18 mars 2026

/

Mál nr. 194/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 194/2026

Miðvikudaginn 18. mars 2026

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að greiða honum ekki ellilífeyri fyrir marsmánuð 2026.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi hefur þegið ellilífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins frá árinu 2022. Með bréfi, dags. 24. apríl 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir afriti af skattframtali kæranda vegna ársins 2024 frá búsetulandi. Fram kemur að berist umbeðin gögn ekki muni greiðslur stöðvast 1. október 2025. Einnig var óskað eftir því að fá lífsvottorð fyrir 1. janúar 2026. Engin gögn bárust frá kæranda og því voru greiðslur stöðvaðar 1. október 2025. Með bréfum til Tryggingastofnunar, dags. 3. og 5. nóvember 2025, gerði kærandi meðal annars athugasemdir við að hafa ekki fengið greiðslu í nóvember 2025. Með bréfi, dags. 7. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt um að greiðslum til hans hefði verið frestað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist. Kærandi kærði þá ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála 13. október 2025, sem staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar, um að fresta greiðslum ellilífeyris til kæranda frá og með 1. október 2025, með úrskurði, dags. 11. febrúar 2026, í kærumáli nr. 676/2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. mars 2026.

II. Sjónarmið kæranda

Í kæru segir að kært sé að Tryggingastofnun ríkisins hafi ekki framfylgt í byrjun mars 2026 ákvæðum meintrar stjórnvaldsákvörðunar stofnunarinnar frá 2022 um að greiða kæranda mánaðarlega lífeyri til æviloka. Greiðsla marsmánaðar 2026 hafi ekki borist á grískan bankareikning kæranda. Bréf Tryggingastofnunar til kæranda, dags. 24. apríl 2025, sem vísað sé til í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 676/2025, sé ekki til. Því sé ljóst að Tryggingastofnun hafi aldrei gripið til þeirra aðgerða gagnvart kæranda sem krafist sé til að heimila beitingu ákvæða 49. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar um frestun aðgerða.

Kærandi krefst þess að Tryggingastofnun greiði honum umsvifalaust lífeyri fyrir marsmánuð 2026. Einnig að úrskurðarnefndin úrskurði að Tryggingastofnun hafi án heimilda fellt niður lífeyrisgreiðslu þess mánaðar. Þá er þess krafist að úrskurðarnefndin úrskurði að Tryggingastofnun fari offari gegn kæranda með þeim hætti að beita ólögmætum aðgerðum gagnvart kæranda í nú hálft ár.

III. Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Þannig er grundvöllur þess að unnt sé að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Af kæru verður ráðið að kærandi sé ósáttur við að fá ekki greiddan ellilífeyri fyrir mars 2026. Með kæru fylgdi meðal annars bréf Tryggingastofnunar ríkisins til kæranda, dags. 24. apríl 2024, þar sem stofnunin óskaði meðal annars eftir afriti af skattframtali kæranda vegna ársins 2024 frá búsetulandi. Fram kemur að berist umbeðin gögn ekki muni greiðslur stöðvast 1. október 2025. Einnig fylgdi bréf Tryggingastofnunar, dags. 7. nóvember 2025, þar sem kæranda var tilkynnt um að greiðslum til hans hefði verið frestað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist.

Með úrskurði, dags. 11. febrúar 2026, í máli nr. 676/2025, staðfesti úrskurðarnefndin þá ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins að fresta greiðslum ellilífeyris til kæranda frá og með 1. október 2025. Túlka verður málatilbúnað kæranda sem svo að kæra hans lúti að sömu stjórnvaldsákvörðun. Ljóst er því að úrskurðarnefnd velferðarmála hefur þegar úrskurðað um ágreiningsefni málsins. Með vísan til þess er kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Rakel Þorsteinsdóttir