06 mars 2026
/
Mál nr. 8/10/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 810/2025
Föstudaginn 6. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 16. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. september 2025 og var umsóknin samþykkt 10. nóvember 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. desember 2025. Með bréfi, dags. 17. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að fjarvera hans á boðaðan kynningarfund þann 20. nóvember 2025 hafi stafað af heilsufarsvandamálum sem hafi áhrif á hreyfigetu og líkamlega færni hans. Kærandi hafi leitað læknisaðstoðar en sé enn í greiningarferli og endurhæfingu. Nauðsynleg gögn séu í vinnslu og verði lögð fram þegar þau liggi fyrir.
Kærandi viðurkenni að hluti málsins hafi stafað af mistökum af hans hálfu þar sem hann hafi ekki uppfært stöðu sína tímanlega í kerfi Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi nú fullan skilning á skyldum sínum eftir að hafa mætt í viðtal hjá Vinnumálastofnun þar sem málið hafi verið skýrt nánar fyrir honum.
Kærandi leggi áherslu á að hann hafi sent skýringar vegna fjarveru sinnar innan tilskilins tíma í samræmi við verklag Vinnumálastofnunar. Í kjölfarið hafi hann sent tvær frekari útskýringar. Þrátt fyrir það hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar ekki verið endurskoðuð. Kærandi telji að hann hafi fylgt því verklagi sem honum hafi borið að fylgja og upplýst stofnunina tímanlega. Fjarvera kæranda hafi ekki verið af ásetningi og hafi ekki falið í sér synjun á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til handa kæranda hafi haft veruleg fjárhagsleg áhrif vegna framfærslu, húsnæðis, heilbrigðiskostnaðar og endurhæfingu. Með vísan til meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar óski kærandi eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála endurskoði ákvörðunina í heild með hliðsjón af öllum aðstæðum málsins.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 18. september 2025. Með erindi, dags. 10. nóvember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Kæranda hafi verið sent erindi þann 18. nóvember 2025 og honum boðið á kynningarfund sem hafi verið haldinn 20. nóvember 2025, klukkan 11:15. Kærandi hafi verið upplýstur að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi athygli kæranda verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 18. nóvember 2025, klukkan 14:11. Stuttu síðar þann sama dag hafi skýringarbréf borist frá kæranda í gegnum „Mínar síður“ á vef Vinnumálastofnunar þar sem kærandi hafi boðað forföll á kynningarfundinn. Skýringar kæranda hafi verið eftirfarandi:
„Dear Sir/Madam,
Thank you for the invitation to the introductory meeting scheduled for Thursday, 20th November 2025. Unfortunately, due to personal circumstances, I am unable to attend this meeting and will not be available for any meetings before December 2025.
I appreciate your understanding and thank you for considering this explanation.“
Kæranda hafi verið sent erindi 2. desember 2025 þar sem honum hafi verið gefinn kostur á að skila frekari skýringum á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 20. nóvember 2025. Kærandi hafi sent skýringar á fjarveru sinni með bréfi, dags. 11. desember 2025. Í skýringum kæranda komi fram að hann hafi ekki getað mætt á boðaðan kynningarfund þann 20. nóvember 2025 sökum þess að hann hafi verið rúmfastur vegna sjúkdóms í fæti. Kærandi hafi verið ófær um að mæta á boðaðan kynningarfund sökum líkamlegs ástands á fæti. Læknir kæranda hafi gefið honum þau fyrirmæli að vera heima fram að næstu læknisheimsókn í febrúar 2026. Kærandi hafi í skýringum sínum farið fram á að Vinnumálastofnun tæki tillit til stöðu hans.
Með erindi, dags. 11. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði sökum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi áður sætt tveggja mánaða viðurlögum vegna ótilkynntrar dvalar erlendis í febrúar 2025.
Með erindi, dags. 2. janúar 2026, hafi kæranda jafnframt verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað sökum þess að hann væri óvinnufær og ekki í virkri atvinnuleit. Vinnumálastofnun hafi óskað eftir starfshæfnisvottorði sem staðfesti tímabil sem óvinnufærni kæranda hafi staðið yfir. Kærandi hafi skilað læknisvottorði þann 19. desember 2025 sem staðfesti að kærandi væri fótbrotinn og óvinnufær þessa stundina. Umrætt læknisvottorð hafi ekki staðfest hvert tímabil óvinnufærni kæranda væri.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 20. nóvember 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á boðuðum kynningarfundi en þær lúti að því að hann hafi verið rúmfastur vegna sjúkdóms í fæti. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í fyrsta lagi hafi kærandi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um neinar breytingar á högum sínum er varði vinnufærni fyrr en hann hafi verið boðaður á kynningarfund. Þá hafi kærandi í upphafi umsóknar verið upplýstur um að allar breytingar á persónulegum högum hans bæri að tilkynna stofnuninni. Kæranda hafi verið sendur tölvupóstur þann 18. september 2025 og sérstaklega tilgreind skylda til að tilkynna um breytingar á högum án ástæðulausrar tafar. Ekki verði fallist á það sem gilda ástæðu fyrir fjarveru á boðað vinnumarkaðsúrræði að atvinnuleitandi hafi án þess að tilkynna það til stofnunarinnar verið óvinnufær á sama tíma. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli laganna.
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar þann 18. mars 2025 hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði sökum ótilkynntrar dvalar erlendis. Því hafi verið um að ræða niðurfellingu á bótaréttar í annað sinn á bótatímabili kæranda. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sá sem sæti viðurlögum eða biðtíma í annað skiptið á sama bótatímabili ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir. Kæranda beri því að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
Kærandi hafi skilað læknisvottorði sem staðfesti að kærandi sé fótbrotinn og óvinnufær þessa stundina. Af umræddu læknisvottorði sé ljóst að kærandi sé óvinnufær en óljóst á hvaða tímabili kærandi sé óvinnufær. Það hafi verið niðurstaða stofnunarinnar að synja um frekari greiðslur til kæranda þar til umbeðin gögn berist, enda sé ekki ljóst hvort kærandi uppfylli skilyrði 13. og 14. gr. laganna fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé einnig niðurstaða stofnunarinnar að synja skuli kæranda um frekari greiðslur þar til ljóst sé að kærandi uppfylli skilyrði laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 18. nóvember 2025 boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík sem fara átti fram þann 20. nóvember 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar inn á „Mínum síðum“. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ekki væri hægt að fá nýjan fund en að skýringar vegna fjarveru yrðu sendar til Greiðslustofu til yfirferðar. Þá var kærandi upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga.
Fyrir liggur að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun strax þann 18. nóvember 2025 að hann gæti ekki mætt á fundinn né aðra fundi fyrir desember 2025 vegna persónulegra ástæðna. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar kom fram að hann væri fótbrotinn og væri í endurhæfingu. Hann gæti því ekki mætt á staðbundinn fund vegna þessa.
Úrskurðarnefndin bendir á að samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal hinn tryggði upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. án ástæðulausrar tafar.
Af gögnum málsins er ljóst að kærandi hafði ekki upplýst Vinnumálastofnun um skerta vinnufærni sína vegna fótbrots fyrr en eftir að hann hafði verið boðaður á fund hjá stofnuninni.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 18. mars 2025 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir