20 febrúar 2026
/
Úrskurður nr. 109/2026
Hinn 20. febrúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 109/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU25030055 og KNU25030056
Kæra [...] og […]
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 16. mars 2025 kærðu […], fd. […] (hér eftir A) og […], uppkomið barn A, fd. […] (hér eftir B), ríkisborgarar Kólumbíu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 28. febrúar 2025, um að synja þeim og ólögráða börnum A, […], fd. […] (hér eftir C) og […], fd. […] (hér eftir D), ríkisborgurum Kólumbíu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn A eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Kólumbíu og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn A 6. nóvember 2024. Í skýrslunni kemur fram að A sé komin til þess að sækja um alþjóðlega vernd ásamt dætrum sínum þremur, B, C og D. Þær sæki um alþjóðlega vernd á Íslandi þar sem þær hafi orðið fyrir hótunum vegna skoðana sinna í heimaríki. A sé menntaður kennari en hafi rekið veitingastað í heimaríki. B væri í listnámi og hafi verið í starfi samhliða námi. B og C væru í grunnskóla. Aðspurðar hvers vegna þær hafi ákveðið að koma til Íslands kváðu kærendur það vera vegna þess að landið væri nægilega langt frá heimaríki þeirra auk þess sem konur væru á Íslandi metnar að verðleikum og mannréttindi væru virt hér á landi. Þá kemur fram í skýrslunni að faðir C og D og foreldrar A séu búsett í Kólumbíu.
Kærendur komu til forviðtals hjá Útlendingastofnun 12. nóvember 2024. Ástæðu flótta síns frá heimaríki kvað A vera ofsóknir og að skæruliðahópar hafi reynt að taka dætur hennar. A kvaðst ekki vita um hvaða skæruliðahóp væri að ræða en vísaði til andófshópsins „Estado Mayor Central de la FARC“ og glæpahópsins „Segunda Marquetalia“. Þá kváðust kærendur tilheyra minnihlutahópi í heimabæ sínum sökum hörundslitar síns, kynþáttar og uppruna en flestir íbúar Tumaco væru af ættum frumbyggja og því dekkri á hörund en kærendur. Í forviðtali B kom fram að hann tilheyri trans samfélaginu og vilji notast við fornafnið „hann“. Ástæðu flóttans kvað B vera ofsóknir auk þess sem skæruliðaher hafi gert tilraun til þess að ræna honum. Var B þá spurður hvort hann viti um hvaða skæruliðaher hafi verið að ræða og kvað hann þá vera tengda FARC (sp. Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia). Til væru margir undirhópar FARC en B viti ekki nöfn þeirra allra og viti ekki nafn hópsins.
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun að nýju 12. desember 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. A kvaðst hafa flust til borgarinnar Tumaco í Nariño héraði í Kólumbíu árið 2010 ásamt þremur börnum sínum, B, C og D. Árið 2019 hafi A og eiginmaður hennar ráðið ungan mann (hér eftir X) til starfa. Árið 2021 hafi eiginmaður A hlotið styrk til náms við nafngreindan skóla í Tumaco. Hafi styrkurinn aðallega verið í þágu X af því að hann hafi hvorki getað lesið né skrifað. Hafi eiginmaður A farið með X í skólann í því skyni að styðja hann til náms. A kvað X hafa horfið í eina viku í ágúst 2021 en B kvað X hafa horfið í nokkra daga í ágúst 2023. Þegar X hafi snúið aftur á búgarðinn hafi hann greint fjölskyldunni frá því að bróðir sinn hefði verið drepinn af kólumbíska hernum. Umræddur bróðir X hafi að sögn X heitið „Anderson Perlaza Caicedo“ en gengið undir dulnefninu „Borojó“ og verið leiðtogi glæpahópsins „Columna Daniel Andana de las FARC“. X hafi einnig greint þeim frá því að bróðir hans og fjölskylda hefðu tengsl við glæpahópinn „United Guerillas of the Pacific“ og að X yrði nú að ganga til liðs við þann glæpahóp sem bróðir hans hefði verið meðlimur í til þess að fylla í skarð hans. B kvað fjölskylduna fram að þessu hafa þekkt umræddan X undir nafninu „Andres“ en X hafi á sama tíma upplýst fjölskylduna um að raunverulegt nafn hans væri „John Leiner Perlaza“. A kvaðst hafa beðið X um að ganga ekki til liðs við glæpahópinn heldur halda áfram að vinna á búgarði fjölskyldu kærenda og hafi öll vandræði fjölskyldunnar byrjað vegna þess.
Kærendur kváðu ógnandi símtöl hafa farið að berast fjölskyldunni í október 2021. Hafi fjölskyldunni verið sagt að fara frá Tumaco og til sinnar eigin borgar. Útskýrði A að þótt fjölskylda hennar væri ættuð frá Tumaco væru þau hvít á hörund og hafi orðið fyrir mismunun vegna þess þar sem öðrum finnist þau ekki tilheyra svæðinu. Símtölin hafi einnig snúið að því að fjölskyldan skyldi leyfa X að ganga til liðs við „þá“. Kvaðst A hafa leitað aðstoðar lögreglunnar vegna fjölda símtala en lögreglan hafi alltaf gefið þau svör að símtölin bærust frá fólki innan fangelsa. A kvaðst telja að lögreglan hefði ekki rannsakað símtölin nánar.
A greindi frá því að í apríl 2022 hafi mörgum myndum verið deilt á tilgreindum samfélagsmiðli vegna útskriftar, m.a. af eiginmanni hennar ásamt samstarfsfélögum hans og hótanir í símtölunum í kjölfarið farið versnandi. B greindi frá því að í apríl 2022 hafi stjúpfaðir hans deilt myndum af C á D á tilgreindum samfélagsmiðli vegna viðburðar í skólanum þeirra og aðstæður og símtölin hafi þá versnað. A kvað fjölskylduna hafa rekið veitingastað á búgarði og heimili fjölskyldunnar og á þessum tíma hafi einstaklingar mætt þangað og spurt starfsfólk veitingastaðarins um fjölskylduna. Af framangreindum ástæðum hafi fjölskyldan ákveðið að loka veitingastaðnum sem slíkum og afgreiða einungis pantanir sem yrðu sóttar eða sendar. Þau hafi einnig ákveðið að hætta að svara símhringingum sem bárust í síma veitingastaðarins og einungis afgreitt pantanir í gegnum skilaboð en ótilgreindur einstaklingur hafi þó mætt á staðinn og sagt starfsfólki staðarins að láta eigendur staðarins vita að þau skyldu svara símtölum. B greindi frá því að í júní 2022 hafi ótilgreindur einstaklingur komið á mótorhjóli á veitingastaðinn, rætt við starfsfólk staðarins og sagt starfsfólkinu að skila því til yfirmanna sinna að þau skyldu svara símtölum og skilaboð hafi oft verið skilin eftir fyrir þau. Kærendur kváðust einnig hafa séð mann taka myndir og myndbönd fyrir utan veitingastaðinn. Kærendur greindu frá því að 3. júlí 2022 hafi A leyft einu pari að borða á staðnum og þegar A hafi verið að fylgja þeim út af lóð staðarins hafi tveir menn á mótorhjólum komið og ráðist á A sem hafi hlotið áverka á fæti við árásina. Mennirnir hafi ávarpað A á niðrandi hátt vegna hörundslitar hennar og spurt hana hvers vegna hún svaraði ekki símanum. A hafi hvorki leitað á spítala né til lögreglunnar vegna atviksins. Kærendur kváðu umrædda menn hafa byrjað að hringja í B eftir ofangreind atvik. B hafi séð um símsvörun veitingastaðarins að sögn A og hafi þeir hótað B mannráni yrði ekki svarað í símann. A hafi leitað til lögreglunnar og á endanum hafi lögreglan komið á búgarð fjölskyldunnar til þess að taka út aðstæður. Þetta kvað A hafa átt sér stað í september 2022. B kvað sér hafa farið að berast hótunarsímtöl í sitt einkanúmer í ágúst 2022 af þeirri ástæðu að fjölskyldan hafi verið hætt að svara símtölum og símtölin hafi falist í því að ef þau létu X ekki af hendi yrði B tekinn í staðinn. Hótanir gagnvart B kvað A hafa haldið áfram fram í desember auk þess sem ótilgreindir einstaklingar hafi áfram mætt á veitingastaðinn.
Kærendur greindu frá því að 20. desember 2022 hafi eiginmaður A birt myndir af C og D á samfélagsmiðlum vegna fagnaðar í skólanum þeirra. Kvað A hótanirnar þá hafa breyst og farið að hljóða á þann veg að dætur þeirra, C og D, væru mjög fallegar og ef þau yrðu ekki við beiðni að afhenda X yrðu dætur þeirra teknar. A kvað fjölskylduna hafa leitað aftur til lögreglunnar í janúar og í febrúar hafi lögreglumaður mætt til þeirra og spurst fyrir um atvik en fjölskyldunni hafi ætíð verið tjáð að símtölin kæmu úr fangelsum.
Kærendur greindu frá því að 11. september 2023 hafi verið gerð tilraun til þess að ræna B. Kvaðst B hafa reynt að halda sig innandyra en þann dag hafi hann farið út að kaupa hundamat. Bifreið með dökkar rúður hafi keyrt mjög nálægt sér og B hafi séð mann stíga út úr bifreiðinni sem hafi gengið í átt að B, æpt á hann með nafni og sagt honum að koma til sín. B hafi tekið á sprett, flúið inn á mótel og fengið aðstoð þar og hann væri viss um að maðurinn hafi ætlað að ræna honum. Í kjölfar atviksins hafi B flutt til frænku sinnar í Bogotá, farið til sálfræðings og ekki farið einn út úr húsi. A kvaðst hafa reynt að leita til dómstóla vegna ránstilraunarinnar en hún hafi hætt við að greina frá atvikinu af ótta við tvo menn sem hún hafi séð fyrir framan húsnæði dómstólsins sem hafi gert handahreyfingar sem hafi bent til þess að þeir væru að fylgjast með henni.
A kvaðst hafa heyrt varðhunda fjölskyldunnar gelta að næturlagi 4. desember 2023. A hafi því farið ásamt eiginmanni sínum að kanna aðstæður og þau séð að hliðið inn á lóðina þeirra væri opið, lásinn hefði verið brotinn og að tilteknar minningarbækur hefðu verið skildar eftir. Kærendur kváðu að ef slíkar bækur væru gefnar án þess að andlát hefði borið að væri um morðhótun að ræða. Þá kvað B að í bókinni hafi staðið „fyrir stelpurnar og kennarann“ og þar sem A hafi starfað sem kennari í Kólumbíu hafi B ályktað að bókin vísi til sín, móður sinnar og systra.
Hinn 11. desember 2023 hafi síðan aftur verið fögnuður vegna loka skólaárs C og D og eiginmaður A birt myndir af C og D á samfélagsmiðlum. Kvað A að er fjölskyldan hafi snúið heim úr fögnuðinum hafi vinnufólk á búgarðinum tjáð henni að menn hafi komið og lýst ánægu sinni með að C og D væru tilbúnar. A hafi ákveðið að flýja frá Tumaco til Bogotá 24. desember 2023 og eiginmaður hennar hafi sameinast þeim 30. desember en hann hafi orðið eftir í Tumaco til þess að selja veitingastað fjölskyldunnar. Þá kvað A áðurnefndan X hafa yfirgefið Tomaco í janúar 2024. B kvað fjölskylduna ekki vita núverandi dvalarstað X.
A greindi frá því að einstaklingar hafi haldið áfram að koma á veitingastað búgarðsins í janúar 2024 og spurt hvort fjölskyldan væri í Bogotá. B kvað kaupendur veitingastaðarins hafa greint þeim frá því að glæpahópurinn hafi haldið áfram að spyrja um fjölskylduna og haft vitneskju um að fjölskyldan dveldi í Bogotá. Kváðu kærendur fjölskylduna því hafa ákveðið að færa sig, flýja lengra, og fara til Ubaté borgar. Þau hafi komið til Ubaté 9. febrúar 2024 og kvaðst A hafa leitað til lögreglunnar í Ubaté og tjáð lögreglunni þar að fjölskyldan væri fórnarlamb hótana og árása vopnaðra manna. Þá kvað B að minningarbók hafi verið skilin eftir á heimili ömmu sinnar í Tumaco í febrúar. Kvað B móður sína hafa tilkynnt lögreglunni allt það sem gerst hefði hinn 29. febrúar 2024.
Kærendur greindu einnig frá því að C hefði orðið fyrir tilraun til kynferðisofbeldis. Kvað A að C hefði orðið fyrir tilraun til kynferðisofbeldis í janúar 2023 en C hafi ekki greint A frá því strax. Þegar hún hafi gert það hafi þær mæðgur ákveðið að leita til lögreglunnar í Ubaté vegna tilraunarinnar. Kvað A að nokkrum dögum síðar hafi móðir sín hringt í sig og greint sér frá því að einstaklingar hefðu komið og spurt hvort fjölskyldan væri í Ubaté. A kvað lögregluna einnig hafa haft samband við sig og spurst fyrir um C vegna tilkynningar þeirra og í ágúst 2024 hafi lögreglukona hringt í A og óskað eftir heimilisfangi fjölskyldunnar í því skyni að kanna stöðu C. Enginn hefði hins vegar mætt heim til þeirra frá lögreglunni eftir símtalið. B kvað fjölskylduna hafa fengið símtal á milli júlí og ágúst 2024 þar sem spurst hafi verið fyrir um líðan systur hans og símtal lögreglukonunnar hafi verið 23. ágúst 2024. Konan hafi að þeirra sögn talað með sama hrein og margir íbúar Tumaco. Þá kvaðst A hafa fengið símtal 17. september 2024 frá ótilgreindum einstaklingi sem hafi tjáð henni að hann vissi að hún væri í Ubaté og að þeir væru á leið til hennar. Kvað A viðkomandi hafa viljað vita allar upplýsingar um fjölskylduna hennar og X. Daginn eftir, 18. september 2024, hafi yfirvöld í Ubaté bent A á að fara með C til barnaverndaryfirvalda vegna kynferðisofbeldisins sem þær hefðu tilkynnt og þegar þær hafi farið þangað hafi A áttað sig á að lögreglukonan væri frá Tumaco. Þá kvað B allt benda til þess að umrædd lögreglukona væri frá kyrrahafssvæðinu þar sem 90% þeirra íbúa væru dökkir á hörund eins og lögreglukonan. B hafi tekið nokkrar myndir, m.a. af lögreglukonunni. Daginn eftir hafi sama lögreglukona gengið upp að eiginmanni A, C og D er þau voru úti í miðborginni og óskað eftir að sjá skilríki þeirra. Kvaðst A hafa ákveðið þann dag að flýja til Íslands og hún hafi ekki svarað fleiri símtölum í kjölfar þessa. B kvað lögreglukonuna hafa spurt um skilríki föður hans og systra er þau sátu í almenningsgarði nokkrum dögum eftir að A, B og C höfðu mætt til barnaverndaryfirvalda. Þá kvaðst A hafa ætlað að tilkynna framangreinda atburði til yfirvalda 30. október 2024, áður en hún færi frá Kólumbíu, en hún hafi orðið hrædd og snúist hugur þegar hún hafi séð sömu lögreglukonu ganga á móti sér.
Kærendur kváðu farangur sem móðir A hefði sent til þeirra hinn 18. október 2024 hafa borist seint, n.t.t. 25. október s.á. og kvaðst A telja að það hafi verið vegna afskipta glæpahóps af farangrinum. Kváðu kærendur að þegar eiginmaður A hafi nálgast farangurinn og opnað töskuna hafi þar verið tvær minningarbækur til viðbótar og enginn fatnaður. Bækurnar kvað B hafa vísað annars vegar til B, C og D og hins vegar til A og eiginmanns hennar. Þá kvað B starfsmenn ferðaskrifstofu hafa útskýrt að glæpahópur hafi stöðvað flutning farangursins þar sem hópurinn hafi vitað að farangurinn væri á leið til fjölskyldunnar.
Eiginmann sinn kvað A vera búsettan í Bogotá en hann væri í felum í Kólumbíu og hafi ekki komið til Íslands ásamt fjölskyldunni sökum skorts á fjármunum en A væri enn í samskiptum við hann. Kvað B að eiginmaður A ætli síðan til fjölskyldu sinnar í Mexíkó. Aðspurð hvort eiginmanni A hafi borist ógnandi símtöl eftir brottför A kvað hún svo vera og að aðilarnir beiti fjölskylduna þrýstingi. Þeir vilji ræna dætrum A og fá upplýsingar til þess að þeir geti rænt X. Foreldra sína kvað A enn vera búsett á búgarðinum og hún væri enn í samskiptum við þau. Aðspurð hvort einhver hefði spurt foreldra A um hana í kjölfar brottfarar hennar frá heimaríki kvað hún foreldra sína hafa tjáð sér að síðasta áreitið frá aðilunum hafi verið ógnandi kassi. Var B þá spurður hvort hann hafi orðið fyrir einhverjum hótunum eftir að hann kom til Íslands kvað hann glæpahópinn halda áfram að spyrja um fjölskylduna á veitingastaðnum og vísaði til töskunnar.
Fyrsta árið sem hótunarsímtölin bárust kvað A þau hafa snúið að því að þeir sem hafi hringt hafi viljað fá X til liðs við sig en eftir það hafi hótanirnar einnig snúið að börnum hennar og kvað það vera rétt að hótanirnar hafi snúið að því að hópurinn tæki börn hennar ef hópurinn fengi ekki X. Var A þá spurð hvort hópurinn hafi reynt að ræða við X í eigin persónu á búgarðinum og kvaðst A ekki vita það. Aðspurð hvort X hafi vitað að fjölskylda hans hafi verið að leita að honum kvað A að þau viti að lögreglan starfi með glæpahópum og þau hafi vitað að enginn gæti aðstoðað. Aðspurð hvort einungis hafi verið um að ræða símtöl eða skilaboð kvað A einnig hafa verið um að ræða myndir af byssum og vopnum en hún hafi týnt símanum sínum svo hún hafi ekki tök á að nálgast skilaboðin. Er B var spurður hvort hann teldi glæpahópinn hafa reynt að ná sambandi við X með því að koma á heimili fjölskyldunnar svaraði B að hann vissi ekkert um staðsetningu X en teldi það tiltölulega auðvelt fyrir hópinn að ná tali af X. Aðspurður hvort meðlimir hópsins hafi klæðst auðkennandi merkjum eða fatnaði, kvað B hópinn klæðast svipuðum fötum og lögreglan svo ekki væri hægt að greina hvort um væri að ræða lögreglumenn eða meðlimi glæpahópsins auk þess sem þeir klæðist einnig venjulegum fötum.
Var A þá spurð hvað hafi einkennt þá sem hafi hótað fjölskyldunni svaraði A að utan borgarinnar hafi þeir notað derhúfur en erfitt væri að bera kennsl á þá. Var hún þá spurð um nafn glæpahópsins og kvaðst hún ekki vera viss en hún teldi hópinn heita „Segunda Marquetalia“ eða „Commando Central“. Hóparnir væru tengdir stærri hópi, EX-FARC og bróðir X hafi verið meðlimur í hópi „Guerillos Unidas del Pacifico“ sem væri hluti af „Comando Central“. Þá væri hún ekki viss hvort hópurinn hafi beint sjónum sínum að fjölskyldunni vegna þeirrar aðstoðar sem fjölskyldan hafi veitt X. Var A þá spurð hvort hún teldi mennina enn leita að sér vegna X eða vegna barna hennar kvaðst hún halda að megináhersla hópsins væri að taka börn hennar.
Kærendur kváðust óttast yfirvöld, glæpahópa og skæruliðahópa í heimaríki. Þá greindu þau frá því að lögreglan í heimaríki væri spillt. Vísaði A til þess að þegar hún hafi leitað til lögreglunnar hafi hópurinn getað fundið þau með aðstoð lögreglunnar. Kærendur óttist um líf sín, C og D, og að vera beitt ofbeldi í heimaríki. A óttist að hún gæti verið myrt, pynduð, ráðist yrði á börn hennar eða þeim rænt snúi þau aftur til heimaríkis. B óttist að hópurinn gæti fundið þau, myrt og rænt systrum hans og skyldað þær til að ganga til liðs við hópinn. Þá geti þau ekki búið annars staðar í heimaríki og verið örugg. Kvaðst A þegar hafa reynt það og það hafi ekki gengið. Kærendur töldu yfirvöld ekki geta veitt sér aðstoð eða vernd.
Kærendur kváðust tilheyra minnihlutahópi í heimabæ sínum, Tumaco, sökum hörundslitar. Þá kvaðst B tilheyra minnihlutahópi í heimaríki þar sem hann væri trans einstaklingur. Hann hafi áttað sig á því að hann væri mögulega trans þegar hann var um 13 ára gamall. Afstöðu fólks í heimaríki kærenda gagnvart trans einstaklingum kvað B vera slæma og hann hafi ekki getað tjáð kynvitund sína út á við í heimaríki. B hafi greint nánustu fjölskyldu sinni frá því að hann væri trans og einum vini. Aðspurður hvort B hafi staðið frammi fyrir tilteknum áskorunum eða mismunun þar sem hann væri trans kvað hann svo vera, tekið væri eftir klæðaburði og fólk hafi komið fram við hann á slæman og fordómafullan hátt. Var B þá spurður hvort hann gæti lýst tilteknum atvikum þar sem honum hafi fundist hann óöruggur eða hann orðið fyrir skaða vegna þess að hann væri trans og kvaðst hann ekki hafa orðið fyrir slíku. Honum finnist hann vera einangraður vegna kynvitundar sinnar en hafi eignast vini sem tilheyri hinsegin samfélaginu á veraldarvefnum. Kynvitund sína kvað B vera eina af ástæðum flótta hans frá heimaríki.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum C og D kemur fram að óskað hafi verið eftir því að fá C og D til viðtala hjá Útlendingastofnun en A hafi ekki viljað það. A hafi ætlað að hugsa sig um en engin svör hafi síðan borist frá A.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og börnum A synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum A var brottvísað frá landinu.
Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 16. mars 2025 og kærunefnd barst greinargerð A, C og D 28. maí 2025. Með tölvubréfum 28. og 30. janúar 2026 óskaði kærunefnd eftir frekari útskýringum og upplýsingum frá kærendum og veitti færi á að leggja fram greinargerð í máli B. Svör bárust kærunefnd 12. febrúar 2026 ásamt viðbótargreinargerð í máli A, C og D. Frekari svör bárust kærunefnd 19. febrúar 2026 ásamt viðbótarathugasemdum vegna kæru B og viðbótargögnum.
Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði þeirra.
Um einstaklingsbundnar aðstæður kærenda, C og D er vísað til viðtala kærenda hjá Útlendingastofnun, greinargerða þeirra til stofnunarinnar og annarra gagna málanna.
Í greinargerð er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kærenda og því mati mótmælt. Byggja kærendur á því að rannsókn Útlendingastofnunar og framkvæmd trúverðugleikamats sé svo ábótavant að leitt hafi til rangrar niðurstöðu í málinu. Byggja kærendur á því að stofnunin hafi brotið gegn rannsóknarskyldu sinni og andmælarétti kærenda með því að leiðbeina þeim ekki um þær upplýsingar eða gögn sem stofnunin taldi vanta og með því að veita þeim ekki færi á að leiðrétta meint misræmi eða gefa frekari skýringar þar sem stofnunin taldi þörf á. Fara kærendur þess á leit við kærunefnd að þeim verið gefinn kostur á að mæta fyrir nefndina, gera grein fyrir máli sínu og svara eftir atvikum spurningum nefndarinnar, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga, til þess að bæta megi úr ágöllum á málsmeðferð Útlendingastofnunar. Þá er vísað til landaskýrslna og mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Kólumbíu mótmælt.
Kærendur krefjast þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggja kærendur á því að þau hafi ástæðuríkan ótta við að verða ofsótt í heimaríki sínu vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi og almenns öryggisástands í Kólumbíu. B byggi einnig á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki þar sem hann tilheyri þjóðfélagshópi sökum kynvitundar. Framangreint auki hættu hans á ofsóknum í heimaríki vegna almennrar mismununar og þar sem hann tilheyri sýnilegum minnihlutahópi á svæði þar sem vopnaðir hópar hafi ítök.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefjast kærendur þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Til þrautavara krefjast kærendur þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð A til kærunefndar er byggt að kærendur hafi sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd af heilbrigðisástæðum, vegna erfiðra félagslegra aðstæðna og erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki, og eigi því rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Til þrautaþrautavara krefjast kærendur þess að ákvarðanir í málum þeirra og barna A verði felldar úr gildi og Útlendingastofnun gert að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar.
Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð A eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur A að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglunni og andmælarétti.
Af lestri hinna kærðu ákvarðana verður ekki séð að Útlendingastofnun hafi lagt mat á aðstæður kærenda í heimabæ þeirra, Tumaco í Nariño fylki og raunverulegan möguleika kærenda á aðstoð lögreglu þar. Bætt hefur verið úr framangreindum annmörkum við málsmeðferð á kærustigi og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að þeir annmarkar hafi ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Kærunefnd hefur að öðru leyti farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Alþjóðleg vernd
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum fyrir sig og ólögráða börn A Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og ólögráða börn A hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og ólögráða börn A séu kólumbískir ríkisborgarar.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (US Department of State, 12. ágúst 2025)
- ACLED Dashboard, skráð atvik í Kólumbíu frá 1. apríl 2023 – 28. október 2024;
- ACLED Explorer, skráð atvik í Kólumbíu frá 20. ágúst 2024 – 21. ágúst 2025 (https://acleddata.com/platform/explorer);
- Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2024 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2025);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
- BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
- Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
- Colombia(skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
- Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
- Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
- Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
- Colombia: Country Focus(EUAA, desember 2025);
- Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and
- State Protection (mars, 2020);
- Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
- Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
- Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
- The Colombia Collaborative Project: Stress, health and wellbeing of LGBT people in Colombia (UCLA School of Law, apríl 2020);
- Colombia – Overview of the Education System (OECD, Education at a glance 2025);
- Colombia: Urgent Updates October 2024 (WOLA, Advocacy for Human Rights in the Americas, 17. október 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2023 (Organization for Economic Co-operation and Development, 26. ágúst 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
- Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
- Colombia Travel Advisory(US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 17. janúar 2025);
- Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 24. febrúar 2025);
- Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
- Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
- Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
- Freedom in the World 2025 – Colombia (Freedom House, 2025);
- GameChangers 2023; Unintended Consequences for Colombia’s ‘Total Peace’ (Insight Crime, 29. desember 2023);
- Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
- Gender, Sexuality and Gender Based Violence (Human Rights Watch, 2021);
- Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia(BBC, 20. júní 2022);
- How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
- ISSA Country profiles – Colombia (The International Social Security Association, 1. janúar 2023);
- Latin America and the Caribbean – September 2024 (Acled Data, 4. október 2024);
- Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. september 2024);
- Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
- LGBT Rights in Colombia (Equaldex, https://www.equaldex.com/region/colombia, síðast skoðað 16. febúar 2026);
- Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
- Mental Health ATLAS 2020. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 15. apríl 2020); More than 60 LGBT, intersex people killed in Colombia in the first eight months of 2020 (Reuters, 11. mars. 2020);
- National Liberation Army (ELN) (InSight Crime, 18. júní 2024);
- Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
- Public Statement by Chair of Working Group on Children and Armed Conflict (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 9. september 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 12. júlí 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 14. febrúar 2024);
- Resolution 2573(2023) (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 11. janúar 2023);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia(Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
- The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023(Amnesty International, 24. apríl 2024);
- The State of the World’s Human Rights; Colombia 2024(Amnesty International, 29. apríl 2025);
- The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 6. ágúst 2025);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
- United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
- Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia?(The Dialogue, 8. febrúar 2023);
- World Report 2023 – Colombia Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Colombia Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- World Report 2025 – Colombia Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025);
- World Report 2026 – Colombia Events of 2025 (Human Rights Watch, 4. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu Alþjóðabankans(https://datos.bancomundial.org/pais/colombia, skoðað 9. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co):
- Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
- Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, síðast sótt 26. september 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System International Insurance, síðast sótt 26. september 2024) og
- Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.
Í framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar og ill meðferð af hálfu öryggissveita ríkisins og vopnahópa, víðtæk spilling innan ríkisstofnana, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu auk ofbeldis gegn minnihlutahópum s.s á grundvelli uppruna, kynhneigðar og kynvitundar. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og notist við barnahermenn. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há í Kólumbíu og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Nariño, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2025 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins.
Í skýrslu EUAA frá desember 2025 kemur fram að á fyrri helmingi 2025 hafi ofbeldi vegna vopnaðra átaka aukist í Kólumbíu vegna baráttu glæpa- og vopnaðra hópa um landsvæði og yfirráð yfir ólöglegum hagkerfum. Um 1,45 milljón íbúa hafi fundið fyrir áhrifum þess, n.t.t. fjórum sinnum fleiri en á sama tímabili árið 2024. Einnig væri aukning í fjöldaflótta (e. mass displacement), takmörkunum á ferðum borgara, morðum og dauðföllum vegna ofbeldis. Þá hafi 84% fórnarlamba vegna vopnaðra átaka tilheyrt héruðunum Chocó, Cauca, Guavire og Norte de Santander. Náttúruhamfarir hafi haldið áfram að hafa áhrif á svæði sem þegar hafi þjáðst af átökum, einkum héruðin Antioquia, Nariño, Arauca, og Amazonas og þannig gert ástandið verra. Öryggisástand og eðli átaka sé mjög mismunandi innan Kólumbíu. Heimildir bendi til þess að ólöglegir vopnaðir hópar hafi aukið viðveru sína í landinu, þar á meðal á afskekktum svæðum. Aukningin sé nátengd vilja þeirra hópa til að græða m.a. á fíkniefnasmygli og ólöglegri námuvinnslu. Á einhverjum svæðum hafi slíkir hópar stofnað til samstarfs sín á milli. Fjöldi vígamanna hafi aukist frá um 15 þúsund einstaklingum um mitt ár 2022 í tæplega 22 þúsund einstaklinga í júní 2025 og í nóvember 2025 hafi fjöldi vígamanna verið rúmlega 25 þúsund. Þau svæði sem helst hafi orðið fyrir áhrifum ofbeldis séu gjarnan þau svæði sem áður hafi verið stjórnað af FARC-EP og búi yfir umtalsverðum auðlindum sem deilt sé um, líkt og kókaínrækt eða ólöglegri námuvinnslu. Þar á meðal séu héruðin Antioquia, Norte de Santander, Bolívar, Cauca, La Guajira, Chocó, Nariño, Putumayo, Caquetá, Guaviare, Meta, Valle del Cauca og Arauca. Samkvæmt upplýsingum sem EUAA hafi aflað frá ACLED hafi nærri 60% allra ofbeldistilvika á tímabilinu 1. janúar til 24. október 2025 átt sér stað í fimm héruðum Kólumbíu, n.t.t. í héruðunum Cauca, Antioquia, Norte de Santander, Nariño og Arauca. Heimildir EUAA hafi bent á skort á viðveru yfirvalda á ýmsum svæðum landsins, einkum við Kyrrahafsströndinni og utan þéttbýliskjarna þar, ekki síst vegna lélegra innviða, einkum lélegs vegakerfis, sem geri aðgengi að afskekktustu svæðunum erfiðara. Erfitt og nánast ómögulegt sé að tilkynna um tiltekna glæpi á einangruðum og afskekktum svæðum, s.s. svæðum þar sem íbúar séu undir eftirliti vopnaðra hópa og lögregla fari ekki inn á þau svæði. Í nóvember 2025 hafi varnarmálaráðherra Kólumbíu gefið til kynna að herinn og lögregluyfirvöld hafi aukið aðgerðir gegn glæpahópum um 20%.
Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin. Samkvæmt fréttum á veraldarvefnum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN, dags. 20. febrúar 2024, sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til að loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024. Í skýrslu Freedom House frá árinu 2025 kemur fram að ríkisstjórn Petro hafi haldið áfram vinnu sinni við áætlun sína um algjöran frið (e. Total Peace) með ýmsum aðgerðum. Dregið hafi verulega úr skærum á milli vopnahópa og öryggissveita ríkisins árið 2024. Í skýrslu nefndar Ameríkuríkja um mannréttindi (e. Inter-American Commission on Human rights) fyrir árið 2024 kemur fram að stjórnvöld hafi ráðist í ýmsar aðgerðir til þess að styrkja lýðræðið og efla öryggi borgaranna. Liður í því hafi verið að víkka aðgerðir innan áætlunarinnar um algjöran frið og ná fleiri hópum að samningaborðinu. Ýmsar áskoranir hafi þó dregið úr árangri þessara aðgerða. Til að mynda hafi síðustu viðræðum við ELN lokið á þá leið að ekki hafi náðst nema að takmörkuðu leyti að semja um áframhaldandi vopnahlé sem hafi leitt til aukins ofbeldis á ákveðnum svæðum. Árangur hafi þó náðst í viðræðum við önnur glæpasamtök í landinu og dregið hafi úr glæpa- og morðtíðni á þeim svæðum, s.s. í Medellín, Valle de Aburrá, Quibdó og Buenaventura.
Samkvæmt upplýsingum af síðu InSight Crime um ELN hafi þau upphaflega verið stofnuð á sjöunda áratugnum sem þjóðernishreyfing undir áhrifum frá kúbversku byltingunni og séu samtökin síðasti stóri uppreisnarhópurinn í Kólumbíu. Samtökin séu með starfsemi bæði í Kólumbíu og Venesúela og hafi stundað mannrán, fjárkúganir, ólöglega námuvinnslu og fíkniefnaviðskipti. Hin síðari ár hafi hópurinn eflst og stækkað yfirráðasvæði sín m.a. inn fyrir landamæri Venesúela. Þrátt fyrir að friðarviðræður við kólumbísk stjórnvöld hafi mjakast áfram séu innri klofningur og andstaða við afvopnun innan samtakanna gríðarleg áskorun. ELN hafi aukið starfsemi sína á svæðum þar sem kólumbísk stjórnvöld séu veikari fyrir auk þess að vinna í samstarfi við venesúelsk stjórnvöld innan landamæra Venesúela. Þá hafi samtökin starfsemi víða í Kólumbíu en séu öflugust í fylkjunum Chocó, Norte de Santander og Arauca.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.
Í skýrslu kanadíska innflytjenda- og flóttamannaráðsins (e. Immigration and Refugee Board of Canada) kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 9,6% árið 2024 en hafði verið 10,5% árið 2022. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum hefur heilbrigðiskerfið í Kólumbíu verið með þeim bestu í heiminum og samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) frá árinu 2000 var Kólumbía þá í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu sé opinbert sjúkratryggingarkerfi (s. Entidades Promotoras de Salud (EPS)). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013 og sérstök aðgerðaráætlun um geðheilbrigðismál frá árinu 2018. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli.
Í skýrslu kanadísku innflytjendastofnunarinnar kemur fram að kynbundið ofbeldi sé útbreitt í Kólumbíu. Ofbeldi gegn konum og nauðganir, þ. á m. nauðganir í hjónaböndum, séu vandamál í landinu. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi aukist í Covid 19-heimsfaraldinum en að löggjöf í landinu kveði á um jafnrétti kvenna. Í skýrslu Freedom House kemur fram að um 20 prósent þingsæta í hverri þingdeild sé í höndum kvenna og varaforseti Kólumbíu sé kona. Löggjafinn hafi um árabil hunsað réttindi kvenna en árið 2021 hafi lög verið samþykkt sem ætlað sé m.a. að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður kvenna. Í framangreindum skýrslum kemur fram að kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er lúti að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum í þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi lög verið sett árið 2014 til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á kólumbísk stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi, hvort sem það sé líkamlegt eða andlegt. Þá kveði kólumbísk lög á um 21 til 50 ára fangelsisvist fyrir kynbundin morð á konum (e. femicide) sem sé talsvert þyngri refsing en við morðum af öðrum ástæðum, sem varði að lágmarki 13 ára fangelsisvist. Í skýrslu fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynferðislegt ofbeldi í Kólumbíu kemur m.a. fram að stofnun um velferð fjölskyldunnar (s. Instituto Colombiano de Bienestar Familiar) sé starfrækt í landinu. Stofnunin vinni að alhliða velferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra og reki svæðisbundnar fjölskyldumiðstöðvar í öllum borgum landsins. Skrifstofa umboðsmanns standi auk þess vörð um mannréttindi bæði þolenda og gerenda þegar um ofbeldi sé að ræða, m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Í skýrslunni kemur fram að starfræktar séu neyðarlínur, þar sé hægt að tilkynna kynbundið ofbeldi. Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá 2023 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Stjórnlagadómstóll Kólumbíu hafi áréttað skyldu fyrirtækja til að bregðast við og refsa fyrir kynbundið ofbeldi á vinnustað. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot.
Í yfirliti frá Efnahags- og framfarastofnuninni um menntamál í Kólumbíu fyrir árið 2023 og á heimasíðu World Education News+Reviews kemur fram að í landinu sé skyldubundið grunnskólanám öllum að kostnaðarlausu. Flestir skólar séu ríkisreknir og gert að fylgja lögboðnum námsskrám sem gefin séu út af menntamálaráðuneyti Kólumbíu. Það framfylgi ákveðnum gæðastöðlum menntunar.
Í Kólumbíu eru til staðar lög sem eiga að tryggja jafnrétti og bann við mismunun en í desember 2011 voru lög gegn mismunun á grundvelli þjóðernis, kynferðis eða kynhneigðar samþykkt. Við gerð friðarsamkomulagsins FARC var sérstaklega fjallað um ofbeldi sem beinst hafði að hinsegin einstaklingum og kveðið á um sérstakar bætur og aðgerðir til þess að koma til móts við þann hóp við framkvæmd samkomulagsins. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram kólumbísk yfirvöld hafi sett sér aðgerðaráætlun fyrir árin 2019 til 2022 um réttindi hinsegin fólks og unnið að því að framfylgja henni. Aðgerðaráætlunin hafi miðað að því að tryggja réttindi hinsegin fólks, m.a. borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, ásamt því að efla menntakerfið, lýðræðislega þátttöku, heilbrigðisþjónustu, atvinnu- og húsnæðismarkaðinn og styðja við íþróttaiðkun og þátttöku í menningarstarfi. Í október árið 2019 sigraði Claudia López kosningar um borgarstjórastólinn í Bógóta og varð þar með fyrsta konan og fyrsti opinberlega hinsegin einstaklingurinn til að vera kjörin í það embætti. Þá hafi stjórnlagadómstóll í landinu samþykkt í ágúst 2020 að ríkið skuli bera kostnað af kynleiðréttingaraðgerðum. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að tilkynnt hafi verið um ofbeldi og kynferðisofbeldi gegn hinsegin fólki. Samkvæmt frjálsu félagasamtökunum Colombia Diversa hafi 23 morð verið framin á hinsegin einstaklingum frá 1. janúar til 10. september 2023, þar af hafi verið 12 samkynhneigðir karlar, sex transkonur, þrjár samkynhneigðar konur, einn transmaður og einn kynsegin einstaklingur. Refsileysi hafi viðgengist vegna glæpa gegn hinsegin fólki, sérstaklega gegn transfólki. Í skýrslu EUAA frá desember 2025 kemur fram að löggjöfin heimili m.a. einstaklingum að breyta nafni sínu og skráningu kyns í þjóðskrá (e. civil registry) Kólumbíu. Ný lög hafi verið sett árið 2023 sem beinist gegn ójöfnuði og miði að því að styrkja réttindi minnihlutahópa, þar á meðal hinsegin fólks. Í mars 2025 hafi verið samþykkt þjóðaráætlun til tíu ára varðandi réttindi hinsegin fólks (e. National Policy for the Guarantee of the Rights of the LGBTIQ Population). Árið 2023 hafi fleiri en 4.190 einstaklingar, sem skilgreina sig sem hinsegin, orðið fyrir ofbeldi. Undir árslok 2024 hafi fleiri en 6.500 hinsegin einstaklingar verið þolendur ofbeldis. Á landbyggðinni verði hinsegin einstaklingar fyrir ofbeldi frá samfélaginu, einkum frá vopnuðum hópum, og verði fyrir mismunun af hálfu lögreglu og menntastofnunum á þéttbýlissvæðum. Árið 2023 hafi félagasamtökin Colombia Diversa skráð hótanir, sem aðallega hafi stafað frá vopnuðum hópum og ótilgreindum aðilum, í garð 203 einstaklinga sem skilgreini sig sem hinsegin, 78 tilvik lögregluofbeldis gegn 89 hinsegin einstaklingum og 159 morð á aðallega samkynhneigðum karlmönnum og trans konum. Í skýrslu nefndar Ameríkuríkja um mannréttindi fyrir árið 2024 kemur fram að stjórnvöld hafi það ár hrundið af stað aðgerðum til þess að tryggja réttindi hinsegin einstaklinga. Stofnaður hafi verið sérhæfður hópur sem ætlað sé að rannsaka glæpi sem byggist á fordómum, með áherslu á morð, kvenmorð, mismunun og áreiti. Landlæknir hafi gefið út sérstakar leiðbeiningar til þess að tryggja fullnægjandi heilbrigðisþjónustu fyrir transfólk. Þá hafi þingið samþykkt lög sem banni bælingarmeðferð (e. conversion therapy) og lög um réttindi transfólks. Fyrri lögin hafi þó ekki komist til framkvæmda. Í höfuðborg landsins Bógóta hafi borgarráð samþykkt drög að samkomulagi til að tryggja réttindi hinsegin barna og ungmenna í skólastofnunum. Af upplýsingum á heimasíðunni Equaldex má ráða að viðhorf í garð hinsegin einstaklinga hafi farið batnandi á síðustu árum og séu viðhorf almennings jákvæðara í garð hópsins, s.s. hvað varðar samkynja hjónabönd, barneignir og ættleiðingar, en hafði verið árið 2022. Í framangreindum heimildum kemur fram að þrátt fyrir aðgerðir til að auka réttindi og vernd hinsegin fólks hafi verið tilkynnt um ofbeldi og mismunun auk kynferðisofbeldis. Kvartanir hafi verið lagðar fram vegna framgöngu öryggissveita í þessum málum og varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Í skýrslu mannréttindaráðs Ameríkuríkja kemur fram að skrifstofa umboðsmanns hafi skráð 286 mál um ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum frá janúar til maí 2024 og að samkvæmt frjálsum félagasamtökum hafi að minnsta kosti 28 trans einstaklingar verið myrtir árið 2024.
Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi á hættu ofsóknir í heimaríki af hálfu glæpahóps þar sem þau hafi staðið í vegi fyrir því að starfsmaður á búgarði fjölskyldunnar myndi ganga til liðs við hópinn þrátt fyrir kröfu hópsins þar um.
Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðu kærendur aðalástæðu flótta þeirra frá heimaríki hafa verið hótanir og áreiti glæpahóps sem fjölskyldan hafi lent upp á kant við vegna þess að fjölskyldan hafi ekki heimilað X, starfsmanni á búgarði fjölskyldunnar, að ganga til liðs við hópinn eftir andlát bróður X. A kvað X hafa horfið í um viku í ágúst árið 2021 en B kvað hann hafa horfið í nokkra daga árið 2023. Með tilliti til frásagna kærenda og málatilbúnaðar þeirra verður við úrlausn málsins lagt til grundvallar að kærendur byggi á því að X hafi horfið í ágúst 2021. Kærendur kváðust hafa þekkt X undir nafninu „[…]“ en eftir að hann hafi snúið aftur hafi hann greint þeim frá því að raunverulegt nafn hans væri „[…]“ og að hann yrði að ganga til liðs glæpahóp sem bróðir X hefði farið fyrir. Kærendur hafi verið á móti því og hvatt X til að dvelja lengur hjá fjölskyldunni. Kærendur greindu frá því að hótunarsímtöl hafa farið að berast fjölskyldunni í október 2021 og símtölin hafi farið versnandi í apríl 2022. Auk þess hafi einstaklingar mætt á veitingastað fjölskyldunnar og spurt starfsfólk staðarins um fjölskylduna. Þá hafi ótilgreindir einstaklingar mætt á veitingastaðinn þrátt fyrir að staðurinn væri lokaður, tekið myndir og sagt starfsfólki staðarins að láta eigendurna vita að þau skyldu svara símtölum. Hinn 3. júlí 2022 hafi tveir menn á mótorhjóli ráðist á A og eftir atvikið hafi B verið hótað símleiðis. Þær hótanir og heimsóknir ótilgreindra aðila hafi haldið áfram fram í desember 2022 en þá hafi hótanirnar farið að beinast einnig að C og D yrði fjölskyldan ekki við þeirri beiðni að afhenda X. Hinn 11. september 2023 hafi verið gerð tilraun til þess að ræna B og að næturlagi 4. desember 2023 hafi A séð að hliðið inn á lóðina þeirra hafði verið opnað og fundið tilteknar minningarbækur. Í þeim fælist morðhótun að sögn kærenda og þau hafi einnig fengið slíka hótun í október 2024 þegar slíkar bækur hafi verið skildar eftir í farangri sem móðir A hafi sent til hennar. Fjölskyldan hafi öll verið komin til Bogotá í lok desember 2024 en ótilgreindir einstaklingar hafi haldið áfram að mæta á veitingastað fjölskyldunnar og vísað til þess að þeir vissu staðsetningu fjölskyldunnar svo fjölskyldan hafi flust til Ubaté borgar. Kærendur byggðu einnig á því að lögreglukona í Ubaté væri frá Tumaco og hafa tengsl við þann glæpahóp sem áreitt hefði kærendur auk þess sem lögreglan hefði gefið glæpahópnum upplýsingar um heimilisfang fjölskyldunnar.
Með tilliti til framlagðra gagna og frásagna kærenda er að mati kærunefndar ekki ástæða til að draga í efa að fjölskyldan hafi rekið veitingastað á búgarði fjölskyldunnar.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram fjölmörg gögn máli þeirra til stuðnings, þar á meðal myndir sem bera með sér að sýna nafngreindan skóla í heimaborg kærenda sem þau byggi á að X hafi stundað nám við. Á myndunum má sjá menn í grænum bolum og á tveimur myndanna það sem virðist vera einhverskonar veiting viðurkenninga. Kærendur lögðu einnig fram myndband sem ber með sér að vera á vegum sama skóla og er í myndbandinu tekið viðtal við einstakling að nafni „[…]“ sem kveðst vera að læra byggingariðn (s. „Estudiante del programa de construcción“).
Með tölvubréfi kærunefndar 28. janúar 2026 óskaði nefndin m.a. eftir nánari upplýsingum um framangreindar myndir, einkum skýringa á því hverjir sæjust á myndunum, hvenær myndirnar hafi verið teknar, við hvaða tilefni og hvernig A hafi fengið myndirnar í hendurnar. Óskaði nefndin einnig skýringa á því hvaða þýðingu A teldi framangreindar myndir og myndband hafa fyrir mál sitt hjá íslenskum stjórnvöldum og vísaði til þess að umrætt myndband væri birt á samfélagsmiðlasíðu skólans. Svör bárust 12. febrúar 2026. Fram kemur m.a. að myndirnar hafi verið teknar í febrúar/mars 2022, skömmu fyrir útskrift X. Myndirnar og sú staðreynd að þær hafi verið birtar á tilteknum samfélagsmiðli væru mikilvægar vegna þess að það hafi verið út frá þeirri birtingu myndanna sem hótanir hafi orðið þess eðlis að fjölskyldan hafi raunverulega óttast um líf sitt og öryggi. Myndbandið hafi sömu þýðingu og sé að mati A mikilvægt til að sýna að X hafi verið áberandi í skólanum en ástandið sem fjölskyldan hefði þá búið við um einhvern tíma hafi versnað mikið eftir birtingu framangreinds myndbands.
Með tilliti til framlagðra gagna er að mati kærunefndar ekki ástæða til að draga í efa að maður að nafninu […]hafi stundað nám við umræddan skóla í heimaborg kærenda en ekkert sem þar kemur fram rennir stoðum undir tengsl viðkomandi við kærendur eða að meintar hótanir í garð fjölskyldunnar hafi verið sérstaklega vegna náms eða persónu X. Hafa myndirnar og myndbandið samkvæmt framangreindu takmarkað sönnunargildi í máli kærenda.
Kærendur lögðu einnig fram hlekki á ýmsar fréttir og umfjallanir á veraldarvefnum máli þeirra til stuðnings, þar á meðal fréttir dagsettar 14. og 15. ágúst 2021 þar sem greint sé frá því að nafngreindur einstaklingur er gengið hafi undir dulnefninu „Borojó“ og farið fyrir glæpahópnum „Guerillos Unidas del Pacifico“ hafi verið ráðinn af dögum í aðgerðum yfirvalda. Með tilliti til frásagna kærenda og framlagðra gagna er að mati kærunefndar ekki ástæða til að leggja annað til grundvallar en að framangreindur einstaklingur hafi verið ráðinn af dögum í aðgerðum yfirvalda í ágúst 2021. Ekkert sem fram hefur komið, annað en að framangreindur einstaklingur og X beri svipað eftirnafn, þ.e. eftirnöfnin „[…]“ og „[…]“ rennir hins vegar stoðum undir tengsl þeirra á milli, eða að þau atvik sem kærendur hafi greint frá hafi grundvallast á andláti viðkomandi eða á því að glæpahópur hans hafi viljað að X tæki við stöðu viðkomandi eða afstöðu fjölskyldunnar til þess.
Í viðtali greindi A frá því að hafa nokkrum sinnum leitað til yfirvalda í heimaríki. Lögreglan hafi komið á búgarð fjölskyldunnar og rannsakað aðstæður en einnig tjáð þeim að meint hótunarsímtöl hafi stafað úr fangelsum og að sögn kærenda hafi lögreglan ekkert aðhafst frekar.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram afrit nokkurra gagna sem eigi að stafa frá yfirvöldum í Kólumbíu, n.t.t. óskýra staðfestingu skráningar í þolendaskrá sem ber með sér að stafa frá skrifstofu fyrir vernd fórnarlamba (s. Unidad para las Víctimas Colombia) og ber með sér að A hafi skráð sig, börn sín og eiginmann í skrá yfir þolendur vegna brota sem hafi átt sér stað í Tumaco, annars vegar tilneydds flutnings (e. forced displacement) 24. desember 2023 og hins vegar hótana 10. janúar 2020. Einnig lögðu kærendur fram óskýrt afrit skráningarforms sem af heiti skjalsins má ráða að hafi verið skráð vegna þeirrar tilraunar til kynferðisofbeldis sem C hafi orðið fyrir og ber skjalið með sér að það hafi verið lagt fram 31. maí 2024 vegna brots sem hefði átt sér stað 13. janúar 2023 en af skjalinu má hvorki sjá vísun til A eða C og benti skjalið til þess að einungis væri um að ræða blaðsíðu 1 af 7. Jafnframt óskýrt afrit af skýrslu. Skjalið er dagsett 29. febrúar 2024 og ber titill þess með sér að um sé að ræða einhvers konar skráningu í þolendaskrá og tilkynnandi sé A.
Að mati kærunefndar voru framangreind gögn tiltölulega óskýr auk þess sem óljóst var hvenær og með hvaða hætti A hefði aflað þeirra. Með framangreindu tölvubréfi óskaði kærunefnd því skýringa á gögnunum og hvatti A til þess að leggja fram skýrari eintök gagnanna, staðfestingu á tilkynningum A til stjórnvalda eða önnur gögn sem styðji betur við frásögn A þess efnis að hún hafi lagt erindin fram hjá yfirvöldum í Kólumbíu. Óskaði nefndin einnig upplýsinga um það hvaða gögn A hafi lagt fram þegar hún hafi óskað eftir því að hún og fjölskylda hennar yrðu skráð í þolendaskrá. Vísaði kærunefnd jafnframt til þess að af því skjali sem beri með sér að vera skráning í þolendaskrá í Kólumbíu yrði ráðið að fyrsta atvikið hafi átt sér stað 10. janúar 2020 vegna hótana. Óskaði kærunefnd skýringa á þeirri skráningu, s.s. hvað hafi leitt til skráningarinnar, hvaða gögn hafi verið lögð fram og hvað sú skráningin hafi haft í för með sér. Þá óskaði nefndin upplýsinga um framlagða lögregluskýrslu og hvaða þýðingu hún hafi fyrir mál kærenda þar sem lögregluskýrslan væri ekki fyllt út nema að litlum hluta og nafn A eða dóttur hennar komi ekki fram, auk þess sem skýrslan væri óundirrituð.
Svör bárust 12. febrúar 2026. Fram kemur m.a. að lögð væru fram nýtt eintak af staðfestingu í þolendaskrá ásamt öllum blaðsíðum lögregluskýrslunnar og læknisvottorðs en svo virtist sem gögnin hefðu ekki verið skönnuð inn í heild á fyrri stigum málsins. Þegar A hafi leitað til stjórnvalda vegna skráningar í þolendaskrá hafi hún lagt fram sömu gögn og lögð hafi verið fram fyrir íslenskum stjórnvöldum, þ.e. myndir sem lagðar hafi verið fram af símanúmerum sem hringt hafi verið úr. Á áðurnefndri mynd af símanúmerum má sjá nokkur símanúmer sem kærendur byggja á að hringt hafi verið úr þegar þeim hafi verið hótað. Af myndinni verður ekkert ráðið um meint símtöl, meinta hótunaraðila eða tímasetningu símtala. Hefur myndin því takmarkað sönnunargildi í máli þeirra. Þá kemur fram í svörunum að A hafi gefið ítarlega skýrslu og yfirvöld skrifað niður einungis það sem þau hafi talið skipta máli.Einnig kemur fram að skýrslutakan hafi átt sér stað árið 2023 og skráning atviksins frá 2020 orsakist af atvikalýsingu A í þeirri skýrslutöku þar sem A hafi vísað til þess að hótanir og áreiti hafi hafist árið 2020. Skráning í þolendaskrá þjóni m.a. þeim tilgangi í Kólumbíu að staðfesta bótarétt þolenda ofsókna glæpahópa í landinu. A eigi þannig viðurkenndan rétt til bóta sem hún hafi ekki sóst eftir þar sem hún hafi viljað koma fjölskyldu sinni í öruggt skjól áður en slík skref yrðu tekin. Slíkar bætur væru umtalsverðar fjárhæðir og fólk flýi ekki frá slíkum peningum að nauðsynjalausu. Framangreind lögregluskýrsla væri að mati A lykilgagn í máli hennar og hafi leitt til staðfestingar á stöðu A og barna hennar sem þolenda ofsókna glæpahópa í Kólumbíu, sem hafi ítrekað rekið fjölskylduna á flótta. Nöfn þeirra komi fram á næstu blaðsíðum skýrslunnar og hún væri lögð fram í heild.
Framangreind lögregluskýrsla ber með sér að vera dagsett 29. febrúar 2024 og hafa verið gerð í sveitarfélaginu Villa de San Diego de Ubaté í Cundinamarca héraði í Kólumbíu. Fram kemur m.a. að tilkynnandi hafi greint frá því hafa verið búsett á eyjunni „El Morro“ í Tumaco í Nariño héraði og hafa byrjað að verða fyrir hótunum símleiðis 10. janúar 2020. Lýsingar á atvikum eru að öðru leyti sambærilegar frásögn A í viðtali hennar hjá Útlendingastofnun. Um er að ræða einhliða frásögn tilkynnanda, sem skýrslan ber með sér að hafi verið A, en ekkert sem þar kemur fram staðfestir að um áreiti umræddra glæpahópa sé að ræða. Hefur skýrslan því takmarkað sönnunargildi í máli kærenda. Ekki verður af framangreindum gögnum ráðið að þarlend stjórnvöld hafi viðurkennt stöðu kærenda sem þolendur ofsókna glæpahópa í heimaríki.
Upplýsingar í framangreindum gögnum styðja við þá frásögn A að hún hafi skráð sig og fjölskyldu sína í gagnagrunn fyrir þolendur í Kólumbíu en ekki verður ráðið að þarlend stjórnvöld hafi tekið afstöðu til þeirrar skráningar og þá verður af svörum A ráðið að hún hafi ekki sóst eftir bótum frá þarlendum stjórnvöldum og hafa þarlend stjórnvöld því ekki heldur ekki tekið afstöðu til mögulegrar bótakröfu fjölskyldunnar.
Líkt og fram hefur komið greindu kærendur frá því að hótunarsímtöl hafi farið að berast fjölskyldunni í október 2021. Símtölin hafi fyrst hljóðað á þann veg að fjölskyldan ætti að fara frá Tumaco vegna hörundslitar þeirra en síðan hafi símtölin beinst að því að þau skyldu heimila X að ganga til liðs við glæpahópinn. Símtölin hafi farið versnandi í apríl 2022 auk þess sem ótilgreindir einstaklingar hafi komið að veitingastað fjölskyldunnar og spurst fyrir um fjölskylduna, tekið myndir og myndbönd af staðnum. Ótilgreindir einstaklingar hafi ráðist á A 3. júlí 2023 og eftir það hafi mennirnir byrjað að hóta B símleiðis. Kvað B það hafa verið í ágúst 2022 og A að hún hafi leitað til lögreglunnar vegna þeirra símtala í september 2022. Þetta hafi haldið áfram fram í desember 2022. Í desember 2022 hafi hótanirnar farið að beinast að því að C og D yrðu teknar myndi fjölskyldan ekki láta X af hendi.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram óskýra mynd af manni með hatt og ber titill myndarinnar með sér að hann hafi verið að taka myndir af húsnæði fjölskyldunnar. Hefur myndin takmarkað sönnunargildi í máli kærenda en af henni verður ekki ráðið hvar myndin sé tekin, hvenær, við hvaða tilefni eða hvað maðurinn sem sjáist á myndinni sé að gera. Kærendur lögðu einnig fram tvær myndir sem virðast sýna mar og skrámur á læri eða fótlegg og ber nafn þeirra með sér að um sé að ræða áverka á A vegna meintrar árásar á hana 3. júlí 2022. Af myndunum verður ekki ráðið á hvaða einstaklingi áverkarnir séu eða af hvaða tilefni þeir hafi myndast. Þá verður af myndunum ekki ráðið hvar eða hvenær þær voru teknar og hafa þær því takmarkað sönnunargildi í málinu.
Í viðtali greindi A frá því að sér hafi einnig verið sendar myndir af byssum og vopnum. Hún hafi hins vegar týnt símanum sínum svo hún hafi ekki tök á að nálgast skilaboðin. Kærendur lögðu engu að síður fram þrjár myndir sem þau kváðu glæpahópinn hafa sent fjölskyldunni. Á myndunum þremur má sjá vopn og að því er virðist fíkniefni. Með áðurnefndu tölvubréfi óskaði kærunefnd eftir frekari skýringum kærenda á myndunum þar sem þær hafi birst við leit á veraldarvefnum og um virtist vera að ræða staðlaðar myndir af netinu (e. stock photos). Var skýringa óskað á því hvers vegna A byggi á því að sér hafi verið sendar umræddar myndir og hvenær henni eigi að hafa borist þær. Auk þess hafi A í viðtali greint frá því að hún gæti ekki lagt fram myndir eða skilaboð úr farsíma sínum þar sem hún hefði týnt honum og óskaði nefndin því upplýsinga um með hvaða hætti hún hafi fengið myndirnar.Í svörumtil kærunefndarkemur m.a. fram að A hafi frá upphafi verið ljóst að myndirnar sem henni hafi verið sendar væru líklega fengnar úr myndabönkum eða sóttar af netinu. Þekkt væri að slíkar myndir væru nýttar sem hótanir af hálfu ofbeldisfullra glæpahópa, tilgangurinn væri að skapa ótta og í því samhengi skipti uppruni myndanna ekki máli heldur væru skilaboðin skýr. Myndirnar hafi A fengið sendar undir lok árs 2022. Hún hafi af og til gert öryggisafrit af myndum og myndirnar hefðu þá vistast á gagnadrifi þar sem hún geymi slík öryggisafrit en ekki skilaboðin. A hafi skrifað niður þau símanúmer sem hringingar og skilaboð hafi borist úr. A hafi verið með tvo farsíma, persónulegan farsíma og farsíma veitingastaðarins og myndirnar hafi verið sendar í síma veitingastaðarins. Líkt og fram hefur komið hefur áðurnefnd mynd af símanúmerum takmarkað sönnunargildi fyrir mál kærenda.
Máli sínu til stuðnings lögðu kærendur m.a. fram myndband af því símtali sem þau kváðu hafa borist A 17. september 2024 og að sá sem hafi hringt hafi tjáð A að hann viti hvar hún og börn hennar séu. Myndbandið er ódagsett og af því verður ekki ráðið hvort um raunverulegt símtal sé að ræða eða hver hafi hringt í A. Hefur myndbandið því takmarkað sönnunargildi fyrir mál kærenda.
Kærendur greindu frá því að 4. desember 2023 hafi A fundið minningarbækur á lóð fjölskyldunnar og séð að hliðið inn á lóðina hafi verið opnað. Auk þess hafi minningarbækur verið skildar eftir í tösku er móðir A hafi sent til þeirra í október 2024. Til stuðnings framangreindra morðhótana lögðu kærendur fram fjórar myndir og tvö myndbönd af umræddum minningarbókum við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Myndirnar bera með sér að í bækurnar séu frá ótilgreindum aðila og annars vegar til A og eiginmanns hennar vegna andláts dætra þeirra en hins vegar til dætra þeirra vegna andláts A og eiginmanns hennar. Þá ber annað myndbandið með sér að einstaklingur, sem samkvæmt frásögnum kærenda sé eiginmaður A, greini frá því að bækurnar hafi fundist í ferðatöskunni. Hitt myndbandið sýnir opið hlið sem af framburði kærenda má ráða að sýni opið hlið landareignar kærenda. Af myndbandinu verður þó ekkert ráðið um ástæðu þess að hliðið sé opið, hvort myndbandið sýni raunverulega hlið fjölskyldunnar, hver hafi opnað það og hvort lás þess hafi verið brotinn upp og þá hver hafi gert það. Af framangreindum gögnum er ómögulegt að fullyrða um uppruna bókana, hvort og hvenær þær hafi verið skildar eftir á landareign fjölskyldunnar eða í ferðatösku þeirra og hver hafi þá staðið þar að baki. Hafa gögnin því takmarkað sönnunargildi í máli kærenda. Kærendur lögðu einnig fram kvittun fyrir sendingu ferðatöskunnar frá Tumaco og þótt kærunefnd telji að leggja megi til grundvallar að kvittunin sýni að A hafi fengið sendingu til sín frá Tumaco renni gagnið ekki stoðum undir að glæpahópur hafi haft afskipti af sendingu farangursins og hefur gagnið takmarkað sönnunargildi í máli kærenda.
Hvað varðar þá frásögn kærenda að ótilgreind lögreglukona í Ubaté hafi verið frá Tumaco, haft tengsl við glæpahópa þar og átt þátt í áreiti í garð kærenda lögðu þau fram mynd af umræddri lögreglukonu og myndband. Á myndbandinu sjást þrjár konur á bak við borð og er myndin af einni þeirra. Ekkert sem á framangreindum gögnum kemur fram rennir stoðum undir tengsl viðkomandi lögreglukonu við glæpahópa og hafa gögnin að mati kærunefndar takmarkað sönnunargildi fyrir mál þeirra.
Í forviðtölum kærenda hjá Útlendingastofnun kváðust þau ekki vera viss um hvaða glæpahópur hafi staðið að baki áreiti í garð fjölskyldunnar en kærendur nefndu nokkra mismunandi hópa á nafn og B vísaði til þess að aðilarnir tengist FARC þótt hann viti ekki nafn hópsins. Í viðtölum kærenda hjá stofnuninni 12. janúar 2024 greindi A frá því að bróðir X hefði verið í hópnum „United Guerillas of the Pacific“ og B kvað bróðurinn hafa verið leiðtoga hópsins. Af viðtölum við kærendur gætti því ákveðinnar óvissu um það hvaða hóp eða hópa þau óttist og óskaði kærunefnd, með tölvubréfi 30. janúar 2026, skýringa á því hvaða hóp eða hópa kærendur óttist í heimaríki og hvernig kærendur hafi vitað að símtölin sem þau hafi greint frá hafi stafað frá meðlimum viðkomandi hóps eða hópa. Svör kærenda bárust 19. febrúar 2026. Kváðust þau óttast andófshópa FARC (e. dissident factions of the FARC) almennt. Þeir sem hafi ógnað fjölskyldunni hafi verið tengdir „Daniel Aldana“ fylkingu slíkra hópa og „United Guerillas of the Pacific” en einnig „Commando Central“. Eftir undirritun friðarsamkomulagsins hafi hóparnir gengist undir breytingar og skipt um nöfn og starfi núna undir breiðari fylkingum andófshópa, svo sem „Commando Central“ og „Segunda Marquetalia“. Kærendur hafi ályktað að símtölin hafi stafað frá meðlimum FARC hópa vegna þess að hótanirnar hafi verið í beinum tengsl við tilraunir til þess að fá X til liðs við hópinn. Í símtölunum hafi verið tekið skýrt fram að ef þau myndu ekki heimila X að ganga til liðs við hópinn yrðu börn A og eiginmanns hennar tekin í staðinn . Þeir sem hafi hringt hafi einnig vitað tiltekin atriði um fjölskyldu þeirra og það hafi staðfest að símtölin hafi ekki verið tilviljanakennd heldur stafað frá einstaklingum sem hefðu það aðgengi og áhrif sem vopnaðir hópar hefðu. Þekkt væri að andófshópar beiti þvingaðri nýliðun og hótunum um að ræna fjölskyldumeðlimum.
Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur hafi orðið fyrir einhverjum hótunum og áreiti glæpahóps í heimaríki. Kærendur hafa hins vegar ekki rennt stoðum undir að meintar hótanir og áreiti hafi stafað frá meðlimum glæpahóps sem hafi viljað að X gengi til liðs við hópinn eða að ástæður þar að baki hafi verið stuðningur fjölskyldunnar við X. Að mati kærunefndar verður ekki útilokað að ótilgreindir meðlimir glæpahóps hafi eitt sinn reynt að ná tali af B eða mögulega ræna honum en ekkert sem fram hefur komið ber með sér að það hafi verið vegna tengsla fjölskyldunnar við X eða að atvikið hafi náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga kveður á um. Þá verður af frásögnum kærenda ráðið að A hafi flust ásamt börnum sínum, B, C og D, til Tumaco árið 2010 og dvalið þar til ársloka 2023. Foreldrar A séu enn búsett á sama stað og umræddur X hafi dvalið í Tumaco a.m.k. frá því hann hóf störf á búgarðinum árið 2019 fram í janúar 2024. Að teknu tilliti til heimilda um Kólumbíu verður ekki fallist á að trúverðugt sé að afstaða A og fjölskyldu hennar hafi ein og sér getað staðið í vegi fyrir þvingaðri nýliðun X. Með tilliti til frásagna kærenda og framlagðra gagna verður ekki ráðið að meintar hótanir og áreiti hafi náð eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá verður ekki talið, í ljósi upplýsinga um þvingaðar nýliðanir glæpahópa í heimaríki kærenda að C og D eigi á hættu þvingaða nýliðun í ótilgreindan glæpahóp, en slík nýliðun beinist einkum að börnum á aldrinum 12 til 17 ára og fari einkum fram á fátækari svæðum, svæðum þar sem frumbyggjar búi og á svæðum þar sem glæpasamtökin og vopnahóparnir séu með sterk ítök. Framangreindar heimildir bera m.a. með sér að viðvera lögreglunnar og hersins sé mikil í Tumaco borg þótt viðvera þeirra sé minni og jafnvel engin á afskekktari svæðum sveitarfélagsins. Af heimildum verður ekki ráðið að í borginni Tumaco séu ítök og áhrif glæpa- og skæruliðahópa slík að ómögulegt sé fyrir kærendur að leita aðstoðar yfirvalda. Verður því lagt til grundvallar að þar til bær yfirvöld í heimaríki kærenda hafi getu og vilja til að veita kærendum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Hafa kærendur auk þess lagt fram gögn sem gefa til kynna að A hafi leitað til yfirvalda í heimaríki og fengið aðstoð yfirvalda. Geta kærendur samkvæmt framangreindu leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki að nýju telji þau þörf á því.
Kærendur byggja á því að þau tilheyri minnihlutahópi í heimabæ sínum í Kólumbíu þar sem flestir íbúar bæjarins séu af frumbyggjaættum en kærendur séu það ekki og þau hafi fundið fyrir því. Af framburði kærenda verður ráðið að þau byggi á því að símtöl sem þau hafi greint frá hafi til að byrja með, eða frá 10. janúar 2020 til október 2021 hafi varðað uppruna fjölskyldunnar en af frásögnum kærenda verður ekki ráðið að þau hafi orðið fyrir áreiti eða mismunun vegna uppruna síns sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eða eigi það á hættu á grundvelli uppruna síns. Hefur A auk þess greint frá því að fjölskylda hennar sé ættuð frá Tumaco og ekki greint frá því að þau hafi áður orðið fyrir áreiti eða mismunun sem hafi eða geti náð því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna sökum þess að vera ljósari á hörund en meirihluti íbúa þar. Þá verður að mati kærunefndar hvorki af landaupplýsingum né frásögnum kærenda ráðið að þau verði í erfiðari stöðu í Kólumbíu eða heimabæ sínum á grundvelli uppruna síns.
Þá byggir B á því að hann tilheyri minnihlutahópi í heimaríki þar sem hann sé trans einstaklingur. Hann hafi ekki getað tjáð kynvitund sína út á við vegna afstöðu almennings gegn trans einstaklingum en hafi greint nánustu fjölskyldu sinni og einum vini frá því. Í greinargerð er á því byggt að kynvitund B auki hættu hans á ofsóknum í heimaríki. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að leggja annað til grundvallar en að B sé trans. Skýrslur og önnur gögn benda til þess að ofbeldi á grundvelli kyns, kynvitundar og kynhneigðar af hendi glæpahópa sé útbreitt vandamál í Kólumbíu. Í framangreindum skýrslum og landaupplýsingum kemur fram að hinsegin einstaklingar verði fyrir nokkurri mismunun í heimaríki kærenda s.s. hvað varðar aðgengi að heilbrigðisþjónustu, atvinnu og húsnæði. Af framburði B verður ekki ráðið að hann hafi orðið fyrir mismunun sem hafi eða náð geti því alvarleikastigi að geta talist til ofsókna í skilningi 38. gr. laga um útlendinga. Þá verður ráðið að í heimaríki kærenda standi til boða úrræði sem hann geti leitað til telji hann tilefni til, t.a.m. umboðsmanns sem hefur það hlutverk að taka við kvörtunum frá einstaklingum og ber m.a. ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum. Það er mat kærunefndar að með viðveru lögreglu og hernaðaryfirvalda í heimabæ kærenda, Tumaco, þar sem þau kváðust hafa haft búsetu áður en þau yfirgáfu heimaríki sitt, geti yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi íbúa. Heimildir bendi ekki til þess að ítök og áhrif glæpahópa séu slík í borginni Tumaco að ómögulegt sé fyrir B að leita aðstoðar yfirvalda telji hann þörf á. Er það mat kærunefndar að yfirvöld í heimaríki kærenda séu fær um að veita B vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna. Getur kærandi því leitað til lögreglu telji hann tilefni til þess.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd móður sinnar sem er heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings hennar. Þá stendur börnum kærenda til boða menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna A í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau og börn A eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn A uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna A leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Kærendur hafa vísað til þess að þau séu í hættu í heimaríki vegna glæpa- og skæruliðahópa. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Löggæsluyfirvöld hafa átt erfitt með að komast inn á svæði þar sem glæpahópar hafa völd og átök eigi sér stað. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Kærendur kváðu heimasvæði sitt vera Tumaco borg í Nariño héraði. Af framburði kærenda og gögnum málsins má ráða að þau hafi búið ásamt C og D í Ubaté borg í Cundimarca héraði í tæpa 11 mánuði áður en þau yfirgáfu heimaríki. Líkt og áður greinir eru vopnahópar öflugir á ákveðnum svæðum í heimahéraði kærenda en heimildir benda þó ekki til þess að aðstæður á heimasvæði þeirra séu slíkar að hver sem þar sé staddur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og ólögráða börn A uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og ólögráða börn A eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna A og aðstæður í heimaríki er það niðurstaða kærunefndar að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái ekki því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
B hefur greint frá því að vera trans maður og að hann hafi ekki getað tjáð kynvitund sína út á við af ótta við viðbrögð og fordóma annarra. Aðspurður hvort B gæti lýst atvikum þar sem honum hafi fundist hann vera óöruggur eða hann hafi orði fyrir skaða af þeirri ástæðu að hann væri trans kvaðst B ekki hafa orðið sérstaklega fyrir slíku en honum finnist hann vera einangraður vegna kynvitundar sinnar. Hann hafi greint nánustu fjölskyldu sinni og einum vini frá því að hann væri trans. Þá greindi B frá því að andleg heilsa hans hafi ekki verið góð og hann hafi leitað aðstoðar sálfræðings í heimaríki. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun var lagt fram bréf frá Samtökunum´78, dags. 21. febrúar 2025. Í því kemur m.a. fram að B hafi fyrst leitað til Samtakanna ´78 í byrjun janúar 2025 og greint frá því að hann væri trans maður, hann eigi sögu um sjálfsvígstilraunir, kvíða og mikla vanlíðan og hafi þurft að upplifa mikla fordóma og hatur í Kólumbíu. Fram kemur einnig að B hafi ekki haft aðgang að þeirri heilbrigðisþjónustu sem hann þurfi á að halda. Við meðferð málsins hjá kærunefnd var lagt fram annað bréf frá Samtökunum, dags. 8. maí 2025 og þar kemur m.a. fram að B hafi sótt sálfræðiþjónustu hjá Samtökunum. Í framangreindum skýrslum um aðstæður í Kólumbíu kemur fram að tilfelli áreitis og ofbeldis gagnvart einstaklingum vegna kynhneigðar og kynvitundar hafi verið skráð í landinu. Þá kemur fram að mismunun og fordómar séu til staðar í landinu og hinsegin einstaklingar geti hlotið mismunandi þjónustu. Hins vegar benda framangreindar skýrslur og gögn til þess að stjórnvöld verndi almennt borgara sína og til staðar sé kerfi sem veiti einstaklingum sem telja að brotið hafi verið á rétti sínum, aðstoð. Einnig eru ýmis frjáls félagasamtök starfandi í heimaríki kærenda, þau stærstu Colombia Diversa, sem berjist fyrir réttindum hinsegin einstaklinga og veiti þeim ýmis konar aðstoð í daglegu lífi. Af framburði B verður ráðið að hann hafi starfað fyrir veitingastað fjölskyldunnar. B er ungur og hraustur einstaklingur og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér. Að mati kærunefndar hefur B ekki lýst aðstæðum sem gefa til kynna að hann sé í slíkri stöðu að tilefni sé til að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Í lögregluskýrslu vegna umsókna kærenda um alþjóðlega vernd kemur fram að A sé menntaður kennari en hafi starfað við rekstur veitingastaðar og að B hafi verið nemandi í listum og unnið með námi en C og D hafi sótt nám í grunnskóla. Þá hefur A greint frá því að foreldrar hennar búi enn á búgarði fjölskyldunnar. Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að A hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að A sé einnig heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og ólögráða barna A við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi A frá því að líkamleg heilsa hennar og dætra hennar væri góð en hún finni fyrir kvíða, sem og ein dætra hennar sem jafnframt taki lyf við kvíða. Líkt og komið hefur fram kvað B andlega heilsu sína ekki góða, það hafi haft áhrif á líkamlega heilsu hans og hann hafi leitað til sálfræðings í heimaríki. B hafi hætt að taka lyf skömmu fyrir brottför sína frá Kólumbíu og taki ekki lyf að staðaldri.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram óskýrt afrit af læknaskýrslu sem af heiti skjalsins mátti ráða að væri vegna A en á skýrslunni kom nafn hennar hins vegar hvergi fram heldur nafn karlmanns. Með áðurnefndu tölvubréfi 26. janúar 2026 óskaði kærunefnd útskýringa A á framangreindu atriði. Svaraði hún að skýrslan væri skráð á eiginmann sinn þar sem hann væri skráður fyrir þeirri sjúkratryggingu sem þjónustan greiddist úr. Samhliða svörum til kærunefndar voru allar blaðsíður læknaskýrslunnar lagðar fram. Skýrslan er dagsett 26. október 2024 og af skjalinu og með tilliti til framangreindra svara verður ráðið að A hafi leitað sér aðstoðar geðlæknis í heimaríki vegna mats á einkennum áfallastreitu fyrir tilstuðlan heilbrigðisyfirvalda.
Í viðbótargreinargerð til kærunefndar dags. 12. febrúar 2026 kemur þá fram að D hafi nokkrum vikum fyrr orðið veik og A leitað með hana til læknis. Í kjölfar rannsókna og sjúkrahúsinnlagnar hafi D verið greind með sjálfsofnæmissjúkdóminn „Takayasu Arteritis“. Þá voru heilsufarsögn lögð fram frá Landspítalanum, dags. 22. desember 2025, til staðfestingar á þeirri greiningu. Fram kemur m.a. fram að kröftug og ónæmisbælandi meðferð hafi verið hafin með lyfjunum Prednisolon, Metotrexat og Infliximab og D verði áfram í eftirliti og meðferð. Um sé að ræða alvarlegan bólgusjúkdóm sem krefjist ónæmisbælandi meðferðar til langs tíma.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærendur eða ólögráða börn A glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ekki verður annað ráðið en að kærendur og ólögráða börn A hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki, þar á meðal geðheilbrigðisaðstoðar, og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærendur og ólögráða börn A muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá benda heimildir til þess að framangreind lyf séu aðgengileg í Kólumbíu. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur og ólögráða börn A þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærendur og ólögráða börn A hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna A í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða ólögráða börn A hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna ólögráða barna A í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og ólögráða börnum A dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og ólögráða börn A 6. nóvember 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og ólögráða barna A. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og ólögráða barna A þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og ólögræða barna A um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og ólögráða barna A til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kvað A móðursystur sína vera búsetta á Englandi. Kærendur telji að ákvörðun um brottvísun og endurkomubann á Schengen-svæðið væri ósanngjörn ráðstöfun í þeirra garð.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og ólögráða barna A og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Kólumbíu njóta.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og ólögráða barna A til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson Vera Dögg Guðmundsdóttir