26 febrúar 2026
/
Úrskurður nr. 104/2026
Hinn 26. febrúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 104/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25100029
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 6. október 2025 kærði [...], fd. [...]ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 23. september 2025, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 7. ágúst 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun um frávísun verði felld úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 3, 10 og 12 þess efnis að kærandi hefði ekki lagt fram sönnun fyrir nægilegri framfærslu vegna fyrirhugaðrar dvalar, eða fyrir heimkomu til upprunalands eða búsetulands, upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu þær athugasemdir að ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar sem veittar hafi verið með umsókn um vegabréfsáritun.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a-, c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang ferðar sinnar og hafi ekki vegabréfsáritun í gildi inn á Schengen-svæðið.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 25. september 2025, hafi 23. september s.á. verið haft samband frá komusal landamæra varðandi þrjá aðila sem hafi komið frá Lundúnum með flugi. Aðilarnir þrír hafi framvísað indverskum vegabréfum með íslenskum vegabréfsáritunum. Aðilarnir hafi verið óljósir í svörum varðandi tilgang komu þeirra til Íslands og þeim boðið í aðstöðu lögreglu sem þeir þáðu. Þar hafi kæranda verið leiðbeint um að hann ætti rétt á að m.a. leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað, sbr. 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að hann hygðist dvelja í átta eða níu klukkustundir á Íslandi, fara þá til Noregs og þaðan til Lundúna 24. september 2025. Kærandi hafi framvísað flugmiða frá Noregi til Lundúna þann dag. Hann hafi ekki verið með reiðufé meðferðis en verið með greiðslukort með innistæðu upp á 215 bresk pund. Kærandi hafi greint frá því að um væri að ræða stutta ferð þar sem vinir hans hafi ekki fengið frí frá vinnu. Kærandi hafi viljað fara til Íslands og Noregs til að styrkja ferðasögu sína, en hann hafi áhuga á að ferðast til Ástralíu þar sem bróðir hans sé búsettur. Kærandi hafi ekki verið með skipulagða dagskrá á Íslandi en að hann hafi viljað skoða fallega staði. Í umsókn um vegabréfsáritun hafi kærandi lagt fram ferðaáætlun með lýsingu á stöðum sem hann hygðist heimsækja. Hjá lögreglu kvaðst kærandi ekki þekkja nöfn á neinum stöðum á Íslandi en hann hafi fengið aðstoð við að skrifa ferðaáætlun frá skrifstofu sem hjálpi til við að útvega vegabréfsáritanir. Þar sem ljóst var að kærandi gæti ekki gert grein fyrir hvað hann hygðist gera á Íslandi og var ekki með nægt fjármagn til uppihalds fyrir ferð sína hafi vegabréfsáritun hans verið ógild. Með vísan til sömu röksemda hafi lögregla jafnframt tekið ákvörðun um frávísun frá landinu á grundvelli a-, c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi svo farið með flugi til Bretlands 24. september 2025.
Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 6. október 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust 20. október 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Greinargerð kæranda barst 12. febrúar 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er vísað til fyrirliggjandi málsatvika og málsmeðferðar Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Kærandi vísar til þess að hann hafi gert ítarlega ferðaáætlun fyrir upphaflega ferð til Íslands en vegna breyttra forsendna hafi hann ekki getað farið eftir því ferðaplani. Af þeim sökum hafi kærandi ekki haft neitt skipulagt í stuttri heimsókn til Íslands í þetta skiptið. Kærandi hafi viljað ferðast til Noregs til að styrkja ferðasögu sína en hann sé með það að markmiði að ferðast til Ástralíu hvar bróðir hans sé búsettur. Kærandi vísar til þess að við komuna til landsins hafi hann uppfyllt skilyrði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri enda liggi fyrir í gögnum málsins að hann hafi haft útgefna og gilda áritun inn á Schengen-svæðið. Kærandi telji, með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar hans hér á landi og þeirrar staðreyndar að hann hafi ekki áður komið við sögu lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, að ekki hafi verið tilefni til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Þá sé ekkert í gögnum málsins sem bendi til þess að tilgangur dvalar hans hafi verið annar en framburður hans beri með sér sem hafi verið að styrkja ferðasögu sína á Schengen-svæðinu. Kærandi vísar til þess að ákvörðun um frávísun sé íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun og Lögreglustjóranum á Suðurnesjum beri að gæta meðalhófs við slíka ákvarðanatöku, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga. Krafa um nákvæma ferðaáætlun kæranda hafi gengið lengra en nauðsyn bar til að ná lögmætu markmiði. Kærandi hafi lagt fram fullnægjandi gögn sem staðfest hafi stutta dvöl hans og því eigi c-liður 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga ekki við í málinu. Þar sem kærandi hafi uppfyllt öll formskilyrði, framvísað fullnægjandi gögnum, hefur hreinan brotaferil og gefið trúverðugar skýringar á tilgangi ferðar sinnar, hafi ákvörðun um frávísun verið brot á meðalhófsreglunni. Þá telur kærandi að ákvörðunin hafi brotið gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 11. gr. stjórnsýsluslaga sem og 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944. Það sé almenn og viðurkennd framkvæmd að ferðamenn í stuttum ferðum skipuleggi sig með sveigjanlegum hætti. Með því að gera þá kröfu að hann legði fram ítarlega ferðaáætlun umfram þau gögn sem hann hafi þegar sýnt fram á hafi verið gerðar strangari kröfur til hans en annarra ferðamanna í sömu stöðu og ekkert bendi til þess að málefnalegar ástæður hafi legið til grundvallar þeirri mismunun.
Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 603/2025, dags. 21. ágúst 2025, máli sínu til stuðnings en þar hafi ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum verið felld úr gildi. Telur kærandi að málsatvik séu sambærileg. Kærandi vísar jafnframt til þess að hann hafi verið með nægt fjármagn fyrir nokkra klukkustunda dvöl hér á landi og því hafi skilyrði d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga ekki verið uppfyllt. Kærandi telji að hann hafi leitt nægar líkur að þeim tilgangi sem hann hafi gefið upp fyrir dvöl sinni hér á landi og verið með gilda vegabréfsáritun við komuna til landsins. Því séu skilyrði frávísunar, sbr. a- ,c- og d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, ekki uppfyllt.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 7. ágúst 2025. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu í allt að 30 daga á tímabilinu 28. ágúst til 11. október 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 23. september 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógild. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 3, 10 og 12 þess efnis að kærandi hefði ekki lagt fram sönnun fyrir nægilegri framfærslu vegna fyrirhugaðrar dvalar, eða fyrir heimkomu til upprunalands eða búsetulands, upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu þær athugasemdir að ferðaáætlun kæranda og þær upplýsingar sem hann hafi veitt við framlagningu umsóknar hans um vegabréfsáritun hafi ekki verið þær sömu og hann lagði fram við landamæraverði. Hafi trúverðugleiki tilgangs dvalar hans hér á landi því verið dreginn í efa.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að hann hefði ekki meðferðis nægt fjármagn til uppihalds fyrir ferð sína, að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra.
Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verði því að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvik þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna.
Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í fjóra daga á tímabilinu 28. til 31. ágúst 2025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við bókanir fyrir flug og gistingu fyrir umrætt tímabil. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands, 23. september 2025, hafi þær forsendur þó ekki staðist en kærandi hafi við komu til landsins greint frá því að ætla aðeins að dvelja á Íslandi í átta eða níu klukkustundir og fara þaðan til Noregs. Hjá lögreglu bar kærandi fyrir sig að ferð hans hafi breyst vegna þess að vinir hans sem hann hafi komið með hingað til lands hafi ekki getað fengið frí frá vinnu í lengri tíma. Í upplýsingatöku lögreglu kvaðst kærandi ekki vita hvað hann ætlaði að gera á Íslandi og að ferðin væri einungis til að styrkja ferðasögu hans á Schengen-svæðinu til að auka líkurnar á að hann geti ferðast til bróður síns sem sé búsettur í Ástralíu. Í greinargerð til kærunefndar byggir kærandi einkum á því að ástæða þess að ferð hans hafi tekið breytingum hafi verið sú að styrkja ferðasögu hans innan Schengen-svæðisins. Af gögnum málsins er ljóst að aðaltilgangur kæranda með komunni til Ísland hafi verið að komast inn á Schengen-svæðið og að Ísland hafi ekki verið áfangastaður fyrir ferðamennsku líkt og umsókn kæranda um vegabréfsáritun byggði á. Samkvæmt framansögðu var framburður kæranda misvísandi sem gefur til kynna að framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni hafi verið á röngum forsendum. Lögreglan byggir ógildingu vegabréfsáritunar jafnframt á því að kærandi hafi ekki haft trygga framfærslu fyrir dvöl sína. Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki reiðufé undir höndum við komuna til landsins en sýndi fram á að hafa innistæðu á bankareikningi að upphæð 215 pund. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 23. september 2025 og er sú ákvörðun staðfest.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Indlands og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 7. ágúst 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 23. september 2025, byggir á a-, c- og d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Með vísan til framangreindra röksemda fyrir ógildingu vegabréfsáritunar kæranda voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Þá yrði skilyrðum um nægileg fjárráð til heimferðar t.d. fullnægt með framvísun farmiða. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að.
Samkvæmt framburði kæranda var hann ekki með reiðufé meðferðis en sýndi lögreglu yfirlit yfir bankareikning tengt greiðslukorti á hans nafni með innistæðu upp á 215 pund þegar lögregla hafði afskipti af honum. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig aðgengi að ferðatékkum og er því ljóst að fjárráð kæranda takmörkuðust við 215 pund á bankareikningi. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að fullnægjandi rannsókn hafi farið fram a því hvort að framlagðir fjármunir kæranda við komuna til landsins uppfylli skilyrði frávísunar hans samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Verður sá liður málsins felldur úr gildi.
Vegna tilvísunar kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 603/2025, dags. 21. ágúst 2025, skal tekið fram að í því máli var ekki fjallað um ógildingu á vegabréfsáritun enda var kærandi þess máls undanþeginn áritunarskyldu. Í þeim úrskurði var ákvörðun lögreglu um frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga felld úr gildi enda hafi kærandi málsins lagt fram ítarlega ferðaáætlun, næga fjármunum, flugmiða úr landi og gistingu fyrir fimm daga ferð til Íslands. Í máli kæranda liggur fyrir að tilgangur komu hans til Íslands var ekki ferðamennska en kærandi greindi frá að hún væri einungis til að styrkja ferðasögu hans. Samkvæmt framansögðu var framburður kæranda misvísandi sem gefur til kynna að framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni hafi verið á röngum forsendum. Kærunefnd fellst því ekki á með kæranda að aðstæður hans séu sambærilegar aðstæðum kæranda í tilvísuðum úrskurði.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a-, c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um ógildingu vegabréfsáritunar og frávísun á grundvelli a og c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga eru staðfestar. Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum á grundvelli d-liðar sama ákvæðis er felld úr gildi.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District on the annulment of a visa and refusal of entry according to Art. 106(1)(a) and (c) are affirmed. The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District on the refusal of entry according to Art. 106(1)(d) is vacated.