19 mars 2026
/
Mál nr. 829/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 829/2025
Fimmtudaginn 19. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 28. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. júní 2025 og var umsóknin samþykkt 1. júlí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 802.016 kr., að meðtöldu álagi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. desember 2025. Með bréfi, dags. 6. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. febrúar 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 21. febrúar 2026.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi óski þess að endurgreiðslukrafan verði felld niður að fullu eða lækkuð með hliðsjón af alvarlegu heilsufarsástandi og fjárhagsstöðu hennar.
Kærandi viðurkenni að á tímabilinu frá júní til nóvember 2025 hafi henni láðst að afhenda gögn varðandi tilfallandi tekjur. Kærandi vilji árétta að sú yfirsjón hafi ekki verið með ráði gerð og að það hafi ekki verið ætlun hennar að blekkja stjórnvöld.
Í yfir fimm ár hafi kærandi glímt við klínískt þunglyndi sem hafi, svo um muni, skert hæfni hennar til að takast á við daglegt líf, að meðtöldu því að sinna skyldum sínum gagnvart hinu opinbera. Síðan í desember 2025 hafi kærandi upplifað mikið bakslag í veikindum sínum sem sé staðfest með læknisfræðilegum gögnum. Á þessu tímabili hafi andleg heilsa hennar verulega takmarkað getu hennar til að skilja og sinna skyldum sínum gagnvart opinberum stofnunum.
Sökum heilsufarsástands kæranda sé hún óvinnufær og hafi engin fjárráð til að endurgreiða umrædda fjárhæð. Það að innheimta kröfuna myndi setja hana í mjög erfiða stöðu, bæði heilsufarslega hvað varðar grundvallar lífsskilyrði.
Kærandi óski þess að skylda hennar til að endurgreiða verði felld niður. Til vara óski hún þess að 15% álagið verði fellt niður og að aðgerðum til innheimtu verði frestað. Einnig vilji hún að heilsufarsástand hennar verði metið henni til málsbóta líkt og kveðið sé á um í lögum um atvinnuleysistryggingar. Kærandi sé tilbúin til að skila inn læknisvottorði, sem staðfesti læknisfræðilega greiningu og bakslag hennar, sé þess óskað. Kærandi biðji úrskurðarnefndina um að taka til skoðunar langvarandi veikindi hennar, skort á ásetningi, núverandi fjárhagsstöðu og að málsmeðferðin taki mið af meðalhófi og sanngirni.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn 1. júní 2025. Með erindi, dags. 1. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í desember 2025 hafi kæranda verið sent erindi, dags. 2. desember 2025, þar sem henni hafi verið gefinn kostur á að skýra ótilkynnta launagreiðslu frá júní til september 2025 frá B. Auk skýringa hafi kærandi verið beðin um að skila gögnum sem hafi varðað þessar launagreiðslur, t.a.m. launaseðlum. Kærandi hafi verið upplýst um grun stofnunarinnar að hún hefði ekki uppfyllt skilyrði greiðslna atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið.
Í kjölfarið hafi kærandi sent launaseðla fyrir júní til september 2025 frá B ásamt skýringum. Kærandi hafi sagt að sökum andlegra veikinda hafi henni yfirsést að tilkynna um tekjur og störf sín. Eftir nánari skoðanir á gögnum frá Skattinum hafi komið í ljós að kærandi hafi einnig verið með tekjur frá C í ágúst 2025 og D í september, október og nóvember 2025, auk B í október og nóvember 2025.
Með erindi, dags. 17. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hún hefði ekki upplýst stofnunina um tilfallandi tekjur eða vinnu væri greiðslum frestað í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Kæranda hafi verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 697.406 kr., sem innheimtar yrðu með álagi. Heildarskuld vegna ákvörðunar stofnunarinnar næmi því 802.016 kr. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum bóta og að henni beri að endurgreiða hluta þeirra atvinnuleysisbóta sem hún hafi fengið greiddar frá júní 2025 til [nóvember] sama ár.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Ljóst sé að tekjur kæranda hafi verið hærri en frítekjumark skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1455/2024 um fjárhæð atvinnuleysistrygginga. Frítekjumarkið árið 2025 sé skv. þeirri grein 89.817 kr. á mánuði en tekjur kæranda hafi numið 601.308 kr. í júní, 156.211 í júlí, 584.330 kr. í ágúst, 526.819 kr. í september, 721.185 kr. í október og 853.492 kr. í nóvember 2025.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun að fyrra bragði um tilfallandi störf eða tekjur á umræddum mánuðum. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.
Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar sé að finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“.
Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna skuli sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Hann skuli jafnframt endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Kæranda beri að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hafi ekki upplýst um tilfallandi tekjur frá júní til [nóvember] 2025. Þá hafi greiðslur atvinnuleysisbóta verið leiðréttar í samræmi við upplýsingar frá Skattinum um rauntekjur kæranda.
Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji ekki tilefni til að fella niður álag kröfunnar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tekna frá júní til nóvember 2025, samtals að fjárhæð 802.016 kr., að meðtöldu álagi. Þá beri kæranda að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur frá júní til nóvember 2025 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í desember 2025.
Þann 1. júlí 2025 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.
Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um tekjur sínar á tímabilinu júní til nóvember 2025. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 802.016 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hún fékk greiddar á tímabilinu júní til nóvember 2025 fékk hún hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur og því engin heilmild til staðar til að fella niður endurkröfu eins á kærandi hefur farið fram á. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk framangreindan mánuð og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir