated before, in two separate emails and through phone call, my email account was hacked which resulted to me losing access to my emails and my social media and a failed attempt on my bank account! I am not sure what you mean by SMS because I havent received any SMS in my phone number (X) I found out about the meeting on the same day, when I logged in to report my income from my casual work. Furthermore, after the first meeting when I spoke on the phone with one of your colleagues, they stated that i would get my next meeting in December. I have no reason to not attend the meetings, I'm attending Icelandic School every day since the beginning of November. I kindly ask for your understanding in this situation once more, this was beyond my reach but now it's fixed. Kind regards,A“

Með erindi stofnunarinnar, dags. 5. desember 2025, hafi kæranda verið birt ákvörðun um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skulu boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hún verið boðuð til fundar hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skulu þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á fundi Vinnumálastofnunar, hvorki 14. nóvember 2025 né 20. nóvember 2025. Kærandi hafi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðanir á umrædda kynningarfundi. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda því verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðra funda hafi verið þær að hún hafi orðið fyrir tölvuárás (e. hacked) og ekki haft aðgang að síma né tölvupósti. Skýringar kæranda séu ekki studdar neinum gögnum en bent sé á að kærandi hafi í umsókn sinni skráð farsímanúmer sitt með forskeyti X sem sé landsnúmer B og íslenskt símanúmer kæranda hafi verið skráð sem „sími“ í umsókninni. Skýringar liggi ekki fyrir um hvers vegna kærandi hafi í báðum tilvikum sem boðun hafi farið fram átt í samskiptum við stofnunina sama dag og kynningarfundir hafi verið haldnir, bæði símleiðis og/eða með tölvupósti, einkum þegar litið sé til þess að skráð netfang kæranda hafi verið notað við þau samskipti. Þá sé bent á að boðun á fundi hjá stofnuninni hafi farið fram með tilkynningu á „Mínum síðum“ stofnunarinnar. Við boðun á umrædda fundi hafi því tvívegis verið nýttar allar þær boðleiðir sem stofnunin hafi almennt til að hafa samband við atvinnuleitendur. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umræddra kynningarfunda, sérstaklega þó þann 20. nóvember 2025, hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og henni beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga á grundvelli 1. mgr. 58. gr.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 12. nóvember 2025 boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 14. nóvember 2025. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Þann 18. nóvember 2025 var kærandi aftur boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 20. nóvember 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ kæranda. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Kærandi hvorki mætti á fundina né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki mætt á boðaða fundi þar sem hún hafi orðið fyrir netárás (e. hacked) og hafi því hvorki orðið vör við skilaboð né tilkynningar um fundina. Hún hafi verið með takmarkaðan aðgang að samskiptamiðlum í síma og tölvu og aðeins séð tilkynningu frá Vinnumálastofnun þegar hún hafi komist inn á „Mínar síður“.

Þótt fyrir liggi að kærandi hafi vegna sérstakra aðstæðna ekki orðið vör við boðun þegar hún var birt verður sú skýring ein og sér ekki talin réttlæta fjarveru hennar. Litið er til þess að boðun var birt á „Mínum síðum“ sem kærandi hafði aðgang að við innskráningu. Það er á ábyrgð atvinnuleitanda að kynna sér þau skilaboð sem Vinnumálstofnun sendir þeim, enda eru allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaða fundi hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir