02 mars 2026
/
Mál nr. 113/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 2. mars 2026
í máli nr. 113/2025
A og B
gegn
C
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðilar: A og B.
Varnaraðili: C.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að þeim sé heimilt að fá greiddar 577.267 kr. úr tryggingu varnaraðila.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, móttekin 3. september 2025.
Greinargerð varnaraðila, dags. 20. október 2025.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. júlí 2024 til 30. júní 2025 um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að D. Ágreiningur er um kröfu sóknaraðila í tryggingu varnaraðila þar sem þau kveða viðskilnað hennar í lok leigutíma hafa verið ábótavant þar sem þörf hafi verið á þrifum og málun íbúðarinnar auk þess sem ísskápur og borðplata hafi orðið fyrir skemmdum. Þá hafi skilum á íbúðinni seinkað.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðilar kveðast hafa gert kröfu í tryggingu varnaraðila þar sem skemmdir hafi orðið á ísskápi og borðplötu. Þá hafi þrifum verið ábótavant við lok leigutíma og þörf á málun veggja. Einnig hafi íbúðinni verið skilað of seint. Þau hafi gert skriflega kröfu í trygginguna 23. júlí 2025 sem varnaraðili hafi hafnað samdægurs. Eftir það hafi sóknaraðilar talið að málið væri komið í hendur Hafnarfjarðarbæjar en eftir að lögfræðingar þeirra hafi komið úr sumarfríi hafi þeim verið bent á að leggja þyrfti inn kæru hjá nefndinni.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveðst ósammála kröfum sóknaraðila þar sem hún hafi skilað íbúðinni í góðu ástandi.
IV. Niðurstaða
Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði varnaraðili fram ábyrgðaryfirlýsingu Hafnarfjarðarbæjar að fjárhæð 600.000 kr. Sóknaraðilar gera kröfu um að ganga að 577.267 kr. vegna viðskilnaðar varnaraðila við hið leigða við lok leigutíma.
Í 8. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að geri leigusali kröfu í tryggingu eða ábyrgð innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðisins skv. 7. mgr. skuli leigjandi tilkynna leigusala skriflega hvort hann hafni eða fallist á kröfuna innan fjögurra vikna frá móttöku kröfunnar. Hafni leigjandi kröfu leigusala beri leigusala að vísa ágreiningi um bótaskyldu leigjanda til kærunefndar húsamála eða höfða mál um bótaskyldu leigjanda innan fjögurra vikna frá þeim degi er leigjandi hafnaði kröfunni ella fellur trygging eða ábyrgð úr gildi.
Leigutíma lauk 30. júní 2025 og skilaði varnaraðili íbúðinni daginn eftir. Sóknaraðilar gerðu skriflega kröfu í tryggingu varnaraðila með tölvupósti 23. júlí 2025 sem varnaraðili hafnaði samdægurs. Kæra sóknaraðila var móttekin hjá kærunefnd 3. september 2025 og var tryggingin þá úr gildi fallin, sbr. 5. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. Ber þegar af þeirri ástæðu að hafna kröfu sóknaraðila.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfu sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 2. mars 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Eyþór Rafn Þórhallsson