06 mars 2026

/

Mál nr. 803/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 803/2025

Föstudaginn 6. mars 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 25. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 20. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í kjölfarið lagði kærandi fram ný gögn og var mál hennar því tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. desember 2025, var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest með vísan til þess að hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. desember 2025. Með bréfi, dags. 17. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. febrúar 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 5. febrúar 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hún hafi ekki getað mætt í atvinnuviðtal vegna sérstakra og ófyrirséða aðstæðna. Faðir kæranda hafi látist 26. nóvember 2025 en hún hafi fengið boð í viðtal 28. nóvember 2025, þ.e. í kjölfar andláts föður síns. Kærandi hafi verið í bráðri sorg, andlegu áfalli og hafi þurft að sinna nauðsynlegum fjölskyldu- og stjórnsýslulegum málefnum vegna andlátsins. Þessar aðstæður hafi verið kæranda algjörlega óviðráðanlegar. Kærandi árétti að ekki hafi verið um viljandi höfnun á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum að ræða, heldur tímabundnar og óvenjulegar aðstæður sem hafi fallið utan eðlilegrar getu hennar til að bregðast við á þeim tíma. Kærandi telji að niðurfelling atvinnuleysisbóta til tveggja mánaða sé óhófleg með vísan meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar. Í ljósi atvika málsins hefðu vægari úrræði verið fullnægjandi. Kærandi sé reiðubúin til fullrar samvinnu við Vinnumálastofnun og óski eftir því að ákvörðun verði endurskoðuð.

Í athugasemdum vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar ítrekar kærandi ástæðu fjarveru sinnar í boðað viðtal þann 1. desember 2025. Kærandi vísi til þess að 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar taki einungis til tilvika þar sem hinn tryggði hafni starfi eða þátttöku meðvitað og viljandi. Það nái ekki til aðstæðna þar sem gildar og sannanlegar ástæður liggi fyrir fjarveru, svo sem andlát náins aðstandanda. Kærandi vísi jafnframt til þess að hún hafi uppfyllt skilyrði 13. gr. sömu laga. Í október og nóvember 2025 hafi kærandi tekið virkan þátt í atvinnuleit og námskeiðum sem sýni með skýrum hætti að hún hafi verið í virkri atvinnuleit og staðið við sínar skyldur sem atvinnuleitandi. Engin gögn liggi fyrir sem bendi til þess að hún hafi hafnað vinnu eða þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt gildandi kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði, meðal annars hjá VR og SA, eigi starfsmaður rétt á launuðu leyfi við andlát maka, foreldra, barna eða systkina. Þrátt fyrir að kærandi sé atvinnuleitandi en ekki í launuðu starfi ætti slík atvik að vera viðurkennd sem gild og réttlætanleg ástæða fyrir fjarveru. Það samrýmist bæði meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og föstum viðmiðum úrskurðarnefndar velferðarmála. Með vísan til framangreinds óski kærandi því eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, verði felld úr gildi og réttur hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta endurreistur.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 25. nóvember 2024. Með erindi, dags. 20. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 67%.

Með erindi, dags. 28. nóvember 2025, hafi kærandi verið boðuð til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 í Reykjavík sem hafi átt að fara fram þann 1. desember 2025, klukkan 11:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 28. nóvember 2025 á „Mínar síður“ kæranda með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 28. nóvember 2025, klukkan 11:26. Kærandi hafi hvorki mætt í boðað viðtal né boðað forföll.

Með erindi, dags. 3. desember 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum á fjarveru kæranda í boðað viðtal. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Jafnframt hafi athygli kæranda verið vakin á að ef hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar á högum gæti það leitt til viðurlaga í formi biðtíma á greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.

Þann 3. desember 2025 hafi skriflegar skýringar borist frá kæranda þar sem fram komi að boð Vinnumálastofnunar í viðtal hafi farið fram hjá henni. Kærandi hafi verið í djúpri sorg á þeim tíma sem boð Vinnumálastofnunar hafi verið sent til hennar sem rekja mætti til þess að þann 26. nóvember 2025 hafi faðir hennar látist. Kærandi hafi ítrekað að hún hefði ekki farið erlendis.

Með erindi, dags. 11. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar sökum þess að hún hafi ekki sinnt boðun í viðtal. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í kjölfar ákvörðunar Vinnumálastofnunar hafi borist frekari gögn og skýringar frá kæranda. Meðal gagna sem hafi borist frá kæranda hafi verið dánarvottorð, dags. 28. nóvember 2025, sem staðfesti að maður með sama eftirnafn og kærandi, B, […] hafi látist þann 26. nóvember 2025 í C. Mál kæranda hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að skýringar kæranda á fjarveru gætu ekki talist gildar og fyrri ákvörðun hafi því verið staðfest. Sú ákvörðun hafi verið tilkynnt kæranda með erindi, dags. 18. desember 2025.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 13. desember 2025. Þær skýringar sem kærandi hafi veitt samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 í Reykjavík sem hafi átt að fara fram þann 1. desember 2025, klukkan 11:00. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda um boðun á umrætt námskeið. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið innt eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 3. desember 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á fjarveru hennar í boðað viðtal lúti að því að boð Vinnumálastofnunar hafi farið fram hjá henni. Faðir kæranda hafi nýlega látist þegar Vinnumálastofnun hafi sent boð til hennar um að mæta í viðtal.

Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Boðun til umrædds námskeiðs hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í boðun til kæranda hafi komið skýrt fram að um skyldumætingu væri að ræða og bent hafi verið á að fjarvera gæti leitt til greiðslustöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Þá hafi kærandi ekki upplýst um forföll til Vinnumálastofnunar áður en fundur hafi farið fram. Því verði að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta í boðað viðtal og að hún hafi ekki gildar skýringar á fjarveru sinni.

Í kæru greini kærandi frá því að Vinnumálastofnun hafi ekki gætt að meðalhófi við afgreiðslu á máli hennar. Í 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 komi fram að stjórnvald skuli gæta að meðalhófi við íþyngjandi ákvarðanir. Í reglunni felist að stjórnvald skuli við ákvarðanatöku gæta að því að efni íþyngjandi ákvörðunar sé til þess fallið að þjóna lögmætu markmiði sem að sé stefnt, velja það úrræði sem vægast sé hverju sinni og þá megi stjórnvald ekki ganga lengra en nauðsyn beri til. Ekki verði séð að meðalhófs hafi ekki verið gætt við afgreiðslu á máli kæranda. Fyrir liggi að kæranda hafi ekki mætt í boðað viðtal né boðað forföll og henni hafi því verið gert að sæta viðurlögum með ákvörðun, dags. 11. desember 2025. Kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta sem sé í samræmi við 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til boðaðs viðtals né afboðað komu sína hafi kærandi brugðist skyldum sínum og því beri henni að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 28. nóvember 2025 boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 1. desember 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætt í boðað viðtal né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að henni hafi yfirsést boðunin og því ekki getað mætt. Hún hafi misst föður sinn tveimur dögum fyrir boðun í umrætt viðtal og verið í mikilli sorg og áfalli.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera ljóst að henni bæri að mæta í boðað viðtal og boða forföll ef hún hefði ekki tök á því að mæta. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir