19 mars 2026
/
Úrskurður nr. 141/2026
Hinn 19. mars 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 141/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU24060106
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 13. júní 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. maí 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi en veita honum dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Ítalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 30. nóvember 2022. Kvaðst kærandi hafa verið á Ítalíu frá árinu 2016, haft þar dvalarleyfi um tíma en farið þaðan þar sem hann hafi verið heimilislaus og óttist um líf sitt.
Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, 1. desember 2022, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 8. desember 2022 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 15. desember 2022, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. febrúar 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. mars 2023, var kæranda synjað um alþjóðlega vernd með vísan til 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd útlendingamála staðfesti þá niðurstöðu með úrskurði nr. 354/2023, dags. 13. júní 2023. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa sem var hafnað með úrskurði nefndarinnar nr. 389/2023, dag. 5. júlí 2023. Kærandi lagði fram beiðni um endurtekna umsókn 13. desember 2023 sem var felld niður 5. janúar 2024 í kjölfar afturköllunar kæranda með vísan til þess að Útlendingastofnun hafði þá tekið mál kæranda til efnismeðferðar þar sem frestur til flutnings hans samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni var liðinn.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun vegna efnismeðferðar 19. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi hafa flúið frá Benínborg í Nígeríu árið 2016 í kjölfar þess að vinur hans hafi reynt að fá hann til að ganga til liðs við glæpahópinn Aiye sem kærandi hafi neitað og þá orðið fyrir árás meðlima úr hópnum. Kvaðst kærandi ekki hafa leitað sér læknisaðstoðar en að afi hans hafi leitað til lögreglu vegna árásarinnar, en þá hafi kærandi þegar verið búinn að ákveða að yfirgefa landið. Aðspurður kvað kærandi að hópurinn hafi ekki reynt að ná sambandi við hann eftir að hann yfirgaf Nígeríu. Kvaðst kærandi þó enn telja sig í hættu í Nígeríu vegna hópsins og að hann gæti ekki sest að annars staðar í Nígeríu. Kvaðst kærandi vera í sambandi við systur sína og móður í Nígeríu en afi hans og amma væru látin.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd en veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 13. júní 2024. Greinargerð barst kærunefnd 27. júní 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er um málsatvik vísað til fyrirliggjandi gagna málsins.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Nígeríu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína á því að óttast ofsóknir hópsins Black Axe sem hafi ráðist á hann margsinnis í heimaríki þar sem hann hafi ekki viljað ganga til liðs við hópinn. Telur kærandi að vegna spillingar hjá lögreglu og dómskerfi landsins sé ekki til staðar raunveruleg vernd gegn meðlimum framangreinds glæpahóps. Þá sé innri flótti ekki raunhæfur möguleiki.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína á sömu rökum og fyrir aðalkröfu auk almennra aðstæðna í Nígeríu.
Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða verði staðfest.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga sem hafi leitt til efnislega rangrar niðurstöðu.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
- 2024 Country Reports on Human Righs Pracitces; Nigeria (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Trafficking in Persons Report – Nigeria (U.S. Department of State, 2023);
- Amnesty International Report 2023/2024 – Nigeria (Amnesty International, 2024);
- Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual report on religious freedom (covering 2024) (USCIRF, mars 2025);
- Annual report on religious freedom (covering 2021) (USCIRF, apríl 2022);
- Country of Origin Information Report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, janúar 2023);
- Country of origin information report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, júní 2021);
- Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, mars 2023);
- The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
- Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: internal relocation (U.K. Home Office, júlí 2024);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (U.K. Home Office, júlí 2022);
- Country Policy and Information Note- Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
- Country information note: medical treatment and healthcar (U.K. Home Office, desember 2025);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);
- Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
- DFAT Country Information Report - Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
- EASO COI Report – Nigeria - Actors of Protection (EASO, nóvember 2019);
- EUAA COI Report – Nigeria – Country Focus (EUAA, 12. júlí 2024);
- EUAA COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
- EUAA COI Report – Nigeria: Security Situation ( EUAA, júní 2021);
- Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025 – Nigeria (Freedom House, febrúar 2025);
- Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (Socialprotection.org, 7. febrúar 2019);
- Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
- Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
- Edo Government House, newsletter 5th – 11th May 2025 (Edo State government, 11. maí 2025);
- Nigeria – Country Focus (EUAA, júlí 2024);
- Nigeria – Country Focus (EUAA, nóvember 2025);
- Nigeria 2023 International Religious Freedom Report – Nigeria (U.S. Department of State, 26. júní 2024);
- Nigeria 2021 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
- Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 25. apríl 2019);
- Nigeria: Psykisk helsevern (Landinfo, 23. júní 2017);
- Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 Rome (EUAA, 21. ágúst 2017);
- Nigeria: Security Situation – Country of Origin Information Report (EUAA, nóvember 2025);
- Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC), 16. júní 2019);
- Nigeria: The Black Axe confraternity (Aiye Confraternity; Ayee), also known as the Neo Black Movement of Africa (NBM), including initiation, rituals, oaths of secrecy, and use of symbols or particular signs; whether they use force to recruit individuals; the treatment of anti-cultists; activities in Candada (2020-November 2022), (Immigration and Refugee Board of Canada, október 2022);
- Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
- Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
- Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
- Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
- Social Institutions and Gender Index 2019 - Nigeria (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
- Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014.en.pdf);
- The World Factbook – Nigeria (CIA, uppfært 8. júlí 2025);
- The State of Nigeria’s Children 2024 (UNICEF, nóvember 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (https://www.migrationjointinitiative.org/countries/sahel-and-lake-chad/nigeria, sótt 11. apríl 2025);
- Upplýsingar af vefsíðu Acled Data (síðast skoðað 30. júlí 2025);
- Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
- World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018);
- Vest-Afrika: Nettverk (Landinfo, 15. maí 2019) og
- World Report 2025 – Nigeria: Events of 2024 (Human Rights Watch, 17. janúar 2025).
Nígería er sambandslýðveldi með um 237 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2024 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.
Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómkerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Council (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórnar lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Stofnunin DSVA (e. Domestic and Sexual Violence Agency) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2025, má rekja helstu orsakir dauðsfalla og ofbeldis í Nígeríu til glæpastarfsemi. Þar á eftir komi pólitísk átök, trúarleg málefni og umferðaslys. Öryggisástandið sé hvað verst í norðurhluta Nígeríu vegna átaka hryðjuverkahópa, átaka um landsvæði og aðgerða nígerískra stjórnvalda gegn uppreisnarmönnum. Í suðurhluta Nígeríu megi aðallega rekja dauðsföll til glæpa og þjóðernis- og samfélagslegs ágreinings. Á tímabilinu desember 2022 til júní 2023 hafi Sameinuðu þjóðirnar greint frá fækkun hryðjuverkaárása og dauðsfalla sem rekja megi til sameiginlegra aðgerða nígerískra stjórnvalda og Multinational Joint Task Force (MNJTF) gegn Boko Haram, afvopnunar fyrrverandi hermanna og stuðningsmanna Boko Haram og átaka á milli Boko Haram og ISWAP. Heimildir bendi þó til þess að stórfelldar árásir haldi áfram að eiga sér stað og vopnaðar vígasveitir starfi áfram í norðurhluta Nígeríu. Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum hafi óstöðugleiki aukist á fyrri helmingi ársins 2024 einkum við landamæri Nígeríu og Níger og Benín. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2021 og ACLED frá 2024 var hryðjuverkahópurinn Boko Haram, einnig þekktur sem JAS, stofnaður árið 2002 og er einn valdamesti vopnaði vígahópurinn í Nígeríu. Markmið hópsins sé að skipta nígeríska ríkinu út fyrir íslamskt ríki og byggir hópurinn á strangri túlkun á Sharia-lögum. Meginhluti starfsemi hópsins hafi verið friðsæl og ofbeldislaus fyrir árið 2009 en í kjölfar þess að skólastúlkum hafi verið rænt í Chibok árið 2014, hafi hópurinn vakið heimsathygli og verið þekktur sem banvænasti hryðjuverkahópur heims. Síðan þá hafi hópurinn stækkað til nágrannalanda Nígeríu, Kamerún, Tsjad og Níger og hertekið landsvæði. Hópurinn hafi verið í uppreisn á árunum 2014 til 2015 og náð stjórn yfir mikilvægum landsvæðum í norðausturhluta Nígeríu. Nígerísk stjórnvöld og samstarfsmenn þeirra hafi allt frá árinu 2015 barist gegn vígahópnum sem hafi leitt til þess að dregið hafi úr starfsemi hópsins og hann misst yfirráðasvæði. Árið 2016 hafi Boko Haram skipst í tvær fylkingar, JAS og ISWAP og í maí 2021 hafi leiðtogi Boko Haram/JAS verið drepinn í átökum milli JAS og ISWAP. Allt frá þeim tíma hafi átt sér stað átök á milli beggja fylkinga vegna yfirráða landsvæða.
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)), nú fólkfslutningastofnun Edo fylkis (Edo State Migration Agency (EDMA)), sem leidd sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni stofnunarinnar séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Cross-river, Lagos, Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við geranda sinn. Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2025 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2021 og skýrslu flóttamannastofnunar Kanada frá árinu 2022 kemur fram að mikið sé um leynileg glæpasamtök og bræðralög í Nígeríu. Algengt sé að slík samtök starfi innan háskóla en þau stundi einnig umfangsmikla glæpastarfsemi fyrir utan háskólasvæðin. Samtökin séu þekktust fyrir ógnandi hegðun og ofbeldi gagnvart nemendum, kennurum, lögreglu og öðrum samtökum. Dæmi séu jafnvel um að stjórnmálamenn ráði slík samtök til þess að beita andstæðinga sína ofbeldi. Eitt alræmdasta bræðralagið séu samtökin Black Axe og sé meginmarkmið samtakanna skipulögð glæpastarfsemi. Bera heimildir með sér að starfsemi þeirra nái til fjölmargra landa, t.a.m. Bandaríkjanna, Ítalíu og víðar um Evrópu. Fram kemur að samtök og bræðralög sem þessi séu bönnuð samkvæmt stjórnarskránni. Þá hafi þau einnig verið bönnuð með lögum sem samþykkt hafi verið árið 2004, Secret Cult and Cult Related Activities (Prohibition) Bill. Í Edo-fylki hafi þá verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi lögreglu gegn slíkum samtökum (Special Task force on Anti-Cultism). Af skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að upp hafi komið tilvik þar sem aðilar sem hafi neitað að ganga í slík samtök eða reyni að ganga úr þeim hafi orðið fyrir ofbeldi. Heimildir bera þá með sér að lögregla ákæri fyrir glæpi sem framdir séu af hópum og samtökum líkt og fyrir hvern annan glæp. Lögregluyfirvöld hafi í fjölda tilfella handtekið einstaklinga sem séu tengdir slíkum samtökum. Samkvæmt fréttagrein BBC hafa samtökin þó eflst undanfarin ár og bendi tveggja ára rannsókn fréttamiðilsins til þess að Black Axe séu orðin ein af dreifðustu og hættulegustu skipulögðu glæpasamtökum heims í dag. Rannsóknin hafi m.a. leitt í ljós að samtökin hafi tengsl við aðila innan stjórnvalda í Nígeríu. Nýjar heimildir benda þó til þess að yfirvöld í Nígeríu hafi brugðist við slíkri spillingu og árið 2025 beitti fylkistjóri Edo-fylkis sér fyrir sérstöku átaki með það að markmiði að uppræta slík glæpasamtök. Í átakinu felist m.a. efling sjálfstæði dómara og dómstóla, aðgerðir til að bæta launagreiðslur og lífeyriskerfi lögreglumanna, úrbætur í búnaði lögreglu til að efla viðbragðstíma, almenn fræðsla og ýmsar aðgerðir til þess að gera upptækan ágóða af glæpastarfsemi og nýta til góðs fyrir samfélagið.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá desember 2021 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið á vegum alríkisins. Almenn heilbrigðisþjónusta sé almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá árinu 2024 sé grunnheilbrigðisþjónusta í boði á um 34 þúsund heilbrigðisstofnunum í landinu. Auk þess hafi alríkisstjórnin, 36 fylkisstjórar og samstarfsaðilar þeirra nýlega sett af stað átak til þess að bæta þjónustu og heilbrigði nígerísku þjóðarinnar. Þá hafi samstarf verið að öðrum verkefnum og stefnumótun í tengslum við heilbrigðisþjónustu, einkum í tengslum við ungbarnadauða og bólusetningar. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningsstofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Afríku sunnan Sahara. Fólksflutningsstofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og EDMA (e. Edo State Migration Agency) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu IOM frá 23. júlí 2025 kemur fram að verkefnið hafi frá árinu 2022 aðstoðað um 21 þúsund Nígeríumenn við að snúa aftur til heimkynna sinna á öruggan hátt.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á því að óttast ofsóknir af hálfu Black Axe/Aiye þar sem hann hafi neitað að ganga til liðs við hópinn árið 2016 í Nígeríu.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vegna vinskapar hans við meðlim í Black Axe hafi verið reynt að fá hann til liðs við samtökin en þegar hann hafi neitað hafi verið ráðist á hann af meðlimum samtakanna árið 2016. Kvaðst kærandi hafa yfirgefið Nígeríu og haldið til Ítalíu en ekki orðið fyrir frekara áreiti af hálfu samtakanna.
Ekki er ástæða til að draga í efa að gerð hafi verið tilraun til að fá kæranda til ganga til liðs við Black Axe eða Aiye samtökin sem eru þekkt glæpasamtök í Nígeríu. Það er þó mat kærunefndar að kærandi sé hvorki sérstakt skotmark samtakanna né stafi af þeim hætta umfram aðra einstaklinga í heimaríki sínu. Horfir kærunefndin við það mat til þess að samtökin eru þekkt fyrir að vera með starfsemi í Evrópu og þá sérstaklega á Ítalíu hvar kærandi dvaldi fyrir komu sína hingað til lands, eng kærandi hefur ekki lýst neinu frekara áreiti í sinn garð eða fjölskyldu sinnar á þeim tæpu tíu árum sem liðið hafa síðan kærandi yfirgaf heimaríki sitt. Auk þess eru samtök á borð við Black Axe bönnuð í Nígeríu og yfirvöld í Nígeríu vinna að því að uppræta starfsemi þeirra með ýmsum aðgerðum.
Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hann geti ekki notið verndar lögreglu eða sýnt fram á það með öðrum hætti. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd telji hann þörf á því, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að þær athafnir sem kærandi hefur lýst hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Enn fremur varða framangreind atvik ekki kynþátt kæranda, trúarbrögð, þjóðerni, aðild að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðanir hans og eru þ.a.l. ekki ástæður sem talist geta til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á sömu rökum og fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns auk almennra aðstæðna í heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í Benínborg í Edo fylki í suðurhluta Nígeríu og hafa verið búsettur þar alla tíð þar til hann hafi yfirgefið heimaríki sitt árið 2016. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Benínborg séu slíkar að kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Nígeríu.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Með vísan til forsendna hinnar kærðu ákvörðunar og kröfu kæranda er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest hvað varðar veitingu dvalarleyfa á grundvelli mannúðarsjónarmiða sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir