19 mars 2026

/

Úrskurður nr. 149/2026


Hinn 19. mars 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 149/2026

í stjórnsýslumálum nr. KNU25040101 og KNU25040102

Kæra [...] og barns þeirra

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. apríl 2025 kærðu einstaklingar er kveðast heita […], vera fæddur […] (hér eftir M) og […], vera fædd […] (hér eftir K), og vera ríkisborgarar Tyrklands, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 8. apríl 2025, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu hafði lögregla afskipti af M við landamæraeftirlit við brottför hinn 25. október 2024. Kvaðst M hafa komið til landsins frá Frakklandi þann sama dag og lagði í kjölfarið fram umsókn um alþjóðlega vernd. Kvaðst M óttast að vera sendur í fangelsi í Tyrklandi auk þess sem hann bar fyrir sig slæmt ástand í Tyrklandi. Samkvæmt lögregluskýrslu K lagði hún fram umsókn um alþjóðlega vernd 28. október 2024 eftir að hafa komið til landsins frá Frakklandi um 10 dögum áður.

Kærendur komu til forviðtals, án talsmanns, hjá Útlendingastofnun 5. nóvember 2024 og til efnisviðtals þann 15. janúar 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kærendur kváðust hafa komið í sitthvoru lagi til landsins, K kvaðst hafa komið 20. október 2024 og hafa dvalist með bróður M í íbúð ótilgreinds manns áður en hún lagði fram umsókn um vernd 28. október 2024. M kvaðst hins vegar hafa komið 25. október og lagt fram umsókn samdægurs. M kvaðst fæddur í […] í Austur-Tyrklandi og hafa búið síðast í borginni Merzin, sem er í suðurhluta Tyrklands, en fjölskylda hans hafi verið hrakin frá […]. M kvaðst hafa búið í Merzin fram að flótta frá heimaríki. M kvaðst eiga móður, bræður og fjölda annarra ættingja í heimaríki. Hann hafi unnið sem múrari og klárað skóla upp í 5. bekk. Aðspurður kvaðst M heilsuhraustur en hann greindi frá andlegri vanlíðan í heimaríki, sem hafi meðal annars birst í sjálfsskaða og sjálfsvígstilraunum.

Aðspurður um ástæður flótta kvaðst M ofsóttur af lögreglunni í Tyrklandi vegna þess að hann væri Kúrdi. Lögregla bæði hann ítrekað um nafnskírteini úti á götu og spyrði um ferðir hans. Það væri talinn glæpur að ganga með kúrdískan klút. M kvað einn bræðra sinna hafa verið fangelsaðan fyrir að vera Kúrdi. Annar bróðir hans hafi verið áreittur og beittur ofbeldi af lögreglu með þeim afleiðingum að hann hafi framið sjálfsvíg. M kvaðst einnig sæta ofsóknum vegna þátttöku sinnar og fjölskyldu sinnar í kúrdaflokknum. Hann og fjölskylda hans hefðu öll verið skráð í kúrdaflokkinn og margir fjölskyldumeðlima hans verið myrtir. Kærandi greindi frá því að hafa fengið dóma fyrir 15 ára aldur vegna þátttöku sinnar í mótmælum með kúrdaflokknum. M kvað að eftir 18 ára aldur hafi lögreglan reynt að koma á hann sakir fyrir fíkniefnabrot vegna þess að hann væri Kúrdi. M kvaðst vera í farbanni og hann hafi því ekki getað ferðast löglega frá Tyrklandi. M kvaðst eiga á hættu að vera fangelsaður í allt að 25 ár, yrði hann sendur til baka. Þá hafi M átt frænda sem hafði verið talinn vera hryðjuverkamaður og verið myrtur af stjórnvöldum. Fjölskylda M væri dæmd vegna þess. M kvaðst vera í sambandi við móður sína en bræður hans væru í fangelsi.

K kvaðst fædd og uppalin í borginni Merzin og hafa búið þar fram að flótta sínum frá heimaríki. K kvaðst vera heilsuhraust. Hún hafi verið í háskóla og unnið með námi sem þjónn á veitingastað. K kvaðst eiga móður, bróður, ömmu og aðra ættingja í heimaríki. K kvaðst hafa gifst M þann 25. júní 2024. Aðspurð um ástæður flótta kvað K að öll fjölskylda hennar, nema móðir hennar, hafi slitið tengsl við hana vegna þess að eiginmaður hennar væri Kúrdi, en hún væri tyrknesk, og að hann sætti mismunun vegna þjóðernis síns. Þegar þau hafi ætlað að giftast hafi aðilar á vegum stjórnvalda komið og þau neyðst til að yfirgefa staðinn. K kvaðst eiga myndir frá brúðkaupinu. Þá kvað K það ekki auðvelt að vera kona í Tyrklandi og að konur þurfi að hylja hár sitt. Hún kvaðst hafa húðflúr og að fólk horfi skringilega á hana og dæmi hana fyrir það, einnig hafi hún þurft að vera með slæðu. K greindi frá því að eftir að eiginmaður hennar hafi fengið dóm hafi þau leitað leiða til að fara frá landinu. Hann hafi verið sakaður um að vera hryðjuverkamaður eða dreifa áróðri. Aðspurð kvaðst K ekki hafa farið samferða eiginmanni sínum úr landi því hann hafi ekki getað yfirgefið landið löglega. K kvaðst sjálf hafa komið hingað til lands með aðstoð annars manns. Hún hafi rifið vegabréf sitt samkvæmt hans ráðleggingum, til þess að hún yrði ekki send aftur til Tyrklands. Eftir að hún kom til landsins hafi hún búið í íbúð ásamt frænda eiginmanns hennar, að nafni [...], þar til hún sótti um vernd. Aðspurð kvað K að hún og eiginmaður hennar hafi þekkst síðan 2018.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Ákvörðun í máli K var kærð til kærunefndar þann 22. apríl 2025 og ákvörðun í máli M var kærð 23. apríl 2025. Kærunefnd barst greinargerð M þann 7. maí 2025. Ekki barst sérstök greinargerð í máli K en vísað var til greinargerðar M. Þann 9. desember 2025 barst kærunefnd tilkynning um fæðingu barns kærenda 2. desember 2025. Varð umsókn þess hluti af málsmeðferðinni frá fæðingu.

Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð M og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. K hefur ekki lagt fram greinargerð við meðferð málsins hjá kærunefnd. Nefndin hefur þó farið yfir gögn málsins og tekið tillit til allra sjónarmiða er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum M lýst. Þar kemur m.a. fram að hann eigi yfir höfði sér fangelsisvist vegna dóms sem hann hafi fengið fyrir rangar sakir. M hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð og að ofsóknir, mismunun og refsingar muni halda áfram gegn honum verði hann sendur til baka. M hafi verið handtekinn af lögreglu af engum sökum og verið ákærður og hlotið dóm fyrir að vera viðstaddur Newroz sem sé árleg hátíð Kúrda. Áður hafi hann verið handtekinn fyrir engar sakir og lögreglan hafi brotið í honum tönn. Er M hafi ætlað að leggja fram kæru hafi verið hlegið að honum og fullyrt að hann hafi brotið tönnina sjálfur. Í kjölfar þeirrar handtöku hafi M verið settur í vikulega tilkynningarskyldu til yfirvalda. Ástæða þess að hann hafi verið handtekinn og ákærður sé sú að fjarskyldir ættingjar hans hafi verið búsettir í hálöndunum og yfirvöld hafi talið þá vera viðriðna hryðjuverkasamtök. Þá hafi M orðið fyrir margs konar mismunun vegna kúrdísks þjóðernis síns og eigi á hættu ofsóknir vegna þess.

M krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísað er til þeirra ofsókna sem M greindi frá að hafa orðið fyrir og þeirri mismunun sem Kúrdar búi við í Tyrklandi.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst M þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggt er á sömu málsástæðum og í aðalkröfu.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst M þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísað er til mannréttindabrota stjórnvalda gegn Kúrdum og átaka stjórnvalda við PKK flokkinn sem jafnist á við stríðsástand, einkum í suðausturhluta ríkisins.

Fyrir hönd K er þess krafist að henni verði veitt alþjóðleg vernd sem maka flóttamanns, sbr. 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Með endursendingu kærenda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð M eru ekki gerðar athugasemdir við málsmeðferð stofnunarinnar.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

Alþjóðleg vernd

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að M hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á sér deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni M á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að M væri frá Tyrklandi þó auðkenni M væri að öðru leyti óupplýst. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi K framvísað tyrknesku skilríki. Útlendingastofnun taldi auðkenni K ekki upplýst en lagði til grundvallar að hún væri ríkisborgari Tyrklands. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður lagt til grundvallar að kærendur séu tyrkneskir ríkisborgarar. Að öðru leyti er auðkenni þeirra óljóst. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun eignuðust kærendur barn 2. desember 2025. Barn verður tyrkneskur ríkisborgari við fæðingu ef annað foreldrið er tyrkneskur ríkisborgari, samkvæmt 7. gr. tyrkneskra laga um ríkisfang. Því verður lagt til grundvallar að barnið sé tyrkneskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey(U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey(U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey(U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Turkey(U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • 2023 Report on International Religious Freedom: Turkey(U.S. Department of State, 26. júní 2024);
  • 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Turkey 2022(Amnesty International, 28. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2023/24: Turkey 2023(Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Amnesty International Report 2024/25: Turkey 2024(Amnesty International, 29. apríl 2025);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds(UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Military service(UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP)(UK Home Office, mars 2020);
  • Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP)(UK Home Office, október 2023);
  • DFAT Country Information Report – Turkey(Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. september 2020);
  • EASO Country of Origin Information Report – Country Focus Turkey(European Asylum Office (EASO), nóvember 2016);
  • Commission Staff Working Document – Turkey 2024 Report(European Commission (EC), 30. október 2024);
  • Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,2023);
  • Freedom in the World 2024 – Turkey(Freedom House, 2024);
  • Freedom in the World 2025 – Turkey(Freedom House, 2025);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey(Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 31. ágúst 2023);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 24. febrúar 2025);
  • Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report(European Commission, 8. nóvember 2023);
  • Progress report on the preparation for EU membership - Türkiye 2024 Report(European Commission, 30. október 2024);
  • The World Factbook - Turkey(Central Intelligence Agency, síðast uppfært 21. maí 2025);
  • Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, skoðað 17. maí 2025);
  • Turkey Healthcare Technologies Resource Guide (U.S.International Trade Administration. Sótt 17. maí 2025);
  • Turkish Citizenship Law (as amended in 2018), Law No. 5901, April 2018 (https://www.refworld.org/legal/legislation/natlegbod/2018/20483, sótt 17. mars 2026);
  • Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds(Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
  • Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 17. maí 2025);
  • World Report Turkey 2023. Events of 2022(Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report Turkey 2024. Events of 2023(Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
  • World Report Turkey 2025. Events of 2024(Human Rights Watch, 16. janúar 2025);
  • World Report Turkey 2026. Events of 2025(Human Rights Watch, 2026 og
  • Kurds in Türkiye(Vefsíða Minority Rights Group International, síðast uppfært febrúar 2024).

Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl. Niðurstöður kosninganna voru einnig þær að CHP flokkurinn hafi sigrað aftur í borgunum Izmir, Adana og Antalya og haldið meirihluta þar.

Stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir einu þjóðerni fyrir alla ríkisborgara og viðurkennir ekki minnihlutahópa á grundvelli þjóðernis, svo sem Kúrda, eða kynþáttar að undanskildum Armenum, gyðingum og þeim sem tilheyri grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Rétturinn til eigin tungumáls, menningarlegra og trúarlegra réttinda sé ekki tryggður öðrum hópum fyllilega samkvæmt lögum. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2023 um aðstæður Kúrda í Tyrklandi kemur fram að rúmlega 15 milljónir íbúa landsins séu af kúrdískum uppruna og tali kúrdískar mállýskur, eða um 20% tyrknesku þjóðarinnar. Kúrdíska sé annað útbreiddasta tungumálið í Tyrklandi, á eftir tyrknesku. Samkvæmt tyrkneskum lögum sé leyfilegt að opna einkareknar menntastofnanir þar sem kennsla fari fram á tungumálum og mállýskum sem íbúar noti í daglegu lífi. Sumir háskólar bjóði upp á valkvæða áfanga á kúrdísku og tveir háskólar séu með kúrdískar málvísindadeildir. Lögin heimili jafnframt að kúrdísk þorp og hverfi taki upp sín fyrri nöfn í stað þeirra tyrknesku og leyfi stjórnmálaflokkum og meðlimum þeirra að velja tungumál í stjórnmálabaráttu sinni og kynningarefni. Sá réttur hafi þó ekki alltaf verð virtur í framkvæmd. Þá banni lög notkun annarra tungumála en tyrknesku í opinberum stofnunum, hins vegar hafi Ayşegül Doğan, þingmaður DEM, fengið að hefja ræðu sína á kúrdísku í tyrkneska þinginu í desember 2024. Áður hefðu þingmenn verið stoppaðir ef þeir hefðu talað á öðru tungumáli en tyrknesku. Þrátt fyrir að kúrdíska sé formlega leyfð í einkareknum menntastofnunum og opinberri orðræðu hafi ríkisstjórnin ekki framlengt leyfi fyrir kennsluefni á kúrdísku í almenningsskólum. Þá kemur fram í skýrslunni að vísbendingar séu um áframhaldandi samfélagslega mismunun gagnvart Kúrdum og hafi fjölmargar fregnir borist af árásum sem beinst hafi að Kúrdum árið 2023. Í sumum tilfellum sé hugsanlegt að þessar árásir hafi ekki verið rannsakaðar á réttan hátt eða ekki verið viðurkenndar sem árásir byggðar á kynþáttahatri. Kúrdar sem búi í borgum í vesturhluta Tyrklands kunni að vera hræddir við að upplýsa um kúrdískt þjóðerni sitt eða tala kúrdísku á almannafæri, og atvinnumöguleikar geti verið takmarkaðir fyrir kúrdískt fólk, sérstaklega ef það sé virkt í kúrdískum stjórnmálum eða áberandi um stuðning sinn við málstað Kúrda. Hins vegar geti flestir Kúrdar sem ekki eru virkir í stjórnmálastarfi og þeir sem styðja AKP lifað án mismununar í borgum í vesturhluta Tyrklands. Nokkrar heimildir séu um að Kúrdum hafi verið meinaður aðgangur að leiguhúsnæði vegna þjóðernis síns. Þá geti Kúrdar sem ekki tali tyrknesku átt í erfiðleikum með að fá aðgang að læknisþjónustu.

Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og stjórnmálaflokksins og skæruliðahreyfingarinnar Partiya Karkerên Kurdistanê (PKK) hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní 2022 hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annarra aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.

Í skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2025 kemur fram að Halkların Demokratik Partisi (e. Democratic Peoples’ Party, HDP) hafi verið framsækinn vinstri sinnaður stjórnarandstöðuflokkur sem hafi m.a. barist fyrir stjórnmála- og menningarlegum réttindum Kúrda í Tyrklandi. Skömmu fyrir þingkosningarnar í maí 2023 hafi flokkurinn verið á barmi þess að vera bannaður vegna ásakana um að hann ógni einingu tyrknesku þjóðarinnar og að hann hafi unnið meðPKK. Hafi því verið ákveðið að halda áfram starfsemi flokksins undir merkjum annars stjórnarandstöðuflokks að nafni Yeşil Sol Parti (e. Green Left Party, YSP). Í október 2023 hafi YSP ákveðið að breyta nafni flokksins í Halkların Eşitlik ve Demokrasi Partisi (e. Peoples‘ Equality and Democracy Party, HEDEP), en í nóvember sama .ár komst hæstiréttur Tyrklands að þeirri niðurstöðu að skammstöfunin „HEDEP“ væri of lík „HADEP“, sem hafi verið skammstöfun kúrdísks stjórnmálaflokks sem hafi verið virkur á árunum 1994 til 2003. Um miðjan desember hafi YSP þá ákveðið að halda nýja nafni flokksins en nota skammstöfunina „DEM“, sem vísi til hugtaksins „lýðræði“ (e. democracy), sem sé hluti af nafni flokksins. Í sveitarstjórnarkosningunum í mars 2024 fékk DEM 5,7% atkvæða. Líkt og HDP og YSP hafi DEM sérstaklega fengið stuðning í suðausturhluta landsins þar sem margir Kúrdar búi. Hafi DEM verið stærsti flokkurinn í alls tíu héruðum af 81 héraði. Aðilar að flokknum og stuðningsmenn hans séu að mestu leyti Kúrdar, en flokkurinn leggi einnig áherslu á jafnrétti kynjanna, umhverfismál, réttindi verkafólks og annarra minnihlutahópa. Þá hafi flokkurinn staðið að baki fjölda mótmæla árið 2024 og a.m.k. í tvö skipti fyrstu sex vikur ársins 2025. Áætlað sé að sjö til átta þúsund meðlimir DEM séu í fangelsi eða um helmingur skráðra flokksmeðlima. Þeir fari jafnóðum í og úr fangelsi. Mótmælendur, sem séu ekki skráðir flokksmeðlimir DEM, hafi einnig staðið frammi fyrir handtökum og ákærum fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum í nóvember 2024. Samkvæmt eldri skýrslum hollenska utanríkisráðuneytisins hafi um fimm þúsund flokksmeðlimir HDP verið í fangelsi, en erfitt hafi verið að halda utan um nákvæman fjölda þar sem yfirvöld hafi stöðugt verið að handtaka og láta meðlimi flokksins lausa. Yfirvöld hafi sett flokksmeðlimi í gæsluvarðhald, sleppt þeim tímabundið og síðar sakfellt þá.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænum lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policieskemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá Almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta falli undir almannatryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar, og tæknifrjóvgun sé aðeins greidd að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum.

Í ofangreindum skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að ofbeldi gagnvart konum sé útbreitt vandamál í Tyrklandi. Fram kemur að lög þar í landi leggi bann við ofbeldi gegn konum og geti refsing við slíkum brotum varðað allt að 12 ára fangelsisvist. Jafnframt sé nauðgun innan hjónabands refsiverð. Lög í Tyrklandi kveði á um vernd af hálfu lögreglu og annarra stjórnvalda fyrir þolendur ofbeldis en yfirvöld hafi verið gagnrýnd fyrir ófullnægjandi framfylgni laganna og vernd þolenda. Fram kemur að lög fyrirskipi um að veita athvarf og fjárhagslega aðstoð til þolenda ofbeldis og að í landinu séu starfræktir fjölskyldudómstólar sem geti ákveðið þvingunaraðgerðir gegn gerendum. Dómstólar hafi reglulega gefið út nálgunarbann gegn gerendum en lögreglan hafi ekki framfylgt því nægilega. Þó beri heimildir með sér að dómstólar hafi í einhverjum tilvikum beitt vægari viðurlögum en lög kveði á um í málum tengdum kynbundnu ofbeldi t.a.m. með vísan til góðrar hegðunar gerandans meðan á réttarhöldum hafi staðið eða vegna þess að hegðun þolanda hafi þótt ögra geranda. Þá sé í boði sérstök neyðarlína sem þolendur geti hringt í auk snjallforrits, þar sem hægt sé að tilkynna heimilisofbeldi.

Samkvæmt stjórnarskrá Tyrklands skulu allir borgarar landsins vera jafnir fyrir lögunum óháð tungumáli, kynþætti, litarhafti, kyni, stjórnmálaskoðunum, trúarskoðunum eða öðrum sjónarmiðum. Þá kveði lög á um bann við mismunun, m.a. á grundvelli stjórnmálaskoðana, kyns og trúar. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að ákvæði séu í stjórnarskrá og löggjöf sem heimili jákvæða mismunun til að auka jafnrétti kynjanna. Konur njóti sömu lagalegu réttinda og karlmenn en mismunun eigi sér þó stað. Takmörk séu í lögum um heimildir kvenna til að ganga í hjúskap á ný eftir skilnað auk þess að stunda atvinnu sem teljist líkamlega erfið eða hættuleg. Þá hafi konur jafnan rétt þegar komi að erfðarétti, til að eiga eignir og að eiga og reka fyrirtæki. Jafnframt hafi verið sett lög með það að markmiði að auka hlut kvenna á atvinnumarkaði. Lög veiti rétt til fæðingarorlofs, brjóstagjafar á vinnutíma, sveigjanlegs vinnutíma og stærri vinnustaðir þurfi að sjá fyrir barnagæslu. Konur hafi engu að síður sætt mismunun á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka kvenna hafi verið um 30% á árinu 2022 í samanburði við 65% karlmanna.

Fram kemur í ofangreindum gögnum að öll börn í Tyrklandi eigi rétt á að ganga í skóla. Árið 2012 hafi skyldubundin menntun barna verið aukin frá 8 árum upp í 12 ár og ljúki því skólaskyldu barna við 18 ára aldur.

Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

M byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé Kúrdi og hafi orðið fyrir óeðlilegum afskiptum lögreglu og mismunun sökum þess. K byggir umsókn sína á stöðu sinni sem maki M, stöðu hans sem Kúrda og stöðu sinni sem kona í Tyrklandi.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

M hefur borið fyrir sig að vera ofsóttur af lögreglunni í Tyrklandi vegna þess að hann sé Kúrdi. Kvað kærandi lögregluna ítrekað biðja sig um nafnskírteini úti á götu og spyrja um ferðir hans. Greindi kærandi frá því að lögreglan hefði eftirlit með þeim sem skráðir væru í kúrdaflokkinn. M kvað einn bróður sinn hafa verið fangelsaðan fyrir að vera Kúrdi. Annar bróðir hans hafi verið áreittur og beittur ofbeldi af lögreglu með þeim afleiðingum að hann hafi framið sjálfsvíg. Kvaðst M ekki geta búið annars staðar í heimaríki sínu vegna þess að hann hafi kúrdískt nafnskírteini. M hefur einnig borið fyrir sig að hafa hlotið dóm í heimaríki sínu vegna stjórnmálaþátttöku, en hann hafi tekið þátt í mótmælum með kúrdískum stjórnmálaflokki. Hann hafi tvisvar setið í fangelsi fyrir átján ára aldur og verið handtekinn tvisvar eftir átján ára aldur og setið fjögur ár í fangelsi. Hann hafi verið handtekinn vegna mótmæla með kúrdaflokknum en þegar gögnin um dóma hans hafi verið birt hafi dómarnir varðað fíkniefni sem hann kvaðst ekki kannast við. Eftir það hafi lögreglan og hermenn reynt að bera á hann fíkniefni sem hann kvaðst ekki hafa neitt með að gera. Hann væri í farbanni og óttist að vera handtekinn og settur í fangelsi í 15-20 ár fyrir þátttöku sína í mótmælum, verði honum gert að snúa til baka. Hann og fjölskylda hans hafi öll verið skráð í kúrdaflokkinn og margir fjölskyldumeðlima hans verið myrtir. Kærandi hafi átt frænda sem hafi verið talinn hryðjuverkamaður og hann hafi verið myrtur af yfirvöldum. Kærandi kvað alla fjölskylduna hafa á sér ákveðið orðspor bæði vegna þess að þau væru Kúrdar en einnig vegna tengsla við umræddan frænda. Kærandi kvað meðlimi fjölskyldunnar hafa ítrekað verið sakaða um fíkniefnavörslu og dæmda í fangelsi þess vegna. K greindi frá því að það væri erfitt fyrir hana og M að búa saman í Tyrklandi vegna þess að hún sé tyrknesk og M sé Kúrdi. Vegna þessa yrði erfitt fyrir þau að eignast börn og búa í Tyrklandi. K kvaðst telja að ef þau myndu snúa til baka þá yrði maðurinn hennar fangelsaður fyrir hryðjuverkaáróður.

Með tölvubréfi, dags. 9. mars 2026, óskaði kærunefnd eftir ítarlegri upplýsingum frá talsmanni M. Óskað var eftir frekari upplýsingum um atvik sem M greindi frá í efnisviðtali, þar sem hann greindi frá því að hann og fjölskylda hans hafi öll verið skráð í kúrdaflokkinn og að fjölskylda hans hafi verið myrt, sem og um atvik er varðaði frænda M, sem M kvað að hefði verið bendlaður við hryðjuverk og myrtur. Auk þess var óskað eftir frekari upplýsingum um flokksaðild M. Þá var óskað eftir að dómar sem M hlaut eftir 18 ára aldur yrðu lagðir fram, auk sakavottorðs og hjónavígsluvottorðs. Ekki bárust svör frá talsmanni M.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði M fram afrit af gögnum sem hann kveður vera dóma tyrkneskra dómstóla í máli gegn honum. Samkvæmt þýðingu er annars vegar um að ræða dóm sem kveðinn var upp þann 20. apríl 2015 vegna brota dags. 10. ágúst 2011, þegar M hafi verið 14 ára, og hins vegar um að ræða dóm sem kveðinn var upp þann 8. júlí 2015 vegna brota dags. 21. apríl 2015, þegar M hafi verið 17 ára. Fyrri dómurinn snýr að þjófnaðarbroti sem M hafi verið sakfelldur fyrir og dæmdur til 10 mánaða fangelsisvistar en refsingunni breytt í sektargreiðslu vegna ungs aldurs hans. Síðari dómurinn snýr að skemmdarverkum á eignum til almenningsnota og hindrun opinberra embættismanna við skyldustörf. Fram kemur að M hafi setið í gæsluvarðahaldi 21.-22. apríl 2015. Málsatvikalýsing í dómnum ber með sér að bróðir M hafi verið viðriðin þau málsatvik sem sakargiftir snúa að. Af endurritinu verður ráðið að málið hafi verið sameinað öðru máli en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um það mál.

Í umfjöllun í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda, og séu skoðanirnar stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Í ljósi orðalags ákvæðisins, og með hliðsjón af því sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Framangreindir dómar eru afrit og er sönnunargildi þeirra því ekki óyggjandi. Í dómunum birtast upplýsingar um nafn M, fæðingardag, heimaborg og fæðingarborg, sem eru í samræmi við þær upplýsingar sem M hefur gefið upp í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Þá kemur fram nafn foreldra M; […] and […]. Fyrir liggur að auðkenni M sé hins vegar ósannað. Kærunefnd telur þó ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar að M hafi hlotið þá dóma sem endurritin bera með sér. Samkvæmt afriti af dómum þeim sem M hefur lagt fram er M gefið að sök þjófnaður, skemmdarverk á eignum til almenningsnota og hindrun opinberra embættismanna við skyldustörf. Umræddir dómar styðja við frásögn M um að hann verið handtekinn 2011 í tengslum við brot bróður hans, M hafi brotið rúðu og streist á móti lögreglu og verið dæmdur fyrir það. Þá hafi hann verið undir aldri. Í þessum gögnum má ekki sjá að M hafi verið ákærður eða dæmdur fyrir neitt sem tengist fíkniefnum, þátttöku í mótmælum né aðild að stjórnmálaflokk. M hefur greint frá því að vera aðili að kúrdaflokknum en hefur ekki lagt fram gögn því til stuðnings, eða hvaða flokk um sé að ræða. Ekki verður þó útilokað að M sé aðili að kúrdískum stjórnmálaflokki í heimaríki. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi tekið þátt í mótmælum á vegum kúrdísks stjórnmálaflokks. M kvaðst ekki hafa tekið þátt í starfi flokksins á annan hátt en að mæta á mótmæli. Þrátt fyrir að ekki sé hægt í ljósi framlagðra gagna og heimilda um stjórnarhætti í Tyrklandi að útiloka að M hafi á einhverjum tímapunkti verið handtekinn í kjölfar mótmæla, verður ekki lagt til grundvallar að hann hafi verið ákærður vegna þeirrar þátttöku eða að hann eigi yfir höfði sér handtöku. M hefur greint frá því að fjölskylda hans hafi sætt sérstakri mismunun vegna tengsla við frænda hans sem hafi verið bendlaður við hryðjuverk. Frásögn kæranda að þessu leyti var þó óljós, þrátt fyrir tækifæri til að gera betur grein fyrir atvikum er varða frænda hans, auk þess sem frásögn kæranda er ekki studd gögnum og verður hún því ekki lögð til grundvallar. Er það því mat kærunefndar að M hafi ekki sýnt fram á að hann sé undir sérstöku eftirliti stjórnvalda eða í aukinni hættu á að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvalda umfram aðra einstaklinga í heimaríki sem einnig hafa tekið þátt í mótmælum. Lítur kærunefnd við það mat til þess að heimildir beri með sér að fjöldi mótmæla eigi sér stað í Tyrklandi á hverju ári þar sem algengt sé að lögreglan handtaki fjölda fólks. Hins vegar séu það aðallega skráðir flokksmeðlimir DEM (áður HDP), sem séu skotspónn stjórnvalda, og þá helst forsvarsmenn flokksins, frambjóðendur til þings, lögmenn, blaðamenn, mannréttindasinnar, leikarar og söngvarar. Hefur kærandi því ekki leitt líkum að því að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna, sbr. b-lið 2.mgr. og e-lið 3.mgr. ákvæðisins.

M greindi frá því að lögreglan hafi oft stöðvað hann og beðið hann um að sýna skilríki þar sem hann sé Kúrdi. M greindi frá því að lögreglan hefði borið á hann og fjölskyldu hans rangar sakir því þau væru Kúrdar en M hefur ekki lagt fram gögn sem styðja frásögn hans. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að M sé af kúrdískum uppruna. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna að Kúrdar kunni að eiga á hættu einhverja mismunun í heimaríki M af þeirri ástæðu að þeir tilheyri þjóðarbrotinu. Ekkert í þeim gögnum gefur þó til kynna að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Líkt og áður hefur komið fram eru refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Þá geti einstaklingar er verði fyrir áreiti af hálfu aðila ótengdum ríkinu leitað til m.a. umboðsmanns og stofnunar mannréttinda og jafnréttismála (NHREI). Þó hlutleysi þeirra og skilvirkni hafi sætt gagnrýni verður ekki fallist á að Kúrdar sæti kerfisbundinni mismunun þar í landi eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1.mgr. 37. gr. laga um útlendinga eingöngu á grundvelli þjóðarbrots síns.

K hefur greint frá því að eiga á hættu mismunun vegna stöðu sinnar sem kona. Í því samhengi vísaði K til almennrar stöðu kvenna en greindi ekki frá atvikum sem hún hefði lent í persónulega annarra en að horft hafi verið skringilega á hana. Landaupplýsingar herma að konur njóti sömu lagalegu réttinda og karlmenn í Tyrklandi en mismunun eigi sér þó stað. K hefur einnig borið fyrir sig að hafa orðið fyrir mótlæti vegna sambands síns við M og að fjölskylda hennar hafi slitið tengsl við hana vegna þess. Nokkurs misræmis gætti milli kærenda um það hvenær þau hafi kynnst og hversu lengi samband þeirra hafi staðið. M kvað þau hafa kynnst í barnaskóla og að þau hafi verið í sambandi í um 10 ár en hafi ekki verið í samþykktu sambandi nema í um það bil níu mánuði þar sem fjölskylda K væri mótfallin sambandi þeirra. K kvað þau hafa kynnst árið 2018 þar sem þau hafi búið í sama hverfi. Fjölskyldur þeirra beggja hafi verið á móti sambandinu, og það væri helst vegna þess að þau tilheyri sitthvorum þjóðfélagshópnum. K kvað þau hafa gift sig trúarlega 24. júní 2024. Engin gögn liggja fyrir um samband M og K en fyrir liggur að þau eignuðust saman barn 2. desember 2025. Í ljósi málsatvika og frásagnar kærenda telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur hafi átt í sambandi um árabil. Í ljósi frásagnar þeirra og landaupplýsinga er heldur ekki ástæða til að draga í efa að kærendur hafi mætt mótlæti vegna sambands síns. Að mati kærunefndar nær sú mismunun þó ekki því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur barni kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barns þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að M eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Tyrklands með vísan til almenns ástands í landinu.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra leiði til þess að kærendur eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærendur til baka.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindur kærendur frá því að hafa verið búsett í […] hverfinu í borginni Merzin, sem tilheyrir samnefndu héraði í suðurhluta Tyrklands, þegar þau yfirgáfu heimaríki. Kvaðst M eigi rætur að rekja til borgarinnar […], sem tilheyrir samnefndu héraði í suðausturhluta Tyrklands. Með vísan til framangreindra heimilda nær ástandið á heimasvæðum kærenda ekki því alvarleikastigi að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærendur séu í raunverulegri hættu, á heimasvæðum sínum, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur til Tyrklands.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og barn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

M kvaðst vera við góða heilsu en hafa áður glímt við slæma andlega heilsu vegna þess sem hann hefði upplifað. Kvaðst hann hafa skaðað sjálfan sig og gert sjálfsvígstilraunir. Engin heilsufarsgögn liggja fyrir í málinu. K hefur greint frá því að vera við góða heilsu. Af framburði kærenda verður ekki séð að þau glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá Almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Geta kærendur því leitað eftir heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu í heimaríki sínu. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur hafa greint frá því að eiga nokkurt bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barns þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda og aðstæðna barna almennt í Tyrklandi í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Öll börn í Tyrklandi eiga rétt á að ganga í skóla og lýkur skólaskyldu barna við 18 ára aldur og börn hafa aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Hvorki almennar aðstæður í Tyrklandi né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barns þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða barn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem samþykkt voru á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 25. október 2024 annars vegar og 28. október hins vegar, og barn þeirra fæddist [...]. Hafði málsmeðferð í máli þeirra því ekki náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku framangreindra breytingalaga og á ákvæðið því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barns þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi M greindi frá því að eiga frænda hér á landi.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barns þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barns þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir