16 mars 2026
/
Mál nr. 14/2026 Úrskurður 16. mars 2026
Mál nr. 14/2026 Aðlögun kenninafns: Lúkasson
Hinn 16. mars 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 14/2026.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 29. janúar 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að kenna son sinn við föður þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hans verið Lúkasson.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Lúkasson.