05 mars 2026
/
Úrskurður nr. 71/2026
Hinn 5. mars 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 71/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU24040156
Kæra [...] og barna hennar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 24. apríl 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] (hér eftir kærandi), og vera ríkisborgari Írak, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 10. apríl 2026, um að synja henni og börnum hennar, er hún kveður heita [...], fæddan [...] (hér eftir A) og [...], fædda [...] (hér eftir B), og vera ríkisborgarar Írak, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og börn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kærandi, eiginmaður hennar og tvö börn þeirra kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar í sameiningu, nutu liðsinnis sama talsmanns og lögðu fram sameiginlegar greinargerðir ásamt fylgiskjölum við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun og á kærustigi. Fjallað er um kæru eiginmanns kæranda í úrskurði nefndarinnar nr. 70/2026.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins ásamt fjölskyldu sinni og fjölskyldu systur sinnar frá Grikklandi og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 13. desember 2022. Kvaðst kærandi hafa farið frá Írak 2019 og sótt um alþjóðlega vernd í Grikklandi sem þau hafið hlotið.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 27. apríl 2023, var umsóknum kæranda og fjölskyldu hennar synjað með vísan 36. gr. laga um útlendinga og þeim gert að snúa aftur til Grikklands. Voru þær ákvarðanir staðfestar með úrskurði kærunefndar frá 13. júlí 2023. Hinn 7. september 2023 hafnaði kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa þeirra úrskurða. Voru kærandi og fjölskylda hennar skráð horfin og eftirlýst frá 10. október 2023. Hinn 18. október 2023 voru mál þeirra tekin til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun þar sem 10 mánaða frestur til endursendingar til Grikklands var útrunninn.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun vegna efnismeðferðar 14. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi vera fædd og uppalin í Bagdad og vera súnní múslimi. Hafi hún og eiginmaður hennar búið í stóru húsi og getað séð fyrir sér. Aðspurð um heilsu sína kvaðst hún vera með gigt og ætti stundum erfitt með að anda um nef vegna árásar í heimaríki. Þá lýsti kærandi slysum sem hún hafi orðið fyrir hér á landi og þörf sinni fyrir sjúkraþjálfun af þeim sökum. Kærandi kvað andlega heilsu sína slæma vegna árásar og kynferðisofbeldis sem hún hefði orðið fyrir í heimaríki. Aðspurð um heilsu barna sinna kvað hún B ekki hafa stjórn á þvagláti og að A glími við ofnæmi og vandamál í liðum eða gigt. Kvaðst kærandi ekki vera meðlimur í stjórnmálaflokki eða virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki en að hún væri í minnihluta sökum þess að vera súnní múslimi. Aðspurð um ástæður flótta frá heimaríki vísaði kærandi til þess að eiginmaður hennar hafi stutt mótmælendur árið 2019 og þau fengið hótanir í kjölfarið. Fyrst hafi þeim borist umslag með byssukúlu og svo skriflega hótun sem kærandi og eiginmaður hennar lögðu fram hér á landi. Sú hótun hafi borist 18. nóvember 2019 en daginn eftir hafi verið ráðist á þau á heimili þeirra, eiginmaður hennar laminn og svo hafi gerendur ráðist á kæranda og nauðgað henni. Jafnframt hafi bróðir eiginmanns hennar verið myrtur. Kvað kærandi þau hafa farið á sjúkrahús en svo leitað aðstoðar hjá fjölskylduvinum og yfirgefið Írak skömmu síðar. Aðspurð um hverjir hafi staðið að baki árásinni og hótunum í þeirra garð kvað hún það hafa verið vopnahópinn Asa´ib Ahl al-Haq sem væri enn áhrifamikill hópur sem kæranda og fjölskyldu hennar stafi enn ógn af. Kvað kærandi sér ekki kunnugt um hótanir fyrir þessi atvik í þeirra garð og að hún þekkti ekki neinn í umræddum vopnahópi persónulega. Þá kvað kærandi hús þeirra hafa verið brennt til grunna eftir að þau yfirgáfu Írak. Kvaðst kærandi óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar yrði þeim gert að snúa til baka.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kæranda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við þau með vísan til ungs aldurs þeirra og framburðar foreldra þeirra.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 24. apríl 2024 og barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum 10. maí 2024. Hinn 31. maí 2024 upplýsti talsmaður kæranda um frumrit persónuskilríkis A sem lögð voru fram hjá nefndinni 19. desember 2025 og þá bárust nefndinni frekari heilsufarsgögn 5. ágúst 2025. Með tölvubréfi kærunefndar til kæranda og eiginmanns hennar, dags. 18. febrúar 2026, óskaði nefndin eftir frekari upplýsingum frá kæranda og eiginmanni hennar og þeim boðið að gera athugasemdir við tiltekin atriði. Bárust svör þeirra 23. febrúar 2026.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir sameiginlega greinargerð kæranda og fjölskyldu hennar og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtali hjá Útlendingastofnun.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Írak mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt sérstaklega með vísan til þess hvernig stofnunin hafi metið sönnunargildi á framlögðum gögnum. Vísar kærandi m.a. til mats á sönnunargildi hótunarbréfs frá vopnahópnum Asa´ib Ahl al-Haq, myndar af látnum bróður eiginmanns kæranda, dánarvottorðs bróður eiginmanns kæranda, mynda af heimili kæranda, mats á þýðingu íslenskra heilbrigðisgagna og mats á almennri frásögn kæranda og eiginmanns hennar.
Kærandi krefst þess aðallega að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að hún óttist ofsóknir sem geti fallið undir a-, b- og d-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og byggir á þátttöku sinni í mótmælum og því að óttast ofsóknir af hendi vopnahópsins Asa´ib Ahl al-Haq sem geti fallið undir a- til c-lið 4. mgr. sama ákvæðis. Byggir kærandi á því að óttast ofsóknir á grundvelli þess að tilheyra þjóðfélagshópi sem þolandi ofbeldis af hálfu vopnaðs hóps, sem kona, á grundvelli þess að vera súnní múslimi og á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á sömu ástæðum og fyrir aðalkröfu auk almennra aðstæðna í heimaríki.
Til þrautavara krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á því að félagslegar aðstæður í Írak verði henni og fjölskyldu hennar verulega erfiðar þar sem þau eigi enga atvinnumöguleika og nær enga fjölskyldumeðlimi. Þá vísar kærandi til heilbrigðisástæðna.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á því að 13. apríl 2024 hafi 16 mánuðir verið liðnir frá því fjölskyldan hafi sótt um vernd. Þá uppfylli kærandi öll skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og í málinu liggi fyrir ljósmyndir af írökskum persónuskilríkjum fjölskyldunnar auk skilríkja útgefnum af grískum yfirvöldum. Leiki því enginn vafi á auðkenni kæranda. Kæranda sé ómögulegt að leggja fram írakskt vegabréf þar sem hér á landi sé ekkert sendiráð á vegum Íraks. Þá er byggt á því að börn kæranda verði ekki gerð ábyrg fyrir skilríkjastöðu eða athöfnum foreldra sinna og að synjun verði ekki byggð á því einu að ekki liggi fyrir frumrit írakskra vegabréfa þeirra.
Með kæru fylgdu myndir af áverkum kæranda, heilsufarsgögn og meðmælabréf frá deildarstjóra í [...] vegna skólagöngu A.
Með endursendingu kæranda og barna hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og hafa mál fjölskyldunnar verið unnin samhliða.
5.3 Auðkenni
Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað grísku flóttamannavegabréfi, grísku dvalarleyfisskírteini og afriti af írökskum auðkenniskortum fyrir sig og börn sín. Hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað auðkenni sitt eða barna sinna með fullnægjandi hætti.
Við meðferð málsins fyrir kærunefnd framvísaði kærandi afriti af íröksku þjóðernisvottorði eiginmanns síns, frumriti af íröksku húsráðandakorti og frumriti íraksks nafnskírteinis A, sonar kæranda. Voru skjölin send til rannsóknar hjá skilríkjarannsóknarstofu lögreglunnar á Suðurnesjum. Samkvæmt skjalarannsóknarskýrslu þeirra frá 6. janúar 2026 var afrit af íröksku þjóðernisvottorði ótraust að forminu til en enga fölsun að sjá og frumrit af íröksku húsráðandakorti skjal án öryggisþátta en þó talið að öllum líkindum ófalsað.
Að því er varðar írakskt nafnskírteini A var það talið að öllum líkindum ófalsað en afrit af því skírteini var lagt fram við meðferð málsins fyrir Útlendingastofnun ásamt afritum af sambærilegum skilríkjum annarra fjölskyldumeðlima, þ.m.t. kæranda.
Framangreind afrit af írökskum auðkenniskortum kæranda og barna hennar voru af framhlið kortanna en ekki bakhlið þeirra. Ofarlega fyrir miðju á framhlið slíkra írakskra auðkenniskorta er að finna tólf stafa númeraröð og vísa fyrstu fjórir tölustafirnir til fæðingarárs handhafa viðkomandi auðkenniskorts. Fjórar fyrstu tölurnar í númeraröð á auðkenniskorti kæranda eru „1977“ og vísa því til ársins 1977. Frá upphafi málsmeðferðar kæranda hjá íslenskum stjórnvöldum, þ. á m. í tveimur viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, hefur kærandi sagst vera fædd [...] 1995. Þá kemur jafnframt fram í dvalarleyfiskorti og ferðaskilríki kæranda frá Grikklandi, hvar kæranda og fjölskyldu hennar var veitt viðbótarvernd, að kærandi hafi fæðst [...] 1995. Var það ekki fyrr en í svörum kæranda og eiginmanns hennar, dags. 23. febrúar 2026, við athugasemdum nefndarinnar vegna framangreinds misræmis, sem kærandi og eiginmaður hennar kváðu réttan fæðingardag kæranda vera [...] 1977. Þau telji að mistök hafi átt sér stað á Grikklandi þar sem kærandi hafi fengið grísk skilríki sem byggð hafi verið á írökskum skilríkjum þar sem fæðingardagur hennar hafi verið tilgreindur [...]1995. Að sögn kæranda og eiginmanns hennar hafi þessi mistök síðan ruglað kæranda í ríminu í viðtali hjá Útlendingastofnun.
Er það mat nefndarinnar að útskýringar kæranda og eiginmanns hennar hvað framangreint atriði varðar séu ekki trúverðugar. Lítur kærunefnd m.a. til þess að kærandi og fjölskylda hennar hafa dvalið hér á landi í rúmlega þrjú ár, sótt viðtöl hjá Útlendingastofnun og notið þjónustu, m.a. í heilbrigðiskerfinu, þar sem kærandi og eiginmaður hennar nutu liðsinnis arabískra túlka og ávallt hafi þau vísað til þess kærandi væri fædd árið 1995.
Með vísan til framangreinds er ljóst að auðkenni kæranda og B hafa ekki verið sönnuð. Með framlögðu frumriti auðkenniskorts A hafa verið leiddar líkur að auðkenni hans en með vísan til misræmis hvað varðar auðkenni annarra fjölskyldumeðlima telst það þó ekki sannað.
Ekki er þó ástæða til annars en að leggja til grundvallar að kærandi og börn hennar séu írakskir ríkisborgarar en að öðru leyti sé auðkenni þeirra ekki upplýst.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- Asaib Ahl al-Haq (Counter Extremism Project, Asaib Ahl al-Haq | Counter Extremism Project, sótt af vefsíðu 21. febrúar 2023);
- Country Guidance: Iraq (EUAA, nóvember 2024);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (EUAA, janúar 2022);
- Country of Origin Information Query, Iraq, Asa‘ib Ahl al-Haq militia (EUAA, 30. september 2025);
- Country of Origin Information Query, Iraq, Activities of Asa‘ib Ahl al-Haq (AAH) in relation to coercion, extortion, and property-related practices (EUAA, 29. janúar 2026);
- Country Policy and Informatin Note: actors of protection, Iraq (UK Home Office, september 2025);
- Country Information Note – Iraq: Healthcare and medical treatment (UK Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Iraq: “Honour” crimes (UK Home Office, mars 2021);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
- DFAT Country Information Report Iraq (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 16. janúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People fleeing the Republic of Iraq, Update I (UNHCR, 30. janúar 2024);
- Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
- Iraq - Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, október 2025);
- Irak: En kortfattet oppdatering om sikkerhetssituasjonen i Anbar og Mosul (Landinfo, 15. nóvember 2024);
- Iraq: How the world helped Mosul rise from the rubble of war (United Nations, 6. febrúar 2025);
- Iraq: New US$930 Million Project to Extend and Modernize Railways, Promote Regional Connectivity and Boost Growth (World Bank Group (worldbank.org), 25. júní 2025);
- Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, EUAA, maí 2024);
- Irak – Situasjonen i Mosul (Landinfo, 23. desember 2022);
- Iraq Timeline: Since the 2003 War (United States Institute of Peace (usip.org), sótt 30. mars 2023);
- Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and Syria – October 1, 2023 – December 31, 2023 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 9. febrúar 2024);
- Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and Syria – April 1, 2025 – June 30, 2025 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 29. júlí 2025);
- Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
- The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 10. desember 2025);
- Unicef Iraq, Annual Report 2024 (Unicef, febrúar 2025);
- United Nations in Iraq – Annual Results Report 2023 (Sameinuðu þjóðirnar, 10. júlí 2024);
- World Report 2023 – Iraq (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2025 – Iraq (Human Rights Watch, janúar 2025) og
- Ære og æresrelatert vold (Landinfo, 10. mars 2022).
Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljón íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.
Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðneytisins fyrir árið 2024 má ráða að stjórnvöld og vopnahópar eins og PMF (e. Popular Mobilizaton Forces) hafi beitt almenna borgara ofbeldi og pyntingum án afleiðinga.
Í skýrslum EUAA frá árinu 2025 og eldri skýrslu frá 2024 er fjallað um stöðu PMF hópa í Írak. PMF sé regnhlífarheiti yfir vopnahópa sem starfi í skjóli stjórnvalda og teljist hluti af öryggissveitum Írak. PMF sveitirnar samanstandi af meira en 60 vopnuðum hópum sem skiptist að meginstefnu í þrjár fylkingar. Stærsta og öflugustu fylkingin sé sú sem fylgi Íran að málum og samanstandi af vopnahópum eins og Badr og Asa´ib Ahl al-Haq en hinar tvær fylkingarnar fylgi mismunandi trúar- og stjórnmálaleiðtogum. Fjöldi liðsmanna PMF hópa sé á reiki en talinn vera um 200.000 og stærstur hluti séu sjía múslimar en smærri hópar geti verið samsettir af súnní múslimum eða öðrum minnihlutahópum. Þá bendi upplýsingar til þess að sveitir stjórnvalda þ.m.t. PMF hafi sérstaklega beitt súnní múslima ofbeldi og pyntingum við handtöku og í varðhaldi.
Samkvæmt upplýsingum frá Hudson stofnuninni hafi vopnahópurinn Asa‘ib Ahl al-Haq (AAH) verið stofnaður árið 2006 í kjölfar klofnings Mahdi hersins. AAH leitist við að stuðla að pólitískum og trúarlegum áhrifum Írans í Írak og sýni hópurinn opinskátt hollustu sína við leiðtoga Írans. Markmið samtakanna sé að Írak verði stjórnað af sjía-múslimum. Árið 2014 hafi hópurinn boðið fram til þings undir nafni al-Sadiqoun og náð einu þingsæti. Í kosningum árið 2018 hafi hópurinn náð 15 sætum en misst fylgi í kosningum árið 2021 og aðeins náð fjórum þingsætum. Leiðtogi hópsins hafi brugðist ókvæða við og haft opinberlega í hótunum við stjórnvöld í Írak og skapað óstöðugleika í landinu. Í þingkosningum í nóvember 2025 hafi hópurinn fengið 27 sæti og þá eigi þeir ráðherra í ríkisstjórn landsins. Hópurinn var skráður sem hryðjuverkasamtök af Bandarískum stjórnvöldum árið 2020.
Í skýrslu EUAA frá 2025 er sérstaklega fjallað um öryggisástand í Bagdad og að hópar á vegum PMF hafi sterka viðveru í og í grennd við höfuðborgina. Hafi hópar á þeirra vegum meðal annars ráðist inn í landbúnaðarráðuneytið í júlí 2025 til að mótmæla skipun embættismanns og einn lögreglumaður látið lífið í þeim atburði. Þá kemur fram að frá 1. ágúst 2024 til 1. ágúst 2025 hafi verið 147 öryggisatvik í Bagdad þar sem einn almennur borgari hafi látið lífið og einn slasast. Af hinum 147 skráðu öryggisatvikum hafi 47 verið skilgreind sem bardagar eða átök, 26 sprengingar og 74 atvik ofbeldis gegn borgurum. Atvikin hafi átt sér stað í um helmingi umdæma sem tilheyri Bagdad.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7.000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.
Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að árið 2011 hafi Bandaríkin ákveðið að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópa súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og samtökin endurnefnt sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Í júní 2014 hafi ISIS náð þriðjungi Íraks á sitt vald og hafi leiðtogi samtakanna, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg landsins, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá ISIS. Í desember 2017 lýsti forsætisráðherra Íraks yfir sigri gegn ISIS. Í skýrslu EUAA frá 2022 kemur fram að ISIS hafi ekki náð yfirráðum yfir frekara landsvæði síðan en reyni að festa sig í sessi á óaðgengilegum svæðum svo sem í dölum, fjöllum, eyðimörkum og á norður og miðsvæði landsins. Í síðustu ársfjórðungsskýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um stöðu hernaðaraðgerða Bandaríkjanna gegn ISIS í Írak og Sýrlandi fyrir árið 2023 kemur fram að ISIS standi höllum fæti og samtökin séu ekki fær um að efna til stærri flókinna árása. Af ársfjórðungsskýrslum ársins 2024 má ekki ráða að meiriháttar breytingar hafi átt sér stað hvað varðar getu og starfshæfi ISIS samtakanna. Samkvæmt annarri ársfjórðungsskýrslu ársins 2025 hefur árásartíðni ISIS haldið áfram að vera í sögulegu lágmarki frá upphafi árs 2025 og almennum borgurum og öryggissveitum í Írak stafi einungis lágmarkshætta af ISIS.
Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 2024 kemur fram að mikil mótmæli hafi brotist út í Bagdad og suður-Írak árið 2019 og þau orðið þekkt sem Tishreen (október mótmælin). Mótmælin hafi að stærstum hluta verið leidd af yngra fólki sem hafi kallað eftir stjórnmálalegum umbótum, mótmælt spillingu, atvinnuleysi og skorti á opinberri þjónustu. Áætlað sé að á milli 29. október og 4. nóvember árið 2019 hafi fjöldi mótmælanda náð einni milljón í Bagdad einni. Stjórnvöld, þ.m.t. vopnaðir hópar PMF, hafi brugðist við með miklu valdi auk áreitis, ólögmætum handtökum, varðhaldi, mannránum, pyntingum og drápum á mótmælendum, aðgerðarsinnum og öðrum sem hafi verið taldir styðja mótmælin. Talið er að a.m.k. 600 mótmælendur hafi látist og margir fleiri hafi særst á fyrstu mánuðum mótmælanna. Hafi mótmælin leitt til þess að þáverandi forsætisráðherra og stjórn hans hafi sagt af sér í nóvember 2019. Mótmælendur hafi einnig beitt valdi gegn öryggissveitum og vopnahópum og brennt og eyðilagt byggingar yfirvalda og stjórnmálaflokka. Mótmælin hafi haldið áfram fram í mars 2020 en þá hafi dregið úr þeim. Ofbeldi gegn mótmælendum og aðgerðarsinnum hafi þó haldið áfram og í október 2022 hafi mótmælum í tilefni þriggja ára frá Tishreen verið mætt af hörku þar sem margir mótmælendur hafi særst. Mustafa Al-Kadhimi sem skipaður var forsætisráðherra í maí 2020 hafi fyrirskipað lausn allra mótmælenda, greiðslur bóta til fjölskyldna þolenda og skipað nefnd til að yfirfara viðbrögð stjórnvalda. Þrátt fyrir það hafi takmarkaður árangur náðst við draga til ábyrgðar þá sem gerst hafi sekir um brot í mótmælunum en greiðslur til fjölskyldna þolenda hafi farið fram.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 um trúfrelsi kemur fram að Íslam sé hin opinbera trú í Írak. Um 97% íbúa Íraks séu múslimar og flestir þeirra séu sjíta-múslimar eða um 55-60% íbúa landsins. Þá séu um 40% íbúa landsins súnní múslimar en um 15% íbúa séu súnní múslimskir Kúrdar og 24% súnní múslimskir arabar. Sjíta-múslimar séu ráðandi í suður- og austurhlutum landsins auk þess sem flestir íbúar höfuðborgarinnar Bagdad séu sjíta-múslimar. Íbúar norður-og vesturhluta landsins séu flestir súnní múslimar sem og íbúar miðsvæðisins, þó að undanskilinni Bagdad. Íslam, kristni, Sabaean-mandaen og Jasíti séu einu trúarbrögðin sem geti verið tilgreind á írökskum skilríkjum, en skilríki útgefin árið 2016 og síðar beri ekki með sér hverrar trúar handhafi sé. Í skýrslu Landinfo frá 2018 kemur fram að í íröksku samfélagi séu einstaklingar skilgreindir út frá þeim trúarhópum sem þeir fæðist inn í og að litið sé með vanþóknun á trúleysi.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um súnní múslima kemur fram að dæmi séu um að írakski stjórnarherinn hafi misþyrmt súnní múslimum, m.a. með beitingu gerræðislegra handtaka, varðhalds, pyndinga og annarrar vanvirðandi meðferðar vegna meintra tengsla þeirra eða stuðnings við Daesh. Þá séu dæmi um að sveitir PMF hafi tekið þátt í mannránum, fjárkúgunum, morðum, pyndingum súnní múslima og eyðileggingu eigna þeirra á grundvelli ásakana um tengsl þeirra við Daesh, einkum á þeim svæðum sem áður hafi verið undir stjórn samtakanna. Samskonar umfjöllun er einnig að finna í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi. Samkvæmt framangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins er þó meðferð írakskra yfirvalda á súnní múslimum almennt ekki talin nægilega alvarleg í eðli sínu og endurtekningu til að hún geti talist ná þeim þröskuldi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð nema einstaklingur geti sýnt fram á að atvik sem tengist honum persónulega setji hann í aukna hættu, t.a.m. ætluð tengsl við Daesh.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Hins vegar beri ættbálkurinn almennt ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.
Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna fyrir árið 2023 kemur fram að stjórnarskrá Íraks kveði á um jafnrétti allra fyrir lögum. Þá skuli stjórnvöld tryggja fötluðu fólki og einstaklingum með sérþarfir þjónustu á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu, vernd gegn mismunun, húsnæðisúrræði og aðgengi að umönnun og endurhæfingu. Þrátt fyrir ákvæði stjórnarskrár hafi fatlað fólk og einstaklingar með sérþarfir mætt margvíslegum hindrunum hvað varðar aðgengi þeirra að námi, atvinnu, heilbrigðisþjónustu, réttarkerfinu og annars konar opinberri þjónustu. Í leiðbeiningum EUAA frá 2024 kemur fram að íröksk stjórnvöld hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og sett löggjöf um þjónustu við fatlað fólk og fólk með sérstakar þarfir. Á grundvelli þeirrar löggjafar hafi verið sett á fót nefnd um virðingu og vernd réttinda fatlaðs fólks. Fatlað fólk og einstaklingar með sérþarfir séu hins vegar enn meðal viðkvæmustu þjóðfélagshópa í Írak og fari réttindi þeirra oft forgörðum í almennri umræðu.
Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu EUAA frá 2025, er fjallað um erfiða stöðu kvenna í Írak. Fram kemur að efnahagsþvinganir og langvarandi átök hafi leitt til þess að lífsgæði þeirra hafi farið versnandi. Karllæg gildi séu ríkjandi í Írak og skortur sé á umræðu um réttindi kvenna og getu þeirra til að taka frekar þátt í samfélaginu. Konur séu jaðarsettar á mörgum sviðum samfélagsins og hafi mætt margvíslegum hindrunum, þ. á m. hvað varðar aðgengi að vinnumarkaði og heilbrigðiskerfi. Þá hafi margvísleg mannréttindabrot beinst að konum, þ. á m. kynferðis- og heimilisofbeldi, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og þvinguð hjónabönd. Konur hafi veigrað sér við að leita aðstoðar lögregluyfirvalda vegna þessa, m.a. vegna viðmóts yfirvalda í garð kvenna, og séu málin því oft leyst innan viðkomandi fjölskyldu eða ættbálks. Fram kemur að yfirvöld í Írak hafi gerst aðili að alþjóðlegum samningum um réttindi kvenna, s.s. samningi Sameinuðu þjóðanna frá 1986 um brottnám allrar mismunar gegn konum (CEDAW), en hafi gert fyrirvara við nokkur af helstu ákvæðum samningsins.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 og EUAA frá 2025 fram að þrátt fyrir að stjórnarskrá Íraks banni allt ofbeldi og misnotkun innan fjölskyldunnar þá tilgreini refsilög landsins heimilisofbeldi ekki sérstaklega og lögin heimili eiginmönnum að aga eiginkonur sínar og börn innan ákveðinna marka sem séu nánar tilgreind í lögum og venjum. Innanríkisráðuneyti Íraks haldi úti 16 fjölskylduverndareiningum innan lögreglunnar, sem séu staðsettar í sérhúsnæði við lögreglustöðvar víðsvegar um landið. Þessum einingum sé ætlað að leysa úr deilum innan heimilisins og vera öruggur staður fyrir þolendur kynferðis- og kynbundins ofbeldis. Einingarnar hafi þó verið gagnrýndar fyrir að leggja áherslu á að slík mál séu leyst með sátt innan fjölskyldunnar. Þá hafi frjáls félagasamtök fullyrt að þolendur veigri sér við að leita aðstoðar innan þessara eininga af ótta við að lögreglan greini fjölskyldum þeirra frá. Enn fremur hafi sumir ættbálkar bannað sínum meðlimum að leita til þessara eininga eftir aðstoð þar sem að heimilisofbeldi sé einkamál fjölskyldunnar. Fá neyðarskýli séu í landinu sem konur geti leitað til neyðist þær til að yfirgefa heimili sitt vegna ofbeldis.
Í skýrslu EUAA frá 2025 kemur fram að í Írak séu ekki sérstök lög sem miði að því að vernda réttindi barna. Hegningarlög landsins heimili foreldrum að aga börn sín innan ákveðinna marka sem lög eða venja kveði á um. Hæstiréttur landsins hafi þó bannað ofbeldi gegn börnum í hvaða formi sem er og dómstólar landsins séu skyldugir að fylgja þessari túlkun laganna. Í kjölfar dómsins hafi lögregla brugðist við í um hundrað málum. Kynferðisofbeldi, kynferðisleg áreitni og misneyting barna í kynferðislegum tilgangi séu refsiverð skv. hegningarlögum landsins. Ofbeldi gegn börnum sé þó útbreitt í Írak og börn njóti ekki fullnægjandi réttarverndar. Í skýrslu Unicef frá árinu 2025 kemur fram að samtökin hafi unnið með stjórnvöldum að því að bæta barnaverndarkerfið í Írak m.a. með því að koma á fót 27 barnaverndarmiðstöðvum í KRI og 44 samskonar miðstöðvum í Írak í samstarfi við vinnumála- og félagsmálaráðuneytið (MoLSA). Miðstöðvarnar séu skipaðar félagsráðgjöfum sem veiti forvarnar- og viðbragðsþjónustu. Þar sé jafnframt veitt nauðsynleg þjónusta, m.a. málastjórnun, forvarnir gegn ofbeldi í garð kvenna og stúlkna og lagaleg vernd sem gagnist yfir 100.000 börnum í viðkvæmri stöðu sem hafi orðið fyrir áhrifum af flótta og átökum. Að auki hafi Unicef tekið höndum saman við heilbrigðisráðuneytið og þjóðarskrifstofu írakskra kvenna til að koma á fót miðstöðvum (e. One stop centres) fyrir ofbeldi gegn konum og stúlkum á sjúkrahúsum í Bagdad, Anbar, Muthanna og á spítölum í KRI. Þessar miðstöðvar veiti trúnaðar- og alhliða þjónustu varðandi aðhlynningu og vernd fyrir konur og stúlkur.
Í skýrslu Alþjóða fólksflutningsstofnunarinnar (IOM) frá árinu 2019 kemur fram að yfirvöld tryggi öllum börnum rétt á endurgjaldslausri menntun frá sex ára aldri. Fjölskyldur sem snúi aftur til Íraks eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd í öðrum löndum geti sótt um aðstoð hjá stofnuninni við enduraðlögun. Í skýrslu ástralska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að opinber fræðsla sé gjaldfrjáls á öllum stigum en sé yfirleitt léleg. Menntun sé skylda til loka sjötta bekkjar í Írak. Þrátt fyrir að engir einkaskólar hafi verið starfandi fyrir árið 2003 séu nú um 1.200 starfandi einkaskólar með leyfi frá menntamálaráðuneytinu. Einkaskólar séu oft betri en opinberir skólar en hafi há skólagjöld og séu því aðeins á færi efnameiri einstaklinga. Innritunarhlutfall stúlkna í skóla hafi aukist á undanförnum áratugum en sé enn um það bil sex prósentum lægra en drengja í grunnskóla og 25 prósentum lægra í framhaldsskóla. Í ársskýrslu Unicef í Írak fyrir árið 2024 kemur fram að árið hafi markast af átökum í nærliggjandi löndum sem hafi haft áhrif á stöðu barna og barnafjölskyldna í Írak. Unicef hafi brugðist við með aðstoð til barna í viðkvæmum aðstæðum, s.s. vegna ofbeldis, nauðungarflutninga eða varðhalds. Aðlögun barna og fjölskyldna sem hafi orðið fyrir áhrifum vegna Daesh í landinu hafi haldið áfram undir áætlun stjórnvalda um sjálfviljuga heimför þar sem Unicef hafi gegnt lykilhlutverki til að tryggja barnamiðaða nálgun. Efnahagur Írak hafi batnað árið 2024 en verðbólga og rýrnun gjaldmiðils landsins, Dinars, hafi leitt til aukinnar fátæktar og versnandi fæðuöryggis. Vegna mikils atvinnuleysis og aukinnar fátæktar hafi stjórnvöld endurnýjað skuldbindingar sínar til þess að veita jafna félagslega vernd fyrir börn með því að auka félagslegar bætur og útvíkka gildissvið þeirra. Þá hafi stjórnvöld og Unicef unnið saman að því að bæta aðgengi að menntun og hafi mikið áunnist í þeim málum árið 2024 og fjöldi barna sem ekki hafi sótt skóla snúið til baka eða sest á skólabekk.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2024 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa sé staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála. Þá starfi ýmis frjáls félagasamtök í Írak, bæði innlend og alþjóðleg, sem vinni að réttindum og aðgengismálum fatlaðra í Írak. Einkum hafi verið ráðist í verkefni og aðgerðir á svæðum sem hafi orðið verst úti í vopnuðum átökum í landinu síðustu áratugi, s.s. með aðstoð við að útvega stuðningstæki og bæta aðgengismál. Einnig hafi verið gripið til aðgerða í Bagdad og öðrum þéttbýlisstöðum til þess að efla þátttöku fatlaðra í samfélaginu og bæta félagslega og efnahagslega stöðu þeirra.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á því að óttast ofsóknar af hálfu vopnahópsins Asa´ib Ahl al-Haq vegna þátttöku eiginmanns síns í mótmælum í heimaríki árið 2019 auk þess að tilheyra minnihluta súnní múslima. Þá hefur kærandi greint frá því að vera þolandi kynferðisofbeldis.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hennar.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún og fjölskylda hennar hafi orðið fyrir hótunum og árás af hálfu vopnhópsins Asa´ib Ahl al-Haq vegna stuðnings eiginmanns hennar og þátttöku hans í mótmælum árið 2019. Við meðferð málsins lagði eiginmaður kæranda fram skriflega hótun sem kærandi kvað þeim hafa borist 18. nóvember 2019 og greindi frá því að degi seinna hafi hún og eiginmaður hennar orðið fyrir árás þar sem hann hafi verið særður tveimur skotsárum, stunginn og barinn í höfuðið. Kvað kærandi að sér hafi verið nauðgað af árásarmönnunum. Eiginmaður kæranda hafi verið fluttur á sjúkrahús og þá hafi þeim borist þær fréttir frá föður hans að bróðir hans hafi verið myrtur og að eiginmaður kæranda væri í hættu. Í kjölfarið hafi fjölskyldan yfirgefið Írak og haldið til Grikklands hvar þeim hafi verið veitt viðbótarvernd 14. október 2020. Þá greindi kærandi frá því að hús fjölskyldunnar hafi verið brennt til grunna eftir að fjölskyldan hafi yfirgefið Írak. Kærandi kvað vini og nágranna fjölskyldunnar hafa tjáð þeim að hús þeirra hafi verið brennt og að fjölskylda eiginmanns kæranda hafi síðan staðfest þær upplýsingar. Aðspurð kvaðst kærandi ekki vita hvort nágrannar hennar hafi orðið vitni að brunanum en haldi að svo hafi verið. Var frásögn kæranda í öllum meginatriðum í samræmi við frásögn eiginmanns hennar.
Við meðferð málsins lagði kærandi fram fjölda gagna, m.a. ódagsetta ljósmynd sem hún kveður vera af brunarústum húss fjölskyldunnar í Írak. Rannsókn nefndarinnar á framangreindri ljósmynd leiddi í ljós að myndin hafi birst í umfjöllun fréttaveitunnar Al Jazeera af rústum í flóttamannabúðum í Jenin á Vesturbakkanum í kjölfar árásar Ísraela 26. janúar 2023. Með tölvubréfi, dags. 18. febrúar 2026, var kæranda og eiginmanni hennar veitt tækifæri til að bregðast við framangreindu. Samkvæmt svörum kæranda og eiginmanns hennar, dags. 23. febrúar 2026, hafi eiginmaður kæranda fengið ljósmyndina senda frá föður sínum eftir að kærandi og fjölskylda hennar hafi yfirgefið Írak. Myndin hafi verið send föður eiginmanns kæranda af skæruliðahópi sem hafi haft í hótunum við fjölskylduna. Kærandi og eiginmaður hennar hafi því verið í góðri trú hvað umrædda mynd varðar.
Með vísan til þess er að framan segir um uppruna framlagðrar myndar er ljóst að hún sýnir ekki brunarústir húss fjölskyldunnar og að mati nefndarinnar eru athugasemdir kæranda hvað myndina varðar ekki trúverðugar. Lítur kærunefnd m.a. til þess að í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun kvað kærandi nágranna sína hafa tjáð henni og eiginmanni hennar frá bruna hússins og að fjölskylda eiginmanns hennar hafi staðfest þær upplýsingar. Eru athugasemdir kæranda um að faðir eiginmanns hennar hafi fengið ljósmyndina senda frá skæruliðahópi ekki í samræmi við frásögn hennar í viðtali. Þá er ljóst að myndin er tekin um þrem árum eftir að kærandi og fjölskylda hennar yfirgáfu heimaríki. Framangreind mynd og frásögn kæranda um bruna húss fjölskyldunnar verður því ekki lögð til grundvallar.
Af landaupplýsingum verður ráðið að í október mótmælunum árið 2019 í Írak og í kjölfar þeirra hafi mótmælendur og þeir sem tóku þátt í þeim orðið fyrir ýmis konar ofbeldi. Telur nefndin því ekki ástæðu til að draga í efa frásögn kæranda um hótanir og ofbeldi í garð hennar og fjölskyldu hennar í tengslum við umrædd mótmæli.
Við yfirferð á landaheimildum verður ekki ráðið að þeir sem tóku þátt í mótmælunum árið 2019 hafi þurft að sæta ofsóknum í kjölfar þeirra nema um hafi verið að ræða einstaklinga sem hafi verið áberandi í mótmælunum eða einstaklinga sem hafi haldið áfram mótmælum. Er litið til þess að langt er um liðið og ekkert sem bendir til þess að kærandi eða eiginmaður hennar eigi á hættu að verða sérstakt skotmark vegna þátttöku sinnar í mótmælunum og er þá jafnframt litið til þess að hlutverk eiginmanns kæranda samkvæmt frásögn þeirra var takmarkað við að styðja við mótmælendur með því að færa þeim mat. Umrætt hótunarbréf frá vopnahópnum Asa´ib Ahl al-Haq breytir ekki þessu mati nefndarinnar enda verður ekki annað ráðið en að um hafi verið að ræða tilfallandi hótun í tengslum við mótmælin sem nú eru liðin hjá. Þá greindi eiginmaður kæranda frá því að fjöldi annarra aðila hafi fengið samskonar bréf. Einnig liggur fyrir að yfirvöld í Írak hafi gripið til aðgerða til að rétta hlut þeirra sem urðu fyrir ofbeldi í mótmælunum með bótum þrátt fyrir að erfitt hafi reynst að sækja gerendur til saka. Gefur það til kynna að kærandi og börn hennar geti leitað verndar stjórnvalda í Írak telji hún þess þörf.
Hvað varðar þá málsástæðu kæranda að eiga á hættu ofsóknir sökum þess að vera súnní múslimi þá er rétt að þeir eiga frekar á hættu ýmis konar áreiti eða ofsóknir í Írak. Aðstæður eru þó ekki slíkar að það eitt og sér að vera súnní múslimi leiði til þess að einstaklingur eigi á hættu ofsóknir heldur þurfa að koma til einhverjar einstaklingsbundnar aðstæður. Kærandi greindi ekki frá því að hún eða eiginmaður hennar hafi sætt sérstöku áreiti í heimaríki af þeim sökum, en af frásögnum þeirra verður ráðið að þau hafi átt húsnæði og að eiginmaður kæranda hafi unnið ýmis störf í heimaríki. Er það niðurstaða nefndarinnar að ekkert bendi til þess að kærandi eða börn hennar eigi á hættu að sæta mismunun eða ofbeldi á grundvelli trúar sinnar sem nái því marki að teljast ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. b-lið 2. mgr. 38. gr. laganna.
Kærandi hefur greint frá því að vera þolandi kynferðisofbeldis en henni hafi verið nauðgað af árásarmönnum þegar ráðist hafi verið á hana og eiginmann hennar í nóvember 2019. Staða þolenda kynferðisofbeldis í Írak er með þeim hætti að ólíklegt er að unnt sé að sækja gerendur til saka og að aðstoð við þolendur sé af skornum skammti. Þá benda landaheimildir til þess að þolendur kynferðisofbeldis geti átt á hættu heiðurstengda glæpi í kjölfarið, m.a. af hálfu fjölskyldumeðlima. Af gögnum málsins og framburði kæranda verður ráðið að hún hafi ekki greint eiginmanni sínum frá umræddu ofbeldi en líta verður til þess að frá umræddu atviki eru liðin sjö ár. Ekkert í frásögn kæranda eða gögnum málsins bendir til þess að kærandi eigi á hættu frekara ofbeldi af umræddum toga né að afleiðingar þess muni koma fram í heiðurstengdum glæpum í hennar garð.
Í greinargerð kæranda er byggt á því að hún tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi í heimaríki sem kona. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna, líkt og að framan er rakið, að staða kvenna í Írak sé erfið. Konur eigi á hættu að verða fyrir áreiti, mismunun og ofbeldi vegna kyns síns, þ. á m. af hendi sambúðarmaka eða eiginmanns. Há tíðni heimilisofbeldis og heiðursglæpa sé áhyggjuefni og þolendur veigri sér við að leita aðstoðar yfirvalda, m.a. vegna viðmóts þeirra í garð kvenna. Þá standi konur í Írak frammi fyrir ýmsum hindrunum og áskorunum sem geti haft neikvæð áhrif á getu þeirra og möguleika til að taka fullan og jafnan þátt á við karlmenn í stjórnmálalegum, félagslegum og fjárhagslegum sviðum samfélagsins. Að mati kærunefndar benda gögnin hins vegar ekki til þess að konur í Írak eigi almennt á hættu mismunun eða áreiti vegna kyns sem nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. , sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Bar kærandi ekki fyrir sig að hafa sætt slíku áreiti eða mismunun og verður ekki lagt til grundvallar að hún eigi slíkt á hættu.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að þær athafnir sem kærandi hefur lýst hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og eiginmanns hennar og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru að mestu heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barna hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á sömu málsástæðum og fyrir aðalkröfu auk almennra aðstæðna í heimaríki.
Líkt og fjallað hefur verið um í úrskurðum kærunefndar síðustu ára vegna umsækjenda frá Írak og nýlegra heimilda um aðstæður í Írak eru almennar aðstæður þar í landi ekki slíkar að allir sem þar eru staddir eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Eftir sigur írakskra stjórnvalda á Daesh hefur hæg uppbygging átt sér stað í landinu og öryggisástand batnað til muna. Hafa þær aðstæður haldist nokkuð stöðugar í lengri tíma og þrátt fyrir að á síðustu árum hafi blossað upp deilur og átök á afmörkuðum svæðum eru ekki ríkjandi vopnuð átök í landinu þar sem ekki er greint á milli borgaralegra eða hernaðarlegra skotmarka. Þar sem það er niðurstaða kærunefndar að aðstæður á heimasvæði kæranda í Bagdad og almennt í Írak séu ekki með þeim hætti að þær nái því marki að hver sá einstaklingur sem þar er staddur eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þurfa frekari persónubundnir þættir að koma til svo einstaklingur uppfylli skilyrði ákvæðisins og eigi rétt á viðbótarvernd.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi og börn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að félagslegar aðstæður í Írak verði henni og fjölskyldu hennar verulega erfiðar þar sem þau hafi enga atvinnumöguleika og eigi nær enga fjölskyldumeðlimi. Þá vísar kærandi til heilbrigðisástæðna.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kæranda verði ekki ráðið að almennar aðstæður sem bíði kæranda og börnum hennar í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun vera með líkamlega verki vegna gigtar og hafa orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi og kynferðisofbeldi í heimaríki. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 27. febrúar 2023, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera með útbrot og nefbrotin eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í heimaríki. Í gögnum frá bráðamóttöku [Landspítalans], 30. desember 2022, kemur fram að kærandi hafi orðið fyrir bíl sem gangandi vegfarandi og hafi fundið fyrir verkjum í öxl, mjóbaki og mjöðm í kjölfarið. Kærandi hafi farið í röntgenmyndatöku á brjóstholi, hálsi og kviðarholi og ekki hafi greinst bráðir áverkar. Í gögnum frá bráðamóttöku Landspítala, dags. 7. febrúar 2023, kemur fram að kærandi hafi dottið í hálku og verið með verk í fæti. Kærandi hafi farið í röntgenmyndatöku, fengið teygjusokk og verið ráðlagt að fara í eftirfylgd á heilsugæslu. Samkvæmt gögnum frá heilsugæslunni[...], dags. 2. mars til 4. maí 2023, hafi kærandi greint frá því að vera með liðagigt sem lýsi sér með liðverkjum í fingrum, hnjám og fótum, einnig greindi hún frá versnandi verk í vinstra eyra og hafi fengið dropa við honum. Eftir niðurstöður úr röntgenmyndatöku á ökkla hafi kæranda verið ráðlögð hvíld og sjúkraþjálfun. Þá hafi kærandi fengið ávísað lyfjum vegna verks í ökkla og fengið tilvísun til sjúkraþjálfara og bæklunarlæknis auk tilvísunar til gigtarlæknis vegna liðverkja. Kærandi hafi greint frá vanlíðan og einkennum áfallastreituröskunar og hafi læknir óskað eftir tilvísun til sálfræðings hjá heilsugæslu. Í samskiptaseðlum sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. mars til 21. júní 2023, kemur fram að kærandi hafi notið þjónustu sálfræðings í nokkur skipti. Kærandi hafi greint frá því að hafa orðið fyrir mörgum áföllum og að hún glímdi við ótta og svefnerfiðleika. Kærandi hafi fyllt út skimunarlista hjá sálfræðingi og niðurstöður sýnt einkenni þunglyndis, kvíða og streitu. Þá hafi kærandi sýnt einkenni áfallastreituröskunar. Kærandi hafi fengið kvíðakast í viðtali þar sem hún hafi fengið krampa í hendur og grátið. Samkvæmt gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. mars til 17. apríl 2023, hafi kærandi fengið ávísað lyfjum við svefnvandamálum eftir komu til sálfræðings. Kærandi teldi að lyfin væru ekki að virka og að hún fengi aukaverkanir af þeim. Samkvæmt göngudeildarnótu Heilsuklasans, dags. 20. júní 2023, hafi kærandi hitt gigtarlækni vegna verkja í höndum og annarra stoðkerfisverkja og líklega sé kærandi með vefjagigt en engin merki hafi verið um liðagigt. Þá hafi kærandi fengið ráðleggingar um spelku á báða úlnliði og verið ávísað lyfjum. Þá kemur fram að læknir mæli með taugaleiðniprófi til að kanna sykursýki og háþrýsting hjá kæranda og tilvísun til handaskurðlæknis. Í bréfi til kæranda frá læknum á geðdeild Landspítalans, dag. 6. október 2023, kemur fram að hún hafi verið lögð inn á geðdeild spítalans 19. september 2023 og útskrifuð þaðan 6. október s. á. Í innlögn hafi kærandi fengið meðferð við svefnerfiðleikum, þunglyndi og kvíða. Kærandi hafi fengið ávísað lyfjum við framangreindum kvillum og hvött til að ræða við sálfræðing sinn í framhaldinu. Í sjúkraskrá frá Landspítala fyrir tímabilið frá 21. nóvember 2023 til 5. ágúst 2025 kemur fram að kærandi hafi undirgengist gallblöðrutöku í nóvember 2023, glímt við magaverki og uppköst og í kjölfarið greinst með sykursýki í júlí 2025.
Í viðtali greindi kærandi frá því að A væri með gigt og ofnæmi. Samkvæmt gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 27. febrúar til 5. apríl 2023, hafi A verið með kláða, útbrot og verki í hnjám. Samkvæmt gögnum frá bráðamóttöku Landspítalans, dags. 29. mars 2023, hafi A leitað þangað vegna bólgu í kinn og útskrifast eftir læknisskoðun og ráðleggingar. Þá hafi A farið í endurmat 31. mars 2023, sem hafi komið eðlilega út. Í gögnum frá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. maí 2023, kemur fram að A hafi verið með útbrot á kvið, fótleggjum og höndum ásamt kláða og hafi fengið ávísað kremi. Þá væri A með verki í hné sem hafi byrjað þegar hann hafi byrjað að ganga. Þá liggja fyrir tilvísanir, dags. 24. maí 2023, fyrir A til barnalæknis og húðlæknis. Fram kemur í gögnum frá Landspítala á sviði húðlækninga, dags. 28. júní 2023, að A hafi leitað þangað vegna húðútbrota á kvið, fótleggjum, handleggjum og baki. A hafi fengið ávísað kremi og ráðleggingar um notkun annars krems. Þá liggja fyrir nótur frá tannlækni vegna skemmda á tönnum, dags. 19. júní 2023 og niðurstöður úr sýnatöku vegna veirusýkingar, dags. 29. mars 2023.
Kærandi greindi frá því að B hafi ekki stjórn á þvaglátum og noti bleyju. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. febrúar til 6. mars 2023, kemur fram að B hafi hætt að hafa stjórn á þvagláti um fjögurra ára aldur en foreldrar hennar tengi það við áföll og streitu. B hafi greint frá verk í eyra og tönnum. Samkvæmt samskiptaseðli frá heilsugæslunni[...], dags. 30. mars 2023, hafi B leitað til heilsugæslunnar vegna fyrrgreindra kvilla. Eyrnaskoðun hafi verið eðlileg og B hafi fengið tilvísun til barnalæknis. Í nótu frá barnatannlækni, dags. 3. júlí 2023, kemur fram að við skoðun hafi sést þrjár djúpar skemmdir og þrjár minni í barnatönnum. Það þyki líklegt að fleiri skemmdir sjáist með röntgenskoðun. Fram kemur að B eigi bókaðan tíma í viðgerð á öllum skemmdum tönnum.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi eða börn hennar glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi eða börn hennar þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Samkvæmt rannsókn kærunefndar á heilbrigðisaðstæðum í Írak m.t.t. heilsufarsástands kæranda, meðal annars á vef MedCoi, er sú þjónusta og meðferð auk lyfja sem kærandi tekur, þ. á m. vegna sykursýki og andlegra veikinda, aðgengileg í heimaríki hennar. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún og börn hennar hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi hefur greint frá því að vera þolandi kynferðisofbeldis en í Írak, m.a. Bagdad, eru starfandi ýmis félagsamtök sem veita lögfræðilegan og sálrænan stuðning til kvenna sem eru þolendur kynferðisofbeldis. Með vísan til þess og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður ekki séð að aðstæður hennar verði slíkar sem um greinir í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga.
Kærandi byggir á því að henni og fjölskyldu hennar muni reynast erfitt að sjá fyrir sér þar sem þau hafi enga atvinnumöguleika og eigi enga fjölskyldumeðlimi í heimaríki. Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi eigi tengdaforeldra og systur í heimaríki og að eiginmaður kæranda hafi getað framfleytt fjölskyldunni í heimaríki. Eru félagslegar aðstæður kæranda og barna hennar við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kæranda og aðstæðna barna almennt í Írak í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Írak er gjaldfrjáls menntun til 12 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna. Hvorki almennar aðstæður í Írak né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún eða börn hennar hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín hér á landi 13. desember 2022.
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Að framan hefur verið tekin afstaða um auðkenni kæranda og barna hennar. Með vísan til þeirrar umfjöllunar er ljóst að vafi leikur á um auðkenni þeirra sbr. a-lið 2.m gr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til umfjöllunar um hvað varðar framlögð auðkennisgögn, trúverðugleikamats, og þess að kærandi hefur lagt fram gagn til að blekkja stjórnvöld er það auk þess niðurstaða nefndarinnar að kærandi hafi ekki aðstoðað við úrlausn málsins í skilningi d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þar sem skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eru ekki uppfyllt kemur ekki til skoðunar hvort ákvæði 3. mgr. sömu greinar eigi við í málinu. Þá eru atvik ekki þannig að rétt sé að víkja frá framangreindu skilyrði sbr. 4. mgr. 74. gr. laganna.
Er því ekki heimilt að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barna hennar. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barna hennar til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni og börnum hennar frá Íslandi og ákvarða kæranda endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kvaðst kærandi ekki hafa nein tengsl við önnur aðildarríki Schengen samstarfsins en að slík ákvörðun væri ósanngjörn þar sem þau yrðu myrt í Írak og í Grikklandi hafi verið komið illa fram við þau.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kæranda og barna hennar og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess með því að yfirgefa Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda og barna hennar til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi hún landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir