06 mars 2026
/
Mál nr. 798/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 798/2025
Föstudaginn 6. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 9. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar á bið.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 19. júní 2025. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 15. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt. Vegna ótekins biðtíma fékk kærandi hins vegar ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrr en í september 2025. Í kjölfar erindis kæranda, dags. 5. september 2025, var mál hennar tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. september 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun í máli hennar hefði verið staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu. Þá var kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 22. september 2025, kynntur rökstuðningur stofnunarinnar vegna ákvörðunar um ótekinn biðtíma.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. desember 2025. Með bréfi, dags. 15. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 30. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa þann 1. september 2025 fengið greitt frá Vinnumálastofnun 242.006 kr. en ekki 816.282 kr. eins og stofnunin hafi verið búin að samþykkja fyrir tímabilið 19. júní til 27. ágúst 2025. Kærandi tekur fram að hún hafi unnið hjá B frá október 2019 til nóvember 2021 eftir að hafa klárað menntaskóla. Frá desember 2021 til mars 2022 hafi kærandi dvalið erlendis. Þegar kærandi hafi komið til Íslands hafi hún strax byrjað að leita sér að vinnu og hafi á meðan sótt um atvinnuleysisbætur. Sú umsókn hafi verið samþykkt 18. apríl 2022 en kærandi hafi þó ekki fengið neinar greiðslur. Kærandi hafi haldið áfram að leita að vinnu og hafi í maí 2022 fengið vinnu hjá C. Kærandi hafi unnið þar til 1. ágúst 2022, farið í veikindafrí og svo eignast barn X 2022. Í apríl 2023 hafi kærandi aftur byrjað að leita sér að vinnu og hafi sótt um atvinnuleysisbætur 3. apríl 2023. Sú umsókn hafi verið samþykkt en hún hafi ekki fengið neinar greiðslur þar sem Vinnumálastofnun hafi fellt þær niður vegna starfsloka hjá B. Á þeim tíma hafi kærandi ekki skilið ástæðu þess en hafi sætt sig við það þar sem hún hafi ákveðið að hætta vinnunni. Í byrjun október 2023 hafi kærandi fengið fulla vinnu í leikskóla og unnið þar til 31. desember 2024. Vegna andlegra veikinda hafi kærandi þurft að segja upp vinnunni og hafi verið lasin (sem sé staðfest með læknisvottorði) þangað til 19. júní. Þá hafi kærandi verið orðin fær um að byrja aftur að leita að vinnu og því sent inn umsókn til Vinnumálastofnun sem hafi verið samþykkt. Þann 28. ágúst 2025 hafi kærandi svo fengið fulla vinnu á leikskóla.
Að mati kæranda sé mjög óréttlát að atvinnuleysisbætur í júní og júlí 2025 séu teknar af henni vegna lagaákvæða um tíma sem þurfi að líða á milli umsókna. Vinnumálastofnun hafi aldrei greitt kæranda neinar atvinnuleysisbætur í þau tvö skipti sem hún hafi sótt um eins og að framan greini. Kærandi hafi verið ófrísk og þurft að fara úr vinnu til að eiga barnið. Kærandi hefði annars haldið áfram að vinna, enda ekki með neinar tekjur til að sjá fyrir sér og hafi eingöngu fengið samtals 1.197.132 kr. fyrir skatt úr Fæðingarorlofssjóði þar sem hún hafi ekki átt rétt á meiru vegna þess að hún hafi ekki unnið nógu lengi. Kerfin séu að hafna kæranda á báðum vígstöðvum þegar hún þarfnist þess mest.
Kærandi óski eftir því að ákvæðið um tímalínu á milli 2023 og 2025 verði fellt niður þar sem hún hafi aldrei fengið neinar greiðslur frá Vinnumálastofnun og að hún fái þær greiðslur fyrir júní og júlí 2025 sem hafi verið búið að samþykkja.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar frá 18. apríl 2022 og 4. apríl 2023. Með ákvörðunum stofnunarinnar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.
Kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. júní 2025. Með erindi, dags. 15. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt.
Þann 5. september 2025 hafi borist skrifleg beiðni þess efnis að mál kæranda yrði tekið fyrir að nýju. Kærandi hafi farið fram á að Vinnumálastofnun myndi greiða henni atvinnuleysisbætur fyrir júní og júlí 2025. Kærandi hafi vísað til þess að sökum þess að hún hefði ekki fengið neinar atvinnuleysisbætur greiddar á tímabilinu 2023 og 2025 ætti hún rétt á nýju bótatímabili og að fá greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi jafnframt óskað eftir skriflegum rökstuðningi. Þann 22. september 2025 hafi Vinnumálastofnun tekið mál kæranda fyrir að nýju þar sem fyrri ákvörðun, dags. 15. ágúst 2025, hafi verið staðfest. Samdægurs hafi kæranda verið birtur skriflegur rökstuðningur.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. september 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 9. desember 2025. Í kæru greini kærandi frá því að henni þyki óréttlátt að fá ekki greiddar atvinnuleysisbætur vegna júní og júlí 2025. Í því samhengi bendi kærandi á að hún hafi ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur á árinu 2022.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta varði ákvarðanir Vinnumálastofnunar frá 18. apríl 2022 og 4. apríl 2023. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana hafi verið liðinn þegar kæra hafi borist úrskurðarnefndinni þann 9. desember 2015, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Eftir standi þó ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skyldi sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hún hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 19. júní 2025.
Eins og að framan hafi verið rakið hafi kæranda þann 18. apríl 2022 verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að starfslok hennar hjá B hafi ekki verið metin gild. Fyrir liggi að kærandi hafi sjálf sagt upp umræddu starfi. Þá hafi kæranda þann 4. apríl 2023 aftur verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga, sökum þess að starfslok hennar hjá C hafi ekki verið metin gild. Fyrir liggi að kærandi hafi sjálf sagt upp störfum í umræddu starfi samhliða töku fæðingarorlofs.
Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hennar samkvæmt 1. mgr. 61. gr. þar sem hún hafi ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími kæranda hafi því verið fimm mánuðir.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um nokkur tilvik þar sem biðtími eða viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Þannig sé meðal annars kveðið á um í 3. mgr. 58. gr. að taki hinn tryggði starfi sem ekki sé hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma skv. 1. mgr. standi falli viðurlög niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í a.m.k. hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur. Ekki sé sambærileg heimild í lögum um að fella niður biðtíma vegna starfa atvinnuleitanda í þeim tilfellum sem viðkomandi hafi þurft að sæta ítrekuðum viðurlögum. Í [5.] mgr. 61. gr. sé hins vegar kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Kærandi hafi ekki áunnið sér inn rétt til nýs bótatímabils þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur í júní 2025. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi 1,57 mánuðir verið útistandandi af biðtíma hennar. Því hafi hún fyrst getað átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta þegar sá biðtími hafi verið liðinn.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Kærandi eigi ekki rétt greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en eftirstöðvar biðtíma hennar séu liðnar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.
Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 18. apríl 2022 og 24. apríl 2023 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 19. júní 2025. Umsókn kæranda var samþykkt 15. ágúst 2025 en hún fékk ekki greiddar atvinnuleysisbætur frá þeim degi vegna ótekins biðtími frá fyrri umsókn.
Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hennar barst Vinnumálastofnun þann 19. júní 2025, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hún var síðast skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. apríl 2023, áfram að líða þegar hún skráði sig atvinnulausa að nýju 19. júní 2025.
Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir