19 mars 2026

/

Mál nr. 807/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 807/2025

Fimmtudaginn 19. mars 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. febrúar 2025 og var umsóknin samþykkt 1. apríl 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar þar sem hann stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 18. ágúst til 31. október 2025, að fjárhæð 773.940 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. desember 2025. Með bréfi, dags. 17. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi hvorki verið í námi þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur né verið í námi tólf mánuðina þar á undan. Hann hafi þess vegna svarað spurningunum um hvort hann væri í námi eða hvort hann hefði verið í námi neitandi. Hann hafi ekki verið að gefa misvísandi upplýsingar heldur hafi umsókn hans um atvinnuleysisbætur verið lögð fram í góðri trú og í fullu samræmi við stöðu hans á þeim tíma.

Kærandi hafi hafið nám í byrjun ágúst 2025 í þeim tilgangi að auka tungumálahæfni sína til að auka atvinnumöguleika. Í umsóknarferlinu hafi einungis komið fram að almennt væri ekki heimilt að þiggja atvinnuleysisbætur samhliða námi. Þessi staðhæfing sé afar almenn og hafi ekki innihaldið skýrar upplýsingar um 20 eininga hámark og það að fara fram yfir leyfilegan einingafjölda geti leitt til stöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Þessi staðhæfing skýri ekki heldur tilkynningarskyldu einstaklings sem hefji nám eftir upphaflega umsókn eða að tungumálanámskeið falli undir hugtakið „nám“ í skilningi 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi taki einnig fram að það hafi hvergi komið fram að það að hefja nám geti leitt til þess að þurfa að endurgreiða atvinnuleysisbætur eða að það myndi hafa aðrar sérstakar afleiðingar.

Kærandi haldi því fram að hann hafi ekki fengið neinar skýrar, beinar eða persónulegar útskýringar frá Vinnumálastofnun varðandi skyldur tengdar því að hefja nám mánuði eftir að hafa sótt um atvinnuleysisbætur. Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eigi einstaklingur rétt á endurupptöku máls sé ákvörðun byggð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum en að mati kæranda hafi þeim kröfum ekki verið mætt í hans tilviki.

Kærandi taki fram að námið hafi ekki haft áhrif á getu hans til að vinna. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti einstaklingur talist í virkri atvinnuleit þrátt fyrir nám ef hann geti hafið störf án tafar og námið hindri ekki atvinnuleit. Kærandi greinir frá því að hann hafi ávallt verið tilbúinn til að hefja störf án tafar, hann hafi áður unnið samhliða námi og það án vandkvæða. Hann hafi einungis farið í nám til að auka atvinnumöguleika sína en hann hafi verið að læra íslensku. Atvinnuleit á Íslandi fari að mestu fram á netinu svo það að vera í námi hafi ekki áhrif á getu hans til að sækja um störf. Ef honum hefði boðist starf hefði hann tafarlaust gert hlé á námi sínu eða hætt því líkt og hann hafi áður gert. Kærandi telji þess vegna að hann hafi ekki brotið gegn 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi starfað samfellt á Íslandi frá árinu 2022 til febrúar 2025. Hann hafi greitt skatta og lagt sitt af mörkum til kerfisins. Starfssaga kæranda sýni að hann hafi alltaf forgangsraðað vinnu fram yfir nám, hann hafi aldrei reitt sig á kerfið að óþörfu, hafi alltaf hætt námi þegar atvinna hafi boðist og að hann hafi verið í virkri atvinnuleit á meðan hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Athafnir kæranda hafi allar verið gerðar í góðri trú með það að markmiði að auka atvinnumöguleika hans, ekki til að blekkja kerfið.

Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að ákveðið nám þurfi að vera samþykkt með námssamningi við Vinnumálastofnun. Kæranda hafi verið ókunnugt um þennan möguleika en ferlið hafi aldrei verið útskýrt fyrir honum. Hann hafi ekki fengið neinar viðvaranir né leiðbeiningar þegar hann hafi innritað sig í skólann. Hvergi hafi verið skýrar upplýsingar um einingafjölda eða afleiðingar þess að fara fram yfir fjölda þeirra. Um hafi verið að ræða réttmætan misskilning af hans hálfu en ekki ásetning til að blekkja og því sé ekki hægt að refsa kæranda fyrir þetta.

Kærandi greinir frá því að fjárhagsstaða hans sé viðkvæm. Hann búi með systur sinni og móður en saman deili þau grunnútgjöldum heimilisins svo sem leigu, eldsneyti, mat, samgöngum og nauðsynlegum framfærslukostnaði. Skuld að upphæð rúmlega 700.000 kr. sé óviðráðanleg og myndi hafa verulega neikvæð áhrif á fjárhagsstöðugleika þeirra. Samkvæmt 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sé heimilt að taka tillit til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna við endurskoðun ákvörðunar.

Í ljósi framangreinds óski kærandi eftir því að mál hans verði endurskoðað, skuld hans verði felld úr gildi eða minnkuð og að 15% álag verði fjarlægt. Að öðrum kosti óski kærandi eftir greiðsluáætlun í samræmi við fjárhagsstöðu hans.

Kærandi lýsi því yfir að hann hafi ekki brotið gegn neinum reglum þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur. Hann hafi ekki verið fyllilega upplýstur um skyldu sína varðandi framtíðar nám og að nám hans hafi ekki minnkað getu hans til að vinna. Hann hafi verið í góðri trú og sé nú í viðkvæmri fjárhagsstöðu. Kærandi óski þess vegna eftir sanngjarnri og málefnalegri endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysistryggingar þann 18. febrúar 2025. Með erindi, dags. 1. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt með 100% bótarétt.

Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós að kærandi hafi verið skráður í 29 eininga nám á haustönn 2025 við Tækniskólann, samhliða því að þiggja greiðslur atvinnuleysistrygginga. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um nám sitt. Í umsókn kæranda hafi komið fram að hann væri ekki skráður í nám, hefði ekki verið skráður í nám á fyrri námsönn, né hefði hann lokið námi á síðustu tólf mánuðum þar á undan.

Með erindi, dags. 13. október 2025, hafi verið óskað eftir því að kærandi myndi skila skólavottorði þar sem umfang náms væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki upplýst Vinnumálastofnun um nám sitt. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni umbeðin gögn. Þann 29. október 2025 hafi borist afrit af skólavottorði þar sem fram komi að kærandi væri skráður í 29 eininga nám á haustönn 2025 í Tækniskólanum á íslenskubraut fyrir útlendinga. Jafnframt hafi borist skriflegar skýringar frá kæranda á ástæðum þess að hann hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um nám sitt. Kærandi hafi borið því við að honum hefði ekki verið kunnugt um að honum bæri skylda til að tilkynna nám sitt á meðan hann væri að fá greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi farið fram á að Vinnumálastofnun myndi taka tillit til aðstæðna hans.

Með erindi, dags. 13. nóvember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði stundað nám á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistryggingar væru greiðslur til hans stöðvaðar á grundvelli 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi honum verið tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar á tímabilinu 18. ágúst til 31. október 2025, samtals 773.940 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 14. nóvember 2025 hafi kærandi lagt fram ítarlegar skriflegar skýringar. Kærandi hafi farið fram á að mál hans yrði tekið fyrir að nýju. Kærandi hafi bent á að hann hefði ekki stundað nám þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur og að hann hefði ekki vitað að hann mætti ekki stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Að mati kæranda hafi nám hans ekki haft áhrif á atvinnuleit hans og hann hafi verið í virkri atvinnuleit þrátt fyrir að vera í námi. Þá telji kærandi að honum hafi ekki verið leiðbeint af hálfu Vinnumálastofnunar um að óheimilt væri að stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Af þeim sökum ætti 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ekki við í hans tilviki. Kærandi hafi bent á að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi sett hann í erfiða stöðu.

Í kjölfar skýringa kæranda hafi mál hans verið tekið til endurskoðunar og kæranda tilkynnt með bréfi, dags. 2. desember 2025, að ákvörðun stofnunarinnar frá 13. nóvember 2025 skyldi standa þar sem ný gögn breyttu ekki niðurstöðu í máli hans.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 15. desember 2025. Rökstuðningur kæranda í kæru sé efnislega samhljóma þeim skýringum sem hann hafi þegar veitt Vinnumálastofnun.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Í c. lið 3. gr. laganna sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“

Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi skráð sig í 29 eininga nám við Tækniskólann á haustmisseri 2025, á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um þessa tilhögun og í umsókn kæranda hafi komið fram að hann væri ekki skráður í nám, hefði ekki verið skráður í nám á síðustu námsönn og hefði ekki lokið námi á síðustu tólf mánuðum fyrir umsókn. Þá sé ekkert í máli þessu sem bendi til þess að undanþágur 2.- 4. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi við í tilfelli kæranda, enda hafi hann verið í meira en 20 eininga námi, námið sé ekki skipulagt með vinnu og önn hafi ekki verið yfirstandandi þegar hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta.

Í kæru greini kærandi frá því að Vinnumálastofnun hafi ekki leiðbeint honum er varði að nám samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hefði áhrif á greiðslur atvinnuleysisbóta. Hið rétta sé að kæranda hafi sannarlega verið leiðbeint af stofnuninni um að nám gæti haft áhrif á greiðslur atvinnuleysisbóta. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi honum verið bent á að tilkynna þyrfti um allar breytingar á persónulegum högum. Þá hafi Vinnumálastofnun sent honum tölvupóst þar sem m.a. hafi verið bent á ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda. Þá vísist jafnframt til þess að þegar umsækjandi sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta sé m.a. spurt hvort atvinnuleitandi stundi nám og athygli sé vakin á því að nám kunni að hafa áhrif á greiðslur atvinnuleysisbóta.

Með vísan til 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 18. ágúst til 31. október 2025. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 18. ágúst til 31. október 2025, samtals að fjárhæð 672.991 kr., að viðbættu 15% álagi, enda liggi fyrir að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Heildarskuld kæranda með álagi nemi 773.940 kr.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 18. ágúst til 31. október 2025, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi, samtals 773.940 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur með vísan til þess að hann hafi stundað nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingarhlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi, hvort hann hafi verið skráður í nám á síðustu námsönn eða sé skráður í nám á næstu námsönn. Þá er upplýst að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Í staðfestingu á móttöku umsóknarinnar var kærandi upplýstur um ýmis réttindi og skyldur og jafnframt greint frá því að ítarlegri upplýsingar hvað það varðar væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var skráður í 29 eininga nám við Tækniskólann á haustönn 2025 þegar hann þáði atvinnuleysisbætur en hann upplýsti Vinnumálastofnun ekki um námið.

Með vísan til framangreindra upplýsinga sem kæranda voru veittar telur úrskurðarnefndin ljóst að hann hefði mátt vita að honum bæri að upplýsa Vinnumálastofnun um nám sitt. Þar sem Vinnumálastofnun hafði ekki vitneskju um nám kæranda fékk hann greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 18. ágúst til 31. október 2025 án þess að eiga rétt til þeirra, sbr. framangreinda meginreglu um að námsmenn séu ekki tryggðir samkvæmt lögum nr. 54/2006.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir