05 mars 2026
/
Úrskurður nr. 70/2026
Hinn 5. mars 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 70/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040155
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 24. apríl 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], fæddur [...], og vera ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. apríl 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kærandi, eiginkona hans og tvö börn þeirra kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar í sameiningu, nutu liðsinnis sama talsmanns og lögðu fram sameiginlegar greinargerðir ásamt fylgiskjölum við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun og á kærustigi. Fjallað er um kæru eiginkonu kæranda og barna þeirra í úrskurði nefndarinnar nr. 71/2026.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins ásamt fjölskyldu sinni og fjölskyldu systur eiginkonu sinnar frá Grikklandi og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 13. desember 2022. Kvaðst kærandi hafa farið frá Írak 2019 og sótt um alþjóðlega vernd í Grikklandi sem hann hafi hlotið.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 27. apríl 2023, var umsóknum kæranda og fjölskyldu hans synjað með vísan 36. gr. laga um útlendinga og þeim gert að snúa aftur til Grikklands. Voru þær ákvarðanir staðfestar með úrskurði kærunefndar frá 13. júlí 2023. Hinn 7. september 2023 hafnaði kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa þeirra úrskurða. Voru kærandi og fjölskylda hans skráð horfin og eftirlýst frá 10. október 2023. Hinn 18. október 2023 voru mál þeirra tekin til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun þar sem 10 mánaða frestur til endursendingar til Grikklands var útrunninn.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun vegna efnismeðferðar 14. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi vera uppalinn í Bagdad og að foreldrar hans væru búsettir í Írak en hann ætti engin systkini. Kvað kærandi sig og fjölskyldu sína hafa búið í stóru húsi í hans eigu en hann hefði unnið sem vörður á leikskóla og við önnur störf. Börn hans hefðu ekki gengið í skóla sökum aldurs. Aðspurður um heilsufar kvaðst hann vera með sprengjubrot í baki og vandamál tengd meltingu Kvaðst kærandi hvorki vera meðlimur í stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. Þá kvaðst kærandi vera súnní múslimi og vera í minnihluta vegna trúar sinnar. Hafi kærandi upplifað hótanir og ofbeldi vegna þess. Hann hafi aldrei verið ákærður eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað. Aðspurður um ástæður flótta síns kvaðst kærandi ekki hafa fundið fyrir öryggi eða frelsi í heimaríki. Þá væru engin atvinnutækifæri, ekkert hreint vatn og að vopnaðir hópar væru á götum úti. Kvaðst kærandi hafa tekið þátt í mótmælum árið 2019 og í kjölfarið verið hótað tvisvar, í annað skiptið með bréfi sem hafi verið sent heim til hans 18. nóvember 2019. Í kjölfar þess hefðu menn komið heim til hans og ráðist á hann, sært hann tveimur skotsárum, lagt til hans með hnífi og slegið hann með vopni í höfðuð. Kærandi kvaðst hafa misst meðvitund og vaknað upp á spítala þar sem faðir hans hafi komið til hans og sagt honum að bróðir kæranda hafi verið myrtur 20. nóvember 2019. Síðar í viðtalinu kvað kærandi að ráðist hafi verið á bróður hans á sama tíma og hann. Kvað kærandi föður sinn hafa farið með sig af spítalanum á einkarekna læknastofu og í kjölfarið hafi kærandi og fjölskylda hans yfirgefið Írak að ráðleggingum föður hans. Aðspurður um hverjir hafi verið að verki nefndi kærandi vopnahópinn Asa´ib Ahl al-Haq og að leiðtogi þeirra væri [...]. Taldi kærandi ástæður árásarinnar hafa verið stuðningur hans við mótmælin en hann hafi fært mótmælendum mat og viljað sjá breytingar í heimaríkinu. Þá kvað kærandi að einnig hafi verið ráðist á eiginkonu hans (hér eftir K) sem hafi verið ólétt og hún misst fóstur í kjölfarið. Kærandi kvaðst ekki hafa reynt að fara til lögreglu vegna árásarinnar þar sem lögreglan væri hluti af vopnahópunum. Framvísaði kærandi í viðtali frumriti bréfs sem hann kvað vera hótun í sinn garð frá vopnahópnum Asa´ib Ahl al-Haq. Kvað kærandi jafnframt að þúsundir manna hefðu fengið sambærilegar hótanir. Þá kvað kærandi hús hans hafa verið brennt til grunna eftir að hann hafi yfirgefið Írak. Aðspurður um hvað myndi gerast ef hann sneri aftur til Íraks kvaðst kærandi óttast að verða myrtur af hendi umrædds vopnahóps en kvaðst ekki óttast að verða fangelsaður. Kvað kærandi enga framtíð fyrir sig eða fjölskyldu sína í Írak.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 24. apríl 2024. Greinargerð ásamt fylgiskjölum barst kærunefnd 10. maí 2024. Hinn 31. maí 2024 upplýsti talsmaður kæranda um ný persónuskilríki kæranda sem lögð voru fram hjá nefndinni 19. desember 2025. Með tölvubréfi kærunefndar til kæranda og eiginkonu hans, dags. 18. febrúar 2026, óskaði nefndin eftir frekari upplýsingum frá kæranda og eiginkonu hans og þeim boðið að gera athugasemdir við tiltekin atriði. Bárust svör þeirra 23. febrúar 2026.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir sameiginlega greinargerð kæranda og fjölskyldu hans og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtali hjá Útlendingastofnun.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Írak mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt sérstaklega með vísan til þess hvernig stofnunin hafi metið sönnunargildi á framlögðum gögnum. Vísar kærandi m.a. til mats á sönnunargildi hótunarbréfs frá vopnahópnum Asa´ib Ahl al-Haq, myndar af látnum bróður kæranda, dánarvottorðs bróður kæranda, mynda af heimili kæranda, mats á þýðingu íslenskra heilbrigðisgagna og mats á almennri frásögn kæranda og eiginkonu hans.
Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að hann óttist ofsóknir sem geti fallið undir a-, b- og d-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og byggir á þátttöku sinni í mótmælum og því að óttast ofsóknir af hendi vopnahópsins Asa´ib Ahl al-Haq sem geti fallið undir a- til c-lið 4. mgr. sama ákvæðis. Byggir kærandi á því að óttast ofsóknir á grundvelli þess að tilheyra þjóðfélagshópi sem þolandi ofbeldis af hálfu vopnaðs hóps, á grundvelli þess að vera súnní múslimi og á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á sömu ástæðum og fyrir aðalkröfu auk almennra aðstæðna í heimaríki.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á því að félagslegar aðstæður í Írak verði honum og fjölskyldu hans verulega erfiðar þar sem þau hafi enga atvinnumöguleika og eigi nær enga fjölskyldumeðlimi þar í landi. Þá vísar kærandi til heilbrigðisástæðna.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á því að 13. apríl 2024 hafi 16 mánuðir verið liðnir frá því hann sótti um vernd ásamt fjölskyldu sinni. Þá uppfylli kærandi öll skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og í málinu liggi fyrir ljósmyndir af írökskum persónuskilríkjum fjölskyldunnar auk skilríkja útgefnum af grískum yfirvöldum. Leiki því enginn vafi á auðkenni kæranda. Kæranda sé ómögulegt að leggja fram írakskt vegabréf þar sem hér á landi sé ekkert sendiráð á vegum Íraks. Þá er byggt á því að börn kæranda verði ekki gerð ábyrg fyrir skilríkjastöðu eða athöfnum foreldra sinna og að synjun verði ekki byggð á því einu að ekki liggi fyrir frumrit írakskra vegabréfa þeirra.
Með kæru fylgdu myndir af áverkum kæranda, heilsufarsgögn og meðmælabréf frá deildarstjóra í [...]vegna skólagöngu sonar kæranda.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað grísku flóttamannavegabréfi, grísku dvalarleyfisskírteini og afriti af írökskum auðkenniskortum. Hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti.
Við meðferð málsins fyrir kærunefnd framvísaði kærandi afriti af íröksku þjóðernisvottorði, frumriti af íröksku húsráðandakorti og frumriti íraksks nafnskírteinis sonar kæranda. Voru skjölin send til rannsóknar hjá skilríkjarannsóknarstofu lögreglunnar á Suðurnesjum. Samkvæmt skjalarannsóknarskýrslu þeirra frá 6. janúar 2026 var afrit af íröksku þjóðernisvottorði ótraust að forminu til en enga fölsun að sjá og frumrit af íröksku húsráðandakorti skjal án öryggisþátta en þó talið að öllum líkindum ófalsað.
Að því er varðar írakskt nafnskírteini sonar kæranda var það talið að öllum líkindum ófalsað en afrit af því skírteini var lagt fram við meðferð málsins fyrir Útlendingastofnun ásamt afritum af sambærilegum skilríkjum annarra fjölskyldumeðlima, þ.m.t. kæranda.
Framangreind afrit af írökskum persónuskilríkjum kæranda og fjölskyldu hans voru af framhlið kortanna en ekki bakhlið þeirra. Ofarlega fyrir miðju á framhlið slíkra írakskra auðkenniskorta er að finna tólf stafa númeraröð og vísa fyrstu fjórir tölustafirnir til fæðingarárs handhafa viðkomandi auðkenniskorts. Fjórar fyrstu tölurnar í númeraröð á auðkenniskorti eiginkonu kæranda, K, eru „1977“ og vísa því til ársins 1977. Frá upphafi málsmeðferðar kæranda og K hjá íslenskum stjórnvöldum, þ. á m. í tveimur viðtölum K hjá Útlendingastofnun, hefur K sagst vera fædd [...]1995. Þá kemur jafnframt fram í dvalarleyfiskorti og ferðaskilríki K frá Grikklandi, hvar kæranda og fjölskyldu hans var veitt viðbótarvernd, að hún hafi fæðst [...]1995. Var það ekki fyrr en í svörum kæranda og K, dags. 23. febrúar 2026, við athugasemdum nefndarinnar vegna framangreinds misræmis sem kærandi og K kváðu réttan fæðingardag K vera [...]1977. Þau telji að mistök hafi átt sér stað á Grikklandi þar sem K hafi fengið grísk skilríki sem byggð hafi verið á írökskum skilríkjum þar sem fæðingardagur hennar sé tilgreindur [...]1995. Að sögn kæranda og K hafi þessi mistök síðan ruglað hana í ríminu í viðtali hjá Útlendingastofnun.
Er það mat nefndarinnar að útskýringar kæranda og eiginkonu hans hvað framangreint atriði varðar séu ekki trúverðugar. Lítur kærunefnd m.a. til þess að kærandi og fjölskylda hans hafa dvalið hér á landi í rúmlega þrjú ár, sótt viðtöl hjá Útlendingastofnun og notið þjónustu, m.a. í heilbrigðiskerfinu, þar sem kærandi og K nutu liðsinnis arabískra túlka og ávallt hafi þau vísað til þess að K væri fædd árið 1995.
Þrátt fyrir að kærandi hafi lagt fram skilríki frá Írak sem styðji við frásögn hans um auðkenni verður ekki hjá því litið að umrætt gagn er skilríki án öryggisþátta og þá hefur kærandi ekki lagt fram frumrit annarra skilríkja svo sem vegabréfs eða kenniskírteinis búið öryggisþáttum. Með vísan til vafa um auðkenni annarra fjölskyldumeðlima hans verður auðkenni hans því ekki talið sannað. Ekki er þó ástæða til að annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé írakskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- Asaib Ahl al-Haq (Counter Extremism Project, Asaib Ahl al-Haq | Counter Extremism Project, sótt af vefsíðu 21. febrúar 2023);
- Country Guidance: Iraq (EUAA, nóvember 2024);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (EUAA, janúar 2022);
- Country of Origin Information Query, Iraq, Asa‘ib Ahl al-Haq militia (EUAA, 30. september 2025);
- Country of Origin Information Query, Iraq, Activities of Asa‘ib Ahl al-Haq (AAH) in relation to coercion, extortion, and property-related practices (EUAA, 29. janúar 2026);
- Country Policy and Informatin Note: actors of protection, Iraq (UK Home Office, september 2025);
- Country Information Note – Iraq: Healthcare and medical treatment (UK Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Iraq: “Honour” crimes (UK Home Office, mars 2021);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
- International Protection Considerations with Regard to People fleeing the Republic of Iraq, Update I (UNHCR, 30. janúar 2024);
- Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
- Iraq - Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, október 2025);
- Irak: En kortfattet oppdatering om sikkerhetssituasjonen i Anbar og Mosul (Landinfo, 15. nóvember 2024);
- Iraq: How the world helped Mosul rise from the rubble of war (United Nations, 6. febrúar 2025);
- Iraq: New US$930 Million Project to Extend and Modernize Railways, Promote Regional Connectivity and Boost Growth (World Bank Group (worldbank.org), 25. júní 2025);
- Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, EUAA, maí 2024);
- Irak – Situasjonen i Mosul (Landinfo, 23. desember 2022);
- Iraq Timeline: Since the 2003 War (United States Institute of Peace (usip.org), sótt 30. mars 2023);
- Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and Syria – October 1, 2023 – December 31, 2023 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 9. febrúar 2024);
- Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and Syria – April 1, 2025 – June 30, 2025 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 29. júlí 2025);
- Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
- The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 10. desember 2025);
- United Nations in Iraq – Annual Results Report 2023 (Sameinuðu þjóðirnar, 10. júlí 2024);
- World Report 2023 – Iraq (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2025 – Iraq (Human Rights Watch, janúar 2025) og
- Ære og æresrelatert vold (Landinfo, 10. mars 2022).
Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljón íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.
Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðneytisins fyrir árið 2024 má ráða að stjórnvöld og vopnahópar eins og PMF (e. Popular Mobilizaton Forces) hafi beitt almenna borgara ofbeldi og pyntingum án afleiðinga.
Í skýrslum EUAA frá árinu 2025 og eldri skýrslu frá 2024 er fjallað um stöðu PMF hópa í Írak. PMF sé regnhlífarheiti yfir vopnahópa sem starfi í skjóli stjórnvalda og teljist hluti af öryggissveitum Írak. PMF sveitirnar samanstandi af meira en 60 vopnuðum hópum sem skiptist að meginstefnu í þrjár fylkingar. Stærsta og öflugustu fylkingin sé sú sem fylgi Íran að málum og samanstandi af vopnahópum eins og Badr og Asa´ib Ahl al-Haq en hinar tvær fylkingarnar fylgi mismunandi trúar- og stjórnmálaleiðtogum. Fjöldi liðsmanna PMF hópa sé á reiki en talinn vera um 200.000 og stærstur hluti séu sjía múslimar en smærri hópar geti verið samsettir af súnní múslimum eða öðrum minnihlutahópum. Þá bendi upplýsingar til þess að sveitir stjórnvalda þ.m.t. PMF hafi sérstaklega beitt súnní múslima ofbeldi og pyntingum við handtöku og í varðhaldi.
Samkvæmt upplýsingum frá Hudson stofnuninn hafi vopnahópurinn Asa‘ib Ahl al-Haq (AAH) verið stofnaður árið 2006 í kjölfar klofnings Mahdi hersins. AAH leitist við að stuðla að pólitískum og trúarlegum áhrifum Írans í Írak og sýni hópurinn opinskátt hollustu sína við leiðtoga Írans. Markmið samtakanna sé að Írak verði stjórnað af sjía-múslimum. Árið 2014 hafi hópurinn boðið fram til þings undir nafni al-Sadiqoun og náð einu þingsæti. Í kosningum árið 2018 hafi hópurinn náð 15 sætum en misst fylgi í kosningum árið 2021 og aðeins náð fjórum þingsætum. Leiðtogi hópsins hafi brugðist ókvæða við og haft opinberlega í hótunum við stjórnvöld í Írak og skapað óstöðugleika í landinu. Í þingkosningum í nóvember 2025 hafi hópurinn fengið 27 sæti og þá eigi þeir ráðherra í ríkisstjórn landsins. Hópurinn var skráður sem hryðjuverkasamtök af Bandarískum stjórnvöldum árið 2020.
Í skýrslu EUAA frá 2025 er sérstaklega fjallað um öryggisástand í Bagdad og að hópar á vegum PMF hafi sterka viðveru í og í grennd við höfuðborgina. Hafi hópar á þeirra vegum meðal annars ráðist inn í landbúnaðarráðuneytið í júlí 2025 til að mótmæla skipun embættismanns og einn lögreglumaður látið lífið í þeim atburði. Þá kemur fram að frá 1. ágúst 2024 til 1. ágúst 2025 hafi verið 147 öryggisatvik í Bagdad þar sem einn almennur borgari hafi látið lífið og einn slasast. Af hinum 147 skráðu öryggisatvikum hafi 47 verið skilgreind sem bardagar eða átök, 26 sprengingar og 74 atvik ofbeldis gegn borgurum. Voru atvikin skráð í um helmingi umdæma sem tilheyra Bagdad.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7.000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.
Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að árið 2011 hafi Bandaríkin ákveðið að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópa súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og samtökin endurnefnt sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Í júní 2014 hafi ISIS náð þriðjungi Íraks á sitt vald og hafi leiðtogi samtakanna, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg landsins, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá ISIS. Í desember 2017 lýsti forsætisráðherra Íraks yfir sigri gegn ISIS. Í skýrslu EUAA frá 2022 kemur fram að ISIS hafi ekki náð yfirráðum yfir frekara landsvæði síðan en reyni að festa sig í sessi á óaðgengilegum svæðum svo sem í dölum, fjöllum, eyðimörkum og á norður og miðsvæði landsins. Í síðustu ársfjórðungsskýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um stöðu hernaðaraðgerða Bandaríkjanna gegn ISIS í Írak og Sýrlandi fyrir árið 2023 kemur fram að ISIS standi höllum fæti og samtökin séu ekki fær um að efna til stærri flókinna árása. Af ársfjórðungsskýrslum ársins 2024 má ekki ráða að meiriháttar breytingar hafi átt sér stað hvað varðar getu og starfshæfi ISIS samtakanna. Samkvæmt annarri ársfjórðungsskýrslu ársins 2025 hefur árásartíðni ISIS haldið áfram að vera í sögulegu lágmarki frá upphafi árs 2025 og almennum borgurum og öryggissveitum í Írak stafi einungis lágmarkshætta af ISIS.
Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 2024 kemur fram að mikil mótmæli hafi brotist út í Bagdad og suður-Írak árið 2019 og þau orðið þekkt sem Tishreen (október mótmælin). Mótmælin hafi að stærstum hluta verið leidd af yngra fólki sem hafi kallað eftir stjórnmálalegum umbótum, mótmælt spillingu, atvinnuleysi og skorti á opinberri þjónustu. Áætlað sé að á milli 29. október og 4. nóvember árið 2019 hafi fjöldi mótmælanda náð einni milljón í Bagdad einni. Stjórnvöld, þ.m.t. vopnaðir hópar PMF, hafi brugðist við með miklu valdi auk áreitis, ólögmætum handtökum, varðhaldi, mannránum, pyntingum og drápum á mótmælendum, aðgerðarsinnum og öðrum sem hafi verið taldir styðja mótmælin. Talið er að a.m.k. 600 mótmælendur hafi látist og margir fleiri hafi særst á fyrstu mánuðum mótmælanna. Hafi mótmælin leitt til þess að þáverandi forsætisráðherra og stjórn hans hafi sagt af sér í nóvember 2019. Mótmælendur hafi einnig beitt valdi gegn öryggissveitum og vopnhópum og brennt og eyðilagt byggingar yfirvalda og stjórnmálaflokka. Mótmælin hafi haldið áfram fram í mars 2020 en þá hafi dregið úr þeim. Ofbeldi gegn mótmælendum og aðgerðarsinnum hafi þó haldið áfram og í október 2022 hafi mótmælum í tilefni þriggja ára frá Tishreen verið mætt af hörku þar sem margir mótmælendur hafi særst. Mustafa Al-Kadhimi sem skipaður var forsætisráðherra í maí 2020 hafi fyrirskipað lausn allra mótmælenda, greiðslur bóta til fjölskyldna þolenda og skipað nefnd til að yfirfara viðbrögð stjórnvalda. Þrátt fyrir það hefur takmarkaður árangur náðst við draga til ábyrgðar þá sem gerst hafi sekir um brot í mótmælunum en greiðslur til fjölskyldna þolenda hafa farið fram.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 um trúfrelsi kemur fram að Íslam sé hin opinbera trú í Írak. Um 97% íbúa Íraks séu múslimar og flestir þeirra séu sjíta-múslimar eða um 55-60% íbúa landsins. Þá séu um 40% íbúa landsins súnní múslimar en um 15% íbúa séu súnní múslimskir Kúrdar og 24% súnní múslimskir arabar. Sjíta-múslimar séu ráðandi í suður- og austurhlutum landsins auk þess sem flestir íbúar höfuðborgarinnar Bagdad séu sjíta-múslimar. Íbúar norður-og vesturhluta landsins séu flestir súnní múslimar sem og íbúar miðsvæðisins, þó að undanskilinni Bagdad. Íslam, kristni, Sabaean-mandaen og Jasíti séu einu trúarbrögðin sem geti verið tilgreind á írökskum skilríkjum, en skilríki útgefin árið 2016 og síðar beri ekki með sér hverrar trúar handhafi sé. Í skýrslu Landinfo frá 2018 kemur fram að í íröksku samfélagi séu einstaklingar skilgreindir út frá þeim trúarhópum sem þeir fæðist inn í og að litið sé með vanþóknun á trúleysi.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um súnní múslima kemur fram að dæmi séu um að írakski stjórnarherinn hafi misþyrmt súnní múslimum, m.a. með beitingu gerræðislegra handtaka, varðhalds, pyndinga og annarrar vanvirðandi meðferðar vegna meintra tengsla þeirra eða stuðnings við Daesh. Þá séu dæmi um að sveitir PMF hafi tekið þátt í mannránum, fjárkúgunum, morðum, pyndingum súnní múslima og eyðileggingu eigna þeirra á grundvelli ásakana um tengsl þeirra við Daesh, einkum á þeim svæðum sem áður hafi verið undir stjórn samtakanna. Samskonar umfjöllun er einnig að finna í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi. Samkvæmt framangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins er þó meðferð írakskra yfirvalda á súnní múslimum almennt ekki talin nægilega alvarleg í eðli sínu og endurtekningu til að hún geti talist ná þeim þröskuldi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð nema einstaklingur geti sýnt fram á að atvik sem tengist honum persónulega setji hann í aukna hættu, t.a.m. ætluð tengsl við Daesh.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Hins vegar beri ættbálkurinn almennt ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.
Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna fyrir árið 2023 kemur fram að stjórnarskrá Íraks kveði á um jafnrétti allra fyrir lögum. Þá skuli stjórnvöld tryggja fötluðu fólki og einstaklingum með sérþarfir þjónustu á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu, vernd gegn mismunun, húsnæðisúrræði og aðgengi að umönnun og endurhæfingu. Þrátt fyrir ákvæði stjórnarskrár hafi fatlað fólk og einstaklingar með sérþarfir mætt margvíslegum hindrunum hvað varðar aðgengi þeirra að námi, atvinnu, heilbrigðisþjónustu, réttarkerfinu og annars konar opinberri þjónustu. Í leiðbeiningum EUAA frá 2024 kemur fram að íröksk stjórnvald hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og sett löggjöf um þjónustu við fatlað fólk og fólk með sérstakar þarfir. Á grundvelli þeirrar löggjafar hafi verið sett á fót nefnd um virðingu og vernd réttinda fatlaðs fólks. Fatlað fólk og einstaklingar með sérþarfir séu hins vegar enn meðal viðkvæmustu þjóðfélagshópa í Írak og fari réttindi þeirra oft forgörðum í almennri umræðu.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2024 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa sé staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála. Þá séu ýmis frjáls félagasamtök í Írak, bæði innlend og alþjóðleg, sem vinni að réttindum og aðgengismálum fatlaðs fólks í Írak. Einkum hafi verið ráðist í verkefni og aðgerðir á svæðum sem hafi orðið verst úti í vopnuðum átökum í landinu síðustu áratugi, s.s. með aðstoð við að útvega stuðningstæki og bæta aðgengismál. Einnig hafi verið gripið til aðgerða í Bagdad og öðrum þéttbýlisstöðum til þess að efla þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og bæta félagslega og efnahagslega stöðu þeirra.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á því að óttast ofsóknir af hálfu vopnahópsins Asa´ib Ahl al-Haq vegna þátttöku í mótmælum í heimaríki árið 2019 auk þess að tilheyra minnihluta súnní múslima.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi orðið fyrir hótunum og árás af hálfu vopnhópsins Asa´ib Ahl al-Haq vegna stuðnings við og þátttöku í mótmælum árið 2019. Lagði kærandi fram skriflega hótun sem hann kvað sér hafa borist árið 2019 og greindi frá því að degi eftir móttöku hótunarinnar hafi hann og eiginkona hans, K, orðið fyrir árás þar sem hann hafi verið særður tveimur skotsárum, stunginn og barinn í höfuðið. Þegar kærandi hafi vaknað á sjúkrahúsi hafi faðir hans tjáð honum að bróðir hans hafi verið myrtur, að hann væri í hættu og í kjölfarið hafi hann og fjölskylda hans yfirgefið Írak og haldið til Grikklands hvar þeim hafi verið veitt viðbótarvernd 14. október 2020. Þá greindi kærandi frá því að hús fjölskyldunnar hafi verið brennt til grunna eftir að hann og fjölskylda hans hafi yfirgefið Írak. Kvaðst kærandi eiga myndir af brunarústunum. Fjölskylda kæranda hafi tjáð honum að vopnahópurinn Asa´ib Ahl al-Haq hafi sprengt upp og kveikt í húsi fjölskyldunnar og að sögn kæranda hafi nágrannar hans og K staðfest þær upplýsingar. Var frásögn kæranda í öllum meginatriðum í samræmi við frásögn K.
Við meðferð málsins lagði kærandi fram fjölda gagna, m.a. ódagsetta ljósmynd sem hann kveður vera af brunarústum húss fjölskyldunnar í Írak. Rannsókn nefndarinnar á framangreindri ljósmynd leiddi í ljós að myndin hafi birst í umfjöllun fréttaveitunnar Al Jazeera af rústum í flóttamannabúðum í Jenin á Vesturbakkanum í kjölfar árásar Ísraela 26. janúar 2023. Með tölvubréfi, dags. 18. febrúar 2026, var kæranda og K veitt tækifæri til að bregðast við framangreindu. Samkvæmt svörum kæranda og K, dags. 23. febrúar 2026, hafi kærandi fengið ljósmyndina senda frá föður sínum eftir að kærandi og fjölskylda hans hafi yfirgefið Írak. Myndin hafi verið send föður kæranda af skæruliðahópi sem hafi haft í hótunum við fjölskylduna. Kærandi og K hafi því verið í góðri trú hvað umrædda mynd varðar.
Með vísan til þess er að framan segir um uppruna framlagðrar myndar er ljóst að hún sýnir ekki brunarústir húss fjölskyldunnar og að mati nefndarinnar eru athugasemdir kæranda og K hvað myndina varðar ekki trúverðugar. Lítur kærunefnd m.a. til þess að í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun kvað kærandi fjölskyldu sína hafa tjáð honum frá bruna hússins og að nágrannar hans hafi staðfest þær upplýsingar. Eru athugasemdir kæranda og K um að faðir kæranda hafi fengið umrædda ljósmynd senda frá skæruliðahópi ekki í samræmi við frásögn hans í viðtali. Þá er ljóst að myndin er tekin um þrem árum eftir að kærandi og fjölskylda hans yfirgáfu heimaríki. Framangreind mynd og frásögn kæranda um bruna húss fjölskyldunnar verður því ekki lögð til grundvallar.
Af landaupplýsingum verður ráðið að í október mótmælunum árið 2019 í Írak og í kjölfar þeirra hafi mótmælendur og þeir sem tóku þátt í þeim orðið fyrir ýmis konar ofbeldi. Telur nefndin því ekki ástæðu til að draga í efa frásögn kæranda um að hann hafi orðið fyrir hótunum og ofbeldi í tengslum við umrædd mótmæli.
Við yfirferð á landaheimildum verður ekki ráðið að þeir sem tóku þátt í mótmælunum árið 2019 hafi þurft að sæta ofsóknum í kjölfar þeirra nema um hafi verið að ræða einstaklinga sem hafi verið áberandi í mótmælunum eða einstaklinga sem hafi haldið áfram mótmælum. Er litið til þess að langt er um liðið og ekkert sem bendir til þess að kærandi eigi á hættu að verða sérstakt skotmark vegna þátttöku sinnar í mótmælunum og er þá jafnframt litið til þess að hlutverk kæranda samkvæmt hans eigin frásögn var takmarkað við að styðja við mótmælendur með því að færa þeim mat. Umrætt hótunarbréf frá vopnahópnum Asa´ib Ahl al-Haq breytir ekki þessu mati nefndarinnar enda verður ekki annað ráðið en að um hafi verið að ræða tilfallandi hótun í tengslum við mótmælin sem nú eru liðin hjá. Kærandi greindi auk þess frá því að fjöldi annarra aðila hafi fengið samskonar bréf. Einnig liggur fyrir að yfirvöld í Írak hafi gripið til aðgerða til að rétta hlut þeirra sem urðu fyrir ofbeldi í mótmælunum með bótum þrátt fyrir að erfitt hafi reynst að sækja gerendur til saka. Gefur það til kynna að kærandi geti leitað verndar stjórnvalda í Írak telji hann þess þörf.
Hvað varðar þá málsástæðu kæranda að eiga á hættu ofsóknir sökum þess að vera súnní múslimi þá er rétt að þeir eiga frekar á hættu ýmis konar áreiti eða ofsóknir í Írak. Aðstæður eru þó ekki slíkar að það eitt og sér að vera súnní múslimi leiði til þess að einstaklingur eigi á hættu ofsóknir heldur þurfa að koma til einhverjar einstaklingsbundnar aðstæður. Kærandi greindi ekki frá tilvikum þar sem hann eða fjölskylda hans hafi sætt sérstöku áreiti í heimaríki af þeim sökum, en af frásögnum kæranda og eiginkonu hans verður ráðið að þau hafi átt húsnæði og að kærandi hafi unnið ýmis störf í heimaríki. Er það niðurstaða nefndarinnar að ekkert bendi til þess að kærandi eigi á hættu að sæta mismunun eða ofbeldi á grundvelli trúar sinnar sem nái því marki að teljast ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. b-lið 2. mgr. 38. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að þær athafnir sem kærandi hefur lýst hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á sömu málsástæðum og fyrir aðalkröfu auk almennra aðstæðna í heimaríki.
Líkt og fjallað hefur verið um í úrskurðum kærunefndar síðustu ára vegna umsækjenda frá Írak og nýlegra heimilda um aðstæður í Írak eru almennar aðstæður þar í landi ekki slíkar að allir sem þar eru staddir eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Eftir sigur írakskra stjórnvalda á Daesh hefur hæg uppbygging átt sér stað í landinu og öryggisástand batnað til muna. Hafa þær aðstæður haldist nokkuð stöðugar í lengri tíma og þrátt fyrir að á síðustu árum hafi blossað upp deilur og átök á afmörkuðum svæðum eru ekki ríkjandi vopnuð átök í landinu þar sem ekki er greint á milli borgaralegra eða hernaðarlegra skotmarka. Þar sem það er niðurstaða kærunefndar að aðstæður á heimasvæði kæranda í Bagdad og almennt í Írak séu ekki með þeim hætti að þær nái því marki að hver sá einstaklingur sem þar er staddur eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þurfa frekari persónubundnir þættir að koma til svo einstaklingur uppfylli skilyrði ákvæðisins og eigi rétt á viðbótarvernd.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að félagslegar aðstæður í Írak verði honum og fjölskyldu hans verulega erfiðar þar sem þau hafi enga atvinnumöguleika og eigi nær enga fjölskyldumeðlimi. Þá vísar kærandi til heilbrigðisástæðna.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kæranda verði ekki ráðið að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera með sprengjubrot í bakinu, ristilvandamál og þreyttur andlega. Þá hafi bróðir kæranda verið myrtur fyrir framan hann sem hafi haft andleg áhrif á hann. Samkvæmt gögnum frá heilsugæslunni[...], dags. 25. janúar 2023, hafi kærandi greint frá verkjum vegna gamalla meiðsla á fæti og hafi fengið ávísað lyfjum við taugaverkjum. Samkvæmt gögnum frá heilsugæslunni[...], dags. 30. mars 2023, hafi kærandi leitað þangað vegna brjóstsviða og fengið ávísað lyfjum. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 6. mars 2023, hafi kærandi greint frá bakverk og fengið beiðni um röntgenmyndatöku auk þess að fá ávísað lyfjum vegna annarra kvilla. Samkvæmt gögnum frá bráðamóttöku Landspítala, dags. 6. júní 2023, hafi kærandi leitað á bráðamóttöku vegna kviðverkja og verið með blóð í hægðum. Kærandi hafi farið í blóðrannsókn og fengið beiðni um ristilspeglun. Samkvæmt gögnum frá Landspítalanum á sviði meltingar- og nýrnalækninga, dags. 15. júní 2023, hafi ekkert óeðlilegt komið út úr niðurstöðum ristilspeglunar. M hafi verið greindur með litla gyllinæð.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að honum og fjölskyldu hans muni reynast erfitt að sjá fyrir sér þar sem þau hafi enga atvinnumöguleika og eigi enga fjölskyldumeðlimi í heimaríki. Kærandi hefur greint frá því að eiga foreldra í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að hann hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er á fertugsaldri og almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 13. desember 2022.
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Að framan hefur verið tekin afstaða um auðkenni kæranda og með vísan til þeirrar umfjöllunar er ljóst að vafi leikur á um auðkenni hans sbr. a-lið 2.m gr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til umfjöllunar um hvað varðar framlögð auðkennisgögn, trúverðugleikamats, og þess að kærandi hefur lagt fram gagn til að blekkja stjórnvöld er það auk þess niðurstaða nefndarinnar að kærandi hafi ekki aðstoðað við úrlausn málsins í skilningi d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þar sem skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eru ekki uppfyllt kemur ekki til skoðunar hvort ákvæði 3. mgr. sömu greinar eigi við í málinu. Þá eru atvik ekki þannig að rétt sé að víkja frá framangreindu skilyrði sbr. 4. mgr. 74. gr. laganna.
Er því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa nein tengsl við önnur aðildarríki Schengen samstarfsins. Þá kvaðst kærandi munu virða slíka ákvörðun en hún yrði ósanngjörn. Einu ættingjar þeirra í Evrópu væri systir eiginkonu hans, börnin hans elskuðu Ísland og væru hamingjusöm hér.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir